Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dregið úr völdum forseta Úkraínska þingið samþykkti í gær að draga úr völdum forsetans og ruddi þar með úr vegi einni hindrun í deilum stjórnar og stjórnarandstöðu um framtíð Úkraínu og framkvæmd forsetakosninganna 26. desember. Þingið samþykkti einnig að víkja yfirkjörstjórn landsins frá og skipa aðra í hennar stað til að sjá um framkvæmd kosninganna. 8.12.2004 00:01
Geta gift sig fjórtán ára Drengir og stúlkur í rússneska héraðinu Oriol geta gengið í hjónaband fjórtán ára. Annars staðar í Rússlandi getur fólk gengið í hjónaband frá átján ára aldri en þingmenn á þingi héraðsins samþykktu nýlega löggjöf þar sem giftingaraldur er fjórum árum lægri en annars staðar í landinu. 8.12.2004 00:01
Dæmdir fyrir morð á 5 ára stúlku Sjö rússneskir unglingspiltar voru í dag dæmdir í allt að tíu ára fangelsi fyrir að myrða fimm ára gamla stúlku af sígaunaættum. Þessi hroðalegi atburður átti sér stað í St. Pétursborg í september sl. þegar piltarnir réðust að hópi sígaunastúlkna, vopnaðir öxum, hnífum, járnrörum og keðjum. 8.12.2004 00:01
Óvissa um orsök sprengingarinnar Algjör óvissa er um hvað olli kröftugri sprengingu í fjölbýlishúsi í Stokkhólmi í nótt. Lögregla segir að maðurinn sem bjó í íbúðinni þar sem sprengingin varð sé grunaður um að hafa stolið bókum fyrir margar milljónir króna af konunglega bókasafninu í Stokkhólmi. 8.12.2004 00:01
Sigurinn vís í Úkraínu Sigurinn er vís að mati stjórnarandstöðunnar í Úkraínu eftir að þing landsins samþykkti lög sem tryggja að þjóðin geti valið sér forseta á ný. 8.12.2004 00:01
Beckham-hjónin í stórum hlutverkum David Beckham og Victoria spúsa hans eru án efa átrúnaðargoð en líkast til hafa þau aldrei verið nær guðsímyndinni en einmitt nú. Páfagarði mislíkar stórlega hlutverk þeirra hjóna í fæðingu Krists. 8.12.2004 00:01
Al-Qaeda bera ábyrgðina Al-Qaeda hryðjuverkasamtökin hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni á ræðismannaskrifstofu Bandaríkjanna í Sádí Arabíu í gær. Á heimasíðu uppreisnarmanna segir að aðgerðin hafi kallast „baráttan fyrir frelsun Fallujah," fyrrverandi aðalvígi uppreisnarmanna, sem Bandaríkjamenn réðust inni í fyrir skömmu. 7.12.2004 00:01
Ástandið mun versna Ástandið í Írak er slæmt, fer versnandi og engin teikn eru á lofti sem benda til að það breytist í bráð. Þetta er niðurstaða yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar CIA í Bagdad, en New York Times greinir í morgun frá leynilegri skýrslu hans. 7.12.2004 00:01
Pinochet fékk 12 milljónir dala Einræðisherrann Augusto Pinochet fékk ríflega 12 milljónir bandaríkjadala frá Bandaríkjastjórn og fleirum á valdatíma sínum í „ferða- og þjónustustyrki". Pinochet fékk 3 milljónir dala frá Bandaríkjamönnum árið 1976 og eina til þrjár milljónir frá Kínverjum, Bretum, Paragvæum, Spánverjum og Brasilíumönnum á hinum ýmsu tímabilum valdatíma síns. 7.12.2004 00:01
6 þúsund manns sagt upp hjá BBC Allt að 6 þúsund starfsmönnum breska ríkissjónvarpsins BBC kann að verða sagt upp í dag, vegna mikils niðurskurðar sem blasir við. Stjórnarformaður BBC mun tilkynna starfsmönnum um hve mörgum verður sagt upp vegna niðurskurðarins á fundi síðar í dag 7.12.2004 00:01
3 féllu í árásum Palestínumanna Þrír ísraelskir hermenn féllu þegar palestínskir skæruliðar sprengdu sprengju nærri ísraelskri herstöð á Gasa-ströndinni í morgun. Talsmenn palestínskra öryggisyfirvalda segja félaga í Hamas-samtökunum hafa staðið fyrir árásinni. Ísraelsher brást við með því að senda árásarþyrlur á staðinn, og skutu þær á bækisstöðvar skæruliða í hefndarskyni. 7.12.2004 00:01
