Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekki baula á Peter Crouch Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands, hefur biðlað til stuðningsmanna United um að baula ekki á framherjann Peter Crouch í landsleiknum gegn Argentínu á laugardag. 8.11.2005 07:15
Á leið til Ítalíu á EM Stefán Arnarsson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, valdi í gær 22 manna æfingarhóp fyrir undankeppni EM sem fram fer á Ítalíu í lok nóvember. Þar er Ísland í riðli með fimm öðrum liðum og komast fjögur efstu liðin í umspilsleiki sem fara fram næsta sumar. 8.11.2005 07:00
Bikarmeistararnir taka á móti Fylki Stórleikur kvöldsins er klárlega viðureign bikarmeistara ÍR og Fylkis en bæði lið hafa komið skemmtilega á óvart í DHL-deildinni í vetur og má því búast við fjörugri rimmu í Austurbergi í kvöld. 8.11.2005 06:45
Allir á leið heim? Eins og við greindum frá í gær þá er Þórarinn Kristjánsson líklega á leið til Keflavíkur á ný en samningaviðræður gætu tafist eftir að stjórn Keflavíkur komst að því að Þórarinn væri ekki lengur í viðræðum við Grindavík og því væru þeir einir um hituna. 8.11.2005 06:15
Bolton í þriðja sætið Bolton vann góðan sigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, 1-0 með marki frá Kevin Nolan á 31. mínútu og lyfti sér í þriðja sæti deildarinnar. Heimamenn voru ívið betri í leiknum, en bæði lið fengu reyndar nokkur góð marktækifæri í rokinu á Reebok Stadium í kvöld. 7.11.2005 22:00
Bolton og Tottenham mætast í kvöld Einn leikur er á dagskrá í toppbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni í kvöld klukkan 20, þar sem Bolton tekur á móti Tottenham. Bæði lið hafa byrjað mjög vel í haust og ætla sér sæti í Evrópukeppninni á næsta ári. 7.11.2005 18:00
Við getum endurtekið sigurgönguna Eiður Smári Guðjohnsen segir að keppinautum Chelsea í ensku úrvalsdeildinni beri að vara sig, því meistararnir séu fullfærir um að endurtaka 40 leikja taplausa hrinu sína í deildinni. 7.11.2005 17:30
Skilur ekki gagnrýnina Framherjinn háleggjaði Peter Crouch hjá Liverpool segist ekkert skilja í þeirri hörðu gagnrýni sem hann hefur orðið fyrir að undanförnu vegna markaþurrðar með Liverpool og enska landsliðinu. 7.11.2005 15:00
Undir smásjá Arsenal Áhugi enskra liða á framherjanum skæða Dirk Kuyt hjá hollenska liðinu Feyenoord virðist nú vera að kvikna á ný, því Arsene Wenger stjóri Arsenal fylgdist með Kuyt spila í gær. Vitað er að Arsenal, Tottenham, Everton og Liverpool hafa öll verið á höttunum eftir leikmanninum síðan í sumar. 7.11.2005 14:00
Enn tapar New York Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Lærisveinar Larry Brown í New York eru enn án sigurs og töpuðu öðrum leik sínum í röð á heimavelli í nótt fyrir Golden State Warriors. Sacramento náði sínum fyrsta sigri gegn Phoenix og LA Lakers lögðu Denver öðru sinni á nokkrum dögum. 7.11.2005 13:00
Barcelona á siglingu Spánarmeistarar Barcelona unnu fjórða leik sinn í röð í deildinni í gær þegar liðið lagði Getafe 3-1 á útivelli. Þetta var fyrsta tap Getafe á heimavelli í ellefu mánuði. Samuel Eto´o, Ludovic Guily og Thiago Motta skoruðu mörk Barcelona. Real Madrid vann nauman sigur á Zaragoza með marki Roberto Carlos úr víti. 7.11.2005 11:00
Stuðningsmennirnir voru frábærir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, sagði að stuðningur áhorfenda hefði gert gæfumuninn fyrir ungt lið sitt í sigrinum gegn Chelsea í gær. Hann hrósaði líka skapgerð ungu leikmannanna í liðinu, en blæs á að hann hafi verið undir pressu með að vinna leikinn. 7.11.2005 09:00
