Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Juventus með fullt hús Juventus er eina liðið á Ítalíu sem hefur unnið alla leiki sína. Ítalíumeistararnir sigruðu Ascoli, 2-1, í gær. Juventus er með níu stig en fjögur lið eru með sjö stig: Fiorentina, Lazio, Palermo og Livorno. 19.9.2005 00:01
Butt kærður fyrir kjaftbrúk Nicky Butt, leikmaður Birmingham, hefur verið kærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir að úthúða aðstoðardómara þegar hann var rekinn af velli í leiknum gegn Portsmouth um helgina. 19.9.2005 00:01
Góð byrjun hjá Hlyni og Sigurði Félagarnir Sigurður Þorvaldsson og Hlynur Bæringsson, sem leika með hollenska liðinu Woon!Aris þar í landi, byrjuðu feril sinn hjá félaginu á góðum sigri um helgina þegar liðið lagði Polynorm Giants í æfingaleik um helgina, 83-82. 19.9.2005 00:01
Tennis: Rússar sigruðu Frakka Rússar sigruðu í Federation-bikarkeppninni í tennis eftir æsispennandi úrslitaleik við Frakka. Staðan var jöfn, 1-1, eftir keppni laugardagsins. 19.9.2005 00:01
Peugeot-menn hættir í HM í rallý? Svo gæti farið að Peugeot-bílaframleiðandinn keppi ekki meira í heimsmeistaramótinu í rallakstri. Breski aðstoðarökumaðurinn Michael Park lést í gærmorgun þegar bíll Eistans Marko Martins ók út af í breska rallinu í Wales. 19.9.2005 00:01
Birgir Leifur varð ellefti Birgir Leifur Hafþórsson stóð sig mjög vel á Rotterdam-mótinu í golfi og varð í 11. sæti ásamt Englendingum Sam Walker á fjórum höggum undir pari. Ólöf María Jónsdóttir varð í 40.-45. sæti á Evrópumóti kvenna í Hollandi sem lauk um helgina. Hún lék á ellefu höggum yfir pari. 19.9.2005 00:01
Lyon með þriggja stiga forystu Í Frakklandi hefur Lyon þriggja stiga forystu á Le Mans þegar sjö umferðir eru búnar. Lyon gerði 1-1 jafntefli við Bordeaux um helgina en Le Mans sigraði Sochaux, 2-1. Paris St. Germain mistókst að endurheimta 2. sætið; liðið steinlá 3-0 fyrir St. Etienne. 19.9.2005 00:01
Chelsea hugsar um að vinna Steve Clarke, aðstoðarknattspyrnustjóri Chelsea, vísar því á bug að liðið sé að spila leiðinlegan fótbolta eins og margir vilja meina að liðið sé að gera um þessar mundir og segir að aðalmálið sé að vinna leiki. 19.9.2005 00:01
Ferguson í Noregi Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United er staddur í Noregi í dag, þar sem hann er að gera allt sem í hans valdi stendur til að greiða fyrir kaupum félagsins á nígeríska unglingnum John Obi Mikel. Þetta kemur fram í norskum fjölmiðlum í dag. 19.9.2005 00:01
Rooney á að fara til sálfræðings David James, fyrrum aðalmarkvörður enska landsliðsins og leikmaður Manchester City, segir að Wayne Rooney ætti að fara til íþróttasálfræðings til að leita sér hjálpar við skapferli sínu, sem hefur hvað eftir annað komið honum í vandræði undanfarið. 19.9.2005 00:01
Liverpool getur unnið hvern sem er Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segist merkja framfarir hjá liði sínu frá í fyrra, jafnvel þótt það hafi ekki byrjað deildarkeppnina í ár með neinum glæsibrag, enda aðeins sex stig og eitt mark komið í hús í fyrstu fjórum leikjum tímabilsins. 19.9.2005 00:01
Ensk lið á höttunum eftir Helguera Nú er talið líklegt að spænski landsliðsmaðurinn Ivan Helguera, sem verið hefur á mála hjá Real Madrid undanfarin ár, gangi jafnvel til liðs við enskt úrvalsdeildarfélag þegar félagaskiptaglugginn á Englandi opnar um áramótin. 19.9.2005 00:01
Gardner frá í tvo mánuði Varnarmaðurinn Anthony Gardner hjá Tottenham Hotspurs, verður frá keppni í tvo mánuði vegna meiðsla á læri sem hann hlaut í leiknum gegn Aston Villa á laugardag. Þetta kom í ljós eftir að hann fór í læknisskoðun í morgun. 19.9.2005 00:01
