Bílar

Mest seldu bílar í Evrópu í nóvember

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Model Y á bryggju.
Model Y á bryggju. Vilhelm Gunnarsson

Skráningar í Evrópu náðu yfir milljón í lok nóvember sem er aukning um 17% frá sama tíma á síðasta ári þegar 860.000 bílar höfðu verið seldir í lok nóvember. Tesla Model Y var mest seldi bíllinn í Evrópu í nóvember með 19.169 eintök seld. Salan jókst um 254% á milli ára.

Sala hreinna rafbílajókst um 30% á milli ára. Í ár seldust 172.600 hreinir til og með nóvember. Alls voru 17,1% nýskráðra bíla í nóvember rafbílar sem er næst hæsta hlutfallið í Evrópu. Hæsta hlutfallið var í desember í fyrra þegar 18,9% nýskráninga var á hreinum rafbílum.

Næst mest seldi bíll Evrópu í nóvember var Dacia Sandero með 18.781 þar sem salan jókst um 15% á milli ára. Í þriðja sæti var Toyota Yaris með 17.320 eintök seld.

4. sæti - Fiat/Abarth 500 með 17.238 eintök seld með 28% aukningu á milli ára.

5. sæti - Peugeot 208 með 15.613 eintök og samdrátt í sölu upp á 6%

6. sæti - Volkswagen Golf með 14.908 eintök seld og aukningu upp á 119%

7. sæti - Renault Clio með 14.838 eintök seld og samdrátt í sölu upp á 10%

8. sæti - Volskwagen T-Roc með 14.703 eintök seld og neikvæða þróun upp á 5%

9. sæti - Toyota Yaris Cross með 13.282 eintök seld og 56% aukningu á milli ára.

10. sæti - Volkswagen Tiguan 13.739 eintök og 223% aukningu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×