Juventus heldur toppsætinu Efstu liðin á Ítalíu unnu auðvelda sigra í gær og því er staðan á toppnum í A-deildinni óbreytt eftir leiki helgarinnar. Juventus vann Livorno 3-0 og AC Milan tók Udinese í kennslustund 5-1. 7.11.2005 08:00
Woodgate þarf enn að bíða Varnarmaðurinn Jonathan Woodgate er ekki í enska landsliðshópnum sem mætir Argentínu þann 12. nóvember, en þeir David James, Michael Carrick, Paul Koncheski og Wayne Bridge hafa allir verið kallaðir inn í hópinn. 7.11.2005 07:00
Þórarinn til Keflavíkur Knattspyrnumaðurinn Þórarinn Kristjánsson mun að öllum líkindum skrifa undir samning við uppeldisfélag sitt, Keflavík, í vikunni. Þórarinn hefur verið í viðræðum vð Grindavík og Keflavík síðustu vikur en Grindvíkingar hafa slitið viðræðunum þar sem þeir sáu sér ekki fært að mæta launakröfum Þórarins sem ku vera í hærri kantinum. 7.11.2005 06:00
Snorri skoraði tíu mörk Landsliðsmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson skoraði tíu mörk, þar af sjö úr vítum, fyrir félag sitt, Minden, er það lagði Concordia Delitzsch, 38-26, í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Minden er í fjórtánda sæti deildarinnar eftir leikinn. 7.11.2005 06:00
Komst með baráttu í gegnum úrtökumót á spáni Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson frá Akranesi er búinn að tryggja sér þáttökurétt á lokaúrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina en tæpt stóð það. Birgir lenti nefnilega í kröppum dansi á úrtökumóti í Katalóníu um helgina og hann var tveim höggum frá því að komast áfram fyrir síðasta daginn. Það var því lítið annað í spilunum hjá Birgi en að spila ákveðið golf síðasta daginn og það gerði hann. 7.11.2005 06:00
Afturelding sigraði í Eyjum Enn leikur var á dagskrá í DHL-deild karla í handbolta í dag. Afturelding gerði góða ferð til Eyja og sigraði ÍBV 27-20 eftir að hafa verið með fimm marka forystu í hálfleik. Guðmundur Hrafnkelsson var maður leiksins og varði vel í marki Mosfellinga. 6.11.2005 20:00
Ánægður þrátt fyrir tapið Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sagðist stoltur af baráttu sinna manna á Old Trafford í dag, þrátt fyrir að liðið tapaði sínum fyrsta leik í deildarkeppninni í háa herrans tíð. Hann vildi þó ekki gera of mikið úr möguleikum Manchester United í baráttunni um meistaratitilinn. 6.11.2005 19:00
Benedikt setti heimsmet Kraftlyftingamaðurinn Benedikt Magnússon stóð við stóru orðin þegar hann keppti á Evrópumótinu í Finnlandi í dag og setti glæsilegt heimsmet í réttstöðulyftu, með því að lyfta 440 kílóum. Hann átti svo góða tilraun við 455, en hársbreidd vantaði uppá að sú lyfta færi upp. 6.11.2005 18:15
Manchester United sigraði Chelsea Chelsea tapaði í fyrsta sinn í fjörutíu leikjum í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið sótti Manchester United heim á Old Trafford. Það var Darren Fletcher sem skoraði sigurmark United með laglegum skalla í fyrri hálfleik. 6.11.2005 18:00
Árni Gautur besti markvörðurinn Árni Gautur Arason hefur verið útnefndur besti markvörðurinn í norska boltanum á yfirstaðinni leiktíð, en hann var í dag sæmdur Kniksen-verðlaununum svokölluðu, þar sem dómarar, leikmenn og þjálfarar velja bestu leikmenn ársins. Árni varð sem kunnugt er meistari með liði sínu Valerenga á dögunum. 6.11.2005 17:00
Fletcher kemur United yfir Darren Fletcher var rétt í þessu að koma Manchester United í 1-0 gegn Chelsea á Old Trafford með laglegu skallamarki eftir um hálftíma leik, sem fer mjög fjörlega af stað. 6.11.2005 16:30