Button verður áfram hjá BAR Breski ökuþórinn Jenson Button mun ekki ganga til liðs við Williams í Formúlu eitt á næsta ári eins og til stóð, heldur hefur hann samþykkt að vera áfram hjá BAR liðinu og mun væntanlega skrifa undir nýjan samning við liðið fljótlega. 19.9.2005 00:01
Njarðvíkingar unnu Greifamótið Úrvalsdeildarlið Njarðvíkur sigraði á Greifamótinu í körfubolta sem fram fór um helgina á Akureyri, þegar liðið vann heimamenn í Þór með 86 stigum gegn 76 í úrslitaleik. 19.9.2005 00:01
Enn skorar Gunnar Heiðar Leikjum kvöldsins í sænska og norska boltanum er lokið. Gunnar Heiðar Þorvaldsson var enn eina ferðina á skotskónum fyrir Halmstad sem gerði 1-1 jafntefli við Elfsborg á heimavelli. Kári Árnason lék 67 mínútur fyrir Djurgarden, sem sigraði IFK Gautaborg 3-1. 19.9.2005 00:01
Arsenal lagði Everton Tvö mörk frá varnarmanninum Sol Campbell eftir föst leikatriði voru nóg fyrir Arsenal, sem lagði Everton í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni, 2-0. Campbell hefur verið lengi frá vegna meiðsla, en hefur nú svo sannarlega stimplað sig inn í liðið á ný. 19.9.2005 00:01
Ronaldinho bestur Brasilíski snillingurinn Ronaldinho var í gærkvöld kosinn knattspyrnumaður ársins við sérstaka athöfn í London í gærkvöldi, þar sem tilkynnt var sérstakt heimsúrval leikmanna. Það voru leikmennirnir sjálfir sem gáfu atkvæði í úrvalsliðið, en aðdáendur um heim allan sem réðu valinu á þeim besta. 19.9.2005 00:01
Birgir fer á kostum í Rotterdam Birgir Leifur Hafþórsson hefur farið á kostum á lokadegi Rotterdam-mótsins í áskorandamótaröð Evrópu í golfi í morgun. Birgir Leifur fékk fjóra fugla á fyrstu sex holunum og er nú búinn að leika tólf. Hann er fjóra undir pari í dag en samtals á tveimur undir pari. Hann er í þrettánda til nítjánda sæti sem stendur. 18.9.2005 00:01
Guðjón í ham gegn Düsseldorf Íslenskir handknattleiksmenn gerðu það gott í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 13 mörk fyrir Gummersbach sem kjöldró Düsseldorf 35-25. Markús Máni Michaelsson 6 fyrir Düsseldorf. Einar Hólmgeirsson skoraði 10 mörk fyrir Grosswallstadt þegar liðið lagði Flensburg 28-24. 18.9.2005 00:01
Ólöf María á tíu yfir pari Ólöf María Jónsdóttir er á einum yfir pari í dag eftir sex holur á atvinnumannamóti í Hollandi en hún komst í gegnum niðurskurðinn í gær. Hún er samtals á tíu höggum yfir pari og er þessa stundina í 41.til 45.sæti. 18.9.2005 00:01
Lokadagur á NM í golfi Nú stendur yfir lokadagurinn á Norðurlandamótinu í golfi í Noregi. Heiðar Davíð Bragason berst um sigurinn í einstaklingskeppninni og er aðeins einu höggi á eftir Kim Kristoferson frá Noregi. Karlalandsliðið er í fjórða sæti höggi á eftir Finnum. Kvennalandsliðið er í þriðja sæti eftir fína spilamennsku í gær. Pilta- og stúlknalið Íslands eru í neðsta sæti á mótinu. 18.9.2005 00:01
Ólafur með tvö mörk gegn Bidasoa Ólafur Stefánson skoraði tvö mörk fyrir Ciudad Real í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta þegar liðið burstaði Bidasoa 30-21 í gærkvöld. Einar Örn Jónsson skoraði 3 mörk fyrir Torrevieja sem vann Granollers með eins marks mun, 26-25. 18.9.2005 00:01
Lokeren lagði Sint Truden Arnar Grétarsson, Arnar Þór Viðarsson og Rúnar Kristinsson voru í byrjunarliði Lokeren sem vann Sint Truden 2-1 í belgísku fyrstu deildinni í fótbolta í gær. Lokeren er með 10 stig eftir fimm umferðir í sjötta sæti. 18.9.2005 00:01
Jafnt hjá Valencia og Deportivo Valencia og Deportivo La Coruna gerðu 2-2 jafntefli í hörkuleik í spænsku fyrstu deildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Diego Tristan kom Depor yfir en David Villa og Miguel skoruðu fyrir Valencia en Sergio jafnaði metin fyrir Coruna-menn. Bæði lið misstu mann út af í leiknum með rautt spjald. 18.9.2005 00:01
