Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Árás gerð á höfuðstöðvar Gaddafís Flugskeytaárás var í nótt gerð á höfuðstöðvar Gaddafís í Trípólí. Árásin var gerð á víggirta byggingu í úthverfi höfuðborgar Líbíu, Trípólí og segja talsmenn bandamanna að ætlunin hafi verið að eyðileggja aðgerðamiðstöð Líbíska herliðsins. 21.3.2011 07:06
Mótmæli breiðast út Forseti Jemens, Ali Abdullah Saleh, rak í gær ríkisstjórn landsins. Fjöldi embættismanna hafði þegar sagt af sér vegna andstöðu við morð á mótmælendum á föstudag, þar sem minnst 45 voru drepnir. Sendiherra Jemens hjá Sameinuðu þjóðunum, tveir ráðherrar, yfirmaður ríkisfjölmiðilsins og sendiherra landsins í Líbanon voru meðal þeirra sem sagt höfðu af sér. 21.3.2011 06:00
Gaddafí heitir langvinnum stríðsátökum Loftvarnakerfi Líbíu er sagt illa skaddað eftir loftárásir Bandaríkjanna, Frakklands og Bretlands. Gaddafí segist ekki ætla að víkja og hefur hert á sókn stjórnarhers Líbíu gegn uppreisnarmönnum. Tölur um mannfall eru á reiki. 21.3.2011 05:00
Bjargað úr rústum eftir níu daga Áttræðri konu og sextán ára barnabarni hennar var bjargað úr rústum húss í Ishinomaki í Japan í gær, níu dögum eftir skjálftann þar í landi. Þau höfðu verið föst í húsinu en komust í ísskáp og gátu því nærst. Þau eru nú á spítala. 21.3.2011 03:00
Milljónir Egypta kjósa - ElBaradei grýttur Milljónir Egypta hafa tekið þátt í kosningum í dag þar sem kosið er um breytingar á stjórnarskrá Egyptalands. Verði breytingarnar samþykktar þýðir það að Egyptar geta haldið lýðræðislegar kosningar eftir hálft ár. 20.3.2011 16:54
Wyclef skotinn á Haítí Tónlistarmaðurinn Wyclef Jean hefur verið útskrifaður af spítala eftir að hann var skotinn í höndina nærri Port-au-Prince, höfuðborg Haíti. Samkvæmt fréttavef BBC þá eru málsatvik óljós en hann var skotinn að kvöldi laugardags að staðartíma. 20.3.2011 14:54
Börnin gráta björninn Knút Sorg ríkir í Þýskalandi vegna dauða ísbjarnarins Knúts sem naut ótrúlegra vinsælda meðal barna og fullorðinna þar í landi. Banamein Knúts hefur enn ekki verið staðfest en mörg hundruð gestir í dýragarðinum fylgdust með síðustu andartökunum í lífi hans. 20.3.2011 14:36
Lofar löngu stríði og ætlar ekki að gefa þumlung eftir Muammar Gaddafi lofaði löngu stríði í símaviðtali sem var tekið við hann í líbíska ríkissjónvarpinu í morgun. 20.3.2011 14:09
Sprengjum rignir yfir Líbýu Sprengjum rigndi yfir Líbýu í gærkvöld. Bandamenn vörpuðu sprengjum á 20 mismunandi staði í Líbýu. Leiðtogar Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands segja að þetta sé fyrsta skrefið í þvi að framfylgja ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem samþykkt var á fimmtudagskvöld. David Cameron, forsætisráðherra Breta, segir að aðgerðirnar séu nauðsynlegar, löglegar og réttlátar. Undir það tekur Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og hann segir jafnramt að ekki sé hægt að horfa upp á Gaddafi, leiðtoga Líbýumanna, misþyrma þjóð sinni. 20.3.2011 09:55
Fullyrða að um 50 manns hafi farist í gær Stjórnvöld í Líbíu fullyrða að hið minnsta 50 manns, þar á meðal konur og börn, hafi farist í árásum bandamanna á Líbíu í gærkvöld. Bandamenn segjast ekki geta staðfest þær upplýsingar, eftir því sem fram kemur á fréttavef CNN. 20.3.2011 07:09
