Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gott en við þurfum að gera betur Guus Hiddink, þjálfari Ástralíu segir að lið sitt hafi verið að gera góða hluti í leiknum við Holland en leikurinn fór 1-1. Samt segir hann að ýmislegt þurfi að laga og menn verða að gera betur. Hann hafði þetta að segja um málið. 5.6.2006 15:27
Ástildur á skotskónum Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins og leikmaður Malmö FF skoraði annað mark liðsins sem sigraði Bálinge 2-0 á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Dóra Stefánsdóttir leikur einnig með liðinu. 5.6.2006 15:04
Holland Evrópumeistari U-21 árs Holland varð í gær Evrópumeistari U-21 árs landsliða. Holland sigraði Úkraínu 3-0 í úrslitaleik en leikið var í Porto í Portúgal. 5.6.2006 14:57
Everton vilja fara betur yfir mál Lescott Everton vilja taka sér lengri tíma til að fara yfir málin í sambandi við Joleon Lescott, leikmann Wolves. Búið er að ganga frá öllu og bíða menn þess að þessi 23 ára gamli varnarmaður skrifi undir hjá Everton. Hann er búinn að fara í gegnum læknisskoðun og ræða sín persónulegu mál við Everton. En hann er ekki búinn að skrifa undir neinn samning. Jez Moxye, framkvæmdarstjóri Wolves segir boltann hjá Everton. 5.6.2006 14:53
Robson hefur trú að enska liðið fari alla leið Bryan Robson, fyrrum fyrirliði enska landsliðsins segir að hann hafi trú að enska liðið geti farið alla leið á HM í sumar. Hann telur að Steven Gerrard verði lykilmaðurinn í liði þeirra á þessu móti 5.6.2006 14:47
Nú sagður á leið til Manchester United Breska blaðið Daily Mail fullyrðir að Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United muni leggja fram tilboð í Eið Smára Guðjohnsen hjá Chelsea. Blaðið segir að Ferguson muni leggja fram átta milljóna punda tilboð í landsliðsfyrirliða Íslands. 5.6.2006 14:11
Atletico Madrid hefur áhuga að fá Materazzi Samkvæmt Ítalska blaðinu La Gazzetta dello Sport þá hefur Atletico Madrid áhuga að fá Marco Materazzi, leikmann Inter og Ítalska landsliðsins til sín. Villarreal hafði áður sýnt þessum 32 ára gamla leikmanni áhuga. 5.6.2006 14:00
United, Newcastle og Spurs vilja fá Martins Þrjú ensk lið, Manchester United, Newcastle United og Tottenham Hotspur hafa áhuga að fá Obafemi Martins, leikmann Inter að láni fyrir næstu leiktíð. Eins og við sögðum frá um helgina ætla Inter að lána leikmanninn þar sem þeir eru með of marga leikmenn frá löndum utan Evrópu. 5.6.2006 11:38
Heinze segist vera orðinn góður Gabriel Heinze, leikmaður Manchester United og Argentínska landsliðsins segist vera orðinn góður af meiðslum og verði tilbúinn í fyrsta leiknum með Argentínu á HM sem byrjar í næstu viku. Leikmaðurinn hefur ekkert leikið síðan í september. 5.6.2006 11:35
Meiðsli hjá Hollandi Þrír leikmenn Hollands eru meiddir en þetta eru þeir Wesley Sneijder sem er meiddur á ökkla eins og Giovanni van Bronckhorst. Svo er það Philip Coco sem meiddist á læri. Þeir meiddust í 1-1 leiknum við Ástralíu um helgina. 5.6.2006 11:33
