Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óttast að njósnirnar verði flokknum af falli Frambjóðendur hægra bandalagsins í þingkosningunum í Svíþjóð geta ekki leynt gremju sinni yfir því að Göran Persson formaður Jafnaðarflokksins skyldi leyfa sér að nefna njósnahneyksli Þjóðarflokksins í sjónvarpsumræðum í gærkvöld. Engin leið er að spá fyrir um úrslitin á sunnudag, en Persson óttast að njósnirnar geti fært andstæðingum hans sigurinn. 15.9.2006 20:15
Býst við að funda með Írönum á næstu dögum Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, býst við að funda með aðalsamningamanni Írana í kjarnorkumálum, Ari Larijani, á næstu dögum um það að Íranar láti af auðgun úrans. 15.9.2006 15:48
Dauðadómur yfir Asahara staðfestur Hæstiréttur í Japan hefur staðfest dauðadóm yfir Shoko Asahara, leiðtoga sértrúarsöfnuðar þar í landi. Asahara var fyrir tveimur árum sakfelldur fyrir að hafa skipulagt taugagassárás á neðanjarðarlestakerfið í Tókýó fyrir ellefu árum og aðra árás ári áður. Nítján týndu lífi í árásunum. 15.9.2006 13:30
Múslimar æfir út í páfa Múslimar um allan heim eru æfareiðir Benedikti páfa sextánda fyrir ummæli sem hann lét falla í ræðu í Þýskalandi fyrr í vikunni. Þar ræddi páfi hugtakið "heilagt stríð". 15.9.2006 13:00
Kosningabaráttan í Svíþjóð harðnar stöðugt Skoðanakannanir skera ekki úr um hvort vinstri eða hægri flokkarnir i Svíþjóð fari með sigur af hólmi i þingkosningunum um helgina, en kosningabaráttan er stöðugt að harðna. 15.9.2006 12:30
Íranar ýja að viðræðum í kjarnorkudeilu Yfirrvöld í Frakklandi hafa staðfest að Íranar hafi gefið til kynna að þeir vilji hefja viðræður um það við Evrópusambandið að þeir hætti auðgun úrans. Frá þessu var greint skömmu fyrir hádegi. 15.9.2006 12:00
Fimm menn skotnir nærri heimili Haniyehs Byssumenn skutu fimm Palestínumenn til bana nærri heimili forsætisráðherrans Ismails Haniyeh á Gasaströndinni í morgun. Óljósar fregnir hafa borist af atburðinum en talið er að einhverjir hinna látnu hafi verið í öryggissveitum palestínsku heimastjórnarinnar. 15.9.2006 11:45
Danska þjófélagið tapi stórfé vegna umferðartafa Helstu sérfræðingar Danmerkur í skipulagsfræði áætla að árið 2030 muni danska þjóðfélagið tapa tæpum 360 milljörðum vegna þess að umferðarmannvirki beri ekki alla þá bílaumferð sem þá verður á vegunum. 15.9.2006 11:45
Hitabeltisstormurinn Lane veldur usla í Meíkó Búist er við því að hitabeltisstormurinn Lane eflist í dag en hann skall á Kyrrahafsströnd Mexíkós í gær með tilheyrandi hvassviðri og úrkomu. 15.9.2006 11:00
Japansprins farinn af sjúkrahúsi Kiko Japansprinsessa og nýfæddur sonur hennar, Hisahito, fengu að fara heim af sjúkrahúsinu í Tokyo í morgun. Sonurinn kom í heiminn fyrir viku og er fyrsta sveinbarnið sem fæðist inn í keisarafjölskylduna í rúm 40 ár. Sló það á allar áhyggjur um erfingjaskort því samkvæmt japönskum lögum mega aðeins karlmenn erfa keisaratignina. 15.9.2006 10:45
