Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lakers jafnaði í Phoenix Kobe Bryant og félagar í LA Lakers jöfnuðu í nótt metin í rimmu sinni við Phoenix með góðum 99-93 sigri í Phoenix í öðrum leik liðanna og fara næstu tveir leikir fram í Los Angeles. Kobe Bryant hafði hægt um sig framan af leik en endaði með 29 stig og 10 fráköst. Steve Nash var atkvæðamestur í liði Phoenix með 29 stig og 9 stoðsendingar. 27.4.2006 05:22
Forsetinn sagði af sér Fernando Martin sagði af sér sem forseti Real Madrid eftir stjórnarfund í gærkvöldi eftir að í ljós kom að hann naut ekki stuðnings stjórnarinnar. Martin tók við í lok febrúar þegar Florentino Perez sagði af sér og hefur aflað sér takmarkaðra vinsælda með störf sín síðan. Það verður hinn 83 ára gamli Luis Gomez-Montejano sem tekur við stöðunni í stað Martin fram í júní þegar kosið verður aftur. 27.4.2006 04:45
Verður Scolari ráðinn í næstu viku? Fréttavefur BBC greindi frá því seint í gærkvöldi að útsendarar enska knattspyrnusambandsins væru staddir í Portúgal þar sem verið væri að ganga frá lausum endum svo hægt sé að ráða brasilíska þjálfarann Luiz Felipe Scolari í starf landsliðsþjálfara þegar Sven-Göran Eriksson lætur af störfum eftir heimsmeistaramótið í Þýskalandi í sumar. 27.4.2006 04:27
Barcelona og Arsenal leika til úrslita Það verða Barcelona og Arsenal sem leika til úrslita í meistaradeild Evrópu í ár, en Barcelona tryggði sér farseðilinn í úrslitaleikinn með því að gera markalaust jafntefli við AC Milan á heimavelli sínum Nou Camp í kvöld. Heimamenn fengu fleiri marktækifæri í leik kvöldsins en eru komnir áfram þrátt fyrir markalaust jafntefli eftir 1-0 sigur á útivelli í fyrri leiknum. 26.4.2006 20:36
Liverpool lagði West Ham Liverpool vann í kvöld góðan 2-1 útisigur á West Ham í ensku úrvalsdeildinni, þrátt fyrir að tefla ekki fram sínu sterkasta liði. Það var Djibril Cisse sem skoraði bæði mörk Liverpool í leiknum, en Reo Coker minnkaði muninn fyrir Lundúnaliðið. Þeir Hayden Mullins hjá West Ham og Luis Garcia hjá Liverpool fengu báðir að líta rauða spjaldið á 82. mínútu fyrir slagsmál. 26.4.2006 20:43
Annar leikur Dallas og Memphis í beinni Annar leikur Dallas Mavericks og Memphis Grizzlies verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV á miðnætti í kvöld. Dallas var í bílstjórasætinu í fyrsta leiknum og vann nokkuð sannfærandi sigur, en lið Memphis er enn að bíða eftir fyrsta sigri sínum í úrslitakeppni í stuttri sögu félagsins og hefur tapað öllum níu leikjum sínum hingað til. 26.4.2006 20:07
Liverpool hefur forystu á Upton Park Liverpool hefur 1-0 forystu í hálfleik gegn West Ham í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Það var franski sóknarmaðurinn Djibril Cisse sem skoraði mark gestanna á 19. mínútu, en Liverpool stillir upp hálfgerðu varaliði í leiknum. 26.4.2006 19:54
Jafnt á Nou Camp í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í síðari leik Barcelona og AC Milan í undanúrslitum meistaradeildarinnar og hefur hvorugu liðinu tekist að skora. Ítalska liðið þarf að skora mark til að knýja fram framlengingu en heimamönnum nægir jafntefli eftir sigur í fyrri leiknum. 26.4.2006 19:48
Standið ykkur eða verðið sendir heim Sepp Blatter, forseti FIFA, hefur gefið dómurunum sem verða á HM í sumar mjög ströng fyrirmæli áður en þeir halda í æfingabúðir fyrir mótið og segir menn sem ekki standa sig verða senda heim. 26.4.2006 19:10
