Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tveir tapleikir hjá Íslandi Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði í gær fyrir Svíum með tólf stiga mun á Norðurlandamótinu í körfubolta sem fram fer í Finnlandi þessa dagana. Íslenska liðið tapaði fyrir heimamönnum í fyrsta leik liðsins á mótinu í fyrradag. 4.8.2006 15:45
Stórt skref úr bankanum í atvinnumennskuna en sé ekki eftir neinu Sverre Jakobsson lætur vel af atvinnumannalífinu í Gummersbach en hann gekk í raðir liðsins í sumar frá Fram. Sverre er enn að venjast því að líta á handboltann sem vinnuna sína. 4.8.2006 15:15
Pascal Chimbonda alls ekki sáttur við Wigan Franski bakvörðurinn Pascal Chimbonda er orðinn mjög pirraður út í félag sitt Wigan sem heimtar háa greiðslu frá Tottenham, vilji þeir kaupa hann. Tottenham hafa boðið tvisvar í Chimbonda sem sló í gegn með spútnikliði Wigan á síðasta tímabili eftir að hann kom frá Bastia fyrir fjögur hundruð þúsund pund fyrir ári síðan. 4.8.2006 14:30
Langar enn á heimaslóðir Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hefur ítrekað áhuga sinn á því að spila á Englandi fyrr eða síðar en hinn 25 ára gamli miðjumaður leikur með Bayern München. Hargreaves stóð sig vel á HM í sumar og þrátt fyrir að líða vel hjá Bayern langar hann til að spila í heimalandi sínu. 4.8.2006 14:00
Kominn til Ferrari? Finnski ökuþórinn Kimi Raikkonen hefur skrifað undir fimm ára samning við Ferrari samkvæmt Ilta-Sanomat í Finnlandi. Dagblaðið hefur þetta eftir mjög öruggum heimildum og segja að Raikkonen fái 32 milljónir Evra á hverju ári fyrir samninginn. Michael Schumacher hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort hann hætti eða haldi áfram en hann mun tilkynna það eftir mánuð, þegar keppt verður á Monza, heimavelli Ferrari. 4.8.2006 13:45
Ivanov dæmir í Laugardalnum Knattspyrnusamband Evrópu hefur gefið út hver dæmir leik Íslands og Danmerkur í undankeppni EM 2008 þann 6. september næstkomandi en leikurinn fer fram á Laugardalsvellinum. Hlutverkið fær hinn 42ja ára gamli Nikolai Ivanov frá Rússlandi sem hefur verið alþjóðlegur FIFA-dómari í sex ár. Í þeim þremur leikjum sem hann dæmdi í undankeppni HM 2006 gaf hann alls átta gul spjöld og ekkert rautt. 4.8.2006 13:30
Gæti misst af Spánarleiknum Kristján Örn Sigurðsson meiddist illa á ökkla í leik Brann og Lilleström í norsku úrvalsdeildinni á miðvikudagskvöldið. Hann lenti illa eftir skallaeinvígi og þó svo að hann hafi reynt að halda áfram eftir það varð fljótlega ljóst að hann væri ekki í standi til þess. 4.8.2006 13:00
Fyrstu skrefin lofa góðu Varnarmaðurinn Gunnar Þór Gunnarsson er búinn að stíga sín fyrstu skref í atvinnumennskunni en hann er hjá Hammarby sem er á toppnum í Svíþjóð. 4.8.2006 13:00
Ég vil alls ekki fara frá Barcelona Ronaldinho hefur verið orðaður við metsölu til AC Milan á Ítalíu undanfarnar vikur. Fjölmiðlar héldu því fram að Mílanóliðið væri tilbúið til að borga 85 milljónir punda fyrir brasilíska töframanninn sem er samningsbundinn Barcelona til ársins 2014. Þrátt fyrir að vera upp með sér yfir áhuga Milan segir Ronaldinho að hann sé ánægður hjá Barcelona og vilji ekki fyrir nokkra muni yfirgefa félagið. 4.8.2006 12:30
