Fleiri fréttir

Reykingabann tekur gildi á Englandi

Reykingabann á opinberum stöðum tekur gildi á Englandi á miðnætti og þar með gildir bann á öllum Bretlandseyjum. Bannað verður að reykja á knæpum og engar undanþágur veittar. Segja margir það ósanngjarnt gagnvart þeim sem reka sérstakar vindla- og vatnspípukrár.

Ódýrara að hringja

Frá og með deginum í dag er mun ódýrara fyrir íbúa á Evrópusambandssvæðinu að hringja milli landa innan ESB. Forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar segir Evróputilskipun þess efnis lækka farsímareikning margra Íslendinga en þó ekki alveg strax.

Flóttafólkið komið til Möltu

Yfirvöld á Möltu hafa tekið við tuttugu flóttamönnum sem voru teknir um borð í togarann Eyborgu í Miðjarðarhafi fyrr í vikunni. Herskip sótti fólkið í dag og sigldi með það til hafnar á Möltu. Flóttamennirnir fundust í flotkvíum sem togarinn hafði í eftirdragi.

Flugvöllurinn á Ibiza rýmdur

Flugvöllurinn á Ibiza á Spáni var rýmdur í dag vegna sprengjuhótunar. Óttinn við sprengjutilræði þar í landi er ekki síðri en í Bretlandi þessa dagana í ljósi þess að Aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA, batt enda á rúmlega árs vopnahlé fyrr í mánuðinum. Flugferðum til og frá vellinum var frestað um tíma á meðan sprengjusérfræðingar eyddu grunsamlegum pakka sem fannst.

Sólböð tryggja ekki D-vítamín

Sú títtnefnda kenning að sólböð tryggi nægilegt magn D-vítamíns í mannslíkamanum hefur verið vefengd eftir rannsókn á vegum Háskólans í Wisconsin. Hingað til hefur sólleysi borið ofarlega á blað yfir meinta sökudólga D-vítamínskorts.

Flugvellinum í Blackpool lokað - spítali rýmdur

Vopnaðir lögreglumenn hafa lokað flugvellinum í Blackpool á Englandi. Frá þessu er greint á Sky sjónvarpsstöðinni og vísa þeir í heimildarmenn sína en engar frekari upplýsingar hafa borist um málið að svo stöddu. Þá hefur konunglegi Alexandra spítalinn í Paisley verið rýmdur.

Mikilvægar leifar af dúdúfuglinum fundnar

Nýfundnar leifar af hinum útdauða dúdúfugli gætu varpað nýju og óvæntu ljósi á þessa lítið þekktu fugla. Leifarnar fundust í helli á eyjunni Máritíus í Indlandshafi fyrr í þessum mánuði. Leifarnar eru afar heilar og þær bestu sem vísindamenn hafa komist í hingað til. Fundurinn þótti svo þýðingarmikill að honum var haldið leyndum í fyrstu og fjórir verðir gættu svæðisins þangað til starfi vísindamanna lauk. Frá þessu er greint á vef Reuters.

Tveir handteknir - litið á atvikið sem hryðjuverk

Nú hefur fengist staðfest að tveir hafi verið handteknir í Glasgow grunaðir um að hafa reynt að aka bíl með einhverskonar sprengiefni inn í flugstöð Glasgow flugvallar. Heimildir herma að málið sé rannsakað sem hryðjuverk. Í fyrstu var sagt að fjórir hefðu verið handteknir vegna málsins, síðan þrír, en nú hefur lögregla staðfest að tveir séu í haldi.

Elsta tönn Evrópu

Tönn af manni sem talin er vera yfir milljón ára gömul fannst á Spáni í vikunni. Ef satt reynist um aldurinn er tönnin elstu leifar af frummanni sem fundist hafa í Vestur-Evrópu.

Sprengja sprengd á flugvellinum á Ibiza

Spænskir lögreglumenn sprengdu sprengju á flugvellinum á Ibiza fyrir hádegi í dag. Flugvöllurinn hafði verið rýmdur skömmu áður en sprengjan sprakk en sprengjuhótun var send til spænsks dagblaðs í nafni ETA, aðskilnaðarsamtaka Baska. Sprengjusveit lögreglunnar fann sprenguna og sprengdu hana á staðnum án þess að tjón hlytist af. Lögregla á Spáni hefur verið á varðbergi allt frá því að ETA tikynnti um að vopnahlé sem þeir settu sjálfir væri úr sögunni. Flugvöllurinn á Ibiza er fjölfarinn, enda er eyjan vinsæll ferðamannastaður.

