Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Walcott kominn til Arsenal Unglingurinn Theo Walcott er nú formlega genginn í raðir Arsenal frá Southampton, en þessi 16 ára sóknarmaður er talið eitt mesta efni á Bretlandseyjum. Hann mun kosta Arsenal 5 milljónir punda fyrst um sinn, en talið er að Arsenal muni allt í allt greiða Southampton um 12,5 milljónir punda fyrir hann. 20.1.2006 14:48
Schwarzer tekinn af sölulista Ástralski markvörðurinn Mark Schwarzer mun að öllum líkindum verða áfram í herbúðum Middlesbrough eftir að hann tók til baka beiðni sína um að vera settur á sölulista hjá félaginu. Hann gerði nýjan samning við Boro í fyrra sem gildir til ársins 2008, en hann hefur verið hjá félaginu síðan árið 1997. 20.1.2006 14:30
Chelsea ætlar að stækka völlinn Forráðamenn Chelsea hafa vísað því á bug að félagið hafi í hyggju að flytja heimavöll liðsins á nýjan stað, en hafa þó tilkynnt að til standi að stækka heimavöll liðsins Stamford Bridge. Eftir þær framkvæmdir er stefnt á að völlurinn taki yfir 50.000 áhorfendur. 20.1.2006 14:00
Williams úr leik Serena Williams mun ekki verja titil sinn á opna ástralska meistaramótinu í tennis í ár eftir að hún tapaði fyrir Daniela Hantuchova í morgun, 6-1, 7-6 (7-5). Hantuchova hafði aldrei áður unnið Williams á móti og hafði raunar ekki unnið eitt einasta sett á móti henni þangað til í dag. 20.1.2006 13:30
Detroit valtaði yfir New York Tveir leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Efsta lið deildarinnar, Detroit Pistons, valtaði yfir New York Knicks á útivelli 105-79 og Sacramento Kings vann góðan sigur á Los Angeles Lakers 118-109 eftir framlengdan leik. 20.1.2006 13:23
Loeb fyrstur Heimsmeistrarinn Sebastien Loeb á Citroen er fyrstur eftrir tvær sérleiðar í Monte Carlo rallinu sem hófst í dag. Loeb hefur um hálfrar mínútu forskot á landa sinn Gilles Panizzi á Skode, en Marcus Grönholm frá Finnlandi er í þriðja sæti á Ford. 20.1.2006 13:14
Allt klárt fyrir Walcott Nú á úrvalsdeildarlið Arsenal aðeins eftir að tilkynna formlega um kaup sín á undrabarninu Theo Walcott frá Southampton, en hann hefur samþykkt kaup og kjör og staðist læknisskoðun hjá félaginu. Væntanlega verður greint formlega frá kaupunum síðar í dag. 20.1.2006 12:56
Rekið mig ef við komumst ekki í undanúrslit Sven Goran Eriksson hefur lýst því yfir að réttast væri ef enska knattspyrnusambandið myndi segja honum upp ef enska liðið kemst ekki í undanúrslit heimsmeistarakeppninnar í sumar. 20.1.2006 12:15
Leiðir með fjórum höggum Kylfingurinn Chad Cambell hefur fjögurra högga forystu eftir annan daginn á Bob Hope Classic mótinu sem er liður í PGA-mótaröðinni. 20.1.2006 11:30
Komin í 16 manna úrslit Lindsay Davenport, stigahæsta tenniskona heims, sigraði rússnesku stúlkuna Mariu Kirilenko í spennandi viðureign á opna ástralska meistaramótinu í Melbourne í gær. 20.1.2006 10:45
Verður að spila meira Bakvörðurinn Wayne Bridge, sem hefur verið á mála hjá Chelsea undanfarið, hvefur verið lánaður til lundúnafélagsins Fulham. mun hann spila á Craven Cottage út þessa leiktíð. 20.1.2006 10:00
New York - Detroit í beinni Leikur New York Knicks og Detroit Pistons verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV á Digital Ísland klukkan eitt í nótt. Detroit státar af langbesta árangri allra liða í deildinni og valtaði auðveldlega yfir Atlanta Hawks síðustu nótt. New York hefur ekki gengið jafn vel undir stjórn Larry Brown, en þó má segja að liðið sé nokkuð óútreiknanlegt og því verður gaman að sjá hvernig því tekst að eiga við Detroit. 19.1.2006 23:00
