Fleiri fréttir

Ríkið borgar fyrir hundafóður

Grænlenskir sleðahundar í bænum Kvannak sitja nú að gnægtaborði í boði grænlensku landsstjórnarinnar því sá óvenjulegi ríkisstyrkur hefur verið tekinn upp að veiðimenn fá nú endurgreiddan kostnað vegna kaupa á hundafóðri.

12 látnir eftir sjálfsmorðsárás

Að minnsta kosti tólf létust og tíu eru særðir eftir sjálfsmorðsárás fyrir utan írakska lögreglustöð í útjaðri Ramadí-borgar í Írak í morgun. Að sögn talsmanns sjúkahússins þangað sem hinir særðu voru fluttir eru um 90% fórnarlambanna lögreglumenn.

Kosningarnar fyrir Hæstarétti

Hæstiréttur Úkraínu hóf í morgun að fjalla um forsetakosningarnar umdeildu sem fram fóru í landinu fyrir rúmri viku en hann á að úrskurða hvort þær skuli ógildar. Þúsundir stuðningsmanna beggja fylkinga standa með hrópum og köllum við réttinn. Ólga vex enn í landinu með hótunum um aðskilnað og sjálfsstjórn í austurhluta landsins.

Dómari dæmdur fyrir barnaklám

Dómari við viðskiptaréttinn í Danmörku var í morgun dæmdur til fimm mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa dreift barnaklámi á Netinu. Þrír mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir að því tilskildu að maðurinn leiti sér meðferðar vegna hneigðar sinnar til barna.

Efnahagskerfi Úkraínu gæti hrunið

Leonid Kútsma, fráfarandi forseti Úkraínu, segir að efnahagskerfi landsins kunni að hrynja á næstu dögum vegna ástandsins í landinu. Kútsma segir að færi svo yrði hvorki hægt að kenna sér né ríkisstjórn sinni um það, enda sé starfsumhverfi ríkisstjórnarinnar óboðlegt þessa dagana.

Laug ekki að þjóðinni

Jose Maria Aznar, fyrrverandi forsætisráðherra Spánar, segist ekki hafa logið vísvitandi að spænsku þjóðinni eftir hryðjuverkin í Madrid í mars þegar hann lýsti því yfir að hryðjuverkasamtök ETA bæru ábyrgð á verknaðinum.

Viðræðum lýkur eftir árið 2014

Evrópusambandið getur ekki lokið aðildarviðræðum við Tyrki fyrr en eftir árið 2014. Fyrst þarf að skipuleggja fjármál sambandsins eftir þann tíma og ekki fyrr en að því loknu verður hægt að klára viðræðurnar.

Hátt í 20 þúsund borgarar látnir

1237 bandarískir hermenn hafa látist í Írak síðan stríðið þar hófst í mars á síðasta ári, þar af 1098 síðan George Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að stríðinu væri „að mestu leyti“ lokið þann 1. maí í fyrra. Nákvæmar tölur yfir fall írakskra borgara liggur ekki fyrir en áætlað er að þeir séu á bilinu 14.500-18.000 að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Samþykkir nýjar kosningar

Viktor Janúkovítsj, forsætisráðherra Úkraínu, segist munu samþykkja nýjar forsetakosningar ef sýnt þyki að brögðum hafi verið beitt. Ástandið í Úkraínu er vægast sagt eldfimt þessa dagana og það var ekki á það bætandi þegar Leonid Kútsma, fráfarandi forseti Úkraínu, lýsti því yfir í dag að efnahagskerfi landsins kynni að hrynja á næstu dögum vegna ástandsins.

Egyptar stuðli að friðarviðræðum

Stjórnvöld í Egyptalandi segjast vera reiðubúin að reyna að miðla málum í átt til friðar milli Ísraels og og Sýrlands að sögn talsmanns Hosnis Mubaraks, forseta Egyptalands. Mubarak mun hitta forseta Sýrlands, Bashar al-Assad, í Egyptalandi á morgun og mun hann að sögn viðra umrædda hugmynd við al-Assad á fundinum.

