Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óskar Örn kláraði Blika Grindvíkingar unnu ótrúlegan sigur á Breiðablik í Landsbankadeild karla á Kópavogsvelli í kvöld. Gestirnir komust yfir með marki frá Óla Stefáni Flóventssyni, en Marel Baldvinsson kom heimamönnum yfir með mörkum úr tveimur vítaspyrnum. Það var hinsvegar Ólafur Örn Hauksson sem stal senunni þegar hann skoraði tvö mörk á tveimur mínútum í lokin og tryggði Grindvíkingum dýrmætan sigur. 29.5.2006 21:03
Marel kemur Blikum yfir Marel Baldvinsson hefur komið Breiðablik yfir 2-1 gegn Grindavík á Kópavogsvelli, en mark hans kom úr vítaspyrnu á 70. mínútu, líkt og mark hans í fyrri hálfleiknum. Það var Óli Stefán Flóventsson sem kom gestunum á bragðið í fyrri hálfleik. Staðan í leik Vals og ÍA er 1-0 í hálfleik fyrir ÍA og þar var það Igor Pesic sem skoraði mark ÍA, nokkuð gegn gangi leiksins sem sýndur er beint á Sýn. 29.5.2006 20:46
Pesic kemur Skagamönnum yfir Igor Pesic hefur komið Skagamönnum yfir gegn Val í leik liðanna í Landsbankadeildinni. Pesic slapp einn innfyrir vörn Vals eftir að rangstöðugildra liðsins klikkaði illa og skoraði auðveldlega á 40. mínútu. Valsmenn höfðu fram að þessu verið betri aðilinn í leiknum og klúðraði Guðmundur Benediktsson sannkölluðu dauðafæri um miðjan hálfleikinn. 29.5.2006 20:39
Met hjá Rafael Nadal Spænski tennisleikarinn Rafael Nadal sló í kvöld met Argentínumannsins Guillermo Vilas frá árinu 1977 þegar hann skellti andstæðingi sínum Robin Soderling á opna franska meistaramótinu. Þetta var 54. sigur Nadal á leirvelli í röð, sem er afrek sem enginn tennisleikari í sögunni getur státað af í sögunni. 29.5.2006 20:30
Jafnt í hálfleik í Kópavogi Nú er kominn hálfleikur í viðureign Breiðabliks og Grindavíkur í Landsbankadeildinni og er staðan jöfn 1-1. Óli Stefán Flóventsson kom gestunum yfir á 19. mínútu, en Marel Baldvinsson jafnaði leikinn skömmu áður en flautað var til hlés með marki úr vítaspyrnu. Staðan í leik Vals og ÍA er enn 0-0 en sá leikur er í beinni á Sýn. 29.5.2006 20:04
Gestirnir komnir yfir á Kópavogsvelli Óli Stefán Flóventsson hefur komið Grindvíkingum yfir í 1-0 gegn Breiðablik á Kópavogsvelli í fyrri leik kvöldsins í Landsbankadeildinni. Markið kom á 19. mínútu eftir að heimamenn gerðu sig seka um mistök í vörninni. Hægt er að fylgjast með gangi leiksins á Boltavaktinni hér á Vísi. 29.5.2006 19:38
Detroit með bakið upp að vegg Fjórði leikur Miami Heat og Detroit Pistons í úrslitaeinvígi Austurdeildarinnar fer fram í Miami í kvöld og verður sýndur beint á Sýn klukkan hálf eitt. Lið Detroit hefur verið skugginn af sjálfu sér í síðustu leikjum og ljóst er að liðið þarf virkilega að taka sig saman í andlitinu í kvöld ef ekki á illa að fara. 29.5.2006 18:55
Valur - ÍA í beinni á Sýn Tveir leikir fara fram í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Í Kópavogi taka Blikar á móti Grindvíkingum klukkan 19:15 og klukkan 20 mætast Valur og ÍA á Laugardalsvelli, en sá leikur verður sýndur beint á Sýn. 29.5.2006 18:30
