Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skyndiverkfall á Ítalíu Athafnalíf og samgöngur á Ítalíu verða meira og minna lömuð í dag vegna skyndiverkfalls félagsmanna í fjórum stærstu verkalýðsfélögum landsins til að mótmæla efnahagsstefnu stjórnvalda. 30.11.2004 00:01
Þingið samþykki vantrauststillögu Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Úkraínu, Viktor Júsenko, hefur lýst því yfir að hann muni biðja þingið að samþykkja vantrauststillögu á stjórn Viktors Janúkovítsj. Tugir þúsunda stuðningsmanna stjórnarandstæðingsins Júsenkós mótmæla á götum úti í Kíev í Úkraínu, níunda daginn í röð. Mikil ólga er í landinu og óttast menn að upp úr geti soðið. 30.11.2004 00:01
Von á fleiri hryðjuverkum í BNA Hægri hönd Osama bin Ladens, Ayman al-Zawarhiri (LUM), segir baráttuna gegn Bandaríkjunum hvergi nærri lokið. Í myndbandi sem sýnt var á arabísku sjónvarpstöðinni al-Jazeera í gær segir hann að al-Kaída muni halda baráttunni áfram þar til Bandaríkjamenn breyti afstöðu sinni gegn múslimum. 30.11.2004 00:01
306 látnir í hitabeltisstormi Að minnsta kosti 306 eru látnir eftir að hitabeltisstormur reið yfir Filippseyjar í nótt. Storminum fylgdu flóð og mikil rigning. Stormurinn í nótt fór yfir sama svæði og annar hitabeltisstormur gekk yfir í síðustu viku en þá létust a.m.k. 87 manns og 80 manns er enn saknað. 30.11.2004 00:01
Fellst á nýjar kosningar Viktor Janúkovítsj, yfirlýstur sigurvegari í forsetakosningunum í Úkraínu, sagðist í morgun fallast á nýjar kosningar ef hvorki hann né keppinautur hans, Viktor Júsjenko, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, byðu sig fram. Ef fallist yrði á úrslit kosninganna myndi hann bjóða Júsjenko forsætisráðherrastólinn en Júsjenko hafnaði þessu boði þegar. 30.11.2004 00:01
40 manns drukkna í Írak Að minnsta kosti fjörutíu manns drukknuðu í Írak í morgun þegar þeir reyndu að komast yfir beljandi á nyrst í landinu á pramma. Skyndilegur vatnselgur skolaði þeim af prammanum á andartaki. Aðeins fjórir komust lífs af að sögn sjónarvotta. 30.11.2004 00:01
Bandarísk herflugvél fórst Bandarísk herflugvél með sex manns innanborðs er talin hafa farist einhvers staðar í Afganistan. Um borð voru þrír áhafnarmeðlimir og þrír hermenn. Neyðarmerki heyrðust frá svæðinu í kringum Hindu Kush fjöllin og var leitað úr lofti og á landi. 30.11.2004 00:01
Mílosevic var friðflytjandi Slobodan Mílosevic var friðflytjandi sem var ekki að berjast fyrir Stór-Serbíu og Vesturveldin báru ábyrgð á því að Júgóslavía leystist upp í miklu blóðbaði. Þetta er fréttaskýring Evgeny Prímakovs, fyrrverandi forsætisráðherra og utanríkisráðherra Rússlands. 30.11.2004 00:01
Hersveitir ráðast inn í Kongó Stjórnvöld í Lýðveldinu Kongó segja að hersveitir frá Rúanda hafi ráðist inn í landið og séu nú að kveikja í þorpum við landamæri ríkjanna. Ekki er frekari fréttir að hafa þaðan að svo stöddu. 30.11.2004 00:01
Schwarzenegger verður ekki forseti Maria Shriver, eiginkona Arnolds Schwarzeneggers, ríkisstjóra Kaliforníu, segir að eiginmaður hennar verði aldrei forseti Bandaríkjanna. Shriver, sem er fræg fréttakona, segir að Bandaríkjamenn muni hugsanlega einhverntíma breyta stjórnarskránni þannig að innflytjandi geti orðið forseti. 30.11.2004 00:01
80 grindhvalir syntu á land Tæplega áttatíu grindhvalir syntu á land við strendur Nýja-Sjálands í gær. Björgunarmönnum hefur tekist að halda lífi í tuttugu þeirra og ná svipuðum fjölda aftur út á sjó. 30.11.2004 00:01
