Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Zidane í fantaformi - skoraði tvennu Real Madríd vann í gærkvöldi sjöunda leikinn í röð í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið burstaði Espanyol 4-0. Zinedine Zidane var besti maður vallarins og skoraði tvö marka sinna manna. Klukkan 18 í dag verður leikur Barcelona og Atletico Madríd sýndur beint á Sýn. 5.2.2006 12:52
Ekki hafa fyrir því að afsaka Chris Coleman knattspyrnustjóri Fulham er æfur af reiði og lætur Martin Atkinson dómara fá það óþvegið í breskum fjölmiðlum eftir 4-2 tap sinna manna gegn Man Utd í ensku úrvalsdeildinni í gær. Heiðar Helguson skoraði annað marka Fulham þegar hann minnkaði muninn í 3-2 en það sem gerðist eftir það fór svo fyrir brjóstið á Coleman að hann var rekinn úr gryfjunni með rauða spjaldið upp í stúku. 5.2.2006 12:42
Áttundi heimasigurinn í röð gegn Chicago Shawn Marion og Steve Nash áttu enn einn stórleikinn fyrir Phoenix Suns sem unnu 118-101 sigur á Chicago Bulls í NBA körfuboltanum í nótt. Hjá Chicago náði Ben Gordon að bæta persónulegt met sitt með því að skora 39 stig. Þetta var áttundi heimasigur Suns í röð gegn Chicago sem hefur ekki unnið leik í Phoenix síðan 20. nóvember 1996 eða þegar Michael Jordan lék með liðinu. 5.2.2006 11:48
Ísland mætir Svíum Íslenska landsliðið í handbolta dróst gegn Svíum í umspili um laust sæti á HM sem fram fer í Þýskalandi á næsta ári en dregið var í morgun. Ljóst er að þessi dráttur er ákveðið áfall fyrir strákana okkar en leikmenn hafa títt um það talað síðan Ísland lauk keppni í 7. sæti á EM að þeir vildu síst af öllum þurfa að mæta Svíum í umspilinu. 5.2.2006 11:05
Grétar skoraði eina mark Alkmaar Siglfirski Skagamaðurinn Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn og skoraði eina mark AZ Alkmaar í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Vitesse Arnhem í gærkvöldi. Mark Grétars kom liði hans yfir á 13. mínútu þegar hann skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu en gestirnir jöfnuðu á 40. mínútu. 5.2.2006 10:15
Sol Campbell kominn í leitirnar Sol Campbell, varnarmaður Arsenal er væntanlegur aftur á æfingu með liðinu á mánudaginn en ekkert hefur spurst til hans síðan hann yfirgaf heimavöll sinn í hálfleik þegar Arsenal tapaði fyrir West Ham í deildinni sl. miðvikudag. 4.2.2006 20:15
Heiðar skoraði í tapleik gegn Man Utd Heiðar Helguson skoraði annað marka Fulham sem tapaði fyrir Man Utd, 4-2 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu nú í kvöld. Heiðar var í byrjunarliði Fulham og lék allan leikinn. Mark Heiðars kom með skalla á 37. mínútu eftir fyrirgjöf frá Wayne Bridge, lánsmanni frá Chelsea. Með markinu minnkaði Heiðar muninn í 3-2. 4.2.2006 19:08
Ívar, Brynjar, Hannes og Jóhannes léku Reading hefur 10 stiga forystu í ensku 1. deildinni í fótbolta eftir 4-3 sigur á Crewe í dag. Ívar Ingimarsson lék allan leikinn í liði Reading en Brynjar Björn Gunnarsson sat á bekknum og lék síðustu 2 mínúturnar. Ívar Ingimarsson lék allan leikinn í liði Reading og Brynjar Björn Gunnarsson lokamínutuna. 4.2.2006 19:04