Aldrei fleiri keppendur á Klaustri Hið árlega þolakstursmót á var haldið á Kirkjubæjarklaustri um nýliðna helgi og þar tóku þátt yfir 400 keppendur í þessari ört vaxandi íþrótt hér á landi. Ekið var í 6 tíma samanlagt og skiptust tveir menn á að sitja hjólið í brautinni, sem er gríðarleg þolraun. Metþáttaka var í kvennaflokki í ár, en auk þess er keppt í unglingaflokki. Næsta mót fer fram á Ólafsvík um næstu helgi, en þar er um að ræða fyrstu keppnina í motocrossi í sumar. 29.5.2006 18:07
Dowie væntanlega til Charlton á morgun Breskir fjölmiðlar fullyrða að knattspyrnustjórinn Ian Dowie verði kynntur sem næsti stjóri úrvalsdeildarliðs Charlton á blaðamannafundi á morgun. Ef af ráðningu hans verður, má fastlega reikna með að lítil gleði grípi um sig í herbúðum Crystal Palace þar sem Dowie var áður við störf. 29.5.2006 16:50
Á sér draum um að spila með Barcelona Miðjumaðurinn frábæri, Frank Lampard hjá Chelsea, segist eiga sér draum um að spila einn daginn með Spánarmeisturum Barcelona, en kona Lampard er einmitt frá Katalóníu. 29.5.2006 16:15
Bonds kominn upp fyrir Babe Ruth Hinn umdeildi Barry Bonds náði í gær sínu 715. heimahlaupi í bandaríska hafnarboltanum og komst þar með upp fyrir goðsögnina Babe Ruth í annað sæti á lista þeirra sem hafa náð flestum heimahlaupum á ferlinum. Hann vantar þó enn 40 stykki til að ná Hank Aaron sem er í efsta sætinu. 29.5.2006 15:30
Miami - Detroit í beinni í kvöld Fjórði leikur Miami Heat og Detroit Pistons verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn klukkan 0:30 í nótt, en þetta er algjör lykilleikur í einvíginu þar sem Miami leiðir 2-1. Fimmti leikurinn í þessu einvígi verður svo einnig sýndur beint á miðvikudagskvöldið en hann fer fram í Detroit. Þá verður fimmti leikur Dallas og Phoenix í beinni á fimmtudagskvöldið. 29.5.2006 15:15
Huth til Everton? Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að enska úrvalsdeildarfélagið Everton sé líklegasta liðið til að landa þýska landsliðsmanninum Robert Huth frá Chelsea, en hinn 21 árs gamli miðvörður hefur lítið sem ekkert fengið að spila hjá Englandsmeisturunum og vill fara frá féaginu. Wigan hefur einnig verið á höttunum eftir varnarmanninum, en sagt er að Everton sé tilbúið að greiða fyrir hann 5,5 milljónir punda. 29.5.2006 14:45
Ruud van Nistelrooy á leið til Milan? AC Milan hafa samkvæmt ítölskum fjölmiðlum sett Nistelrooy efst á óskalistann sem arftaka Shevchenko sem er á förum til Chelsea. 29.5.2006 14:08
Johnson fer til Everton Framherjinn Andy Johnson hjá Crystal Palace hefur ákveðið að ganga í raðir Everton í ensku úrvalsdeildinni og verður kynntur sem nýr leikmaður félagsins á miðvikudag, standist hann læknisskoðun. Kaupverðið er 8,5 milljónir punda og talið er að Johnson muni fá um 40.000 pund í vikulaun, en aðeins 5 milljónir punda af upphæðinni verða borgaðar á borðið við undirskrift. 29.5.2006 14:00
Man. Utd. á eftir Ribery Manchester United eru komnir í hóp þeirra liða sem eru á eftir hinum franska landsliðsmanni Franck Ribery sem leikur með Marseille í Frakklandi. 29.5.2006 13:58
Læknisskoðun Rooney flýtt Forráðamenn enska landsliðsins hafa afráðið að flýta læknisskoðuninni sem sker úr um þáttöku Wayne Rooney á HM um eina viku svo hægt sé að kippa nýjum leikmanni inn í hópinn áður en fresturinn til þess rennur út. Rooney sjálfur er bjartsýnn á að ná að vera með á mótinu. 29.5.2006 13:52