Deco í byrjunarliði Barcelona Leikur Barcelona og AC Milan í undanúrslitum meistaradeildarinnar er nú að hefjast og er hann í beinni útsendingu á Sýn. Deco kemur aftur inn í byrjunarlið Barcelona eftir leikbann, en gamla brýnið Costacurta tekur stöðu Nesta í byrjunarliði AC Milan, en Nesta er meiddur. Hér fyrir neðan má sjá hvaða leikmenn eru í byrjunarliðum. 26.4.2006 18:37
Brasilía gæti lent í vandræðum Lothar Matthaus, sem var fyrirliði Þjóðverja þegar liðið varð heimsmeistari árið 1990, spáir að heimsmeistarar Brasilíu eigi eftir að lenda í vandræðum í Þýskalandi í sumar og tippar á að Argentínumenn og Englendingar fari langt í keppninni. 26.4.2006 17:38
Benitez ætlar að hvíla lykilmenn Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segir líklegt að hann muni hvíla einhverja af lykilmönnum sínum í kvöld þegar Liverpool sækir West Ham heim í ensku úrvaldeildinni, en liðin eigast einmitt við í úrslitaleik bikarkeppninnar. Liverpool er sex stigum á eftir Manchester United í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir. 26.4.2006 16:45
Diaw líklegur framfarakóngur Hinn fjölhæfi franski leikmaður Boris Diaw hjá Phoenix Suns þykir líklegastur til að verða kjörinn framfarakóngur NBA deildarinnar í ár, en á hverju ári er einn leikmaður verðlaunaður sérstaklega fyrir að hafa náð mestum framförum frá árinu áður. 26.4.2006 16:15
6,6 milljarðar fyrir tveggja ára samning? Þýska blaðið Bild segist hafa heimildir fyrir því að formúlulið Ferrari sé búið að bjóða fyrrum heimsmeistaranum Michael Schumacher tæpa 6,6 milljarða íslenskra króna fyrir að framlengja samning sinn um tvö ár. Í samningi þessum á að vera klásúla sem heimilar honum að leggja stýrið á hilluna ef hann yrði meistari á samningstímanum, jafnvel þó það yrði strax á þessu tímabili. 26.4.2006 16:15
Pires hugsar málið Franski miðjumaðurinn Robert Pires hjá Arsenal segist enn vera að íhuga samningstilboð frá spænska liðinu Villarreal sem Arsenal sló einmitt út úr meistaradeildinni í gær. Pires viðurkennir að það verði sér erfitt að yfirgefa herbúðir Arsenal eftir mörg góð ár, en segist þó hafa fundið fyrir frábæru andrúmslofti á heimaleik liðsins. 26.4.2006 15:45
Barcelona gæti orðið stórveldi Brasilíski snillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona segir að ef liðið nær að slá AC Milan út úr meistaradeildinni í kvöld, gæti sigurinn markað þáttaskil í sögu félagsins og orðið til þess að gera Barcelona að nýju stjórveldi í Evrópuboltanum - líkt og lið AC Milan á árunum í kring um 1990. 26.4.2006 15:30
Lætur gagnrýnendur heyra það Arsene Wenger segir að lið sitt hafi endanlega þaggað niður í hörðum gagnrýnendum þess á undanförnum árum með vasklegri framgöngu sinni í meistaradeildinni í vetur og segist hafa fulla trú á því að sínir menn geti klárað dæmið í úrslitaleiknum. 26.4.2006 14:30
Scolari gerði heiðursmannasamkomulag Gilberto Madail, formaður portúgalska knattspyrnusambandsins, segir að Luiz Scolari hafi gert heiðursmannasamkomulag við sambandið um að einbeita sér algjörlega að starfi sínu þangað til eftir HM í sumar og útilokar þar með að hann eigi í viðræðum við enska knattspyrnusambandið. Scolari er samningsbundinn Portúgal þangað til og segist ætla að virða samning sinn. 26.4.2006 14:11