Eldur í háhýsi Mikill eldur braust út í 45 hæða háhýsi í Chicago í gærkvöldi. Eldurinn kviknaði á 29. hæð hússins og tókst að bjarga öllum íbúum hússins. Átján slösuðust þó. Síðast þegar fréttist börðust slökkviliðsmenn enn við eldinn, enda ekki hægt um vik að koma slöngum og öðrum slökkvibúnaði svo hátt upp. 7.12.2004 00:01
Lítil samúð vegna föðurmissis Sextán ára stúlka, sem stundar nám við Kongsbakken framhaldskólann i Tromsö, mætti litlum skilningi kennara og skólastjóra skólans er faðir hennar lést á dögunum. Þegar stúlkan mætti ekki í skólann, daginn eftir andlátið, fékk hún skróp skráð á sig í kladdann. 7.12.2004 00:01
Karzai settur í forsetaembætti Hamid Karzai sór í dag embættiseið sem forseti Afganistans. Hann er fyrsti maðurinn sem hefur verið kjörinn til þessa embættis í lýðræðislegum kosningum. Karzai lofaði að koma á friði og umbylta efnahag landsins þannig að hann hætti að byggja á framleiðslu eiturlyfja. 7.12.2004 00:01
Blair styður Annan Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur lýst stuðningi við Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Bandarísk þingnefnd hefur gagnrýnt Annan harðlega og krafist þess að hann segi af sér. 7.12.2004 00:01
Ótti Rússa ástæðulaus segir Powell Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að ótti Rússa við að Bandaríkjamenn séu að seilast til áhrifa í Úkraínu sé ástæðulaus. Powell sagði að Úkraínumenn eigi skilið heiðarlegar kosningar og að þeir þurfi ekki að velja á milli austurs og vesturs. 7.12.2004 00:01
Smokkur í nöfnum Kóreumanna Heilbrigðisyfirvöld í Suður-Kóreu hafa hætt við að reyna að finna kóreskt orð yfir smokka. Kóreumenn hafa um áratuga skeið notað engilsaxneska orðið <em>condom</em> yfir smokka. Heilbrigðisnefnd sem berst gegn alnæmi fékk þá snjöllu hugmynd að finna kóreskt orð yfir þetta þarfaþing og lýsti eftir hugmyndum. 7.12.2004 00:01
Barghouti íhugar að hætta við Marwan Barghouti, herskár leiðtogi úr röðum Palestínumanna og frambjóðandi í forsetakosningum í Palestínu, íhugar að hætta við framboð. Barghouti situr í fangelsi í Ísrael en hann var sakfelldur fyrir fimm morð. Hann er hins vegar mjög vinsæll meðal Palestínumanna, einkum yngri, herskárri Palestínumanna. 7.12.2004 00:01
Bandaríkin og Rússland deila Ágreiningur Bandaríkjanna og Rússlands kom í veg fyrir að niðurstaða fengist um kosningaeftirlit á fundi utanríkisráðherra Samtaka um öryggi og samvinnu í Evrópu. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir Vesturlönd leggja annan mælikvarða á kosningar í fyrrverandi Sovétlýðveldum en heima hjá sér. 7.12.2004 00:01
Norrænt sendiráð í Páfagarði? Ætlar sænska ríkisstjórnin að hafa frumkvæði að því að setja upp sendiráð með öðrum norrænum ríkjum í Páfagarði? Sænski þingmaðurinn Agne Hansson vildi fá svar við þessu í fyrirspurnartíma í sænska þinginu. Vegna sparnaðaraðgerða lögðu Svíar niður sendiráð sitt í Páfagarði á árinu 2001. 7.12.2004 00:01
Kosningar í Írak ekki mögulegar Pútín Rússlandsforseti segist ekki getað ímyndað sér hvernig kosningar eiga að geta heppnast í Írak eða hvernig frjálsar kosningar eigi að fara fram í hersetnu landi. Hann sagði þetta á fundi með Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks, í Moskvu fyrir stundu. 7.12.2004 00:01
Þúsundasti hermaðurinn fallinn Þúsundasti bandaríski hermaðurinn er fallinn í átökum í Írak samkvæmt upplýsingum frá bandaríska hersetuliðinu. Hann féll þegar skotárás var gerð á hersveit hans sem var í eftirlitsferð. Alls hafa hátt í þrettán hundruð hermenn týnt lífi í Írak, þar af dágóður hluti í slysum af ýmsu tagi. 7.12.2004 00:01