Brjálaður út í William Gallas Jose Mourinho, stjóri Chelsea, er alls ekki sáttur við framkomu Frakkans William Gallas sem mætti ekki til London fyrir för liðsins til Bandaríkjanna. Treyjunúmer Gallas hefur verið tekið af honum og gefið Michael Ballack en sá franski var löngum orðinn ósáttur með að þurfa að fylla upp í vinstri bakvarðarstöðuna síðasta tímabil. 4.8.2006 12:00
Bjóða aftur í Dirk Kuyt Liverpool ætla að gera annað tilboð í hollenska framherjann Dirk Kuyt á allra næstu dögum en Feyenoord hefur þegar hafnað einu tilboði ensku bikarmeistaranna í sóknarmanninn. 4.8.2006 11:30
Áfall fyrir Svía Djurgården féll úr leik í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar eftir 3-1 tap á útivelli fyrir slóvakíska liðinu Ruzomberok. Djurgården vann heimaleikinn, 1-0, og hefði því þurft að skora eitt mark til viðbótar. Sænskt lið hefur nú ekki komist í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í sex ár, síðan Helsingborg tókst það árið 2000. Tap Djurgården er mikið áfall fyrir sænska knattspyrnu. Kári Árnason kom inn á sem varamaður á 77. mínútu. 4.8.2006 11:00
Að færast nær United? Manuel Pellegrini, þjálfari Villareal, viðurkennir að Marcos Senna færist skrefinu nær Manchester United með dögunum sem líða. Sir Alex Ferguson vonast eftir öðrum miðjumanni í kjölfarið á kaupunum á Michael Carrick en hinn þrítugi Senna var í landsliði Spánverja á HM í sumar. 4.8.2006 10:00
Þungur róður framundan hjá Öster Helgi Valur Daníelsson er loksins byrjaður að spila með sænska úrvalsdeildarliðinu Öster á nýjan leik en hann var frá í þrjá mánuði vegna meiðsla í nára. Meiðslin ná reyndar mun lengra aftur þar sem hann lék flesta leiki liðsins áður en deildin fór í HM-frí meiddur á nára. 4.8.2006 09:30
Öruggur sigur Hammarby Sænska úrvalsdeildariðið Hammarby vann í gær öruggan 3-1 sigur á botnliði Örgryte á útivelli í gær. Pétur Marteinsson og Gunnar Þór Gunnarsson voru að vanda báðir í byrjunarliði Hammarby í gær og léku þeir allan leikinn. Örgryte, sem hefur ekki unnið leik það sem af er sænsku úrvalsdeildinni, komst reyndar yfir í leiknum og hélt forystunni allt fram í síðari hálfleikinn þar sem topplið Hammarby tók til sinna valda og skoraði þrívegis. Pétur og Gunnar Þór fengu báðir að líta gula spjaldið í leiknum í gær. 4.8.2006 09:00
Tap gegn Færeyingum Íslenska U17 ára landslið Íslands tapaði fyrir heimamönnum í Færeyjum á opna Norðurlandamótinu í gær. Leikar enduðu 2-0 en Danir sigruðu í riðlinum með sjö stig úr leikjunum þremur, Finnar urðu í öðru sæti með fjögur en síðan komu Íslendingar og Færeyjingar með þrjú stig. 4.8.2006 08:00
Átta leikir í 10 marka mun eða meira Mikið hefur verið rætt að undanförnu um þá stöðu sem upp er komin í kvennafótboltanum hér á Íslandi. Nokkurrar óánægju gætir meðal stuðningsmanna, áhugamanna og jafnvel þjálfara liða í deildinni með mótafyrirkomulag Íslandsmótsins vegna þeirrar þróunar sem íþróttin hefur tekið. 3.8.2006 21:57