Skallagrímur sigraði Keflavík Skallagrímur vann góðan sigur á Keflavík í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld 98-88 í Borgarnesi. George Byrd skoraði 27 stig og hirti 13 fráköst fyrir Skallagrím, en AJ Moye var atkvæðamestur hjá Keflvíkingum með 22 stig. 19.1.2006 22:31
Saunders þjálfar Austurliðið Í gær varð ljóst að Flip Saunders, þjálfari Detroit Pistons, muni þjálfa lið Austurdeildarinnar í stjörnuleiknum árlega sem fram fer í Houston þann 19. febrúar. Sá þjálfari sem náð hefur bestum árangri þann 5. febrúar í hvorri deild fyrir sig, stýrir viðkomandi liði, en eftir að Detroit vann og Cleveland tapaði í gærkvöld, varð ljóst að ekkert lið getur komist upp fyrir Detroit á þeim tíma. 19.1.2006 22:30
Íslendingar töpuðu fyrir Frökkum Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði fyrir Frökkum 31-27 í æfingaleik í Laugardalshöll í kvöld, eftir að staðan hafði verið 13-12 fyrir Frakka í hálfleik. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í íslenska liðinu með 9 mörk. Liðin eigast við að nýju á laugardaginn. 19.1.2006 21:27
Villeneuve ánægður með nýja bílinn Ökuþórinn Jacques Villeneuve er mjög ánægður með nýja BMW-Sauber bílinn sem hann reynsluók í fyrsta sinn í dag og segist viss um að bíllinn eigi eftir að gera góða hluti á komandi keppnistímabili. 19.1.2006 21:16
Frakkar yfir í hálfleik Frakkar hafa eins marks forystu gegn Íslendingum í æfingaleik sem stendur yfir í Laugardalshöllinni og er staðan 13-12 fyrir Frakka í hálfleik. Birkir Ívar Guðmundsson hefur verið besti leikmaður íslenska liðsins í hálfleiknum og hefur varið 12 skot, en Guðjón Valur Sigurðsson hefur skorað 4 mörk og Sigfús Sigurðsson og Einar Hólmgeirsson hafa skorað 2 mörk hvor. 19.1.2006 20:40
Lofum engum sæti í liðinu Martin Jol, stjóri Tottenham, hefur viðurkennt að honum þyki súrt að missa af þeim Wayne Bridge og Theo Walcott til Fulham og Arsenal eins og útlit er fyrir, en Tottenham hafði mikinn áhuga á að fá báða þessa leikmenn í sínar raðir. 19.1.2006 20:30
Annríki hjá Keflvíkingum Landsbankadeildarlið Keflavíkur í karla- og kvennaflokki gengu í dag frá samningum við hvorki meira né minna en fimmtán leikmenn í dag. Hjá karlaliðinu bar hæst að þeir Þórarinn Kristjánsson og Hörður Sveinsson sömdu við félagið, en talið var líklegt að Hörður kæmist að hjá liði erlendis. 19.1.2006 20:28
Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Landsliðsmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson hefur framlengt samning sinn við þýska úrvalsdeildarliðið Gummersbach til ársins 2009. Guðjón hefur farið á kostum með liðinu í vetur og hefur verið markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar undanfarnar vikur. Kóreumaðurinn Shin Yoon hefur hinsvegar neitað að framlengja samning sinn við félagið og leikur því ekki með Gummersbach á næstu leiktíð. 19.1.2006 20:16
Breskir fjölmiðlar ættu að skammast sín Fyrrum knattspyrnuhetjan og núverandi knattspyrnustjóri Wolves, Glenn Hoddle, segir að breskir fjölmiðlar ættu að skammast sín fyrir meðferð sína á Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfara Englendinga. Eriksson hefur verið harðlega gagnrýndur af bresku pressunni undanfarið, en því er ekki að neita að hart hefur verið vegið að honum. 19.1.2006 19:27
Wayne Bridge farinn til Fulham Chelsea hefur samþykkt að lána varnarmanninn Wayne Bridge til Fulham út leiktíðina, en Bridge hefur lítið sem ekkert fengið að spreyta sig með Chelsea í vetur þó hann sé inni í myndinni hjá enska landsliðinu. Bridge sagðist fagna þessu tækifæri og vonast nú til að geta tryggt sér sæti í landsliðinu í sumar með því að fá meira að spila hjá Fulham. 19.1.2006 19:19