1420 hitaeininga skrímslisborgari Aðdáendur misgeðslegra skyndibita geta nú glaðst því bandaríska skyndibitakeðjan Hardee´s hefur kynnt nýjan borgara sem heitir hvorki meira né minna en „Monster Thickburger“, sem réttast væri að nefna „Skrímslisborgara“. Ástæða þessarar girnilegu nafngiftar er augljós: borgarinn inniheldur hundrað og sjö grömm af fitu og er heilar 1420 kalóríur. 7.12.2004 00:01
Ætlaði að drepa dreng úti á götu Maður undir áhrifum eiturlyfja hélt hnífi að hálsi níu ára drengs í fjórar klukkustundir í Bangkok, höfuðborg Taílands, í dag. Maðurinn, sem er fjörutíu og fimm ára gamall byggingaverkamaður, virtist skyndilega missa stjórn á sér, greip níu ára dreng sem var á leið heim úr skólanum og hélt stórum, hárbeittum hníf að hálsi hans. 7.12.2004 00:01
Láta rannsaka kosningarnar Demókrataflokkurinn hefur ákveðið að hefja rannsókn á því hvernig staðið var að framkvæmd bandarísku forsetakosninganna í Ohio, en niðurstaðan þar réði úrslitum um að repúblikaninn George W. Bush bar sigurorð af demókratanum John Kerry. 7.12.2004 00:01
Svartsýni um framtíð Írak Ástandið í Írak fer versnandi og óvíst hvort það batnar nokkuð í náinni framtíð. Þetta er mat fyrrum stöðvarstjóra bandarísku leyniþjónustunnar CIA í skeyti sem hann sendi yfirmönnum sínum seint í síðasta mánuði, skömmu áður en hann lét af embætti. Þessu greindi dagblaðið The New York Times frá í gær. 7.12.2004 00:01
Ærðist og keyrði bræður niður Kona keyrði tvo bræður á táningsaldri niður og reyndi að keyra yfir þann þriðja eftir að golfbolti sem þeir voru að leika sér með á bílastæði verslunarmiðstöðvar í Flórída lenti á bíl hennar. 7.12.2004 00:01
Fann leyniskjöl á víðavangi Breskur vörubílstjóri stóð skyndilega uppi með allar upplýsingar um öryggisviðbúnað vegna komu Pervez Musharraf, forseta Pakistan, til London þegar hann fann möppu á götu í London. Dagblaðið Daily Mirror greindi frá þessu í gær eftir að maðurinn sem fann skjölin kom þeim til blaðsins. 7.12.2004 00:01
Vilja nýja rannsókn á Estoniaslysi Eistneskir stjórnmálamenn kröfðust þess að ný rannsókn yrði hafin á atburðunum sem leiddu til þess að ferjan Estonia sökk árið 1994. Kröfuna settu þeir fram eftir að upplýst var að ferjan hefði skömmu fyrir sjóferðina örlagaríku verið notuð til að flytja sovésk hergögn. 7.12.2004 00:01
Tilræðið var sjálfsmorðstilraun Tilræðið við Jacques Chirac Frakklandsforseta á þjóðhátíðardegi Frakka 2002 var líklega frekar tilraun til sjálfsmorðs en tilraun til að ráða forsetann af dögum. Þetta sagði lögreglumaðurinn Florence Adam á öðrum degi réttarhalda yfir Maxime Brunerie sem dró upp riffil og skaut að bílnum sem flutti forsetann. 7.12.2004 00:01
Bitinn tvisvar sama dag Norðmaður á fertugsaldri var fluttur tvívegis á sjúkrahús sama daginn, í bæði skiptin eftir að hafa verið bitinn af snákum. Báðir voru snákarnir hluti af gæludýrasafni mannsins. 7.12.2004 00:01
Nýr kafli í sögu Afganistans "Erfið og myrk fortíð er nú að baki og í dag hefjum við nýjan kafla í sögu okkar, í anda vinskapar við alþjóðasamfélagið," sagði Hamid Karzai, þegar hann hafði svarið embættiseið sem fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Afganistans. 7.12.2004 00:01
La Scala opnað að nýju La Scala í Mílanó var opnað í dag eftir þriggja ára viðgerð, breytingar og endurbætur sem kostuðu yfir fjóra milljarða króna. Breytingarnar voru mjög umdeildar, svo ekki sé meira sagt. Það var meira að segja rifist um hvort ætti að pússa ljósakrónurnar eða ekki. 7.12.2004 00:01