Blikastúlkur í víkíng Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks í kvennafótboltanum halda nú um verslunarmannahelgina til Austurríkis þar sem liðið mun taka þátt í Evrópukeppni félagsliða. 3.8.2006 21:42
Nýju stjörnurnar komnar á kreik Real Madrid lék í kvöld æfingaleik við Reggina Calcio á Arnold Schwarzenegger leikvanginum í Graz í Austurríki. Real sigraði leikinn 1-0 með marki frá Raul á 15. mínútu. Ekki voru kjöraðstæður til knattspyrnuiðkunar, grenjandi rigning var í Graz í kvöld eins og myndirnar sýna. Meðfylgjandi myndaalbúm sýnir stjörnurnar í leiknum. 3.8.2006 21:01
Slakur dagur hjá Michelle Wie Fyrsta umferðin í Opna breska meistaramóti kvenna í golfi stendur nú yfir á Royal Lytham og St Annes golfvellinum. Það er Juli Inkster frá Bandaríkjunum sem leiðir á sex höggum undir pari og hefur hún lokið hringnum. Michelle Wie hefur ekki náð sér á strik. 3.8.2006 19:43
Ungstirni Ekvador til Wigan Forráðamenn Wigan hafa staðfest að Luis Antonio Valencia ,einn efnilegast leikmaður Ekvador, hafi ákveðið að ganga til liðs við félagið. Þeir fá leikmanninn að láni í eitt ár frá spænska liðinu Villareal. 3.8.2006 18:04
Ísraelar og Palestínumenn sameinast í knattspyrnu Þó að Ísraelar og Palestínumenn eldi grátt silfur saman Þá sameinast ungmenni þjóðanna í knattspyrnu. Friðarliðið, sem er skipað leikmönnum undir 16 ára aldri frá Ísrael og Palestínu, tekur þátt í svissneska undir 16 ára mótinu sem fram fer í Sviss og Líkteinstein. 3.8.2006 17:24
Vill aftur til Englands Fótbolti Danski knattspyrnumaðurinn Thomas Gravesen vill leika í ensku úrvalsdeildinni á nýjan leik. Þetta sagði umboðsmaður hans, John Sivebaek, í samtali við fréttavef BBC í gær. 3.8.2006 16:00
Veigar Páll valinn í landsliðið á nýjan leik Samkvæmt frétt sem birtist á heimasíðu norska úrvalsdeildarfélagsins Stabæek í gær hefur Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu valið Veigar Pál Gunnarsson í íslenska landsliðið sem mætir Spánverjum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli þann 15. ágúst. 3.8.2006 15:00
Æft skítabrögðin lengi Eftirfarandi setningar birtust á bloggsíðu Daníels Hjaltasonar, framherja Víkings: Oft hafa menn hótað að fótbrjóta mig í leik en alltaf í einhverjum æsingi og í hita leiks. Þeir hafa aldrei staðið við það eða einu sinni verið nálægt því. Einn hótaði mér því sallarólegur og yfirvegaður. Hann ætlaði einnig að bíða eftir mér á bílastæðinu eftir leik og drepa mig. Hann kallaði mig einnig aumingja og lélegan leikmann. (...) Kemur næst Mete. Hann kleip líka á mig risamarblett og barði mig í bringuna af öllu afli. (27. júlí 2006) 3.8.2006 14:30
Miðasala hafin Þann 15. ágúst mæta Spánverjar til leiks á nýjum og endurbættum Laugardalsvelli en samkvæmt upplýsingum KSÍ ætla Spánverjar að stilla upp sínu sterkasta liði, meginþorra þeirra leikmanna sem spiluðu á HM í sumar. Íslenski hópurinn verðir tilkynntur á þriðjudaginn í næstu viku. 3.8.2006 14:30