Ísland mætir Frökkum í kvöld Íslenska handboltalandsliðið leggur nú lokahönd á undirbúning sinn fyrir EM í Sviss og í kvöld mæta íslensku strákarnir fyrnasterku liði Frakka í Laugardalshöllinni klukkan 20. Þetta er fyrri leikur liðanna, en sá síðari verður á laugardaginn. 19.1.2006 18:30
Stórleikur í Njarðvík Þrettánda umferð Iceland Express-deildar karla í körfubolta klárast í kvöld með fimm leikjum. Stórleikur kvöldsins er viðureign toppliðs Njarðvíkur og KR í Njarðvík, en auk þess verður viðureign Skallagríms og Keflavíkur í Borgarnesi væntanlega hörkuspennandi. Grindavík tekur á móti Þór, Snæfell mætir ÍR og loks fá Fjölnismenn Hauka í heimsókn í Grafarvoginn. 19.1.2006 18:15
Hewitt úr leik Þriðji stigahæsti tennisleikarii heims, Lleyton Hewitt, féll úr leik í dag á opna ástralska meistaramótinu í tennis, þegar hann tapaði fyrir Argentínumanninum Juan Ignacio Chela í annari umferð mótsins í æsilegum leik 6-4, 6-4, 6-7 (8-10) og 6-2. Hewitt hefur átt við ökklameiðsli að stríða að undanförnu, en andstæðingur hans þurfit einnig að glíma við smávægileg meiðsli í leik þeirra í dag. 19.1.2006 18:00
Spáir Ullrich sigri á Tour de France Hjólreiðakappinn Lance Armstrong frá Bandaríkjunum spáir að Þjóðverjinn Jan Ullrich komi til með að vinna Frakklandshjólreiðarnar í sumar. Ullrich hefur verið einn helsti keppinautur Armstrong undanfarin ár, en á að baki einn sigur í keppninni fyrir níu árum síðan. 19.1.2006 17:45
Fullkomin byrjun fyrir Cassano Ítalski framherjinn Antonio Cassano átti sannkallaða draumabyrjun með liði sínu Real Madrid í gærkvöldi þegar hann skoraði sigurmark liðsins á útivelli í 1-0 sigri á Real Betis í spænska bikarnum. 19.1.2006 17:15
Loeb bjartsýnn fyrir Monte Carlo Heimsmeistarinn í rallakstri, Frakkinn Sebastien Loeb, er bjartsýnn á að geta unnið þriðja titil sinn í röð á næsta keppnistímabili, þrátt fyrir að þurfa að keppa fyrir einkaaðila á árinu eftir að lið Citroen ákvað að hætta að reka lið í heimsmeistarakeppninni. 19.1.2006 16:45
Hljóp upp í áhorfendastæði til varnar eiginkonu sinni Furðulegt atvik átti sér stað í leik Chicago Bulls og New York Knicks í NBA deildinni í nótt, þegar Antonio Davis hjá New York spratt skyndilega upp í áhorfendastæðin í átt til konu sinnar af ótta við að maður væri að ógna henni. 19.1.2006 16:25
Fiorentina býður í Kroldrup Ítalska liðið Fiorentina hefur gert Everton tilboð í danska varnarmanninn Per Kroldrup, en sá danski hefur fá tækifæri fengið með enska liðinu síðan hann kom til félagsins frá Udinese fyrir 5 milljónir punda síðasta sumar, enda hefur hann átt við erfið meiðsli að stríða. 19.1.2006 16:15
Neitaði tilboði Fulham í Taylor Úrvalsdeildarlið Portsmouth neitaði í dag 1,2 milljón punda tilboði Fulham í vængmanninn Matthew Taylor, því félagið vildi fá hærri upphæð fyrir leikmanninn. Portsmouth hafði gefið það út að til greina kæmi að selja Taylor til að safna peningum, en nú er ljóst að ekkert verður af því í bili. 19.1.2006 16:04
Íhugaði að yfirgefa Arsenal Thierry Henry hefur viðurkennt í samtali við franska blaðið L´equipe að hann hafi íhugað að fara frá Arsenal, en hann ákvað fyrir skömmu að vera áfram hjá liðinu og mun undirrita nýjan samning við félagið á næstunni. 19.1.2006 15:59