Scolari hefur áhyggjur af Ronaldo Luis Felipe Scolari, landsliðsþjálfari Portúgals hefur áhyggjur af Christiano Ronaldo en leikmaðurinn hefur verið að sýna skapofsa og láta allt og alla fara í taugarnar á sér. Hann lét til sín taka í vináttuleik gegn Luxemborg um helgina þar sem hann tók einn leikmann Luxemborgar hálfstaki eftir að sá hinn sami braut á Ronaldo. 5.6.2006 11:29
Crespo vill ekki gera nýjan samning við Chelsea Hernan Crespo, leikmaður Chelsea hefur ekki áhuga að gera nýjan samning við félagið. Núverandi samningur rennur út árið 2008. 5.6.2006 11:26
Defoe fer til Þýskalands Sven-Göran Eriksson, þjálfari enska landsliðsins hefur staðfest að Jermain Defoe fer með liðinu til Þýskalands. Enn á eftir að koma í ljós hvort Wayne Rooney verður með en það kemur í ljós á miðvikudaginn hvernig staðan er á honum. 5.6.2006 11:23
Shaun Wright Phillips veðjar á Cole og Crouch Shaun Wright Phillips, leikmaður Chelsea veðjar á að þeir Joe Cole og Peter Crouch eigi eftir að verða innblásturinn fyrir enska liðið á HM í sumar. Þessi snaggaralegi leikmaður var ekki valinn í hópinn fyrir HM í sumar. Hann hafði þetta að segja. 5.6.2006 11:20
Marco bíður eftir frekari fregnum af Rafael Það ræðst á morgun hvort hollenski landsliðsmaðurinn Rafael van der Vaart getur tekið þátt í Heimsmeistarakeppninni í sumar. 5.6.2006 11:12
Geisli sigraði af öryggi í Gusti Gæðingakeppni Gusts, sem jafnframt var úrtaka fyrir Landsmót, fór fram nú um helgina. Þátttaka var góð og keppnin hörð enda mikið í húfi. Þekktir gæðingar sigruðu í A – og B flokki, en sigurvegari síðasta Landsmóts Geisli frá Sælukoti sýndi hvers megnugur hann og knapi hans Steingrímur Sigurðarson geta verið þegar þeir hreinlega rúlluðu upp úrslitakeppninni og hlutu meteinkunn 9,16 og mikið lófatak frá áhorfendum. 4.6.2006 20:28
Verður Eiður Smári fyrstu kaup Sir Alex í sumar? Enska blaðið Daily Mail birtir í dag frétt á vefsíðu sinni um að Sir Alex Ferguson sé að fara að kaupa Eið Smára Guðjohnsen frá Chelsea fyrir 8 milljónir enska punda eða rúman milljarð íslenskra króna. Samkvæmt heimildum blaðsins vill Eiður Smári frekar spila áfram í ensku úrvalsdeildinni fremur en að fara til Spánar en vitað er af miklum áhuga Evrópumeistara Barcelona á landsliðsfyrirliðanum. Vætanlega verður gengið frá kaupunum í næstu viku. 4.6.2006 20:04
Guðmundur Norður-Evrópumeistari í borðtennis Guðmundur Stephensen varði titil sinn á Norður-Evrópumótinu í borðtennis sem fram fór hér á landi um Hvítasunnuhelgina. Guðmundur vann félaga sinn í tvíliðaleik Lukas Ryden frá Svíþjóð 4-1 í úrslitaleiknum sem saman unnu þeir félagar bronsverðlaun í tvíliðaleiknum. Það sáust frábær tilþrif um helgina og fengu áhorfendur í TBR húsinu mikið fyrir sinn snúð. 4.6.2006 19:47
Kvennalandsliðið komst ekki inn á EM Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði með þremur mörkum fyrir Makedóníu, 27-24, í síðari umspilsleik liðanna um sæti í Evrópumótinu í desember. Makedónía vann fyrri leikinn með fimm mörkum í Laugardalshöllinni, 28-23, og einvígið því með átta marka mun. Hrafnhildur Skúladóttir var markahæst í íslenska liðinu með sex mörk og skoraði því 15 mörk í leikjunum tveimur. 4.6.2006 19:38