Ætlaði að drepa mig á bílastæðinu Guðmundur Viðar Mete var í fyrradag dæmdur í eins leiks bann fyrir framkomu sína í leik ÍA og Keflavíkur. Hjörtur Hjartarson ber Guðmundi miður góða sögu og það gera einnig fleiri framherjar í efstu deild. 3.8.2006 13:30
Malmö vill halda Ásthildi áfram á næsta ári Ásthildur Helgadóttir hefur átt góðu gengi að fagna með sænska úrvalsdeildarliðinu Malmö FF í sumar. Hún er næstmarkahæsti í deildinni, með tólf mörk, en liðið er í þriðja sæti deildarinnar. Þjálfari Malmö, Jörgen Petersson, segir að Ásthildur eigi sér fáar eins líka. "Ég trúi ekki að ég geti fundið marga betri framherja í heiminum í dag," sagði Petersson í samtali við Sydsvenskan í gær. 3.8.2006 13:00
Legia sterkari en FH Íslandsmeistarar FH eru úr leik í Meistaradeildinni eftir tap gegn Legia frá Varsjá í gær. Pólska liðið skoraði tvö mörk, eitt í hvorum hálfleik en Daði Lárusson varði vítaspyrnu í síðari hálfleiknum en Legia fór áfram samanlag 3-0. 3.8.2006 13:00
Zlatan sagði já við Milan Samkvæmt Gazetta dello Sport á Ítalíu mun sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic vera á leið til AC Milan frá Juventus. Hann mun hafa játað tilboði þeirra en hvort Juventus sé tilbúið að selja leikmanninn á enn eftir að koma í ljós. Juventus var fyrir skömmu dæmt niður í B-deildina á Ítalíu og hefur misst hverja stórstjörnuna á fætur annarri, nú síðast Patrick Vieira til Inter Milan. 3.8.2006 12:15
Sverrir Björnsson verður Sverre Jakobsson: handboltakappinn útskýrir nafnaruglið Sverre Jakobsson gekk í raðir Gummersbach í sumar frá Fram. Á Íslandi var hann reyndar þekktur undir nafninu Sverrir Björnsson en hann hefur nú ákveðið að leggja það nafn á hilluna. 3.8.2006 12:00
KSÍ herðir refsingar fyrir fordóma Knattspyrnusamband Íslands mun herða refsingar fyrir kynþáttafordóma í íslenska boltanum fyrir næsta sumar. Vegna nýrra reglna FIFA verður KSÍ að bregðast við sem Geir Þorsteinsson segir að sé þegar í skoðun. 3.8.2006 11:30
KR burstaði FH Þrír leikir fóru fram í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi en þar með lauk elleftu umferð deildarinnar sem hófst með sigri Breiðabliks á Valsstúlkum í fyrrakvöld. Í leikjunum þremur voru skoruð 22 mörk en 275 mörk hafa nú verið skoruð í deildinni í ár. 3.8.2006 11:00
Hættur með botnlið ÍBV Guðlaugur Baldursson sagði starfi sínu lausu hjá ÍBV í gærkvöldi en Heimir Hallgrímsson, sem var Guðlaugi innan handar við þjálfun liðsins, er nú tekinn við Eyjaskútunni. 3.8.2006 10:00
Alexander tognaður Handboltakappinn Alexander Petersson verður frá keppni í þrjár til fimm vikur vegna tognunar. Landsliðsmaðurinn missir því líklega af byrjun tímabilsins með Grosswaldstadt í Þýskalandi en fyrsti leikurinn verður háður eftir þrjár vikur. 3.8.2006 09:00
Jakob í 14. sæti í Búdapest Jakob Jóhann Sveinsson, sundkappi úr Ægi, setti nýtt og glæsilegt Íslandsmet í gær í 200 metra bringusundi á Evrópumeistaramótinu sem nú fer fram í Búdapest. Jóhann synti á 2 mín. 14.70 sek. og bætti þriggja ára gamalt Íslandsmet sitt um hálfa sekúndu. Hann varð fimmtándi í undanrásunum og komst í úrslitasundið sem synt var í gær. Þar synti hann á 2 mín. 15.11 sek. og var 41/100 úr sek. frá Íslandsmetinu en hann var 1.39 sek. frá því að komast í úrslit. Árni Már Árnason úr Ægi varð 38. af 41 keppenda á 2 mín. 20.72 sek. 3.8.2006 08:00