Kastró hressist Fídel Kastró, forseti Kúbu, virðist óðum vera að ná fyrri styrk en hann átti í gær fund með Hugo Chavez, forseta Venesúela, á sjúkrastofu Kastrós á Havana. Fjölmargir þjóðarleiðtogar, þar á meðal Chavez, sækja nú árlega leiðtogafund samtkaa ríkja utan bandalaga sem haldinn er á Havana. 15.9.2006 10:30
Komið í veg fyrir sprengjuárás í Jemen Yfirvöld í Jemen staðfestu í morgun að öryggisverðir hefði fellt fjóra menn sem ætluðu sér að gera árás á tvö borsvæði þar sem olía og gas eru unnin. Einn öryggisvörður féll í átökunum. 15.9.2006 09:45
Bush hótar að beita neitunarvaldi Nefnd bandarískra öldungadeildarþingmanna hefur farið gegn vilja Bush Bandaríkjaforseta og styðurlöggjöf þar sem skilgreint er hvernig rétta beri yfir grunuðum hryðjuverkamönnum. Bandaríkjaforseti hefur heitið því að beita neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að frumvarpið verði að lögum. Bandaríkjaforseti styður annað frumvarp sem myndi leyfa það að réttað yrði fyrir herrétti yfir föngum í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu þar sem grunaðir hryðjuverkamenn eru í haldi. Forsetinn mætti sjálfur á fund nefndarinnar í gær til að leggja áherslu á mál sitt. Fjölmargir Repúblíkanar eru andvígir því frumvarpi og styður Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra, þá í andstöðu sinni. Samkvæmt frumvarpi því sem forsetinn styður yrðu hertari yfirheyrsluaðferðir leyfðar, frekari njósnir einnig og rýmri heimildir til að halda grunuðum. Með þessu væri í raun verið að endurskilgreina það hvernig bandarísk stjórnvöld uppfylli ákvæði Genfar-sáttmálans um meðferð stríðsfanga. Þessu er Powell andvígur og segir þetta í raun stefna lífi bandarískra hermanna á erlendri grundu í hættu og renna stoðum undir málflutning þeirra sem gagnrýna framferði Bandaríkjamanna og siðferði þeirra. Meðal þeirra sem eru andvígir hugmyndum forsetans er John McCain, sem barðist við Bush um útnefningu Repúblíkana fyrir forsetakosningarnar árið 2000. Búist er við að McCain sækist aftur eftir útnefningu flokksins fyrir forsetakosningarnar eftir tvö ár. Hálfur mánuður er þar til fulltrúadeild Bandaríkjaþings frestar fundum sínum vegna kosninga í nóvember. Miðla þarf málum fyrir þann tíma. Ef það tekst ekki verður alls óvíst með framtíð fanganna í Guantanamo-fangabúðunum og hvernig mál þeirra verða meðhöndluð. 15.9.2006 09:00
Drepinn út af MP3 spilara Pólskur unglingspiltur hefur játað að hafa stungið belgískan dreng til bana þegar hann rændi af honum MP3 spilara. 14.9.2006 20:07
Íbúar í Montreal slegnir Ein kona týndi lífi og 19 særðust, þar af sex lífshættulega, þegar hálf þrítugur maður hóf skothríð á nemendur í menntaskóla í Montreal í Kanada síðdegis í gær. Lögregla felldi árásarmanninn. 14.9.2006 19:00
Senegalskir innflytjendur fluttir frá Spáni Spánverjar byrja í dag að flytja ólöglega innflytjendur frá Senegal til síns heima eftir að tafir urðu á flutningunum sem hefjast áttu í gær. Tvær vélar með um 100 Senegala hvor fljúga frá Kanaríeyjum í dag en þangað hafa um tólf þúsund senegalskir innflytjendur leitað í ár. 14.9.2006 13:50
