Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vegasprengja drap tíu 10 vegavinnumenn eru látnir og 28 særðir eftir að þeir óku yfir vegasprengju í Kandahar héraðinu í Afganistan í nótt. 24.5.2011 07:57
Miklar loftárásir í Trípolí Þyrlur á vegum bandalagsríkja Nató hófu stórfelldar loftárásir á höfuðborg Líbíu, Trípolí, í nótt. 24.5.2011 07:55
Yfir hundrað manns fórust í illvígum skýstrók Bæjaryfirvöld í bandaríska bænum Joplin í Missouri hafa staðfest að það hafi að minnsta kosti 116 manns farist vegna skýstróks sem fór í gegnum bæinn í gær. 24.5.2011 07:52
Hluta af lofthelgi Danmerkur lokað vegna ösku Dönsk flugmálayfirvöld tilkynntu klukkan sex í morgun að norðausturhluta af lofthelgi Danmerkur hefi verið lokað. 24.5.2011 06:59
Fleiri ferðum aflýst í Skotlandi Breska flugfélagið British Airways hefur frestað öllum ferðum frá Englandi til Skotlands og verður í fyrsta lagi flogið klukkan eitt eftir hádegi á morgun. Ástæðan er öskuskýið úr Grímsvötnum sem nú stefnir á Bretlandseyjar. Hollenska félagið KLM hefur aflýst 16 ferðum á morgun til Skotlands og Englands og skoska félagið Loganair hefur aflýst 36 ferðum frá Skotlandi. 23.5.2011 20:41
Obama flýr íslenskt öskuský Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, mun hraða brottför sinni frá Írlandi vegna eldgossins í Grímsvötnum. Þetta segir Sky fréttastofan. Obama fór í heimsókn til Írlands í dag, ásamt Michelle eiginkonu sinni. Þau hugðust vera þar í einn sólarhring en þau munu fara í kvöld vegna mögulegra truflana á flugsamgöngum. 23.5.2011 17:49
Bandarískir njósnarar í Svíþjóð Svenska Dagbladet heldur því fram að Bandaríkjamenn hafi njósnað um grunaða hryðjuverkamenn í Svíþjóð, rétt eins og gert var áður en ráðist var til atlögu við Ósama bin Laden í Pakistan. 23.5.2011 16:09
Valdabarátta í Kreml Vladimir Putin vill verða forseti Rússlands á nýjan leik og valdabarátta milli hans og Dmitrys Medvedev núverandi forseta er þegar hafin. 23.5.2011 14:33
Úps -hvað varð um heimsendi? Bandaríski klerkurinn sem spáði heimsendi síðastliðinn laugardag er steinhissa á því að heimurinn skuli vera hérna ennþá. Harold Camping hafði lesið út úr biblíunni að heimsendir myndi hefjast klukkan sex að staðartíma um heim allan. 23.5.2011 11:33
Flugstjóri Air France var aftur í vélinni Flugstjóri Air France vélarinnar sem fórst á leið frá Rio de Janeiro til Parísar fyrir tveim árum var ekki í stjórnklefanum þegar vélin flaug inn í óveður. Þýska tímaritið Der Spiegel hefur þetta eftir ónafngreindum sérfræðingi sem hefur heyrt hljóðupptökur úr stjórnklefanum. 228 manns voru um borð og fórust allir. 23.5.2011 11:28
Barack Obama er líka Íri Það hefur nú komið í ljós ofan á allt annað að Barack Obama er Íri. Langa, langa, langa langafi hans Falmouth Kearney fluttist til Bandaríkjanna frá smábænum Moneygall í hungursneyðinni miklu sem varaði milli 1845 til 1852. 23.5.2011 09:46
16 drukknuðu í barnaafmæli 16 farþegar drukknuðu þegar skemmtibátur sökk nærri Hanoi borg í Víetnam í gær. Málið er hinn mesti harmleikur en farþegarnir voru að fagna þriggja ára afmæli lítils drengs. 23.5.2011 09:27