„Pele hvatti mig til að velja Walcott“ Sven Göran Eriksson benti á hinn unga Pele sem kom fram í Heimsmeistarakeppninni árið 1958 sem ástæðu fyrir því að velja hinn unga Theo Walcott. 4.6.2006 19:20
Cahill skoraði í endurkomunni Tim Cahill gladdi Guus Hiddink þjálfara Ástralíu er hann skoraði í sínum fyrsta leik eftir meiðsli í 1-1 jafnteflisleik gegn Hollendingum. Cahill hefur verið meiddur frá því að hann skaddaði hné gegn Birmingham í apríl og Everton hafa hvatt ástralska landsliðið til að fara varlega með hann. 4.6.2006 19:15
Brasilíumenn skoruðu fjögur mörk gegn Nýja-Sjálandi Brasilía vann Nýja-Sjáland 4-0 í æfingaleik í Genf í Sviss í dag en þetta var lokaleikur heimsmeistaranna fyrir HM sem hefst á föstudaginn. Ronaldo, Adriano, Kaka og Juninho skoruðu mörkin en staðan var 1-0 í hálfleik. Þetta var viðburðarríkur dagur fyrir Che Bunce, fyrrum leikmann Breiðabliks, en hann kom inn á sem varamaður í fyrri hálfleik og var síðan borin alblóðugur af velli í þeim seinni. 4.6.2006 19:04
Dallas Mavericks er loksins komið í NBA-úrslitin Dallas Mavericks er loksins komið í NBA-úrslitin í körfubolta eftir 102-93 sigur á Phoenix í sjötta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem Dallas-liðið kemst svo langt en liðið hefur margoft verið líklegt til afreka á undanförnum árum. Dallas vann seinni hálfleikinn 63-42 og í fyrsta sinn í 35 ár munu tveir nýliðar því berjast um NBA-titilinn því bæði Dallas og mótherjar þeirra Miami eru komin í úrslitin í fyrsta sinn. 4.6.2006 12:41
Crouch byrjar inn á Sven-Göran Eirksson, landsliðsþjálfari Englands segir að hann muni láta Peter Crouch byrja inná í fyrsta leik liðsins á HM sem verður gegn Paragvæ 10 júní n.k. Eriksson var ánægðir með frammistöðu leikmannsins sem gerði 3 mörk í 6-0 sigri á Jamaíka í gær. 4.6.2006 11:55
„Við viljum hefna fyrir HM 2002“ David Beckham, fyrirliði Englendinga, segir að enska liðið þrái að ná fram hefndum gegn heimsmeisturum Brasilíu í sumar. Englendingar töpuðu fyrir Brasilíumönnum 2-1 á HM fyrir fjórum árum og segir Beckham að enska liðið sé tilbúið til að hefna ófaranna. 4.6.2006 04:18
Terry og Cole ekki illa meiddir Meiðsli varnarmannana John Terry og Ashley Cole í 6-0 sigri Englendinga á Jamaica í gær eru ekki talin alvarleg. Ashley Cole þurfti að yfirgefa völlinn eftir að hafa fundið til í lærinu en eftir skoðun hjá læknum enska liðsins kom í ljós að aðeins var um að ræða smá tognun. 4.6.2006 04:11
Bonera verður áfram með Ítölum Ítalski þjálfarinn Marcello Lippi hefur ákveðið að halda Daniele Bonera í hópnum þar sem að Gianluca Zambrotta hefur átt við meiðsli að stríða undanfarið. Upphaflega komst Bonera ekki í 23-manna hópinn sem Lippi valdi fyrir Heimsmeistarakeppnina, nema þá bara í varahópinn. 3.6.2006 21:43
Kemst Dallas í NBA-úrslitin í fyrsta sinn í kvöld? Dallas Mavericks getur komist í NBA-úrslitin í fyrsta sinn í kvöld vinni liðið sjötta undanúrslitaleik Vesturdeildarinnar gegn Phoenix. Þjóðverjinn Dirk Nowitzki skoraði 50 stig í síðasta leik liðanna sem Dallas vann 117-101 en hann skoraði þá tveimur stigum meira en allt Suns-liðið í fjórða leikhlutanum. Leikurinn í kvöld fer fram á heimavelli Phoenix, hefst klukkan hálf eitt og verður í beinni útsendingu á Sýn. 3.6.2006 18:27