Þriggja manna leitað

Breska lögreglan leitar nú logandi ljósi að þremur mönnum vegna tveggja bílsprengja sem fundust í miðborg Lundúna í gær. Talið er að lögregla viti hverjir þeir séu og að mynd hafi náðst af einum þeirra þar sem hann lagði bíl með sprengju innanborðs nærri næturklúbbi í fyrrinótt.

Páfinn gagnrýnir Kínverja

Benedikt páfi gerði Kína að umræðuefni sínu í ræðu sem hann hélt í morgun. Hann gagnrýndi þarlend stjórnvöld harðlega fyrir hömlur sem þar eru settar á trúfrelsi. Hann sagðist þó vongóður um að Vatikanið og Kína næðu einhverskonar samkomulagi á næstu misserum. Engin samskipti hafa verið á milli Kína og Vatikansins frá árinu 1951 en talið er allt að 12 milljónir Kínverja séu kaþólskir.

Mikið mannfall í loftárásum í Afganistan

Íbúar í Helmand-héraði í Afganistan telja að á bilinu fimmtíu til áttatíu almennir borgarar hafi týnt lífi í loftárás herliðs Atlantshafsbandalagsins í nótt. Talið er að mörg börn séu meðal fallinna. Talsmaður NATO staðfesti að loftárás hefði verið gerð en sagði ekki staðfest að almennir borgarar hefðu fallið. Vitni segja sprengjum hafa rignt yfir svæðið í tvær til þrjár klukkustundir.

Hættir að leita að gjöreyðingarvopnum í Írak

Frá og með deginum í gær var allri leit af gjöreyðingarvopnum í Írak hætt. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær að hætta formlegri leit sem hófst árið 1999. Bandaríkjamenn notuðu meinta gjöreyðingarvopnaeign Íraka sem rök fyrir innrás í landið.

Þriggja leitað í tengslum við bílsprengjur í Lundúnum

Breska lögreglan leitar nú logandi ljósi að þremur mönnum vegna tveggja bílsprengja sem fundust í miðborg Lundúna í gær. Fréttastofa bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar NBC greinir frá þessu og segir að lögregla viti hverjir mennirnir séu - þeir búi í Birmingham og næsta nágrenni.

Skotárás í Danmörku

Tuttugu og átta ára gamall maður særðist alvarlega eftir skotárás í Lekkende Mark, sunnan af Præstø, í Danmörku. Hann var fluttur á danska ríkisspítalann með þrjú skotsár á líkamanum.

Brú milli Danmerkur og Þýskalands

Danir og Þjóðverjar hafa ákveðið að byggja brú milli Láglands og og Norður-Þýskalands. Brúin verður átján kílómetra löng. Framkvæmdin kostar jafnvirði hátt í 500 milljarða íslenskra króna og á að ljúka 2018.

Blóðbaði afstýrt

Lundúnarbúar hafa verið á varðbergi í dag eftir að breska lögreglan kom í veg fyrir sprengjutilræði í miðborginni í nótt. Sprengja í kyrrstæðum bíl var gerð óvirk. Í dag var svo götu lokað vegna annarrar grunsamlegrar bifreiðar. Íslendingur sem búsettur er í Lundúnum segir blóðbaði hafa verið afstýrt.

Tafla gegn offitu

Ítalskir vísindamenn hafa þróað einfalda töflu til inntöku sem gæti komið offitusjúklingum að góðum notum. Taflan er gerð úr sérstöku vatnshlaupi og þenst út í maga. Þannig dregur hún úr hungri og megrun ætti því að auðveldast fyrir vikið.

Endeavour á loft þann sjöunda ágúst

Nasa hefur staðfest brottfaradag næstu mönnuðu geimsferðar sinnar. Það er geimskutlan Endeavour sem tekst á loft þann sjöunda ágúst og heldur til Alþjóðageimstöðvarinnar. Erindi skutlunnar er að halda áfram uppbyggingu stöðvarinnar. Til dæmis verður haldið áfram að klæða stöðina og fyllt verður á byrðarnar.

Búið að opna Fleet street

Lögregla í Lundúnum hefur nú opnað Fleet street aftur. Götunni var lokað vegna grunsamlegrar bifreiðar sem þar var. Fyrr í dag var Park Lane, sem er gata við Hyde Park, lokað vegna grunsamlegs bíls í neðanjarðarbílastæði undir garðinum. Hyde Park var einnig lokað. Mikill viðbúnaður hefur verið í Lundúnum frá því í nótt þegar lögregla fann og aftengdi bílsprengju við skemmtistað rétt hjá Piccadilly Circus og Leicester Square. Talið er víst að með því hafi lögreglan komið í veg fyrir stórfellt manntjón.