Talibanar náðu pakistanskri herstöð á sitt vald Byssumenn á vegum Talibana réðust inn í herstöð Í Pakistan í gærkvöldi og sprengdu upp herþotur. Mennirnir eiga nú í skotbardögum við pakistanska herinn. 23.5.2011 08:42
Minnsta kosti 30 fórust í óveðri Um 30 Bandaríkjamenn fórust Þegar skýstrókur gekk yfir bæinn Joplin í Missouri fylki í Bandaríkjunum í gær. 23.5.2011 08:37
Föst vegna ösku - aftur Norska blaðið Aftenposten greinir frá tveimur vinkonum sem báðar sátu fastar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli fyrir rúmu ári. Önnur í New York og hin í Stokkhólmi. Nú eru ferðaplön þeirra aftur í uppnámi. Ástæðan. Þær ákváðu að skella sér í sumarfrí á Íslandi. Vinkonurnar heita Randi Roaldsnes og Karen Sofie Haraldsen. Þær eru hér ásamt þrettán vinum í skemmtiferð og hafa það bara gott - eða kjempefint, eins og segir í greininni. 22.5.2011 14:05
Yfir tuttugu konur ákærðar Einn karlmaður og 23 konur voru í gær ákærð í Falun í Svíþjóð vegna barnakláms. Karlmaðurinn sendi konunum, sem eru á aldrinum 37 til 70 ára, myndir og myndbönd sem sýndu meðal annars börn beitt grófu kynferðislegu ofbeldi. 22.5.2011 10:45
Taka við tilnefningum um nýjan forstjóra AGS Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tilkynnti í gærkvöldi að byrjað yrði á mánudaginn að taka við tilnefningum að nýjum yfirmanni sjóðsins, eftirmanni Dominique Strauss-Kahn sem sagði af sér í síðustu viku eftir að herbergisþerna á hóteli í New York kærði hann fyrir nauðgun. 21.5.2011 10:19
Heimurinn er enn til Heimurinn er enn til og lífið gengur sinn vanagang þvert á dómsdagsspár bandaríska predikarans Harold Camping. Hann hafði spáð því að klukkan 18 í hverjum heimshluta myndu jarðskjálftar hefjast, og í framhaldinu yrðu hinir dyggðugu geislaðir upp til himna. 21.5.2011 10:13
Verra fyrir þekkta en óþekkta Fyrrverandi dómsmálaráðherra Frakka, Elisabeth Guigou, segir myndbirtingu af Dominique Strauss-Kahn, þar sem hann er leiddur um í járnum, ógeðfellda og grimmdarlega. Hún stóð sjálf fyrir setningu laga í Frakklandi sem banna birtingu slíkra mynda. 21.5.2011 09:30
Doherty aftur á bak við lás og slá Breski rokkarinn Pete Doherty var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa kókaín í vörslu sinni. Hinn 32 ára gamli söngvari var handtekinn í janúar í fyrra en þetta er í þriðja sinn sem hann er dæmdur í fangelsi. Þar fyrir utan hefur hann fengið 25 vægari dóma fyrir eiturlyfjanotkun. 20.5.2011 13:43
Fornleifafundur breytir sögu Danmerkur Merkur fornleifafundur í Jelling í Danmörku þýðir að Danir þurfa að endurskrifa sögu sína. 20.5.2011 07:41
Dómsdagsspámaður dvelur heima í dag Bandaríski útvarpsprédikarinn Harold Camping sem lýst hefur því yfir að dómsdagur renni upp á morgun ætlar að verja síðasta degi sínum með eiginkonunni á heimili þeirra í Kaliforníu. 20.5.2011 07:38
Tíðni húðkrabbameins í Danmörku hefur tvöfaldast Nýjar tölur frá dönsku krabbameinssamtökunum Kræftens Bekæmpelse sýna að tíðni húðkrabbameins hjá fólki undir 35 ára aldri hefur tvöfaldast á síðustu 10 árum. 20.5.2011 07:29