Mikilvægur sigur Everton Everton krækti í þrjú dýrmæt stig í botnbaráttunni í dag þegar liðið lagði Middlesbrough 1-0 á heimavelli sínum. Það var James Beattie sem skoraði sigurmarkið með skalla í fyrri hálfleik. 6.11.2005 16:00
Eiður á varamannabekknum gegn United Eiður Smári Guðjohnsen verður á varamannabekk Chelsea þegar liðið tekur á móti Manchester United í stórleik helgarinnar sem er að hefjast núna klukkan 16:00. 6.11.2005 15:45
Milwaukee lagði Miami Milwaukee Bucks hefur byrjað vel í NBA deildinni í vetur og í nótt vann liðið þriðja leik sinn í röð þegar það skellti Miami á heimavelli sínum 105-100. Michael Redd og Bobby Simmons skoruðu báðir 23 stig fyrir Milwaukee og T.J. Ford 13 stigum og 11 stoðsendingum. Dwayne Wade var atkvæðamestur í liði Miami með 21 stig, 9 stoðsendingar og 7 fráköst. Ellefu aðrir leikir voru á dagskrá í nótt. 6.11.2005 14:00
Manchester United mætir Chelsea í dag Það verður sannkallaður stórleikur á dagskrá í enska boltanum í dag þegar Manchester United tekur á móti Englandsmeisturum Chelsea. Leikur liðanna hefst klukkan 16, en klukkan 14 eigast við Everton og Middlesbrough. 6.11.2005 00:01
Philadelphia bíður erfitt verkefni Lið Philadelphia 76ers hefur enn ekki unnið leik í deildarkeppni NBA það sem af er tímabili, en í kvöld sækir liðið Indiana heim í leik sem verður annar tveggja í beinni útsendingu á NBATV. Hinn leikurinn er viðureign LA Clippers og Minnesota Timberwolves. 5.11.2005 21:45
Shearer fer í aðgerð í Þýskalandi Eftir að hafa hjálpað liði sínu Newcastle til sigurs á Birmingham í úrvalsdeildinni í dag, fer Alan Shearer til Þýskalands á mánudaginn þar sem hann mun gangast undir aðgerð við kviðsliti. Stephen Carr, félagi hans hjá Newcastle er ný kominn úr svipaðri aðgerð og vona þeir félagar að þeir verði klárir í slaginn fyrir leikinn við Chelsea eftir hálfan mánuð. 5.11.2005 21:30
Birgir Leifur á úrtökumótið Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG tryggði sér í dag keppnisrétt á síðasta úrtökumótinu fyrir evrópsku mótaröðina í golfi, en það fer fram á Spáni í næstu viku. Birgir lauk keppni á úrtökumótinu í Katalóníu í dag á pari og keppir ásamt átta öðrum kylfingum um fjögur síðustu sætin á lokamótinu. 5.11.2005 21:15
Dómarinn kostaði okkur leikinn David O´Leary, knattspyrnustjóri Aston Villa, kenndi dómaranum um tapið fyrir Liverpool í dag og sagði að vítaspyrnudómurinn undir lokin hefði verið þvættingur. Steven Gerrard skoraði úr spyrnunni og í kjölfarið bætti Liverpool við öðru marki og kláraði leikinn. 5.11.2005 20:30
Lærisveinar Alfreðs áfram Þýska liðið Magdeburg tryggði sér í dag sæti í 16-liða úrslitum meistaradeildarinnar í handknattleik, þegar liðið lagði Chehovski Moskvu 37-28 á heimavelli sínum. Sigfús Sigurðsson skoraði 5 mörk fyrir Magdeburg, en Arnór Atlason skoraði ekki að þessu sinni. 5.11.2005 19:30
Sjötti sigur Wigan í röð Nýliðar Wigan héldu ótrúlegri sigurgöngu sinni áfram í ensku úrvalsdeildinni í dag, þegar liðið vann Portsmouth 2-0 á útivelli. Þetta var sjötti sigur Wigan í röð í deildinni og liðið er nú aðeins sex stigum á eftir toppliði Chelsea og situr í öðru sæti deildarinnar eftir ellefu umferðir, nokkuð sem engan hefði órað fyrir í upphafi leiktíðar. 5.11.2005 19:15
Hlynur sá um Stjörnuna Lærisveinar Sigurðar Sveinssonar í Fylki unnu góðan sigur á Stjörnunni í DHL-deild karla í handknattleik í dag 21-19. Markahæstur hjá Fylki var Eymar Kruger með sex mörk, en Patrekur Jóhannesson skoraði 6 fyrir Stjörnuna. Maður leiksins var þó án efa Hlynur Morhens í marki Fylkis, en hann varði 24 skot í leiknum. 5.11.2005 18:55