Öruggur sigur Inter á Lecce Inter Milan vann auðveldan sigur á Lecce með þremur mörkum gegn engu í ítölsku fyrstu deildinni í fótbolta í gær og Parma marði 1-0 sigur á Empoli. Inter er efst í deildinni með sjö stig en það gæti breyst í dag þegar þriðju umferðinni lýkur. 18.9.2005 00:01
Spenna á Wentworth Nú stendur yfir úrslitaleikurinn á heimsmótinu í golfi á Wentworth-vellinum á Englandi. Nýsjálendingurinn Michael Campbell og Írinn Paul McGinley berjast um sigurinn. Campbell var einni holu yfir eftir 14. Sigurvegarinn fær í sinn hlut rúmlega 110 milljónir króna. 18.9.2005 00:01
Jason Gore efstur á Lumber Classic Bandaríkjamaðurinn Jason Gore hefur tveggja högga forystu á Lumber Classic mótinu í bandarísku mótaröðinni í golfi eftir 54 holur. Gore hefur aldrei unnið sigur í mótaröðinni lék á 67 höggum í gær og er samtals á 12 höggum undir pari fyrir lokahringinn í kvöld. 18.9.2005 00:01
Fjórtan sigrar hjá Bayern í röð Bayern München setti met í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær þegar liðið vann fjórtánda leik sinn í röð. Þeir unnu níu síðustu leik sína á síðustu leiktíð og hafa unnið alla fimm til þessa. Bæjarar lögðu Hannover að velli 1-0 með marki Martins Demichelis. Werder Bremen er í öðru sæti, tveimur stigum á eftir Bayern, með 13 stig eftir 3-2 sigur á Borussia Dortmund. 18.9.2005 00:01
Hearts óvænt efst í Skotlandi Í Skotlandi hefur Hearts óvænta forystu en liðið vann Inverness 0-1 á útivelli í gær. Hearts hefur unnið alla sjö leiki sína til þessa í deildinni og er með átta stiga forskot á Celtic og Rangers. Rangers bar sigurorð á Kilmarnock 3-0 í gær en Celtic leikur í dag gegn Hibernian. 18.9.2005 00:01
Rallökumaður lést í Bretlandi Breskur rallökumaður lést í slysi á lokadegi Bretlandsrallsins í dag. Michael Park, sem var aðstoðarökumaður Eistans Markkos Martins, lést þegar Martin ók bílnum á tré á fimmtándu sérleið keppninnar. Martin slapp ómeiddur úr árekstrinum. Rallið er liður í heimsmótaröð rallökumanna og var síðustu tveimur sérleiðunum aflýst sem og verðlaunaafhendingu vegna andláts Parks. 18.9.2005 00:01
Roy Keane fótbrotinn Áföllin koma í halarófu hjá Manchester United í upphafi leiktíðar í ensku úralsdeildinni í knattspyrnu en fyrirliði liðsins, Roy Keane fótbrotnaði í leik liðsins gegn Liverpool í dag. Framristarbein brotnaði og er búist við að Keane verði frá í 2 mánuði. 18.9.2005 00:01
Loks sigur hjá Newcastle Newcastle vann sinn fyrsta sigur í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið lagði Blackburn á útivelli, 0-3. Alan Shearer, Michael Owen og Charles N Zogbia skoruðu mörk gestanna sem fyrir leikinn höfðu aðeins landað tveimur stigum í fimm leikjum. Fyrr í dag gerðu Liverpool og Man Utd markalaust jafntefli á Anfield í tíðindalitlum leik. 18.9.2005 00:01
Valskonur mæta Evrópumeisturunum Kvennalið Vals mætir sjálfum Evrópumeisturunum í þýska liðinu Turbine Potsdam í 8 liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Valur mætir þýska liðinu í Reykjavík 8. október og ytra 19. október. Sigurvegarinn úr þeirri rimmu mætir annaðhvort Spörtu Prag frá Tékklandi eða Djurgården/Älvsjö frá Svíþjóð í undanúrslitum. 18.9.2005 00:01
Óvænt tap hjá AC Milan AC Milan tapaði óvænt fyrir Sampdoria í ítalska fótboltanum í dag, 2-1 þar sem nýliðinn Alberto Gilardino skoraði sitt fyrsta mark fyrir Milan. Leikurinn markaði tvöföld tímamót fyrir fyrirliðann Paolo Maldini sem var að leika sinn 800. leik fyrir félagið auk þess sem hann jafnaði leikjamet Dino Zoff sem lék 570 leiki í efstu deild á Ítalíu. 18.9.2005 00:01