140 námumenn taldir af

Líklegt er talið að 140 námamenn sem sitja fastir inni í kolanámu í Norður-Kína séu allir látnir. Gríðarleg gassprenging varð í námunni í gær þar sem 300 manns unnu. Eitrað gas og reykur hefur hamlað björgunarstörfum og hafa björgunarmenn lagt mesta áherslu á að koma loftræstingu í gang.

Hræðsla ræður verðhækkunum

Hver fata af olíu er tíu til fimmtán dollurum, andvirði 650 til 1.000 króna, dýrari en hún væri ef verðið réðist eingöngu af framleiðslu og eftirspurn, sagði Ali Naimi, olíumálaráðherra Sádi-Arabíu. Hann sagði að drjúgur hluti af verðinu væri til kominn vegna hræðslu manna við hryðjuverk og óróa.

Efnahagshrun blasir við

Efnahagur Úkraínu er að niðurlotum kominn og þolir ekki til lengdar að þjóðfélagið sé í lamasessi meðan deilt er um hver er réttkjörinn forseti landsins. Þetta sagði Leoníd Kútsjma, fráfarandi forseti Úkraínu. "Fáeinir dagar til viðbótar og fjármálakerfið gæti hrunið eins og spilaborg," sagði hann.

Ný byltingarkennd tækni

Nýr byltingarkenndur tölvukubbur og örgjörvi verður notaður í nýja heimilismiðlara fyrir breiðbandstengingar og hágæðasjónvarpssendingar sem Sony ætlar að bjóða til sölu árið 2006.

Rúandískir hermenn sagðir í Kongó

Nokkur þúsund rúandískra hermanna hafa farið yfir landamærin inn í Kongó undanfarið að sögn vestræns sendimanns í Kongó. Mikil spenna hefur ríkt í samskiptum stjórnvalda í Rúanda og Kongó undanfarið, Rúanda sendi her til þátttöku í borgarastríðinu í Kongó fyrir nokkrum árum og óttast Kongóstjórn að Rúanda láti aftur til sín taka.

12 ára afganskur drengur drepinn

Tólf ára drengur lést þegar bandarískir öryggisverðir skutu inn í hóp þúsund mótmælenda í Afganistan í gær. Bandaríkjaher hefur hert aðgerðir sínar gegn al-Kaída liðum í Afganistan síðastliðnar vikur.

Dregið hefur úr hryðjuverkum

Dregið hefur úr ofbeldisverkum í Írak eftir árás bandarískra og íraskra hersveita á Falluja, sagði Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks. "Umfang glæpsamlegra aðgerða hefur minnkað og heldur áfram að minnka eftir aðgerðirnar í Falluja," sagði Allawi í sjónvarpsútsendingu þar sem hann svaraði spurningum áhorfenda.

Hætta árásum á Ísraela

Hamassamtökin hafa hætt árásum á Ísraela fram yfir forsetakosningar Palestínumanna 9. janúar. Þetta sagði Sheik Hassan Yousef, leiðtogi Hamas á Vesturbakkanum. Hann sagði samtökin jafnframt reiðubúin að íhuga formlegt vopnahlé við Ísraela.

Mús rændi úr búðarkassa

Verslunareigandi í Villach í Austurríki botnaði hvorki upp né niður í því þegar seðlar fóru að hverfa úr búðarkassanum hans. Hann brá því á það ráð að beina öryggismyndavél að búðarkassanum og komst þá að raun um hver þjófurinn var, nefnilega mús sem hafði komið sér fyrir í búðinni.

Hinir lugu sagði Aznar

"Það voru aðrir en við sem lugu," sagði Jose Maria Aznar, fyrrum forsætisráðherra Spánar, þegar hann bar vitni frammi fyrir þingnefnd sem rannsakar hryðjuverkaárásirnar í Madríd í mars.

Nýjar kosningar eina leiðin

Leóníd Kútsma, forseti Úkraínu segir að nýjar forsetakosningar kunni að vera eina leiðin til að losa þjóðina úr þeirri spennutreyju sem hún sé í. Ólga fer hratt vaxandi með hótunum um aðskilnað og sjálfsstjórn í austurhluta landsins.