Kenyon Martin í bann Framherjinn Kenyon Martin hefur verið settur í bann af liði sínu Denver Nuggets í óákveðinn tíma fyrir hegðun sem þótti hafa slæm áhrif á andann í liðinu. Martin hefur átt við hnémeiðsli að stríða í allan vetur og hefur ekki geta beitt sér að fullu í úrslitakeppninni, en hann á að hafa látið þjálfara sinn George Karl heyra það í hálfleik í tapinu gegn LA Clippers í fyrrakvöld. 26.4.2006 13:36
Verður Nash valinn aftur? Nokkur dagblöð í Bandaríkjunum greina frá því í dag að kanadíski leikstjórnandinn Steve Nash hjá Phoenix Suns verði kjörinn verðmætasti leikmaður NBA deildarinnar annað árið í röð á næstu vikum. Nash lék betur í vetur en í fyrra og fór fyrir liði Phoenix sem náði mjög góðum árangri þrátt fyrir að vera án Amare Stoudemire. 26.4.2006 13:18
Úrvalshryssur á sýningu Hrossaræktarsamtaka Suðurlands Á sýningu Hrossaræktarsamtaka Suðurlands sem haldin verður í Ölfushöllinni á laugardagin næstkomandi verður úrval bestu ræktunarhrossa suðurlands. Úrvalshryssur frá Dísarstöðum mæta til leika (m.a. Dáð frá Dísarstöðum). 26.4.2006 12:34
LeBron James kippt niður á jörðina LeBron James sýndi að hann á nokkuð eftir ólært í gær þegar lið hans Cleveland tapaði öðrum leiknum við Washington á heimavelli sínum 89-84. James skoraði 26 stig fyrir Cleveland, en tapaði 10 boltum og gerði mjög dýr klaufamistök á lokasprettinum sem kostuðu lið hans sigurinn. Lið Washington lék mikið betur en í fyrsta leiknum með Gilbert Arenas sem sinn besta mann, en hann skoraði 30 stig. 26.4.2006 12:29
Myndir frá Hrafnsmessu Komnar eru myndir frá Hrafnsmessu sem haldin var í Ölfushöll á Ingólfshvoli í myndasafn Hestafrétta. Það var Örn Karlsson sem tók myndirnar og fékk Hestafréttir góðfúslegt leifi til að birta þær hér á vefnum. 26.4.2006 07:12
Úrslit Líflandsmóts Líflandsmótið var haldið um síðastliðna helgi í Fák í Víðidal og var þátttaka mjög góð. Teitur Árnason á Prinsessu frá Stóra-Hofi vann fimmgang unglinga og einnig tölt unglinga á Stefni frá Breið. Sara Sigurbjörnsdóttir á Kára frá Búlandi vann fjórgang unglinga og það var síðan Ragnar Bragi Sveinsson á Fjalari frá Hvolsvelli sem vann fjórgang barna. 26.4.2006 07:09
Upptökur frá Hrafnsmessu á Vef TV Hin magnaða Hrafnssýning sem haldin var í Ölfushöll 19. apríl síðastliðin er nú komin inn á Vef TV Hestafrétta. Alls eru þetta um 50 mínútur að lengd og skiptist í tvo hluta, fyrir hlé og eftir hlé. Við vonum að lesendur okkar hafi gaman af því myndefni sem komið er inn á Vef TV Hestafrétta. 26.4.2006 07:05
Sýningin heldur áfram í kvöld Úrslitakeppni NBA heldur áfram á fullu í kvöld og alls eru þrír leikir á dagskránni. Sjónvarpsleikurinn á NBA TV er annar leikur Cleveland Cavaliers og Washington Wizards og er hann á besta tíma klukkan 23:00. LeBron James var maður fyrsta leiksins og náði þrefaldri tvennu í fyrsta leik sínum í úrslitakeppni á ferlinum. 25.4.2006 21:35
Við vorum heppnir Arsene Wenger viðurkenndi að hans menn hefðu verið heppnir að sleppa með jafntefli gegn Villarreal í meistaradeildinni í kvöld, en var yfir sig ánægður með baráttuna í liði sínu - ekki síst í manni leiksins Jens Lehmann sem varði vítaspyrnu á síðustu mínútunni. 25.4.2006 21:42