Hélt pilt í gíslingu tímunum saman Maður undir áhrifum fíkniefna tók níu ára dreng í gíslingu, hélt hníf að hálsi hans og hélt piltinum föngnum í fjóra klukkutíma á götu fyrir utan skóla drengsins í Bangkok snemma í gærmorgun. 7.12.2004 00:01
Karzai sór embættiseið Fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Afganistans sór embættiseið í dag. Forsetinn, Hamid Karzai, sór íslam hollustu að viðstöddum varaforseta Bandaríkjanna og miklum fjölda erlendra gesta. 7.12.2004 00:01
Alþingi og Íraksmálið Utanríkisráðherra og forsætisráðherra ákváðu að setja Ísland á lista yfir hinar staðföstu þjóðir og veita þar með innrásaröflunum í Írak móralskan stuðning. Málið virðist ekki hafa komið til kasta utanríkismálanefndar eins og lög kveða á um. 7.12.2004 00:01
Spá öflugum fellibyljum árið 2005 Búist er við því að fjöldi fellibylja í Atlantshafi á næsta ári verði yfir meðallagi. Þetta kemur fram í spá veðurfræðinga við Ríkisháskólann í Colorado í Bandaríkjunum. Aldrei hefur fjárhagslegt tjón vegna fellibylja verið jafnmikið og á þessu ári. 7.12.2004 00:01
Kynferðisleg áreitni á Burger King Eigandi Burger King matsölustaðar í St. Louis í Bandaríkjunum þarf að borga sjö starfsmönnum samanlagt 25 milljónir króna í bætur vegna kynferðislegrar áreitni á vinnustað. 7.12.2004 00:01
Fær 300 milljarða króna í bætur Árásin á World Trade Center hefur verið skilgreind sem tvær aðskildar árásir af dómstól í New York. Þetta þýðir að Larry Silverstein, sem var með byggingarnar tvær á langtímaleigu, fær greidda tæplega 300 milljarða króna í bætur. 7.12.2004 00:01
Týndur og tröllum gefinn Osama bin Laden er týndur. Þessu heldur Perves Musharraf, forseti Pakistans fram. Í viðtali við bandaríska dagblaðið Washington Post sagði hann leyniþjónustu Pakistans og Bandaríkjanna ekki hafa hugmynd um hvar leiðtoga al-Qaeda væri nú að finna. Sömu sögu er að segja af helstu samstarfsmönnum bin Ladens. 6.12.2004 00:01
Mótmælum áfram haldið Stjórnarandstæðingar og stuðningsmenn Viktors Júsjenko í Úkraínu ætla að halda áfram mótmælum og loka skrifstofum ríkisstofnana uns Leonid Kuchma, fráfarandi forseti og Viktor Janúkóvitsj, forsætisráðherra, tryggðu að endurtekning forsetakosninganna yrði með eðlilegum hætti. Mótmælin hafa nú staðið í hartnær þrjár vikur. 6.12.2004 00:01
Hryðjuverk í Sádi-Arabíu? Byssugelt heyrist nærri bandarísku ræðismannsskrifstofunni í Jeddah í Sádi-Arabíu og reykur sést stíga til himins í nágrenni. 200 lögreglumenn hafa umkringt svæðið þar sem skrifstofan er, og segir talsmaður að neyðarástand sé á staðnum. Frekari upplýsingar hafa ekki fengist enn sem komið er. 6.12.2004 00:01
Funda um Miðausturlönd í Bretlandi Alþjóðleg ráðstefna um frið í Miðausturlöndum verður haldin á Bretlandi í janúar eða febrúar á næsta ári, samkvæmt frétt Daily Mirror í dag. Bandaríkjamenn eru sagðir hafa samþykkt fyrirætlanir Breta um að bjóða ísraelskum og palestínskum ráðamönnum til viðræðna, en Tony Blair hefur lagt áherslu á friðarumleitanir fyrir botni Miðjarðarhafs undanfarið. 6.12.2004 00:01
Þjóðvarnarliðar elta byssumenn Þjóðvarnarliðar í Sádí Arabíu eru nú í eltingaleik við byssumenn inni í bandarísku ræðismannaskrifstofunni í Sádí Arabíu. 4 þjóðvarnarliðar hafa fallið í valinn og 18 starfsmenn skrifstofunnar hafa verið teknir í gíslingu. Árásarmenn létu til skarar skríða fyrr í morgun og kveiktu í byggingunni, hentu að henni handsprnengjum og skutu að öryggisvörðum. 6.12.2004 00:01
Ítalir áfram í Írak Ítalir ætla að hafa hermenn sína áfram í Írak, þartil þarlend stjórnvöld segja að ekki sé þörf fyrir þá lengur. Gianfranco Fini, utanríkisráðherra, skýrði frá þessu í viðtali við breskt dagblað í dag. 6.12.2004 00:01