Sport

6,6 milljarðar fyrir tveggja ára samning?

Michael Schumacher er einn tekjuhæsti íþróttamaður allra tíma og færi svo sannarlega ekki af þeim stalli ef frétt Bild reynist rétt
Michael Schumacher er einn tekjuhæsti íþróttamaður allra tíma og færi svo sannarlega ekki af þeim stalli ef frétt Bild reynist rétt AFP
Þýska blaðið Bild segist hafa heimildir fyrir því að formúlulið Ferrari sé búið að bjóða fyrrum heimsmeistaranum Michael Schumacher tæpa 6,6 milljarða íslenskra króna fyrir að framlengja samning sinn um tvö ár. Í samningi þessum á að vera klásúla sem heimilar honum að leggja stýrið á hilluna ef hann yrði meistari á samningstímanum, jafnvel þó það yrði strax á þessu tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×