Líbanskir hermenn skutu á mótmælendur

Líbanskir hermenn skutu í dag á palestínska mótmælendur með þeim afleiðingum að þrír létust og að minnsta kosti 20 særðust. Mótmælendurnir voru að reyna að komast í gegnum eftirlitshlið á leið sinni aftur í flóttamannabúðirnar Nahr al-Bared í norður Líbanon. Vitni sögðu hermennina í fyrstu hafa skotið upp í loftið en þegar mótmælendurnir sem voru að minnsta kosti hundrað talsins.

Hæstiréttur ákveður að fjalla um rétt fanga í Guantanamo

Bandaríkjastjórn varð fyrir enn einu áfallinu í stríði sínu gegn hryðjuverkum í dag þegar Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað að taka fyrir mál fanga í Guantanamo-búðunum sem snýr að því hvort þeim sé heimilt að láta taka mál sín upp fyrir alríkisdómstólum.

Frumbyggjar mótmæla í Kanada

Lögregla í Kanada hefur neyðst til þess að loka hluta af fjölförnustu hraðbraut landsins og lestarsamgöngur á milli Toronto og Montreal hafa verið stöðvaðar vegna mótmæla frumbyggja á götum úti. Mikil ferðamannahelgi er framundan enda þjóðhátíðardagurinn 1. júlí á sunnudaginn og hafa mómælin skapað talsverð vandræði.

Marsjeppi á barmi hyldýpis

Geimjeppi Nasa Opportunity sem ekur um reikistjörnuna Mars og safnar gögnum til rannsókna á henni stendur frammi fyrir nýju og krefjandi verkefni. Honum er ætlað að renna niður í djúpan loftsteinagíg á yfirborði Mars og safna þar sýnum. Förin er hættuleg og gera Nasaliðar ekki ráð fyrir að jeppanum verði afturkvæmt úr gígnum.

Bifreið við Hyde Park tengist rannsókn á bílsprengju í nótt

Lögregla í Bretlandi hefur lokað götunni Park Lane við Hyde Park Í Lundúnum vegna grunsamlegs bíls við götuna. Frá þessu greindi Sky-fréttastöðin og hefur eftir heimildarmönnum sínum að bifreiðin tengist rannsókn á bílsprengju sem fannst nærri Piccadilly Circus í nótt. Talið er að sprengja hafi átt hana með farsíma.

Nítján ára í lífstíðarfangelsi

Hinn nítján ára Stuart Harling frá Rainham hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða hjúkrunarkonuna Cheryl Moss fyrir aftan St George's sjúkrahúsið í Hornchurch austan við London í apríl 2006. Moss var í sígarettupásu þegar Harling réðst að henni og stakk hana með sjötíu og tvisvar sinnum með hnífi.

iPhone á markað í Bandaríkjunum í dag

Fyrstu iPhone-tæki Apple tölvufyrirtækisins verða seld í New York í Bandaríkjunum í kvöld og hafa spenntir kaupendur þegar safnast saman við búðir í borginni.

Skógareldar svíða Grikkland

Mestu skógareldar í meira en tíu ár ógna nú höfuðborg Grikklands, Aþenu, en slökkviliðsmenn, hermenn og sjálfboðaliðar berjast nú við logana. Hundruð elda loga um allt Grikkland. Talið er að einhverjir séu komnir til vegna íkveikja en margir hófst vegna rafmagnslína sem kviknaði í vegna hitans.

Pólverjar vilja endurskoða Evrópusáttmála

Pólverjar vilja taka upp viðræður um nýundirskrifaðan sáttmála Evrópusambandsins að nýju. Forsætisráðherra landsins, Jaroslaw Kaczynski, sagði þetta á fréttamannafundi í morgun. Viðbúið er að yfirlýsingin eigi eftir að valda mikilli úlfúð meðal annarra landa Evrópusambandsins.

Mikil neyð í Pakistan eftir flóð

Mikill skortur virðist vera á neyðaraðstoð í þeim héruðum í vesturhluta Pakistans sem hafa orðið illa úti af völdum flóða undanfarna viku. Fram kemur á fréttavef BBC að um 800 þúsund manns eigi um sárt að binda vegna flóðanna í Balúkistanhéraði í suðvesturhluta landsins en hundruð þúsunda heimila hafa eyðilagst.

Galdraráðstefna í Noregi

Meira en sextíu sérfræðingar í fjölkynngi víðs vegar að úr heiminum ætla að hittast í bænum Vardo í Noregi til skrafs og ráðagerða. Ráðstefnan, sem ber heitið Alþjóðlega miðnætur fjölkyngis ráðstefnan, er skipulögð af skandínavískum og bandarískum háskólum.

