Fleiri fréttir

Aldrei fleiri bílar á hring­veginum en á síðasta ári

Aldrei áður hefur meiri umferð mælst á hringveginum en árið 2022 og var þá met ársins 2019 slegið. Umferðin í fyrra reyndist einu og hálfu prósenti meiri en árið 2019. Mun minna var ekið í desember 2022 en árið áður og helgast líklega af veðuraðstæðum.

Tesla Model Y mest seldi bíll ársins á Íslandi

Toyota var með flestar seldar bifreiðar á árinu eða 3.395 eintök. Alls voru nýskráðar 23.287 bifreiðar á árinu. Það eru sambærilegar tölur og í fyrra þegar 22.133 ökutæki voru nýskráð. Tesla Model Y var mest selda einstaka undirtegundin með 1.035 eintök. Rafmagn varð hlutskarpast allra orkugjafa þegar upp var staðið. Upplýsingar eru fengnar af vef Samgöngustofu.

Hönnun rafbíla tekur tillit til endurvinnslu þeirra

Umræða sem á það til að fylgja rafbílum er að það sé erfitt að endurvinna þá. Sannleikurinn er sá að það er erfiðara að endurvinna þá, en brunahreyfilsbíla. Brunahreyfilsbílar eru í grunninn settir saman úr stáli og áli sem mannkynið hefur endurnýtt í marga áratugi.

Mest seldu bílar í Evrópu í nóvember

Skráningar í Evrópu náðu yfir milljón í lok nóvember sem er aukning um 17% frá sama tíma á síðasta ári þegar 860.000 bílar höfðu verið seldir í lok nóvember. Tesla Model Y var mest seldi bíllinn í Evrópu í nóvember með 19.169 eintök seld. Salan jókst um 254% á milli ára.

Forseti General Motors telur tvinn bíla tímaskekkju

Mark Reuss, forseti General Motors segir að mikill misskilningur sé á kreiki þegar kemur að rafbílum. Meðal annars ræddi Reuss um tvinnbíla sem hann telur raunar ekki eiga sér stað á markaði eins og staðan er núna og telur að framleiðendur eigi að einbeita sér að hreinum rafbílum.

Ford Bronco sýndur í Brimborg

Ford Bronco dagar verða haldnir í Brimborg í dag, föstudaginn 16. desember og á morgun 17. desember í Reykjavík og á Akureyri. Fyrir mörgum er það söguleg stund því glænýr Ford Bronco er að snúa aftur til Íslands eftir um það bil 30 ára hlé. Íslendingar hafa beðið þess með mikilli eftirvæntingu að fá að sjá og prófa goðsögnina sem er nú komin í nýjan og vígalegan búning og hefur aldrei verið öflugri.

Hringekja liðsstjóra í Formúlu 1

Afsögn Mattia Binotto sem liðsstjóra Ferrari liðsins í lok nóvember hefur sett af stað mikinn kapall sem að miklu leyti gekk upp í gær. Alls verða nýir liðsstjórar í að minnsta kosti fjórum liðum af tíu á næsta tímabili.

Smart#1 með fimm stjörnur í Euro NCAP

Smart#1 var kynntur til leiks fyrr á árinu og er áætlaður á götuna á meginlandi Evrópu í byrjun árs 2023. Bíllinn var nýlega settur í gegnum öryggisprófanir hjá Euro NCAP. Þar sem hann hlaut fimm stjörnur, hæstu einkunn.

Kia valinn framleiðandi ársins hjá Top Gear

Kia var valinn framleiðandi ársins 2022 á TopGear.com verðlaunahátíðinni. Þetta er annað árið í röð sem Kia fer með sigur af hólmi á TopGear.com verðlaununum, en í fyrra var EV6 hlutskarpastur í sínum flokki.

Rafdrifni Lexus-inn sem á að taka við af LFA

Lexus ætlar að smíða rafdrifinn frammistöðubíl sem mun taka við keflinu af hinum rómaða LFA. LFA er V10 bensín bíll. Nú hafa verið opinberaðar myndir af nýja rafsportbílnum.

Sjá næstu 50 fréttir