Hamilton tryggði Detroit sigur í lokin Tíu leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í gærkvöldi og þar bar hæst sigurkarfa Rip Hamilton á lokasekúndunni gegn Boston í æsispennandi leik sem sýndur var beint á NBA TV á Digital Ísland. 5.11.2005 18:45
Breiðablik fór með sigur af hólmi Lið Breiðabliks vann lið Icelandair í úrslitum á Mastersmótinu í Egilshöll í dag, en mótið var kennt við markaskorarann Ian Rush, fyrrum leikmann Liverpool, en lið hans hafnaði í þriðja sæti á mótinu eftir sigur á Víkingi í leiknum um þriðja sætið. 5.11.2005 18:15
Stórtap hjá Haukum í Danmörku Karlalið Hauka tapaði stórt fyrir danska liðinu Arhus GF í Meistaradeildinni í handbolta í dag 34-21, eftir að hafa verið undir 17-7 í hálfleik. Haukar þurfa því nauðsynlega á sigri að halda í síðasta leik sínum í riðlakeppninni ef þeir ætla sér að komast áfram í keppninni. 5.11.2005 18:00
Ívar með sigurmark Reading Ívar Ingimarsson var hetja Reading í dag þegar liðið sigraði QPR í ensku 1. deildinni. Ívar skoraði sigurmark liðsins á 66. mínútu leiksins og heldur Reading því öðru sæti deildarinnar á eftir Sheffield United. 5.11.2005 17:30
Auðveldur sigur Arsenal Arsenal vann auðveldan 3-1sigur á Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í dag og Blackburn lagði Charlton nokkuð óvænt 4-1. Þá vann Fulham sigur á Manchester City 2-1, Newcastle lagði Birmingham 1-0 og West Ham vann West Brom 1-0. 5.11.2005 17:00
Arsenal 2-0 yfir í hálfleik Nú er kominn háfleikur í leikjunum fimm sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal hefur 2-0 yfir í hálfleik gegn Sunderland. Robin van Persie og Thierry Henry skoruðu mörk Arsenal. Blackburn hefur 2-1 yfir gegn Charlton, Fulham hefur yfir 2-1 gegn Manchester City og jafnt er hjá Newcastle og Birmingham, sem og í leik West Ham og West Brom. 5.11.2005 16:00
Liverpool vann Aston Villa Liverpool vann góðan útisigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í fyrsta leik dagsins. Liverpool vann 2-0 og það voru þeir Steven Gerrard og Xabi Alonso sem skoruðu mörk liðsins á síðustu mínutunum. 5.11.2005 15:00
Tveir leikir í beinni Það verða tveir leikir í beinni útsendingu á NBA TV stöðinni á Digital Ísland í nótt. Fyrri leikurinn er viðureign Detroit Pistons og Boston Celtics, en síðari leikurinn er rimma Golden State Warriors og Utah Jazz. en þar eru á ferðinni lið sem ekki hafa sést mikið á skjánum hérlendis. Veislan byrjar fljótlega upp úr miðnætti. 4.11.2005 23:45
Njarðvík lagði ÍR Njarðvíkingar sigruðu ÍR 70-65 í baráttuleik í deildarbikarkeppninni í kvöld, en þetta var fyrri leikur liðanna í átta-liða úrslitunum. Jeb Ivey var stigahæstur Njarðvíkinga með 22 stig, en hitti frekar illa í leiknum. Theo Dixon var stigahæstur hjá ÍR með 22 stig. 4.11.2005 22:59
Fram lagði Selfoss Nokkrir leikir fóru fram í DHL-deild karla og kvenna í kvöld. Í kvennaflokki unnu Valsstúlkur sigur á Fram með 30 mörkum gegn 26. Í karlaflokki fóru fram þrír leikir, Þór og FH skyldu jöfn 25-25, HK lagði Víking/Fjölni 32-28 og Fram sigraði Selfoss á útivelli 28-27. 4.11.2005 22:00
O´Neal verður frá í 2-4 vikur Shaquille O´Neal verður frá keppni í tvær til fjórar vikur með Miami Heat, eftir að hafa snúið sig illa á ökkla í leiknum við Indiana síðustu nótt. Þetta staðfestu læknar liðsins í dag. O´Neal hafði byrjað tímabilið nokkuð rólega og var aðeins með 15 stig og 6 fráköst að meðaltali í fyrstu tveimur leikjunum. 4.11.2005 20:00