Skotárás í Montreal í rannsókn Ein kona týndi lífi og minnst nítján særðust þegar ungur maður hóf skothríð á samnemendur sína í menntaskóla í Montreal í Kanada síðdegis í gær. Lögregla felldi árásarmanninn. Lögregla í Kanada rannsakar nú málið en ekki er vitað hvað olli því að ungi maðurinn greip til vopna gegn námsmönnum í skólanum. 14.9.2006 12:30
Þrír sagðir slasaðir eftir að þak flugstöðvar hrundi Þak á flugstöð á eyjunni Menorku við austurströnd Spánar hrundi í morgun. Óljósar fregnir hafa borist af slysinu en minnst þrír munu hafa slasast svo vitað sé. Talsmaður slökkviliðs á svæðinu segir að enginn sé fastur undir brakinu, en fyrstu fréttir bentu til þess að tuttugu verkamenn sem unnu að endurbótum á þakinu hefðu orðið undir því. 14.9.2006 11:50
Ofbeldi er ekki kynþokkafullt Eiginkonur og kærustur götuklíkumeðlima í Kólumbíu grípa nú til sinna ráða til að sporna við ofbeldi á götum Pereira, þar sem ofbeldi er einna mest í allri Kólumbíu. Tugir kvenna neita mökum sínum um allt kynlíf þar til byssurnar verði lagðar á hilluna. Að sögn einnar þeirra eru skilaboðin sem þær vilja senda mönnunum að ofbeldi sé síður en svo kynþokkafullt. 14.9.2006 10:45
Sjö námamenn fastir í kolanámu í Kína Björgunarmenn í Norðaustur-Kína reyna nú hvað þeir geta til að bjarga sjö námamönnum sem sitja fastir í kolanámu. Vatn flæddi inn í námuna þar sem nítján námamenn voru að störfum. 14.9.2006 09:09
Umdeilt frumvarp varðandi hegðun ungmenna Innanríkisráðherra Frakklands, Nicholas Sarkozy, kynnti í gær umdeilt frumvarp á franska þinginu sem ætlað er að taka á óæskilegri hegðun ungmenna. Það sem harðast er deilt á er ákvæði sem heimilar bæjar- og borgarstjórum að svipta fjölskyldur vandræðaunglinga atvinnuleysis- og húsnæðisbótum ef þörf krefur. 14.9.2006 09:06
Kona lést í skotárásinni í Kanada Ein kona týndi lífi og minnst nítján særðust í skotárásinni í Montreal í Kanada í gær. Byssumaðurinn var felldur af lögreglu. 14.9.2006 08:30
Flestir leiðtogar í Mið-Austurlöndum telja innrásina í Írak mistök Flestir leiðtogar ríkja í Mið-Austurlöndum telja innrásina í Írak fyrir rúmum þremur árum hafa verið mistök. Þetta sagði Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, á blaðamannafundi í gær en hann er nýkominn úr ferð um Mið-Austurlönd. 14.9.2006 08:15
Lögregla segir að einn maður hafi verið að verki Á annan tug framhaldskólanema í Montreal í Kanada særðust þegar samnemandi þeirra hóf skothríð í skólanum á fimmta tímanum í dag. Byssumaðurinn var felldur af lögreglunni. 13.9.2006 21:59
Fjórir létust í árás byssumanna Að minnsta kosti fjórir eru látnir og sextán særðir eftir skotárás tveggja byssumanna í framhaldsskóla í Montreal í Kanada. Lögreglan í Montreal segir að svo virðist sem annar byssumannanna hafi svipt sig lífi en hinn var felldur af lögreglunni. 13.9.2006 18:41
Segir koma til greina að halda friðarviðræður við Tamil tígra á Íslandi Talsmaður ríkisstjórnarinnar á Srí Lanka segir koma til greina að halda friðarviðræður við Tamíl tígra á Íslandi. Stjórnin er hins vegar andvíg því að halda viðræðurnar í Osló í byrjun október. 13.9.2006 18:00