Jimmy Jump í essinu sínu Knattspyrnufyrirbærið Jimmy Jump lét sig ekki vanta á leik Villarreal og Arsenal í kvöld og í síðari hálfleik náði hann að brjótast inn á völlinn og kastaði Barcelona-treyju yfir öxlina á Thierry Henry, leikmanni Arsenal. Henry hefur lengi verið orðaður við Barcelona-liðið og telja margir að hann muni ganga til liðs við Katalóníuliðið í sumar. Atvik sem þetta eru nokkuð algeng og illa virðist ganga að koma í veg fyrir að ævintýramenn á borð við hinn geðþekka Jimmy setji svip sinn á leikinn. 25.4.2006 21:17
Sigur hjá Stjörnunni og Val Fyrri leikirnir í undanúrslitum deildarbikars kvenna fóru fram í kvöld. Stjarnan lagði ÍBV í Eyjum 24-20 og Valsstúlkur lögðu Hauka 23-22 í æsispennandi leik í Laugardalshöllinni. 25.4.2006 21:11
Man.City lagði Aston Villa Manchester City lagði Aston Villa 1-0 á útivelli í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Það var Darius Vassell, fyrrum leikmaður Aston Villa, sem tryggði gestunum sigur með óeftirminnilegu marki á 70. mínútu leiksins og því er ljóst að Aston Villa þarf enn að krækja sér í eitt stig í viðbót á lokasprettinum til að forða sér frá falli. 25.4.2006 20:56
Arsenal í úrslit - Lehmann hetja dagsins Arsenal er komið í úrslitaleikinn í meistaradeild Evrópu eftir að liðið gerði markalaust jafntefli við spænska liðið Villarreal á útivelli í kvöld. Arsenal getur þakkað markverði sínum Jens Lehmann að hafa komist áfram, því hann varði vítaspyrnu frá Juan Riquelme á lokamínútu leiksins. Vítaspyrnudómurinn var mjög loðinn og því má segja að réttlætinu hafi verið fullnægt að þessu sinni. 25.4.2006 20:38
Johnson þjálfari ársins Nú hefur verið staðfest að Avery Johnson hjá Dallas Mavericks hafi verið kjörinn þjálfari ársins í NBA deildinni. Johnson hafði nokkra yfirburði í valinu og hlaut 419 atkvæði, þar af 63 í fyrsta sæti. Mike D´Antoni hjá Phoenix varð annar í valinu með 247 atkvæði (27 í fyrsta sæti) og Flip Saunders hjá Detroit Pistons varð þriðji með 233 (18 í fyrsta sæti) stig. 25.4.2006 19:44
Jafnt í hálfleik á Madrigal Staðan í hálfleik hjá Villarreal og Arsenal í síðari leik liðanna í undanúrslitum meistaradeildarinnar er 0-0. Heimamenn hafa ráðið ferðinni í fyrri hálfleik en ekki tekist að skora markið nauðsynlega. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. 25.4.2006 19:34
Zidane hættir eftir HM Zinedine Zidane, leikmaður Real Madrid og franska landsliðsins mun hætta knattspyrnuiðkun eftir HM í sumar. Kappinn hefur boðað til blaðamanna fundar á morgun en hann sagði í viðtali við Canal+ að hann mundi hætta. 25.4.2006 18:45
Leggur skóna á hilluna eftir HM Franski miðjumaðurinn Zinedine Zidane hjá Real Madrid staðfesti í samtali við Canal+ í dag að hann ætli að leggja knattspyrnuskóna á hilluna eftir heimsmeistaramótið í Þýskalandi í sumar. Hinn 33ja ára gamli Zidane hefur átt við þrálát meiðsli að stríða í allan vetur og ætlar að láta HM verða sitt síðasta verkefni, þar sem hann fer fyrir sterku liði Frakka. 25.4.2006 18:07
Þjálfaraleitin er skrípaleikur Graham Taylor segir að leit enska knattspyrnusambandsins að eftirmanni Sven-Göran Eriksson sé hreinn og klár skrípaleikur. Taylor stýrði enska landsliðinu á árunum 1990-1993 og á ekki til orð yfir vinnubrögðum sambandsins í dag. 25.4.2006 17:30
Við gleymumst fljótt ef við náum ekki í úrslit Argentínski leikstjórnandinn Juan Roman Riquelme hjá Villarreal segir að sínir menn verði að leggja Arsenal að velli í kvöld og komast í úrslitaleik meistaradeildarinnar ef þeir ætli sér að láta muna eftir árangri sínum í keppninni. Hann segir að knattspyrnuheimurinn verði fljótur að gleyma afrekum liðsins í vetur ef því tekst ekki að vinna sér sæti í úrslitaleiknum. 25.4.2006 16:45