Sigurmark Bolton á 94. mínútu Bolton tryggði sér ótrúlegan sigur á Man City, 0-1 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu nú síðdegis þar sem sigurmarkið kom úr vítaspyrnu þegar 4 mínútur voru komnar framyfir venjulegan leiktíma. Þá gerðu nýliðar Wigan 1-1 jafntefli við Middlesbrough. 18.9.2005 00:01
Ásthildur skoraði fyrir Malmö Ásthildur Helgadóttir skoraði eitt marka Malmö sem burstaði Gautaborg 5-1 í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Malmö er í 2. sæti deildarinnar með 52 stig, þremur stigum á eftir Umeå sem valtaði yfir AIK, 6-0 í gær. Djurgården/Älvsjö sem stal 2-1 sigri gegn Val í Evrópukeppni félagsliða í síðustu viku er í 3. sæti deildarinnar með 36 stig. 18.9.2005 00:01
Vissu um mikilvægi marks Rikka Leikmenn Fram í Landsbankadeild karla voru meðvitaðir um það inni á vellinum að mark Ríkharðar Daðasonar lyfti liðinu tímabundið í 8. sætið í deildinni en með því minnkaði hann muninn í 4-1 gegn FH á Laugardalsvelli í gær. Hefðu það orðið úrslit leiksins hefði Fram náð að halda sér í deildinni á kostnað ÍBV á fleiri mörkum skoruðum. 18.9.2005 00:01
Borgvardt kom inn fyrir Østenstad Allan Borgvardt lék síðustu 5 mínúturnar með Viking sem tapaði 1-0 fyrir Odd Grenland í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu nú síðdegis. Allan kom inn á sem varamaður fyrir Egil Østenstad. Stefán Gíslason lék allan tímann í liði Lyn sem tapaði fyrir Ham Kam 1-0. Við hlið Stefáns á miðjunni lék John Obi Mikel. 18.9.2005 00:01
Barcelona og Real Madrid töpuðu Óvænt úrslit urðu í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld þegar stórveldin Barcelona og Real Madrid töpuðu leikjum sínum. Nýliðarnir tveir hjá Real Madrid, Julio Babtista (90mín) og Ramos Sergio (88. mín) voru báðir reknir af velli með rauðu spjaldi þegar liðið tapaði fyrir Espanyol 1-0 og var það því 9 manna lið Real sem lauk leiknum. 18.9.2005 00:01
Hef séð það svartara Vanderlei Luxemburgo, knattspyrnustjóri Real Madrid á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir enda gengur hvorki né rekur hjá liðinu. Farið er að hitna allverulega undir stólnum hans og margir sem spá því að hann verði látinn fjúka áður en langt um líður. Hann efast þó ekki um að liðið nái að rífa sig upp úr sleninu og biður menn að sýna stillingu. 18.9.2005 00:01
Valsstúlkur í 8 liða úrslit Valur tryggði sér í dag farseðilinn í 8 liða úrslit Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu þegar þær burstuðu Alma frá Kazakstan 8-0 í B-riðli 2. umferðar keppninnar. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Val, Málfríður Erna Sigurðardóttir tvö en Dóra Stefánsdóttir og Rakel Logadóttir eitt mark hvor. 17.9.2005 00:01
Staða Grindvíkinga erfiðust Grindavík, ÍBV og Fram berjast um að forðast fall í lokaumferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu í dag. Staða Grindvíkinga er erfiðust en þeir mæta Keflvíkingum á heimavelli en Keflvíkingar berjast um þriðja sætið við Skagamenn sem mæta KR-ingum á Skipaskaga. Vestmannaeyingar fara í Árbæinn og Framarar reyna að forðast fall sjöunda árið í röð. Þeir mæta Íslandsmeistaraliði FH. 17.9.2005 00:01
Birgir Leifur í 43.-46. sæti Birgir Leifur Hafþórsson er tvo yfir pari eftir tólf holur í dag á þriðja keppnisdegi á Rotterdam-mótinu í áskorendamótaröð Evrópu. Hann er sem stendur í 43. til 46.sæti tvo yfir pari samtals. 17.9.2005 00:01
Ólöf á níu yfir pari í Hollandi Ólöf María Jónsdóttir lék fyrsta hringinn á atvinnumannamóti í Hollandi á 79 höggum, sjö yfir pari. Hún er tvo yfir pari í dag eftir 12 holur og er samtals á 9 höggum yfir pari í 58. sæti til 68. 17.9.2005 00:01