Fullyrðir að Strauss-Kahn hafi keypt vændiskonur Kona sem rekur vændisþjónustu í New York fullyrðir að Dominique Strauss Kahn fyrrum forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafi ítrekað keypt af henni vændiskonur. 20.5.2011 07:22
Ísraelsmenn hafna tillögum Baracks Obama Tillögur Baracks Obama Bandaríkjaforseta um að færa landamæri Ísraels aftur til þess sem þau voru fyrir sex daga stríðið árið 1967 falla í grýttan jarðveg í Ísrael. 20.5.2011 07:21
Eyðing regnskóga í Brasilíu eykst sexfalt Nýjar gervihnattamyndir sýna að eyðing regnskóganna í Brasilíu hefur aukist sexfalt milli ára. Eyðingin í ár nemur tæpum 600 ferkílómetrum en hún var rúmlega 100 ferkílómetrar á sama tíma í fyrra. 20.5.2011 07:19
Flugsveitir NATO eyðilögðu átta líbýsk herskip Flugsveitir NATO réðust á herskip í þremur höfnum í Líbýu í nótt í umfangsmiklum loftárásum og sökktu eða eyðilögðu átta herskip í þeim. Eldur logar enn af nokkrum skipanna og mikinn reyk leggur frá þeim. 20.5.2011 07:16
Netanyahu hafnar hugmyndum Obama Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hafnar tillögum Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, um sjálfsætt ríki Palestínumanna og segir þær óverjandi. Obama hélt fyrr í dag ræðu um málefni Mið-Austurlanda og sagði að ríki Palestínumanna verði miðist við þau landamæri sem voru í gildi árið 1967 fyrir sex daga stríðið. Hann sagði Ísraela og Palestínumenn verða að tryggja öryggi landamæranna. Þá ítrekaði Obama að Bandaríkin væru enn traustir bandamenn Ísraela í öryggismálum. 19.5.2011 20:44
Syngur lög í uppáhaldi Bítillinn fyrrverandi Paul McCartney ætlar að gefa út plötu með öllum sínum uppáhaldslögum úr æsku. Hann hefur þegar tekið upp um tólf lög ásamt söngkonunni Diönu Krall. 19.5.2011 20:30
Réttað að nýju yfir Strauss-Kahn Réttarhöld yfir Dominique Strauss-Kahn hófust að nýju undir kvöld. Verjendur hans ítreka kröfu um að Strauss-Kahn verði látinn laus úr gæsluvarðhaldi gegn greiðslu tryggingagjalds. 19.5.2011 19:31
Skortur á drykkjarvatni hrjáir Kínverja Mikill skortur á drykkjarvatni hrjáir nú íbúa í austurhluta Kína. Ástæðan fyrir skortinum eru miklir þurrkar undanfarna mánuði sem hafa leitt til þess að mjög hefur minnkað í vatnsbólum eða þau jafnvel tæmst. 19.5.2011 07:54
Síðasta upptakan með Osama bin Laden á netið Hryðjuverkasamtökin al-Kaída hafa lagt síðustu hljóðupptökuna með Osama bin Laden fram á netið. 19.5.2011 07:50
Þriðji hver háskólastúdent í Berlín íhugar að stunda vændi Þriðji hver háskólastúdent í Berlín hefur íhugað að stunda vændi til þess að fjármagna nám sitt. 19.5.2011 07:39
Evrópulöndin vilja halda forstjórastólnum Evrópulöndin innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) róa nú að því öllum árum að halda yfirráðum sínum yfir forstjórastól sjóðsins. Núverandi forstjóri, Dominique Strauss-Kahn, er í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hann hafi beitt starfsstúlku á hóteli í New York kynferðislegu ofbeldi og efast er um að hann eigi afturkvæmt í embættið. 19.5.2011 07:00