Framhaldsskóli rýmdur vegna skotárásar Byssumenn hóf skothríð í framhaldsskóla í Montreal á fimmta tímanum í dag. Lögreglan í Montreal segir óvíst hversu margir særðust í árásinni en fréttastofan Sky hefur eftir sjónvarvottum að fjórir að minnsta kosti hafi særst. 13.9.2006 17:55
Páfi heimsótti gröf foreldra sinna Benedikt páfi sextándi heimsótti í morgun gröf foreldra sinnna en hann er nú á ferð um Þýskaland, heimaland sitt. Í för með páfa í morgun var bróðir hans en gröfin stendur rétt fyrir utan Regensburg. 13.9.2006 17:45
Vilja ekki senda fleiri hermenn til Afganistan Þjóðir Atlantshafsbandalagsins eru ekki tilbúnar að senda fleiri hermenn til Afganistan. Yfirmenn öryggismála í Afganistan segja að þörf sé á tvö þúsund og fimm hundruð friðargæsluliðum til viðbótar til að geta tryggt öryggi borgara. 13.9.2006 17:14
Rekinn fyrir að týna skýrslu um Vollsmose-málið Starfsmaður leyniþjónustu dönsku lögreglunnar hefur verið rekinn úr starfi eftir að í ljós kom að hann hafði glutrað niður skýrslu um Vollsmose-málið, þar sem níu menn voru handteknir vegna gruns um að þeir væru að undirbúa hryðjuverk í Danmörku. 13.9.2006 16:15
Segjast hafa fengið keðjur til að hætta að selja fisk Grænfriðungar segjast hafa fengið sænskar verslanakeðjur til þess að hætta að kaupa þorsk sem veiddur er í Eystrasalti. Þeir segjast munu, í þessari viku, senda dönskum kaupmönnum bréf, þar sem þeir eru hvattir til þess að gera slíkt hið sama. 13.9.2006 15:45
Árásarmenn reyndust Sýrlendingar Mennirnir fjórir sem réðust á bandaríska sendiráðið í Damaskus í Sýrlandi í gær voru allir Sýrlendingar. Þrír þeirra féllu í átökum við öryggisverði. Mennirnir ætluðu sér að aka bifreið hlaðinni sprengiefni inn á afgirt svæði við sendiráðið. 13.9.2006 13:15
Ekki hafðir með í ráðum Stjórnvöld á Srí Lanka neita því að hafa samþykkt í gær að taka skilyrðislaust þátt í friðarviðræðum við uppreisnarmenn Tamíltígra í landinu. Fulltrúar þeirra eru þó tilbúnir til viðræðna hætti tígrarnir árásum. 13.9.2006 12:45
Tvísýnar kosningar í Svíþjóð Tvær skoðanakannanir sem birtar voru í morgun sýna að þingkosningarnar í Svíþjóð um næstu helgi verða þær tvísýnustu í rúman aldarfjórðung. Munur milli stjórnar og stjórnarandstöðu er innan skekkjumarka. 13.9.2006 12:30
Frímerki skreytt plötuumslögum Bítlanna Breska póstþjónustan tilkynnti í gær að frægustu plötuumslög Bítlanna myndu skreyta nýja röð frímerkja sem gefin verður út í janúar. 13.9.2006 11:00
Talíbanar hættulegri en al-Kaída liðar Fréttastofa AP hefur komist yfir myndband sem sagt er tekið af Talíbönum í Afganistan og veitir svipmynd af þeim átökum sem orðið hafa í Kandahar-héraði í Suður-Afganistan. Fundað verður í Belgíu í dag um hvernig fjölga megi í herliði NATO í Afganistan. Forseti Pakistans segir Talíbana meiri ógn í þessum heimshluta en al-Kaída. 13.9.2006 10:30