Leik ÍBV og Vals frestað til morguns Leik ÍBV og Vals í undanúrslitum í bikarkeppni kvenna í handbolta hefur verið frestað til morguns vegna ófærðar í flugi. Leikurinn átti að fara fram í kvöld kl 18 en hefur nú verið settur á á morgun kl. 13:30. 4.2.2006 18:47
Ballack skoraði eina markið Michael Ballack tryggði Bayern Munchen 1-0 sigur á Bayer Leverkusen í þýsku Bundesligunni í knattspyrnu í dag og nægði markið til að halda Þýskalandsmeisturunum í 8 stiga fjarlægð á toppi deildarinnar. Werder Bremen hélt í 2. sætið eftir 4-2 sigur á gestunum, Keflavíkurbönunum í Mainz sem komust 2-0 yfir. Hamburg SV vann 2-1 sigur á Arminia Bielefeld og er í 3. sæti með 41 stig. 4.2.2006 17:56
Spánverjar í úrslitaleikinn - lögðu Dani Það verða Spánverjar sem leika til úrslita á EM í handbolta gegn Frökkum en heimsmeistararnir lögðu Dani í undanúrslitum nú síðdegis, 34-31. Staðan í hálfleik var 16-15 fyrir Dani sem leika því um 3. sætið á mótinu gegn Króötum. 4.2.2006 17:33
Útisigur hjá Arsenal Newcastle lagði Portsmouth 2-0 í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en þetta var fyrsti leikur liðsins eftir að knattspyrnustjórinn Graeme Souness var rekinn í vikunni. Arsenal lagði Birmingham á útivelli, 0-2 þar sem Thierry Henry skoraði 200. mark sitt fyrir félagið. 4.2.2006 17:29
Heiðar í byrjunarliðinu gegn Man Utd Heiðar Helguson er í byrjunarliði Fulham sem mætir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni en leikurinn er nýhafinn. Louis Saha er í byrjunarliði Man Utd og því að leika gegn sínum gömlu félögum frá London. 4.2.2006 17:21
Nígería í undanúrslit Nígeríumenn voru rétt í þessu að tryggja sér farseðilinn í undanúrslit Afríkukeppninnar í knattspyrnu með því að sigra ríkjandi Afríkumeistara Túnis í vítaspyrnukeppni. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1-1 og ekkert var skorað í framlengingu. 4.2.2006 16:13
Lítt þekktur kylfingur fer á kostum Þrítugur Bandaríkjamaður, JJ Henry, sem aldrei hefur sigrað á móti í bandarísku atvinnuimannamótaröðinni lék stórkostlega á öðrum degi á móti í Scottsdale í Arizona. Hann fékk 7 fugla í röð og var einu höggi frá því að bæta PGA-metið. 4.2.2006 15:51
750 krakkar á handboltamóti Handboltamót fyrir yngstu handboltamenn landsins stendur nú yfir í íþróttahúsinu í Digranesi í Kópavogi. Ákamótið er nú haldið í 10. sinn en það er HK í Kópavogi sem heldur mótið sem kennt er við Þorvarð Áka Eiríksson sem var fyrsti formaður félagsins. 750 krakkar úr 78 liðum taka þátt í mótinu. 4.2.2006 15:30
Ívar og Jói Kalli í byrjunarliðum Jóhannes Karl Guðjónsson er í byrjunarliði Leicester City sem mætir Wolves í ensku Championship deildinni (B-deild) í fótbolta í dag en hefur nú lokið við að taka út tveggja leikja bann. Ívar Ingimarsson er í byrjunarliði Reading sem heimsækir Crewe en Brynjar Björn Gunnarsson er á varamannabekk Reading. 4.2.2006 15:10
Frakkar í úrslit Frakkar leika til úrslita á HM í handbolta en þeir lögðu Króata í undanúrslitum í dag með 6 marka mun, 29-23. Staðan í hálfleik var 12-10 fyrir Frakka sem mæta annað hvort Dönum eða Spánverjum í úrslitaleiknum á morgun en þau lið mætast nú kl. 16. 4.2.2006 14:57