Valsstelpur unnu toppslaginn stórt Valur vann toppslag Landsbankadeild kvenna gegn Breiðabliki 4-1 á Valbjarnarvelli í dag og er því áfram með fullt hús á toppnum. Þetta er fyrsta tap Breiðabliks í deildinni síðan í september 2004 en Blikastúlkur höfðu fyrir leikinn spilað 17 deildarleiki í röð án þess að tapa. Rakel Logadóttir skoraði tvö mörk fyrir Val og þær Málfríður Sigurðardóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir skoruðu hin mörkin. 3.6.2006 17:51
Rakel búin að skora tvö mörk í toppslagnum Rakel Logadóttir er búin að koma Valsstúlkum í 2-0 í toppslag Landsbankadeildar kvenna milli Vals og Breiðabliks sem fram fer þessa stundina á Valbjarnarvelli í Laugardal. Rakel skoraði fyrra markið á 13. mínútu leiksins eftir góðan undirbúning Violu Odebrecht sem er að leika sinn fyrsta leik með Valsliðinu og seinna markið skoraði Rakel síðan á 30. mínútu eftir sendingu Dóru Maríu Lárusdóttur. 3.6.2006 16:22
KR-konur burstuðu botnlið FH KR-konur unnu sinn annan leik í röð í Landsbankadeild kvenna þegar þeir unnu stórsigur á botnliði FH, 0-9 í Kaplakrika í dag. KR-liðið sem tapaði tveimur fyrstu leikjum sínum í mótinu hefur þar með unnið tvo leiki í röð, en FH-liðið hefur tapað öllum fjórum leikjum sínum með markatölunni 1-24. Olga Færseth skoraði þrennu fyrir KR-liðið í leiknum og þær Hólmfríður Magnúsdóttir og Katrín Ómarsdóttir skoruðu tvö mörk hvor. Öll mörk Olgu komu á síðasta hálftímanum í leiknum. 3.6.2006 15:38
Mourinho spáir Brasilíumönnum HM-titlinum Jose Mourinho, portúgalski knattspyrnustjóri Englandsmeistara Chelsea, spáir því að Brasilíumenn verji heimsmeistaratitilinn sinn á HM sem hefst um næstu helgi. Það yrði því í sjötta sinn sem Brasilíumenn yrðu heimsmeistarar. Mourinho vildi einnig vekja athygli landa sinna í Portúgal á því að Íranir gætu reynst erfiðir en þeir mæta einnig Mexíkó og Angóla í riðlakeppninni. 3.6.2006 15:21
Stórsigur Englendinga gefur tóninn fyrir HM Peter Crouch skoraði tvö mörk í seinni hálfleik og innsiglaði þar með 6-0 stórsigur enska landsliðsins á Jamaíku í lokaleik sínum fyrir heimsmeistaramótið í Þýskalandi. Leikurinn fór fram á Old Trafford í dag og var kveðjuleikur Sven-Goran Eriksson á enskri grundu því hann hætti með liðið eftir HM. Fyrsti leikur Englands á HM verður gegn Paragvæ eftir nákvæmlega viku. 3.6.2006 14:52
Fjögur ensk mörk í fyrri hálfleik gegn Jamaíku Englendingar hafa skorað fjögur mörk í fyrri hálfleik í síðasta æfingaleik sínum fyrir HM í Þýskalandi sem hefst í næstu viku. Þeir Frank Lampard og Michael Owen skoruðu fyrsta og fjórða markið en í millitíðinni skoruðu Jamaíkamenn tvö sjálfsmörk eftir aukasppyrnu og hornspyrnu frá David Beckham. Leikurinn er í beinni á sjónvarpsstöðinni Sýn. 3.6.2006 13:45
KA og Þór sameinuð Viðæður eiga sér stað þessa dagana um sameiningu Þórs og KA í handboltanum. Hannes Karlsson, formaður handknattleiksdeildar KA, segir í samtali við heimasíðu félagsins að engin ákvörðun liggi fyrir en forsendan fyrir sameiningu er sú að keppt verði undir kennitölu KA enda sé KA með keppnisrétt í efri deildinni en Þór ekki. 3.6.2006 13:00