Danskur herforingi fær dóm Fyrrverandi foringi í leyniþjónustu danska hersins hefur verið dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir að leka innihaldi leyniskýrslu um gereyðingarvopn í Írak. Foringinn, Frank Grevil, sakaði einnig Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra um að hafa logið til þess að afla stuðningi við innrásina í Írak. 30.11.2004 00:01
Mjallhvít á nektarmyndum Aðstandendur jólahátíðarinnar í Dresden í Þýskalandi, þar sem Mjallhvít og dvergarnir sjö eru færðir upp árlega, hafa rekið Mjallhvíti úr hlutverkinu eftir að hún lét taka af sér nektarmyndir í freyðibaði, skreyttu rósaknöppum. 30.11.2004 00:01
50% aukning áfengiseitrunar Á fjórða þúsund Norðmenn voru fluttir á sjúkrahús á síðasta ári til þess að dæla úr maga þeirra vegna áfengiseitrunar. Þetta er 50% aukning frá árinu 1999. Fjölgunin hefur orðið mest hjá karlmönnum yfir fimmtugt. 30.11.2004 00:01
Samningaviðræðum slitið í Úkraínu Stjórnarandstaðan í Úkraínu hefur slitið samningaviðræðum um hinar umdeildu forsetakosningar í síðustu viku. Jafnframt hefur stjórnarandstaðan hvatt stuðningsmenn sína til þess að umkringja á ný opinberar byggingar og hefur hún krafist þess að þingið verði kallað saman til neyðarfundar síðar í dag. 30.11.2004 00:01
31 látinn hið minnsta Að minnsta kosti þrjátíu og einn fórst og fjölmargir slösuðust þegar farþegaþotu hlekktist á í lendingu á indónesísku eyjunni Jövu í dag. 153 voru um borð í þotunni sem er af gerðinni McDonnell-Douglas MD-82. Vélin tilheyrði lággjaldaflugfélaginu Lion Air. 30.11.2004 00:01
Rottuplága í Svíþjóð Íbúar í námubænum Kiruna í Norður Svíþjóð berjast nú við mikla rottuplágu sem er hreinlega að gera þá vitlausa. Talið er að rotturnar komi með úrgangi frá Noregi sem er sendur í endurvinnslustöð í Kiruna. 30.11.2004 00:01
Hjónabönd samkynhneigðra leyfð? Áfrýjunardómstóll í Suður-Afríku hefur úrskurðað að lög um hjónaband nái einnig til samkynhneigðra. Málið fer nú fyrir stjórnarskrárdómstól Suður-Afríku sem er æðsti dómstóll landsins. Hann sker úr um hvort hjónabönd samkynhneigðra verða leyfð opinberlega. 30.11.2004 00:01
Réðust inn á þingið Stjórnarandstæðingar í Úkraínu reyndu að ráðast inn í þinghúsið í dag á meðan fjallað var um forsetakosningarnar umdeildu. Tugir þúsunda mótmæltu á götum úti níunda daginn í röð. 30.11.2004 00:01
Leitartól ógnar gagnaöryggi Leitartól sem vefleitarvélin Google býður fólki að nota við gagnaleit á tölvum sínum er talin draga úr gagnaöryggi. Hægt er að hlaða niður litlu forriti á vef Google sem leitar að skjölum á tölvum notenda og heldur skrá yfir skjölin og innihald þeirra á vísum stað á harða drifinu. 30.11.2004 00:01
Heilbrigðiskerfið í ólestri Íraska heilbrigðiskerfið er í ólestri og er ástandið mun verra en það var fyrir innrásina í Írak að sögn bresku læknasamtakanna Medact. Mikill skortur er á lyfjum og þjálfuðu heilbrigðisstarfsfólki, hreinlæti er ábótavant á sjúkrahúsum og mikið vantar upp á að mæðrum og börnum sé veitt öll nauðsynleg þjónusta. 30.11.2004 00:01
Aukin bjartsýni á samkomulag Aukin bjartsýni ríkir nú um að samkomulag náist á milli harðlínuflokka mótmælenda og kaþólikka um myndun nýrrar heimastjórnar á Norður-Írlandi. Enn á eftir að leysa ýmis vandamál en talið er að samkomulag geti náðst fyrir jól. 30.11.2004 00:01
Flugvélin rann út af flugbrautinni Í það minnsta 31 lét lífið og 61 slasaðist þegar farþegaflugvél rann út af hálli flugbraut á Javaeyju í Indónesíu í lendingu. Rúmlega 150 manns voru um borð í flugvélinni. Þrjátíu og sjö voru alvarlega slasaðir, að sögn eins yfirmanna flugvallarins. 30.11.2004 00:01