Grönholm með forystu í Svíþjóð Finnski ökuþórinn, Markus Grönholm, hafði nauma forystu eftir keppni gærdagsins í sænska rallinu. Norðmaðurinn Petter Solberg sem sigraði í þessu ralli fyrir tveimur árum er aðeins í 18. sæti. Sænska rallið er eina vetrarrallið og norrænir ökumenn hafa þar oft haft betur í baráttu við þá sem eru sérfræðingar á malbikuðum vegum. 4.2.2006 14:45
Charlotte lagði Lakers Að venju var leikið í NBA deildinni í körfbolta í Bandaríkjunum í nótt og ber þar hæst tap LA Lakers fyrir Charlotte Bobcats, 112,-102. Kobe Bryant skoraði 35 stig fyrir Lakers en hann skoraði ekkert í síðasta leikhlutanum. Jumaine Jones setti prsónulegt stigamet þegar hann gerði 31 stig fyrir Charlotte en fyrir leikinn höfðu Bobcats tapað 13 leikjum í röð. 4.2.2006 14:28
Þjóðverjar í 5. sæti Þjóðverjar höfnuðu í 5. sæti á Evrópumóti landsliða í handbolta í Sviss en þeir sigruðu Rússa í leik um sætið í dag, 32-30. Staðan í hálfleik var 18-16 fyrir Rússa. Nú eigast við Króatar og Frakkar í fyrri undanúrslitaleik mótsins og er staðan í hálfleik 12-10 fyrir Frakka. Síðar í dag mætast svo Danir og Spánverjar í hinum undanúrslitaleiknum. 4.2.2006 14:04
Egyptar í undanúrslit Egyptar tryggðu sér í gærkvöld sæti í undanúrslitum Afríkukeppninnar í knattspyrnu með auðveldum 4-1 sigri á Kongó og mætir liðið því Senegal í undanúrslinunum. Senegalar lögðu Gíneumenn fyrr í gær. 4.2.2006 11:45
Viggó að hætta Viggó Sigurðsson gæti hafa stýrt íslenska handboltalandsliðinu í síðasta leik sínum gegn Norðmönnum á Evrópumótinu í Sviss í fyrradag. Morgunblaðið greinir frá því í morgun að Viggó hafi sagt upp samningi sínum fyrir áramót og hætti 1. apríl. Viggó segir í samtali við Morgunblaðið að hann sé óánægður með launakjör sín, starfsumhverfi og að hægt sé að segja honum upp með þriggja mánaða fyrirvara. 4.2.2006 11:00
Miami - Cleveland á Sýn Körfuboltaaðdáendur fá eitthvað fyrir sinn snúð í sjónvarpinu í kvöld, því klukkan 23 verður Sýn með upptöku frá leik Miami Heat og Cleveland Cavaliers sem fram fór liðna nótt og klukkan 01:30 verður svo bein útsending frá leik Houston Rockets og Seattle Supersonics á NBA TV. 3.2.2006 21:15
Fleiri hallast að sigri Pittsburgh Úrslitaleikurinn í ameríska fótboltanum, Super Bowl, verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn á sunnudagskvöldið þar sem Pittsburgh Steelers og Seattle Seahawks leiða saman hesta sína í Detroit. 3.2.2006 20:00
Loeb saxar á forskot Grönholm Marcus Grönholm á Ford heldur naumri tíu sekúndna forystu í sænska rallinu eftir fyrsta keppnisdag, en heimsmeistarinn Sebastien Loeb tapaði nokkrum tíma vegna klaufaskapar, en hann lokaði vélarhlífinni ekki nógu vel á bíl sínum með þeim afleiðingum að hún opnaðist á miðri sérleið og tafði hann um dýrmætan tíma. 3.2.2006 19:17
Haukar fá erlendan leikmann Körfuknattleikslið Hauka hefur fengið til liðs við sig nýjan erlendan leikmann að nafni Bojan Bojovic. Hann er 203 cm á hæð, vegur 105 kíló og kemur frá Serbíu. Bojovic hefur spilað í Bosníu undanfarið og vonir standa til að hann verði klár í slaginn í næsta leik Hauka sem er gegn KR. 3.2.2006 18:45