Heimir Hallgrímsson tekinn við Stjórn Knattspyrnudeildar ÍBV-íþróttafélags og Guðlaugur Baldursson hafa komist að samkomulagi um að rifta samningi þeim sem er í gildi milli viðkomandi aðila að beiðni þess síðar nefnda. Heimir Hallgrímsson tekur við og stjórnaði hann fyrstu æfingu liðsins nú í kvöld. 2.8.2006 21:07
FH úr leik í meistaradeildinni FH tapaði í kvöld 2-0 fyrir Pólska liðinu Legia Varsjá og samanlagt 3-0 í tveimur viðureignum. Pólverjarnir léku mun betur og sigur þeirra var aldrei í hættu. 2.8.2006 21:06
Schumacher er seigur í boltanum Michael Schumacher sést hér í góðgerðarknattspyrnuleik sem fór fram á Ferenc Puskas vellinum í Budapest í Ungverjalandi. Þar áttust við ökuþórar úr Formúlu 1 og ungverska stjörnuliðið. Fjórir dagar eru nú þangað til ungverski kappaksturinn hefst. 2.8.2006 20:39
Maraþon amma Judy Crowson hefur náð áfanga sem fáir geta stært sig af. Hún hefur lokið maraþonhlaupi í öllum sjö álfum heimsins. Crowson er 61 árs gömul, þriggja barna móðir og átta barna amma. Hún kláraði sjöundu og síðustu álfu sína 2. júlí síðastliðinn. Hún tók meðal annars þátt í Reykjarvíkurmaraþoninu í fyrra og lenti í 292. sæti á tímanum 5:50:01. 2.8.2006 19:52
Bayern sigraði í 4-1 í vítaspyrnukeppni Bayern Munich sigraði Shalke 04, á Allianz Arena vellinum í Munich, í seinni undanúrlitaleiknum í þýska deildarbikarnum. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni, sem endaði 4-1 fyrir Bayern, eftir að hvorugu liðinu tókst að skora í venjulegum leiktíma. Í fyrri leiknum sem fram fór í gær sigraði Werder Bremen Hamburg. Það verða því Bayern Munich og Werder Bremen sem mætast í úrslitum. 2.8.2006 19:40
Sóknarboltinn í fyrirrúmi Hið árlega Amsterdam mót, sem knattspyrnuliðið Ajax heldur í Hollandi, verður um Verslunarmannahelgina. Það eru evrópsku stórliðin Manchester United, Inter Milan og Porto sem taka þátt auk Ajax. Leiknir verða fjórir leikir á mótinu og verða þeir allir í beinni á Sýn. Liðin fá stig fyir hvert mark og því verður sóknarleikurinn í hávegum hafður. 2.8.2006 18:10
Ballack viss um gott samband við Lampard Michael Ballack, nýi miðjumaðurinn í stjörnum prýddu liði Chelsea á komandi leiktíð er viss um að hann og Frank Lampard eigi eftir að ná vel saman á miðjunni hjá Chelsea í vetur. 2.8.2006 15:46
Vieira kominn til Inter á 6,5 milljónir punda Patrick Vieira, fyrrum leikmaður Arsenal hefur gengið til liðs við Inter Milan frá Juventus á Ítalíu fyrir 6,5 milljónir punda og þar með bundið enda á vonir Manchester United um að fá leikmanninn. 2.8.2006 15:42
Gravesen á leið aftur í enska boltann? Umboðsmaður Tomas Gravesen hefur viðurkennt að Real Madrid vilji losna við þennan fyrrum leikmann Everton og að endurkoma í ensku úrvalsdeildina sé líkleg. 2.8.2006 15:37
Landsliðsmenn buðust til að ræða við Craig: „Var ekki að fara grátbiðja hann í annað sinn“ Körfubolti