Frakkar senda flugmóðurskip sitt til Líbíu Franskar herþotur skutu fyrstu skotum á líbísk skotmörk í dag. Þá hefur David Cameron, forsætisráðherra Breta, staðfest að breskar herþotur væru tilbúnar til árásar og bandarískir fjölmiðlar segja að hermenn Bandaríkjamanna hafi skotið stýriflaug. 19.3.2011 20:11
Bandamenn búa sig undir árásir á Gaddafi Um 20 herþotur frá franska flughernum sveima nú í líbískri lofthelgi til að koma í veg fyrir að herlið Gaddafis Líbíuforseta geti ráðist á uppreisnarmenn í borginni Benghazi. Þá eru einnig franskar þotur yfir Líbíu. 19.3.2011 17:16
Knútur er dauður Frægasti ísbjörn allra tíma, björninn Knútur, drapst á heimili sínu í dýragarði í Þýskalandi í dag. Þýska blaðið Spiegel greinir ffrá þessu en segir jafnframt að ekki liggi fyrir af hverju Knútur drapst. Knútur hefur verið í dýragarði í Berlín frá því móðir hans hafnaði honum og bróður hans. Knútur var fjögurra ára gamall. 19.3.2011 16:57
Bandamenn ætla að ráðast á Gaddafi Loftárásir bandamanna á Líbíu geta hafist á hverri stundu en leiðtogar Evrópu, nokkurra Arabaríkja og utanríkisráðherra Bandaríkjanna ákváðu á fundi í París rétt í þessu að hefja hernaðaraðgerðir. 19.3.2011 15:00
Ástsæll ráðherra látinn Warren Christopher, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lést í gær. Hann var 85 ára að aldri. Christopher var utanríkisráðherra á fyrra kjörtímabili Bills Clinton, forseta Bandaríkjanna, en Madeleine Albrigth tók svo við af honum. Í embættistíð sinni tók Christopher meðal annars virkan þátt í að móta Dayton samkomulagið sem batt enda á stríðið á Balkanskaga. 19.3.2011 11:39
Hrikalegar myndir af árásinni í Líbíu David Cameron, forsætisráðherra Breta, Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, eru í þann mund að hittast til að ræða stöðuna í Líbíu. Síðar í dag munu þau svo hitta leiðtoga fleiri Evrópuríkja og Arabaríkja til að ræða hernaðaraðgerðir. Þær eru hrikalegar myndirnar sem sýna þegar herþota er skotin niður í borginni Benghazi í Líbíu í nótt. Vélin var á vegum uppreisnarmanna og talið er að það hafi verið hersveitir Gaddafis sem skutu vélina niður. 19.3.2011 11:34
Herþota skotin niður Herþota var skotin niður í borginni Benghazi í Líbíu í nótt þrátt fyrir að ríkisstjórn Líbíu hafi lýst yfir vopnahléi. 19.3.2011 09:14
Aristide snúinn heim eftir sjö ára útlegð HaítiJean-Bertrand Aristide, sem árið 1991 varð fyrsti lýðræðislega kjörni forsetinn á Haítí, sneri aftur þangað frá Suður-Afríku í gær eftir sjö ára útlegð. Fjölmennur hópur stuðningsmanna hans tók fagnandi á móti honum á flugvellinum. 19.3.2011 06:00
Stakk sér 11 metra í vaðlaug Bandarískur dýfingarmaður sló á dögunum sitt eigið met þegar að hann stakk sér 11 metra í vaðlaug með einungis um 30,5 sentimetra djúpt vatn. Darren Taylor er einnig þekktur undir heitinu Prófessor Splass. Hann stakk sér í jökulkalt vatn í Þrándheimi í Noregi og um var að ræða þrettánda staðfesta Guinnes heimsmetið hans. Taylor, sem er frá Colorado í Bandaríkjunum, hefur 25 ára reynslu af dýfingum og vinnur sem áhættuleikari. 18.3.2011 20:25
Fréttaskýring: Örvæntingarfull barátta í Japan Erfiðlega hefur gengið að kæla niður kjarnaofna kjarnorkuversins í Fukushima. Stefnt var á að tengja bráðabirgðarafmagnsleiðslu við verið í gær til að koma kælikerfum í gang á ný. Geislavirkni hækkaði eftir að vatni var sprautað með háþrýstislöngum á einn ofninn. 18.3.2011 20:00