Ensku liðin vilja fá Beckham Florentino Perez, forseti Real Madrid, segir að ensk lið bíði í röðum með að fá enska landsliðsmanninn David Beckham úr röðum spænska liðsins, en segir ekki á döfinni að selja leikmanninn. 3.2.2006 18:30
Alda Leif í stjörnuleikinn í Hollandi Körfuboltakonan Alda Leif Jónsdóttir sem leikur með hollenska liðinu Den Helder, hefur verið valin í stjörnuleikinn þar í landi af þjálfurum í deildinni. Alda er lykilkona í liði sínu sem er efst og taplaust í deildinni eftir 12 umferðir, en hún er ein fjögurra stúlkna úr liði Den Helder sem valdar voru í stjörnuliðið. 3.2.2006 18:25
Dæmdur í eins leiks bann Vængmaðurinn knái, Cristiano Ronaldo hjá Manchester United, var í dag dæmdur til að greiða sekt og taka út eins leiks bann í Meistaradeild Evrópu fyrir að senda stuðningsmönnum Benfica í heimalandi hans fingurinn í leik liðanna í Meistaradeildinni í haust. Aganefnd evrópska knattspyrnusambandsins greindi frá þessu í dag og hefur leikmaðurinn frest fram yfir helgi til að svara dómnum. 3.2.2006 17:45
Rauða spjald Johnson stendur Aganefnd enska knattspyrnusambandsins vísaði í dag frá áfrýjun Birmingham vegna rauða spjaldsins sem Damien Johnson fékk að líta í leiknum við Liverpool á miðvikudagskvöldið. Johnson fékk beint rautt spjald fyrir tæklingu sína á Daniel Agger, en Steve Bruce og félögum þótti þetta umdeild ákvörðun. 3.2.2006 17:15
Senegal í undanúrslit Senegalar tryggðu sér í dag sæti í undanúrslitum Afríkukeppninnar í knattspyrnu sem fram fer í Egyptalandi þegar liðið lagði Gíneu 3-2, eftir að hafa verið undir í hálfleik. Þeir Papa Bouba Diop hjá Fulham og Henri Camara hjá Wigan voru á skotskónum fyrir Senegala í leiknum. Leikur heimamanna og Kongó er nýhafinn og þar er staðan 0-0. 3.2.2006 17:11
27 milljóna hagnaður hjá KSÍ Knattspyrnusamband Íslands skilaði hagnaði upp á 27 milljónir króna á árinu 2005. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í dag þar sem lagðir voru fram ársreikningar sambandsins. Þar kom í ljós að heildartekjur KSÍ voru 462,2 milljónir króna á síðasta ári og er eigið fé sambandsins í árslok tæpar 200 milljónir króna. 3.2.2006 16:23
Ólafur hrifinn af Strand Norskir fjölmiðlar halda skiljanlega ekki vatni yfir landsliðsmanninum Kjetil Strand, sem setti nýtt Evrópumótsmet í gær þegar hann skoraði 19 mörk í leiknum gegn Íslendingum í milliriðli. Á heimasíðu norska blaðsins VG er haft eftir Ólafi Stefánssyni að Strand sé nógu góður til að spila með liði í spænska eða þýska handboltanum. 3.2.2006 16:08
Onouha úr leik Hinn ungi og efnilegi bakvörður Nedum Onouha hjá Manchester City getur ekki spilað meira með liðinu á leiktíðinni vegna hnémeiðsla. Onouha er í U-21 árs landsliði Englendinga og þykir eitthvert mesta efni á Bretlandseyjum. "Ég er mjög vonsvikinn fyrir hans hönd, en hann er ungur og jafnar sig fljótt," sagði Stuart Pearce, stjóri City. 3.2.2006 16:00
Þorvaldur Makan í Val Þorvaldur Makan hefur gengið til liðs við Valsmenn í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, en hann lék áður með Fram og KA. Þorvaldur tók sér frí frá knattspyrnuiðkun í nokkurn tíma vegna meiðsla, en hefur nú ákveðiði að snúa til baka og spila með Valsmönnum. Þetta kemur fram á heimasíðu Vals í dag. 3.2.2006 15:32