Stuðningsmenn West Ham ósáttir Stuðningsmenn West Ham eru afar óhressir þessa dagana en útlit er fyrir að þeir fái ekki úthlutað nema 23.500 miðum á úrslitaleikinn gegn Liverpool sem fram fer á Þúsaldarvellinum í Cardiff, á meðan Liverpool fær úthlutað 48.000 miðum. West Ham hefur fengið mun fleiri miða á leikina í umferðunum fram að úrslitaleiknum og útlit er fyrir að fjöldi stuðningsmanna liðsins þurfi að sætta sig við að sitja heima. 25.4.2006 16:30
Ronaldinho orðinn tekjuhæstur Franska blaðið France Football greindi frá því í gær að brasilíski snillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona væri búinn að toppa sjálfan David Beckham og væri orðinn tekjuhæsti knattspyrnumaður heims. 25.4.2006 16:15
Opna Reykjavíkurmeistaramótið, skráning hefst á miðvikudag Opna Reykjavíkurmeistaramótið verður haldið á félagssvæði Fáks í Víðidal dagana 10.-14. maí. Mótið er World Ranking mót og er keppt skv. FIPO reglum. Íþróttadeild Fáks áskilur sér rétt til að fella niður þær greinar sem ekki fæst næg þátttaka í. Þeir keppendur sem hafa skráð sig í viðkomandi grein verða færðir upp um flokk eða flokka. 25.4.2006 15:58
Héraðssýning kynbótahrossa á Sörlastöðum í Hafnarfirði Héraðssýning kynbótahrossa á Sörlastöðum í Hafnarfirði hefst 15. maí og stendur til 26. maí. Ef þátttaka verður minni eða meiri en búist er við getur þurft að fækka eða fjölga dögum. Þurfi að bæta við dögum verður þeim bætt framan við. Dæmt verður frá mánudegi til fimmtudags en yfirlitssýning á föstudögum rétt eins og verið hefur undanfarin vor. 25.4.2006 15:52
Stórsýning Hestastamanna 5. og 6. mai Stórsýning hestamanna verður haldin helgina 5. og 6. mai í Reiðhöllinni í Víðidal. Miðasala hefst laugardaginn 29. apríl milli klukkan 10 og 14. Það er óhætt að segja að þessi sýning verði áhugaverð því þarna verður Ormur frá Dallandi, Leiknir frá Vakurstöðum, Hlýr frá Vatnsleysu, Sefja frá Úlfljótsvatni og á föstudeginum verður sölusýning fyrir þá sem vantar gæðing, en hún verður haldin á milli klukkan 18 og 20. 25.4.2006 15:44
Ivey verður áfram hjá Íslandsmeisturnum Leikstjórnandinn knái Jeb Ivey mun spila áfram með Njarðvíkingum næsta vetur en hann hefur gengið frá eins árs framlengingu á samningi sínum. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta í dag. Ivey hefur um árabil verið einn allra besti leikmaður Iceland Express deildarinnar og eru þetta því góð tíðindi fyrir Íslandsmeistarana. 25.4.2006 15:40
Hatton valdi rangan andstæðing Luiz Collazo, andstæðingur breska hnefaleikarans Ricky Hatton, segir að hann hafi gert stór mistök þegar hann samþykkti að mæta sér í hringnum í Boston þann 13. maí. Hatton ætlar sér stóra hluti í Bandaríkjunm og ákvað að þyngja sig til að mæta hinum örvhenta Collazo. 25.4.2006 15:27
Forráðamenn Wimbledon íhaldssamir Nokkur óánægja hefur gripið um sig í tennisheiminum eftir að forráðamenn Wimbledon-mótsins fræga neituðu að jafna verðlaunafé í karla- og kvennaflokki, en karlarnir fá enn og aftur hærri upphæð fyrir sigur á mótinu í ár eins og verið hefur. Wimbledon er eina mótið sem enn fylgir þessari gömlu hefð, en sigurvegarinn í karlaflokki hlýtur 655.000 pund í verðlaun - en konurnar fá 625.000 pund. 25.4.2006 15:17