Myndataka Rooney færð fram um viku Myndatakan sem Wayne Rooney átti að fara í 14. júní hefur verið færð fram um viku til 7. júní. Þetta hefur verið gert svo að Sven Göran Erikson geti tekið ákvörðun fyrir 9. júní hvort hann ætli að hafa Rooney í hópnum eða hvort hann kallar til einn af leikmönnunum í varahóp Englands. 29.5.2006 13:26
Eriksson segist vera á leið til Real Madrid Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands er sagður hafa sagt við leikmenn sína að hann muni taka við Real Madrid í sumar. Það er The Sun sem greinir frá þessu í dag 29.5.2006 09:49
Ég er of þungur Zlatan Ibrahimovic, leikmaður Juventus og sænska landsliðsins segir að hann sé of þungur og þess vegna hafi hann átt misgott tímabil með félaginu í vetur. Leikmaðurinn ræddi í fyrsta skipti við fjölmiðla í gær í nær 2 mánuði. 29.5.2006 09:43
Þóroddur sigrar í A-flokki gæðinga hjá Fáki Þóroddur frá Þóroddsstöðum og Daníel Jónsson unnu A-flokk gæðinga á MESTA gæðingamóti Fáks í gærkvöld með einkunina 8,81. Kolskeggur frá Oddhóli og Sigurbjörn Bárðarson náðu öðru sæti með 8,76 og Ormur frá Dallandi og Atli Guðmundsson höfnuðu í því þriðja með 8,75. 29.5.2006 06:06
Dallas komið yfir Dallas Mavericks vann aftur heimavallarréttinn í úrslitaeinvígi Vesturdeildarinnar í NBA í nótt þegar liðið lagði Phoenix Suns á útivelli 95-88. Frábær varnarleikur skóp sigur Dallas í nótt í leik sem sýndur var beint á Sýn, en það er sannarlega ekki á hverjum degi sem liði Phoenix er haldið undir 90 stigum á heimavelli sínum. 29.5.2006 05:48
Kewell ætlar að ná HM Forráðamenn ástralska landsliðsins eru sannfærðir um að Harry Kewell verði búinn að ná sér af þeim nárameiðslum sem hafa verið að hrjá hann undanfarið. Kewell sem er 27 ára segist ætla að ná að spila á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi en hann meiddist gegn West Ham í úrslitaleik FA bikarkeppninnar. 29.5.2006 02:39
Del Piero í stað Francesco Totti Marcello Lippi þjálfari ítalska landsliðsins í knattspyrnu hefur gefið það út að líklegt sé að hann muni byrja með Alessandro Del Piero, leikmann Juventus, fremst á miðjunni í fyrsta leik ítala á HM gegn Ghana 12. júní. 29.5.2006 02:35
Meistararnir halda sínu striki Íslandsmeistarar FH halda sínu striki á toppi Landsbankadeildarinnar og í kvöld sigraði Hafnarfjarðarliðið Fylki í Árbænum 2-1. Tryggvi Guðmundsson skoraði fyrsta mark FH úr víti og Ármann Smári Björnsson bætti við öðru marki með glæsilegum skalla. Christian Christiansen minnkaði muninn fyrir Fylki, en Árbæingar komust ekki lengra í kvöld þrátt fyrir ágæta spilamennsku. 28.5.2006 21:58
Keflavík burstaði KR Keflvíkingar unnu auðveldan 3-0 sigur á KR-ingum í Keflavík í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Magnús Þorsteinsson, Daniel Servino og Símun Samuelsen skoruðu mörk suðurnesjaliðsins. Þá unnu nýliðar Víkings annan sigur sinn í röð þegar þeir skelltu Eyjamönnum 1-0 á útivelli með marki Viktors Bjarka Arnarssonar eftir aðeins þriggja mínútna leik. 28.5.2006 21:15
FH yfir í Árbænum Íslandsmeistarar FH hafa yfir 2-1 gegn Fylki í hálfleik í viðureign liðanna í Landsbankadeildinni. Það var markahrókurinn Tryggvi Guðmundsson sem kom gestunum yfir á fyrstu mínútu leiksins með marki úr vítaspyrnu og Ármann Smári Björnsson skoraði með glæsilegum skalla á 24. mínútu. Christian Christiansen minnkaði muninn fyrir heimamenn á 30. mínútu eftir skelfileg mistök Daða Lárussonar í marki FH. 28.5.2006 20:45