Kaupir David Thompson Nýliðar Wigan í ensku úrvalsdeildinni fengu í dag til sín miðjumanninn David Thompson frá Blackburn, en Thompson hefur fá tækifæri fengið með liði sínu í vetur eftir að hafa barist við þrálát meiðsli. Wigan tekur við samningi hans út árið. Þá er talið víst að Wigan muni ganga frá samningi við hinn lítt notaða Neil Mellor hjá Liverpool fljótlega. 19.1.2006 14:56
Detroit valtaði yfir Atlanta Efsta lið NBA deildarinnar, Detroit Pistons var ekki í vandræðum með Atlanta Hawks á útivelli í nótt og sigraði 117-89. Chauncey Billups skoraði 23 stig í jöfnu liði Detroit, en Al Harrington skoraði 21 stig fyrir Atlanta. Detroit hefur unnið 31 leik og tapað aðeins 5 í vetur. 19.1.2006 14:29
Walcott á leið til Arsenal BBC greindi frá því nú fyrir skömmu að unglingurinn Theo Walcott væri í þann mund að ganga til liðs við Arsenal frá Southampton fyrir um 12,5 milljónir punda og ef hann stenst læknisskoðun gætu kaupin klárast á morgun. 19.1.2006 13:46
Gattuso fer ekki til Man. Utd. Forráðamenn AC Milan segja ekkert til í þeim sögusögnum sem eru að bendla miðjumanninn Gennaro Gattuso við sölu til Manchester United nú í janúar. 19.1.2006 12:45
Verðum að stöðva Rooney Xabi Alonso, spænski miðjumaðurinn hjá Liverpool, segir að leikmenn liðsins verði að hafa hemil á Wayne Rooney og Ruud van Nistelrooy ætli þeir sér að bera sigur út býtum í viðureign liðanna um helgina. 19.1.2006 11:45
Federer lítur vel út Svisslendingurinn Roger Federer stefnir hraðbyri á enn einn sigurinn á árinu en í nótt sigraði hann Þjóðverjann Florian Mayer örugglega á ástralska meistaramótinu í tennis, 6-1, 6-4 og 6-0. 19.1.2006 11:15
Pierce féll úr keppni í nótt Mary Pierce frá Frakklandi féll úr keppni á Opna ástralska meistaramótinu í tennis í nótt þegar hún beið í lægri hlut fyrir ungum Tékka. 19.1.2006 10:45
Gabri líklega til Middlesbrough Allt útlit er fyrir að Middlesbrough sé að vinna kapphlaupið um spænska miðjumanninn Gabri, sem hefur hug á því að komast burt frá Barcelona. 19.1.2006 10:00
Houston - Dallas í beinni Í kvöld verður á dagskrá Texasslagur á NBA TV á Digital Ísland, þegar Houston Rockets tekur á móti Dallas Mavericks. Það eina sem þessi lið eiga sameiginlegt í dag er að vera frá Texas, því gengi þeirra hefur verið gjörólíkt í vetur. Leikurinn hefst klukkan 1:30 eftir miðnætti. 18.1.2006 22:37
Auðvelt hjá toppliðunum Topplið Hauka og Grindavíkur unnu þægilega sigra í Iceland Express-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Grindavík lagði ÍS 84-66 í Grindavík, þar sem Jerica Watson skoraði 28 stig og hirti 15 fráköst og Hildur Sigurðardóttir var með 24 stig, 19 fráköst og 6 stoðsendingar. 18.1.2006 22:24
Grótta og Valur í undanúrslit Grótta og Valur eru komin í undanúrslit í SS-bikarkeppni kvenna í handbolta. Grótta vann nokkuð óvæntan sigur á Stjörnunni 20-19 eftir framlengdan leik, en þessi lið mættust einmitt í úrslitaleik keppninnar í fyrra þar sem Stjarnan stóð uppi sem sigurvegari. Valsstúlkur lögðu Fram 31-25. 18.1.2006 22:17
Auðveldur sigur Manchester United Manchester United burstaði Burton Albion 5-0 í enska bikarnum á Old Trafford í kvöld. Rossi skoraði tvö mörk fyrir United og þeir Richardson, Giggs og Saha skoruðu eitt mark hver. Þá tryggði Tim Cahill Everton sigur á Milwall í hinum leik kvöldsins í bikarnum. 18.1.2006 22:00
Mílanóliðin söxuðu á forskot Juventus Heil umferð fór fram í ítalska boltanum í kvöld. Topplið Juventus náði aðeins jafntefli gegn Chievo á útivelli 1-1. AC Milan lagði Ascoli heima 1-0 með marki frá Inzaghi og Inter lagði Treviso á útivelli 1-0 með marki frá Cruz. Juventus heldur þó enn 8 stiga forskoti á Inter sem er í öðru sæti deildarinnar. 18.1.2006 21:52