Hátt í 400 létust í aurskrið Í það minnsta 340 manns létust og 150 til viðbótar er saknað eftir að óveður gekk yfir Filippseyjar. Flóð og aurskriður steyptust yfir bæina Real, Infanta og Nakar skömmu fyrir miðnætti í fyrrinótt og grófu marga íbúa lifandi. 30.11.2004 00:01
Milljónir lögðu niður störf Milljónir ítalskra launþega fóru í verkfall í gær til að mótmæla efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Verkfallið er það fimmta á hálfu þriðja ári sem boðað er til í mótmælaskyni við stefnu ríkisstjórnar Silvios Berlusconi. 30.11.2004 00:01
Hvalkjöt aftur í skólamötuneytin Hvalkjöt verður á borðum japanskra skólabarna á ný í fyrsta sinn í rúma tvo áratugi. Skólayfirvöld í Wakayama hafa ákveðið að skólamötuneyti bjóði börnum á tveimur lægstu skólastigunum upp á hvalkjöt tvisvar í mánuði frá og með byrjun næsta árs.<font face="Helv"></font> 30.11.2004 00:01
Berjast gegn uppreisnarmönnum Rúandaher mun grípa til vopna gegn uppreisnarmönnum í Kongó í hvert skipti sem þess gerist þörf, sagði Paul Kagame, forseti Rúanda. Orðrómur er uppi um að nokkur þúsund rúandískra hermanna séu þegar komin yfir landamærin að Kongó en það hefur ekki fengist staðfest. 30.11.2004 00:01
Deilan í Úkraínu harðnar Deilur stríðandi fylkinga í Úkraínu hörðnuðu heldur í gær þegar talsmaður stjórnarandstöðuleiðtogans Viktor Júsjenkó lýsti því yfir að stjórnarandstæðingar væru hættir samningaviðræðum við Viktor Janúkovitsj, forsætisráðherra, og samherja hans um lausn deilunnar. 30.11.2004 00:01
200 hafa farist á Filippseyjum Talið er að meira en tvö hundruð manns hafi farist í aurskriðum og flóðum á Filippseyjum í nótt. Úrhellisrigning hefur verið á þessum slóðum undanfarið. Hjálp hefur ekki borist til nándar nærri allra svæða. 30.11.2004 00:01
Pyntingar staðreynd við Guantanamo Pyntingar á föngum viðgangast í fangelsi Bandaríkjastjórnar við Guantanamo-flóa og aðstæður þar eru hryllilegar segir rannsóknarblaðamaðurinn David Rose sem skrifað hefur bók um málið. Alþjóða Rauði krossinn tekur undir ásakanir hans í trúnaðarskýrslu til Bandaríkjastjórnar. 30.11.2004 00:01
Gasleki á norskum olíuborpalli Hátt í tvöhundruð starfsmenn á norska olíuborpallinum Snorra-A í Norðursjó voru fluttir í land í gærkvöldi og í nótt vegna gasleka undir pallinum. Olíuframleiðslu hefur verið hætt tímabundið á pallinum en þrjátíu og sex menn eru enn um borð og vinna hörðum höndum við að ná tökum á gaslekanum. 29.11.2004 00:01
Harður jarðskálfti í Japan Harður jarðskálfti upp á 7,1 stig á Richter varð í Japan í gærkvöldi. Að minnsta kosti átta manns slösuðust í skjálftanum. Upptökin voru á japönsku eyjunni Hokkaido og skall flóðbylgja á eyjunni í kjölfar skjálftans. 29.11.2004 00:01
Jafnaðarmannaflokkurinn vann Adrian Nastase, forsætisráðherra Rúmeníu, hefur lýst yfir sigri Jafnaðarmannaflokksins í þingkosningunum sem fram fóru í landinu í gær. Útgönguspár benda til þess að flokkurinn hafi unnið meira fylgi en miðflokkur stjórnarandstöðunnar. Rúmenski jafnaðarmannaflokkurinn er arftaki kommúnistaflokks Ceausecu, fyrrverandi forseta landsins. 29.11.2004 00:01
Ríkið borgar fyrir hundafóður Grænlenskir sleðahundar í bænum Kvannak sitja nú að gnægtaborði í boði grænlensku landsstjórnarinnar því sá óvenjulegi ríkisstyrkur hefur verið tekinn upp að veiðimenn fá nú endurgreiddan kostnað vegna kaupa á hundafóðri. 29.11.2004 00:01
12 látnir eftir sjálfsmorðsárás Að minnsta kosti tólf létust og tíu eru særðir eftir sjálfsmorðsárás fyrir utan írakska lögreglustöð í útjaðri Ramadí-borgar í Írak í morgun. Að sögn talsmanns sjúkahússins þangað sem hinir særðu voru fluttir eru um 90% fórnarlambanna lögreglumenn. 29.11.2004 00:01