Vopnahléi lýst yfir í Líbíu Stjórnvöld í Líbíu hafa lýst yfir vopnahléi sem tekur gildi nú þegar. Öryggisráð sameinuðu þjóðanna samþykkti í gærkvöldi flugbann yfir landinu auk þess sem hernaðaraðgerðir til varnar óbreyttum borgurum eru heimilaðar. Utanríkisráðherra Líbíu hefur nú tilkynnt um skilyrðislaust vopnahlé sem ætlað er að vernda almenning. 18.3.2011 13:32
Gaddafi: Svikurum engin miskunn sýnd Mikill fögnuður braust út í Bengazi, höfuðvígi uppreisnarmanna í Líbíu í gærkvöldi, þegar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti flugbann yfir landinu. Bretar, Frakkar og Bandaríkjamenn munu framfylgja flugbanninu en umfangsmiklar hernaðaraðgerðir hefjast um helgina. 18.3.2011 12:02
Gaddafi tilbúinn til viðræðna um vopnahlé Nýjustu fréttir frá Trípólí höfuðborg Líbýu herma að Muammar Gaddafi sé tilbúinn til viðræðna við uppreisnarmenn um vopnahlé í landinu. 18.3.2011 07:43
Danskar konur finna meira fyrir streitu en karlmennirnir Ný rannsókn sem unnin var á vegum heilbrigðiseftirlits Danmerkur sýnir að danskar konur, og þá einkum einhleypar konur þjást mun meira af streitu en karlmennirnir. 18.3.2011 07:39
Vonir um að kælikerfin í Fukushima verði endurræst í dag Verkfræðingum við Fukushima kjarnorkuverið hefur tekist að leggja rafmagnskapal að verinu og því ætti að verða mögulegt í dag að endurræsa kælikerfin við hina sködduðu kjarnorkukljúfa sem lekið hafa geislavirkum efnum út í andrúmsloftið undanfarna daga. 18.3.2011 07:23
Mikil gleði í Benghazi eftir að flugbann var samþykkt Mikil gleði braust út meðal uppreisnarmanna í borginni Benghazi í Líbýu í gærkvöldi eftir að fréttir bárust um að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafði samþykkt að setja flugbann á Líbýu. 18.3.2011 07:22
Mikil klámnotkun meðal danskra unglinga Ný könnun í Danmörku leiðir í ljós að þrír af hverjum fjórum dönskum drengjum á menntaskólaaldri horfir á klám reglulega eða minnst tvisar í viku. 18.3.2011 07:04
Geislun nær varla hingað Langsótt er að geislun úr kjarnorkuverinu í Fukushima í Japan hafi áhrif á Íslandsmiðum, að mati Héðins Valdimarssonar, haffræðings hjá Hafrannsóknastofnuninni. 18.3.2011 07:00
Ætlar til Gasa á sáttafund Mahmoud Abbas, forseti Palestínustjórnar, hefur tilkynnt að hann ætli ekki að bjóða sig fram til forseta aftur. Hann býðst jafnframt til að gefa Hamas-samtökunum tækifæri til að vera með í nýrri stjórn. 18.3.2011 00:00
Flugher Líbíu gerir árásir á Benghazi Loftárásir eru hafnar á næst stærstu borg Líbíu, Benghazi, sem er helsta vígi uppreisnarmanna í landinu sem berjast nú við liðsmenn einræðisherrans Gaddafís. Fréttamenn breska ríkisútvarpsins á staðnum hafa greint frá flugvélagný og sprengingum í úthverfum borgarinnar en í henni búa milljón manns. 17.3.2011 16:43
Líbískir liðhlaupar aðstoða uppreisnarmenn Uppreisnarmenn í Líbíu notuðu skriðdreka, stórskotalið og þyrlu til þess að hrinda árás hersveita Gaddafís einræðisherra á bæinn Ajdabiya. 17.3.2011 12:08
Hillary er sátt Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ætlar ekki að bjóða sig aftur fram til forseta Bandaríkjanna. Hún ætlar heldur ekki að sækjast eftir því að verða varaforseti á næsta kjörtímabili, né verða varnarmálaráðherra eða vera utanríkisráðherra áfram. Þetta segir Hillary í samtali við CNN fréttastofuna. 17.3.2011 09:27