Streymi ferskvatns í sjó eykst Streymi ferskvatns út í sjó hefur aukist um 17 þúsund rúmkílómetra síðastliðinn áratug vegna bráðnunar íss og jökla. Það slagar hátt upp í 40 ára gegnumstreymi ferskvatns út í Missisippi-flóann. Það þýðir róttæka breytingu á lífsskilyrðum fisktegunda og annarra sjávarlífvera, sérstaklega á heimskautasvæðum. 13.9.2006 10:00
Mannskæð sprengjuárás í Tyrklandi 10 létust og 14 liggja sárir eftir sprengjuárás í suðausturhluta Tyrklands í gærkvöldi. Á meðal látinna eru 7 börn. Sprengjan sprakk nálægt barnaskóla í borginni Diyarbakir og hefur enginn enn lýst yfir ábyrð á árásinni. 13.9.2006 09:45
Myndband frá Talíbönum Fréttastofa AP hefur komist yfir myndband sem sagt er tekið af Talíbönum í Afganistan og veitir sjaldgæfa svipmynd af þeim átökum sem orðið hafa í Kandahar-héraði í Suður-Afganistan. Á myndbandinu má sjá fjölmarga hópa vopnaðra andspyrnumanna ganga um þau svæði þar sem hefur komið til átaka og árásarþyrlur skjóta að þeim. 13.9.2006 09:15
Fjandvinir Bandaríkjamanna funda á Kúbu Fundur leiðtoga þeirra ríkja sem standa utan bandalaga hófst í Havana á Kúbu í gær. Forsetar Írans, Sýrlands og Venesúela, auk næstráðandi í Norður-Kóreu, sækja fundinn. 13.9.2006 08:45
Stjórnvöld á Srí Lanka ekki til viðræðna Stjórnvöld á Srí Lanka neita því að hafa samþykkt í gær að taka skilyrðislaust þátt í friðarviðræðum við uppreisnarmenn Tamíltígra í landinu. Yfirlýsing eftir fund um friðarferlið í Brussel í Belgíu í gær hafi verið röng. 13.9.2006 08:15
Stórt vopnabúr gert upptækt í Kent Lögreglan í Bretlandi telur sig hafa komið upp um umfangsmikið vopnasmygl milli Bretlands og Bandaríkjanna. Lögreglumenn gerðu samræmt áhlaup á þrjú hús í Kent í Bretlandi og í einu þeirra fundust mörg hundruð byssur, bæði sjálfvirkar og hálfsjálfvirkar. 13.9.2006 07:57
Sjö fórust í sprengingu í Tyrklandi Sjö létust og sautján særðust í sprenging sem varð í suðausturhluta Tyrklands í kvöld. Á meðal látinna eru fimm börn. Þrír þeirra sem særðust eru taldir í lífshættu. Sprengingin varð í borginni Diyarbakir og hefur enginn enn lýst yfir ábyrð á árásinni. Kúrdar eru í meirihluta í borginni. Tólf hafa látist í sprengingum í Tyrklandi á síðustu vikum og tugir slasast. 12.9.2006 22:30
Baulað á Blair Fjölmargir verkalýðsforkólfar gengu út af ársfundi sambands verkalýðsfélaga í Bretlandi í dag. Þetta gerðist um leið og Tony Blair tók þar til máls í síðasta sinn sem leiðtogi Verkamannaflokksins og forsætisráðherra landsins. 12.9.2006 20:15
Réð menn til að misþyrma kærustunni sinni Sænskur forstjórasonur hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að leigja tvo óbótamenn til þess að misþyrma kærustu sinni, til þess að hún missti fóstur. Kærastan hafði neitað að fara í fóstureyðingu. Óbótamennirnir réðust á hana á skógarstíg í einu úthverfa Stokkhólms. Þar héldu þeir henni fastri og börðu hana í kviðinn, með barefli, þartil hún þóttist missa meðvitund. Stúlkan gat skreiðst eftir hjálp, og það tókst að bjarga barni hennar. Árásarmennirnir tveir voru einnig dæmdir til fangelsisvistar. 12.9.2006 20:00
Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Innlent