Kosningarnar fyrir Hæstarétti Hæstiréttur Úkraínu hóf í morgun að fjalla um forsetakosningarnar umdeildu sem fram fóru í landinu fyrir rúmri viku en hann á að úrskurða hvort þær skuli ógildar. Þúsundir stuðningsmanna beggja fylkinga standa með hrópum og köllum við réttinn. Ólga vex enn í landinu með hótunum um aðskilnað og sjálfsstjórn í austurhluta landsins. 29.11.2004 00:01
Dómari dæmdur fyrir barnaklám Dómari við viðskiptaréttinn í Danmörku var í morgun dæmdur til fimm mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa dreift barnaklámi á Netinu. Þrír mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir að því tilskildu að maðurinn leiti sér meðferðar vegna hneigðar sinnar til barna. 29.11.2004 00:01
Efnahagskerfi Úkraínu gæti hrunið Leonid Kútsma, fráfarandi forseti Úkraínu, segir að efnahagskerfi landsins kunni að hrynja á næstu dögum vegna ástandsins í landinu. Kútsma segir að færi svo yrði hvorki hægt að kenna sér né ríkisstjórn sinni um það, enda sé starfsumhverfi ríkisstjórnarinnar óboðlegt þessa dagana. 29.11.2004 00:01
Laug ekki að þjóðinni Jose Maria Aznar, fyrrverandi forsætisráðherra Spánar, segist ekki hafa logið vísvitandi að spænsku þjóðinni eftir hryðjuverkin í Madrid í mars þegar hann lýsti því yfir að hryðjuverkasamtök ETA bæru ábyrgð á verknaðinum. 29.11.2004 00:01
Viðræðum lýkur eftir árið 2014 Evrópusambandið getur ekki lokið aðildarviðræðum við Tyrki fyrr en eftir árið 2014. Fyrst þarf að skipuleggja fjármál sambandsins eftir þann tíma og ekki fyrr en að því loknu verður hægt að klára viðræðurnar. 29.11.2004 00:01
Hátt í 20 þúsund borgarar látnir 1237 bandarískir hermenn hafa látist í Írak síðan stríðið þar hófst í mars á síðasta ári, þar af 1098 síðan George Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að stríðinu væri „að mestu leyti“ lokið þann 1. maí í fyrra. Nákvæmar tölur yfir fall írakskra borgara liggur ekki fyrir en áætlað er að þeir séu á bilinu 14.500-18.000 að sögn Reuters-fréttastofunnar. 29.11.2004 00:01
Samþykkir nýjar kosningar Viktor Janúkovítsj, forsætisráðherra Úkraínu, segist munu samþykkja nýjar forsetakosningar ef sýnt þyki að brögðum hafi verið beitt. Ástandið í Úkraínu er vægast sagt eldfimt þessa dagana og það var ekki á það bætandi þegar Leonid Kútsma, fráfarandi forseti Úkraínu, lýsti því yfir í dag að efnahagskerfi landsins kynni að hrynja á næstu dögum vegna ástandsins. 29.11.2004 00:01
Egyptar stuðli að friðarviðræðum Stjórnvöld í Egyptalandi segjast vera reiðubúin að reyna að miðla málum í átt til friðar milli Ísraels og og Sýrlands að sögn talsmanns Hosnis Mubaraks, forseta Egyptalands. Mubarak mun hitta forseta Sýrlands, Bashar al-Assad, í Egyptalandi á morgun og mun hann að sögn viðra umrædda hugmynd við al-Assad á fundinum. 29.11.2004 00:01
140 námumenn taldir af Líklegt er talið að 140 námamenn sem sitja fastir inni í kolanámu í Norður-Kína séu allir látnir. Gríðarleg gassprenging varð í námunni í gær þar sem 300 manns unnu. Eitrað gas og reykur hefur hamlað björgunarstörfum og hafa björgunarmenn lagt mesta áherslu á að koma loftræstingu í gang. 29.11.2004 00:01
Hræðsla ræður verðhækkunum Hver fata af olíu er tíu til fimmtán dollurum, andvirði 650 til 1.000 króna, dýrari en hún væri ef verðið réðist eingöngu af framleiðslu og eftirspurn, sagði Ali Naimi, olíumálaráðherra Sádi-Arabíu. Hann sagði að drjúgur hluti af verðinu væri til kominn vegna hræðslu manna við hryðjuverk og óróa. 29.11.2004 00:01