Sport

Skallagrímur sigraði Keflavík

Skallagrímur vann góðan sigur á Keflavík í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld 98-88 í Borgarnesi. George Byrd skoraði 27 stig og hirti 13 fráköst fyrir Skallagrím, en AJ Moye var atkvæðamestur hjá Keflvíkingum með 22 stig.

Njarðvík sigraði KR á heimavelli sínum 87-84. Jeb Ivey var stigahæstur í liði Njarðvíkur með 16 stig, en Pálmi Freyr Sigurgeirsson skoraði 29 stig fyrir KR. Grindavík valtaði yfir Þór 109-59, Snæfell tapaði heima fyrir ÍR 73-72 og loks lyftu Haukar sér af botni deildarinnar með góðum sigri á Fjölni í Grafarvogi 92-81.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×