Phoenix - Dallas í beinni á Sýn Sjónvarpsstöðin Sýn hefur beinar útsendingar frá úrslitakeppni NBA á ný klukkan 0:30 í nótt þegar þriðji leikur Phoenix Suns og Dallas Mavericks verður á dagskrá í úrslitum Vesturdeildarinnar. Liðin skiptu með sér leikjunum tveimur í Dallas, en heimamenn verða án Raja Bell í kvöld. 28.5.2006 20:35
Keflavík hefur yfir gegn KR Nú er komin hálfleikur í leikjunum tveimur sem hófust klukkan 19:15 í Landsbankadeild karla í kvöld. Keflvíkingar hafa yfir 1-0 gegn KR í Keflavík, þar sem Magnús Þorsteinsson skoraði mark heimamanna eftir aðeins 2 mínútur og nýliðar Víkings hafa yfir 1-0 gegn ÍBV í Eyjum, þar sem Viktor Bjarki Arnarsson skoraði á 3. mínútu. Leikur Fylkis og FH er nýhafinn og er í beinni á Sýn. 28.5.2006 17:51
Hrun í síðari hálfleik Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði fyrir Makedóníu 28-23 í fyrri leik liðanna um laust sæti á EM í Laugardalshöll í dag. Íslenska liðið hafði tveggja marka forystu í hálfleik 13-11, en gestirnir tóku öll völd í þeim síðari og nýttu sér fjölmörg mistök íslenska liðsins. 28.5.2006 17:40
Lætur gagnrýnendur heyra það Fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher heldur stöðugt fram sakleysi sínu eftir atburðina í tímatökunum í Mónakó í gær. Schumacher var færður aftast í rásröðina í dag fyrir vikið, en hann náði engu að síður fimmta sætinu með ótrúlegum akstri. 28.5.2006 17:04
Ísland yfir gegn Makedónum í hálfleik Íslenska kvennalandsliðið er yfir 13-11 gegn Makedóníu í hálfleik í landsleik þjóðanna sem fram fer í Laugardalshöll, en keppt er um sæti á EM. Íslenska liðið var nokkuð ryðgað í upphafi, en er nú komið á góðan skrið. Hrafnhildur Skúladóttir er markahæst í íslenska liðinu með sex mörk og Berglind Hansdóttir er búin að verja 14 skot í markinu. 28.5.2006 16:50
Íslendingar Norðurlandameistarar Íslenska U-18 landslið karla varð í dag Norðurlandameistari í körfuknattleik eftir öruggan sigur á Svíum í úrslitaleik í dag 82-69. Hörður Sveinsson var stigahæstur í íslenska liðinu í dag með 22 stig og var kjörinn maður mótsins. U-18 ára kvennaliðið hlaut silfurverðlaun eftir tap fyrir Svíum í úrslitaleik og U-16 ára lið karla fékk bronsverðlaun. 28.5.2006 16:41
Ferguson tekur rétta ákvörðun Dwight Yorke, fyrrum leikmaður Manchester United, segir að Alex Ferguson muni taka rétta ákvörðun í máli Ruud van Nistelrooy, en hollenski framherjinn hefur verið í ónáð hjá stjóranum að undanförnu. Yorke fór sjálfur frá United á sínum tíma eftir að hafa lent í hundakofanum hjá Ferguson. 28.5.2006 16:25
Cisse byrjaður að væla á ný Franski sóknarmaðurinn Djibril Cisse hjá Liverpool er enn og aftur farinn að væla yfir hlutskipti sínu hjá félaginu undir stjórn Rafa Benitez. Nú segist hann ekki njóta trausts knattspyrnustjóra síns og vill því ganga til liðs við manninn sem fékk hann upprunalega til Liverpool fyrir 14 milljónir punda, landa síns Gerard Houllier hjá Frakklandsmeisturum Lyon. 28.5.2006 16:00