Svarar engu um framboð Dmitrí Medvedev Rússlandsforseti blés til mikils blaðamannafundar í gær þar sem hann svaraði spurningum í heila klukkustund. Þótt hann hafi engu svarað um það hvort hann ætli að bjóða sig aftur fram til forseta næsta kjörtímabil má líta á blaðamannafundinn sem fyrsta skref hans í þá áttina að gera sig gildandi í augum þjóðarinnar gegn vini sínum Vladimír Pútín. 19.5.2011 07:00
Deilt um endastöð kjarnorkuúrgangs „Við þurfum skammtímalosunarstað, og það strax,“ segir þýski jarðfræðingurinn Frank Schilling í viðtali við tímaritið Der Spiegel um kjarnorkuúrgang, sem fellur til úr kjarnorkuverum landsins. 19.5.2011 06:30
Ráðherra ber við mismælum um nauðganir Stjórnarandstæðingar í Bretlandi hafa kallað eftir afsögn Kenneths Clarke dómsmálaráðherra vegna ummæla sem hann lét falla í útvarpsviðtali í gærmorgun. Þar mátti skilja á orðum ráðherra að hann teldi ekki allar nauðganir falla undir skilgreininguna „alvarlegar nauðganir“. 19.5.2011 05:30
Strauss-Kahn sætir sjálfsvígseftirliti Gordon Brown hefur verið nefndur sem næsti forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Sérstaklega er fylgst með Dominique Strauss-Kahn til að tryggja að hann taki ekki eigið líf í fangelsinu á Rikers-eyju. 18.5.2011 18:45
Krefjast þess að Clarke segi af sér Hörð gagnrýni beinist nú að breska dómsmálaráðherranum Ken Clarke, en skilja mátti á honum í viðtali við BBC í morgun að hann teldi sumar nauðganir alvarlegri en aðrar. Ráðherann, sem er íhaldsmaður, hefur hinsvegar neitað að biðjast afsökunar á ummælunum en formaður Verkamannaflokksins, sem er í stjórnarandstöðu, vill að hann segi af sér. 18.5.2011 16:46
Elsta manneskja í heimi er 114 ára og á 5 barnabarnabarnabörn Hin brasilíska Maria Gomes Valentim er elsta lifandi manneskjan í heiminum í dag en hún er hvorki meira né minna en 114 ára og 313 daga gömul. 18.5.2011 16:25
Kjaftaði stanslaust í 16 tíma Hefur þig einhverntíma langað til að kyrkja manneskju sem talaði hátt og lengi í farsímann sinn? Ef svo, ertu heppinn að hafa ekki verið í klefa með henni Lakeyshu Beard þegar hún tók sér far með lest þvert yfir Bandaríkin á dögunum. 18.5.2011 15:03
Margir vilja losna við símaskrána Borgarsstjórnin í San Francisco hefur samþykkt að íbúar borgarinnar fái ekki sjálfkrafa senda símaskrána heim til sín. Margir vilja leggja skrána alveg af en borgarfeðurnir vilja ekki ganga svo langt. 18.5.2011 14:08
Höfundur Family Guy gerir nýja Flintstones-þætti Aðdáendur "The Flintstones" þáttanna þurfa ekki að bíða lengur eftir nýjum þáttum því FOX sjónvarpstöðin tilkynnti í vikunni að Seth MacFarlane, höfundur Family Guy, ætli að búa til nýja seríu af þessum gömlu og klassísku þáttum. 18.5.2011 14:07
Vilja stytta nauðgunardóma um helming Breska ríkisstjórnin vill stytta fangelsisdóma fyrir nauðganir um helming ef ódæðismennnirnir játa sekt sína strax í upphafi málaferla. Í dag gilda þær reglur að dómar eru styttir um þriðjung við játningu. 18.5.2011 11:25
Kaffidrykkja dregur úr líkunum á krabbameini í blöðruhálskirtli Ný bandarísk rannsókn sýnir að kaffidrykkja dregur verulega úr líkunum á því að karlmenn fái krabbamein í blöðruhálskritli. 18.5.2011 07:56