Lauren frá út tímabilið Varnarmaðurinn Lauren hjá Arsenal leikur ekki meira með liðinu á leiktíðinni vegna hnémeiðsla. Í fyrstu var talið að Kamerúninn yrði frá í um einn mánuð vegna meiðslanna, en síðar kom í ljós að meiðslin voru mun alvarlegri en talið var og því hefur hann nú gengist undir aðgerð sem hefur bundið enda á tímabilið hjá honum. 3.2.2006 15:10
Enginn Detroit-leikmaður í byrjunarliði Nú hefur verið tilkynnt hvaða leikmenn skipa byrjunarlið Austur- og Vesturstrandar í árlegum Stjörnuleik í NBA deildinni, en hann fer fram í 55. skipti þann 19. febrúar. Leikurinn verður háður í Houston-borg að þessu sinni og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn. 3.2.2006 14:30
Hansen í forystu í Dubai Danski kylfingurinn Anders Hansen er kominn með tveggja högga forystu eftir aðra umferð á Dubai Classic mótinu í golfi í dag. Hansen lék hringinn á 63 höggum og er nú á 13 höggum undir pari. Tiger Woods er ásamt fjórum öðrum í öðru sætinu á 11 undir pari, en hann sló tvisvar í vatn á hringnum, en náði engu að síður fjórum fuglum og einum erni. 3.2.2006 13:47
Wenger hefur áhyggjur af Campbell Arsene Wenger, stjóri Arsenal, viðurkennir að hann hafi áhyggjur af varnarmanni liðsins Sol Campbell og segist hreint ekki vita hvenær hann muni sjá hann næst. Campbell virðist hafa farið í þunglyndiskast eftir að eiga mjög dapran dag í tapinu gegn West Ham á miðvikudagskvöld. 3.2.2006 13:09
Grönholm byrjar vel Finnski ökuþórinn Marcus Grönholm á Ford byrjar vel í Svíþjóðarrallinu sem nú stendur yfir. Grönholm hefur 19 sekúndna forskot á heimsmeistarann Sebastien Loeb á Citroen sem er í öðru sæti, en landi Grönholm Mikko Hirvonen er þriðji. Grönholm sigraði í fyrst keppni ársins í Monte Carlo fyrir hálfum mánuði. 3.2.2006 12:15
Spilar ekki aftur fyrir Viggó Sigurðsson Vilhjálmur Halldórsson, landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður danska liðsins Skjærn, segist aldrei ætla að spila aftur undir stjórn Viggós Sigurðssonar eftir að þeir áttu hreint ekki í skap saman á EM í Sviss. Þetta kemur fram í viðtali við staðarblað í Danmörku í dag. 3.2.2006 12:02
Shearer vill ekki taka við af Souness Framherjinn Alan Shearer hjá Newcastle, sem nú gegnir stöðu aðstoðarstjóra hjá félaginu tímabundið, segir að hann hafi ekki áhuga á að verða næsti knattspyrnustjóri Newcastle. 3.2.2006 11:32
Miami burstaði Cleveland Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Miami vann auðveldan sigur á Cleveland 101-73. Dwayne Wade skoraði 24 stig fyrir Miami og Shaquille O´Neal skoraði 21, en LeBron James skoraði 29 stig fyrir Cleveland sem skoraði aðeins 9 stig í fjórða leikhlutanum. 3.2.2006 11:20
Dómararnir jörðuðu okkur Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari var hundfúll eftir tapið gegn Norðmönnum í lokaleik íslenska liðsins í milliriðli á EM í Sviss í kvöld. Viggó sagði að vissulega hefði þreytan verið farin að segja til sín hjá sínum mönnum vegna þeirra skarða sem höggvin hafa verið í hópinn, en vandaði dómurum leiksins ekki kveðjurnar. 2.2.2006 20:49