Venables afþakkar starfið hjá Boro Terry Venables hefur afþakkað tilboð forráðamanna Middlesbrough um að taka við starfi knattspyrnustjóra félagsins af Steve McClaren. Venables er hokinn af reynslu og hefur áður stýrt liði Boro, en hann sagðist ekki treysta sér til að starfa sem stjóri í fullu starfi kominn hátt á sjötugsaldurinn. 28.5.2006 15:54
Rökkvi frá Hárlaugsstöðum sigraði í B-flokki hjá Fák Rökkvi frá Hárlaugsstöðum og Þorvaldur Árni Þorvaldsson sigruðu í B-flokki gæðinga á MEST gæðingamóti hjá Fáki í dag með 9,30 í einkunn. Muggur frá Hafsteinsstöðum og Árni Björn urðu í öðru sæti með 8,74 í einkunn og Töfri frá Kjartansstöðum og Daníel Jónsson höfnuðu í þriðja sæti. Úrslit í A flokki verða riðin klukkan 16,30. 28.5.2006 15:25
Alonso sigraði í Mónakó Heimsmeistarinn Fernando Alonso sigraði í Mónakókappakstrinum í Formúlu 1 í dag og náði 21 stigs forystu á Michael Schumacher í keppni ökumanna. Schumacher náði fimmta sætinu eftir að hafa ræst síðastur. Juan Pablo Montoya náði öðru sætinu og David Coulthard varð þriðji, en þeir náðu verðlaunasætunum eftir að Kimi Raikkönen og Marc Webber lentu í vandræðum með bíla sína. 28.5.2006 15:03
Sven Göran prufukeyrir væntanlegt byrjunarlið Sven Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands, hefur gefið það út að hann muni tefla fram sínu sterkasta liði í æfingaleikjunum gegn Jamaica og Ungverjalandi. Eriksson hefur einnig gefið það út að liðið sem að hann mun tefla fram á Þriðjudaginn í æfingaleik gegn Ungverjalandi verði líklega það lið sem muni hefja keppni fyrir Englands hönd á HM. 28.5.2006 13:49
Blokhin ekki bjartsýnn Oleg Blokhin, þjálfari Úkraínska landsliðsins í knattspyrnu, er ekki alltof bjartsýnn fyrir hönd sinna manna á HM, en aðeins 16 af þeim 23 leikmönnum sem að eru í landsliðshóp Úkraínu eru leikfærir. Margir lykilmanna Úkraínu hafa átt í meiðslum, þ.m. Andriy Shevchenko og Sergei Rebrov. 28.5.2006 13:45
Messi missir líklegast af opnunarleiknum Argentínska ungstirnið Leo Messi mun að öllum líkindum missa af opnunarleik liðsins geg Fílabeinsströndinni sem fer fram 10. júní. Messi, sem spilaði ekkert með Barcelona síðustu tvo mánuði tímabilsins, meiddist á læri gegn Chelsea í byrjun mars. Hann spilaði sinn fyrsta leik eftir meiðslin í 4-0 sigri U-20 ára landsliðs Argentínu fyrr í þessari viku. Hann spilaði einungis í 15 mínútur í þeim leik og honum finnst hann vera töluvert frá fyrra formi. 28.5.2006 13:21
Detroit réði ekkert við Shaq og Wade Shaquille O´Neal og Dwayne Wade fóru illa með varnarmenn Detroit Pistons í nótt þegar Miami náði 2-1 forskoti í einvígi liðanna í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA. Shaq og Wade hittu úr 75% skota sinna og tryggðu Miami öruggan 98-83 sigur á heimavelli. Næsti leikur liðanna fer fram á mánudagskvöld og verður í beinni á Sýn. 28.5.2006 05:36
Enska landsliðið er ofmetið Hollenski þjálfarinn Leo Beenhakker sem stýrir liði Trinidad og Tobago á HM í sumar, segir að enska landsliðið sé ofmetið og standi aldrei undir væntingum á stórmótum í knattspyrnu. 28.5.2006 18:30
Æfingaleikir fyrir HM Fjölmargir æfingaleikir fóru fram í dag, en nú eru aðeins 12 dagar í að Heimsmeistaramótið í Knattspyrnu hefjist í Þýskalandi. Þjóðverjar unnu Lúxemborg auðveldlega 7-0 og Frakkar unnu Mexíkó 1-0. 27.5.2006 23:45