Eldsvoði í Stokkhólmi

Mikill eldur kom upp í líkamsræktarstöð á Långholmsgatan í Stokkhólmi um hádegisbilið í dag. Einungis liðu tíu mínútur frá því að brunavarnarkerfið fór í gang og þar til staðurinn var orðinn alelda. Snör viðbrögð starfsmanna urðu til þess að allir komust út en að sögn Anders Bergqvist sem leiddi björgunaraðgerðirnar munaði mjóu þar sem eldurinn breiddist gífurlega hratt út.

Algert bann við umskurði kvenna í Egyptalandi

Stjórnvöld í Egyptalandi hafa lagt algert bann á umskurð kvenna. Ákvörðunin er tekin í kjölfar þess að ung stúlka dó nýlega á meðan á umskurði stóð. Bann við umskurði kvenna tók gildi í Egyptalandi fyrir 10 árum en var aðgerðin þó leyfð í sérstökum tilfellum og þá eingöngu ef hún var í höndum hæfra lækna.

Fimm klappstýrur létust í bílslysi

Fimm stúlkur úr klappstýruliði bandaríska menntaskólans Fairport létust á þriðjudag eftir árekstur við vörubíl nærri Rochester. Stúlkurnar voru á leið heim úr helgarferðalagi ásamt fjórum öðrum úr klappstýruliðinu sem keyrðu í bíl fyrir aftan þær. Stúlkurnar í aftari bílnum urðu vitni að því þegar bíll stúlknanna sem létust fór yfir á vitlausan vegarhelming og mætti vörubíl.

Jarðskjálfti í Chile

Jarðskjálfti varð 150 KM norður af Valparaiso í Chile í dag. Skjálftinn var 5.6 á ricter. Hann fannst vel í höfuðborginni Santiago og skulfu byggingar og rúður. Engar upplýsingar eru um tjón eða slys á fólki.

Áherslan á innanríkismál

Töluverðar breytingar urðu á ráðherraliðinu í nýrri ríkisstjórn Gordons Browns, forsætisráðherra Bretlands, sem kynnt var í dag. Skipt var um utanríkisráðherra og kona í fyrsta sinn skipuð innanríkisráðherra. Breskur stjórnmálafræður sem staddur er á Íslandi telur að Brown leggi áherslu á mál sem komi við buddu almennra Breta og láti sérfróða um heimsmálin.

Maður og kona handtekin á Spáni í tengslum við hvarf Madeleine

Spænska lögreglan handtók í morgun ítalskan mann og portúgalska konu sem grunur leikur á að tengist á ráninu á bresku stúlkunni Madeleine McCann. Madeleine hvarf af hótelherbergi á sumardvalarstaðnum Praia da Luz í Portúgal í byrjun maí.

Skógareldar í Grikklandi

Skógareldar sem geisa í Grikklandi hafa orðið að minnsta kosti tveimur að bana og eyðilagt mörg heimili. Þetta er aðeins nokkrum dögum eftir að gífurleg hitabylgja varð til þess að minnsta kosti níu manns létust úr hitaslagi.

Hæstiréttur stöðvar aftöku geðsjúks manns

Hæstiréttur í Washington stöðvaði í dag aftöku geðsjúks manns sem hlaut lífstíðardóm árið 1995. Maðurinn drap foreldra fyrrverandi konu sinnar árið 1992. Maðurinn klæddist fjólubláum kúrekafötum við réttarhöldin og kenndi John F. Kennedy og Jesú um morðin. Atkvæðagreiðsla hæstaréttar um málið endaði 5-4.

Flugslys í Angólu

TAAG Boeing 737 flugvél hrapaði í norðurhluta Angólu í dag með 78 farþega innanborðs. Að minnsta kosti sex hafa látið lífið og margir slasaðir hafa verið fluttir á sjúkrahús. Samkvæmt ANGPOP fréttastofunni missti flugvélin jafnvægi við lendingu og brotlenti á byggingu sem eyðilagðist.

11 manns látist á tíu dögum í Texas

Flóð í Texas hafa orðið 11 manns að bana í Marbles Falls síðustu tíu daga. Stanslaus rigning og vindur í gær gerði það að verkum að þyrlur þurftu að gera bið á því að bjarga fólkum af húsþökum heimila sinna.

Eldur nærri kjarnorkuveri í N-Þýskalandi

Eldur kom upp nærri kjarnorkuveri nærri Hamborg í norðurhluta Þýskalands í dag en eftir því sem Reuters-fréttastofan segir komst hann ekki í kjarnakljúfinn.

Sjá næstu 50 fréttir