Örvænting breytist í reiði meðal Japana Örvænting meðal eftirlifandi Japana á þeim svæðum sem harðast hafa orðið úti í náttúruhamförunum þar í landi er nú að breytast í reiði í garð stjórnvalda. 17.3.2011 07:40
Njósnaflugvélar gegn fíkniefnagengjum í Mexíkó Stjórnvöld í Mexíkó hafa staðfest að Bandaríkjamenn hafi notað ómannaðar njósnaflugvélar til að afla upplýsinga um stærstu fíkniefnagengin í Mexíkó. 17.3.2011 07:29
Hafa tvo sólarhringa til að yfirgefa Benghazi Saif al-Islam einn af sonum Muammar Gaddafi hefur gefið íbúum Benghazi tvo sólarhringa til að yfirgefa borgina. Borgin er síðasta stóra borgin sem er á valdi uppreisnarmanna. 17.3.2011 07:27
Berlusconi keypti Ruby hjartaþjóf 13 sinnum Samkvæmt málskjölum í komandi réttarhöldum yfir Silvio Berlusconi forsætisráðherra kemur fram að hann hafi greitt ólögráða stúlku alls 13 sinnum fyrir kynlífsþjónustu. 17.3.2011 07:19
Auknar aðgerðir til að kæla Fukushima kjarnorkuverið Japönsk stjórnvöld hafa aukið mjög aðgerðir sínar til að kæla niður kjarnakjúfana í Fukushima kjarnorkuverinu. Stórar Chinook herþyrlur eru nú notaðar til að hella vatni yfir kjarnorkuverið en hver þeirra getur borið 7.000 lítra af vatni. 17.3.2011 07:14
Ítalía fagnar 150 ára afmæli sínu Ítalir halda upp á 150 ára afmæli landsins í dag en það fer lítið fyrir hátíðahöldum eða þeirri gleði sem venjulega fylgir merkisdögum sem þessum, meðal þjóða heimsins. 17.3.2011 07:08
Óvissa um hvað er á seyði í kjarnaofnum Akihito Japanskeisari ávarpaði þjóð sína í gær og hvatti fólk til að gefast ekki upp, þrátt fyrir erfiðleika í kjölfar náttúruhamfaranna. Þetta er í fyrsta sinn sem keisarinn kemur fram opinberlega með ávarp sem fyrir fram er hugsað til útsendingar í sjónvarpi. 17.3.2011 01:00
Of gamall fyrir allt þetta kynlíf Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, segist vera of gamall fyrir alla þá ástarfundi sem hann er sakaður um að hafa átt. 17.3.2011 00:45
Gæti leitt til skorts á varahlutum í bíla Ró færðist yfir hlutabréfamarkaði í Asíu í fyrrinótt eftir hrun í kjölfar náttúruhamfara þar fyrir viku. Nikkei-vísitalan hækkaði um tæp 5,7 prósent í gær en hafði fallið um tæp tuttugu prósent á fjórum dögum. 17.3.2011 00:15
Engar dauðarefsingar í bili Yfirvöld í Georgíu í Bandaríkjunum hafa hætt við allar dauðarefsingar í ríkinu eftir að lyf sem notað er til að taka fanga af lífi var gert upptækt. 17.3.2011 00:00
Keisari Japans áhyggjufullur yfir ástandinu í Fukushima Japanskeisari lýsir yfir miklum áhyggjum með ástandið í kjarnorkuverinu í Fukushima en staðfest er að hátt í 4500 séu látnir og meira en átta þúsund saknað. Íslendingar búsettir í Japan hafa yfirgefið landið. 16.3.2011 18:45
Japönsk stelpa fann fjölskylduna á YouTube Japönsk stúlka grét í þrjá daga af því að hún hélt að fjölskylda hennar hefði farist í flóðbylgjunni sem fylgdi jarðskjálftanum stóra í landinu. Stúlkan, sem heitir Akiko Kosaka fékk skilaboð á föstudaginn síðasta um að heimsins stærsti jarðskjálfti hefði skekið Japan og 10 metra há flóðbylgja hefði fylgt fast á eftir. 16.3.2011 13:13
Dýrin þjást líka í Japan - vildi ekki yfirgefa félaga sinn Japanskir myndatökumenn gengu í gær fram á tvo hunda í rústunum í Japan þegar þeir voru að mynda hinar hrikalegu afleiðingar jarðskjálftans á föstudag og flóðbylgjunnar sem fylgdi í kjölfarið. Annar hundurinn er greinilega særður en félagi hans neitar að yfirgefa hann og situr hjá honum hundtryggur. 16.3.2011 11:11