Þjóðverjar á sigurbraut í síðasta leiknum fyrir HM Þjóðverjar unnu Kólumbíumenn 3-0 í síðasta generalprufunni fyrir HM í Þýskalandi sem hefst á leik þeirra við Kosta Ríka á föstudaginn. Michael Ballack, Bastian Schweinsteiger og varamaðurinn Tim Borowski skoruðu mörkin í leiknum. Þjóðverjar unnu Lúxemborg 7-0, gerði 2-2 jafntefli við Japan og unnu Kolumbíu 3-0 í þremur síðustu leikjum sínum fyrir HM. 3.6.2006 12:55
Miami Heat komið í NBA-úrslitin í fyrsta sinn Miami Heat tryggði sér í nótt sæti í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í körfubolta í fyrsta sinn þegar liðið vann Detroit Pistons, 95-78, í sjötta leik liðanna á Flórída. Miami Heat vann þar með einvígið 4-2 en Pistons-liðið var með bestan árangur allra liða í NBA-deildinni í vetur. Shaquille O´Neal var með 28 stig, 16 fráköst og 5 varin skot í leiknum. 3.6.2006 12:29
England – Jamaíka á Sýn í dag Fjölmargir vináttuleikir eru á dagskrá í dag. Leikur Englands og Jamaíka verður sýndur á Sýn og hefst útsending klukkan 12.50. Sjá leiki dagsins í meira. 3.6.2006 11:22
„Nistelrooy er að hugsa um HM núna“ Arjen Robben, landsliðsmaður Hollands og leikmaður Chelsea segir að félagi sinn hjá landsliðinu Ruud van Nistelrooy sé aðeins núna að hugsa um HM en ekki hvar hann mun leika næstu leiktíð. 3.6.2006 11:13
Þjóðverjar unnu Kólumbíu Nokkrir vináttulandsleikir voru háðir í gær. Þjóðverja unnu öruggan sigur á Kólumbíu. Michael Ballack kom þjóðverjum yfir á 21 mín. Bastian Schweinsteiger kom með annað mark þeirra á 38 mín og þar var svo Tim Borowski skoraði þriðja mark leiksins og það síðasta á 70 mín. Önnur úrslit voru. 3.6.2006 11:07
Fer Defoe til Þýskalands? Allt bentir til þess að Jermain Defoe, sóknarmaður Tottenham verði með enska landsliðinu á HM í Þýskalandi sem byrjar eftir nokkrar daga. 3.6.2006 11:00
Baráttan um völdin á Valbjarnarvelli Í dag klukkan 16 taka Valsstúlkur á móti stöllum sínum frá Kópavogi þegar Breiðablik mætir í heimsókn á Valbjarnarvöllinn. Liðin eru í efsta sæti Landsbankadeildarinnar og má því búast við hörkuleik. 3.6.2006 11:00
Peter Crouch verður í byrjunarliðinu Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, mun að öllum líkindum snúa aftur í leikkerfið 4-4-2 í síðasta æfingaleik enska landsliðsins fyrir HM sem verður gegn Jamaika í dag. Peter Crouch skoraði gegn Ungverjalandi í vikunni eftir að hafa komið inn sem varamaður og verður líklegast í byrjunarliðinu og mun verða við hlið Michael Owen í fremstu víglínu. 3.6.2006 10:00
Býður á völlinn á Akureyri Leikur Íslands og Danmerkur á þriðjudaginn fer fram á Akureyri en það er fyrir tilstilli HSÍ og Flugfélags Íslands sem býður öllum Akureyringum á leikinn. 1500 miðar eru í boði og er hægt að nálgast þá á skrifstofu flugfélagsins á Akureyrarflugvelli frá klukkan 10.00 í dag. 3.6.2006 10:00
Drogba er ekki á förum fótbolti Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að Didier Drogba sé ekki á förum frá félaginu eins og orðrómur hefur verið um. Margir eru að tala um að Andriy kæmi inn og Drogba færi en það var aldrei, aldrei áætlunin. Þeir eru tveir framherjar með mjög mismunandi eiginleika, sagði Mourinho. 3.6.2006 09:00