120 hvalir syntu á land

Yfir eitt hundrað og tuttugu hvalir drápust þegar þeir syntu á land við strendur Ástralíu í dag og í gær. Vísindamenn vita ekki hvað olli þessari hegðun hvalanna. 

ESB vill að kosið verði á ný

Evrópusambandið segir að eina leiðin fyrir Úkraínu út úr því ófremdarástandi sem geysað hefur í landinu eftir forsetakosningarnar, sé að boða til nýrra kosninga. Þjóðþing landsins ógilti í gær úrslit kosninganna, en samkvæmt þeim sigraði Janúkóvits, forsætisráðherra.

Hundruð manna fastir inni í námu

Hátt í tvö hundruð námamenn eru fastir inni í kolanámu, langt niðrí iðrum jarðar, eftir gríðarlega gassprengingu í námu í norðurhluta Kína í nótt. Óttast er að ekki takist að bjarga mönnunum. Slys eru tíð í kolanámum í Kína og hafa kínversk yfirvöld verið harðlega gagnrýnd fyrir að tryggja ekki öryggi starfsmanna.

Boðað verði til nýrra kosninga

Evrópusambandið segir að boða verði til nýrra forsetakosningu í Úkraínu til að koma í veg fyrir borgarastyrjöld. Hæstiréttur landsins úrskurðar um lögmæti kosninganna á morgun.

Kosið í Rúmeníu

Rúmenar ganga í dag að kjörborðum, þar sem kosið verður til forseta í landinu. Þeir sem til þekkja segja kosningarnar þær mikilvægustu og umtöluðustu í landinu síðan árið 1989 eftir fall kommúnismans. Á næstu tveim árum munu Rúmenar klára aðildarviðræður við Evrópusambandið og stefna að inngöngu árið 2007 ásamt nágrönnum sínum Búlgaríu.

Fleiri taka þátt í heilögu stríði

Myndband hryðjuverkasamtakanna al-Qaeida fær fleiri og fleiri danska múslima til að taka þátt í svokölluðu heilögu stríði. Múslimum í Danmörku finnst umræðan í sinn garð óvæginn en forsætisráðherra landsins segir heilaga ritningu múslima ekki hafna yfir gagnrýni.

Sharon reiðubúinn til viðræðna

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, segist reiðubúinn til viðræðna við Mahmoud Abbas, einn af leiðtogum Palestínumanna, til að reyna að ná samkomulagi um framtíð Gasa svæðisins.

7 slökkviliðsmenn létust

Sjö slökkviliðsmenn létu lífið í Sviss í gær, þegar þak á bílastæðahúsi féll ofan á þá, þar sem þeir voru við slökkvistörf. Þá er tveggja slökkviliðsmanna saknað og að sögn lögreglu er lítil von til þess að þeir finnist á lífi. Fjórir slökkviliðsmenn komust þó lífs af og eru við ágæta heilsu.

Átu ljón

Íbúar í þorpi nokkru í Zimbababve lögðu sér ljón til munns í vikunni sem leið. Ljónið hafði ráðist á skepnur í þorpinu og étið og þótti íbúum þá rétt að launa ljóninu greiðann með því að skella því á grillið. Að sögn vonuðust margir þorpsbúanna til þess að fá hugrekki og styrk ljónsins í kjölfar átunnar.

Óttast um tvöhundruð námumenn

Óttast er um afdrif hátt í tvö hundruð námumanna, sem sitja fastir inni í kolanámu eftir gríðarlega gassprengingu í norðurhluta Kína í gærkvöldi. Um þrjú hundruð kolanámumenn voru við störf þegar sprengingin varð, en rúmlega hundrað tókst að forða sér. Mikill reykur á slysstaðnum hefur hamlað björgunarstarfi.

Mótmæli hjá starfsmönnum Jaguar

Hundruð starfsmanna sportbílaframleiðandans Jagúar mótmæltu því um helgina að framleiðslu bílanna yrði hætt í stærstu verksmiðju fyrirtækisins í Englandi.

Fjöldi manns lokast inni

Um 166 manns lokuðust neðanjarðar inn í námu eftir gríðarlega öfluga gas sprengingu í Kína í gær án nokkura leiða til að ná sambandi við umheiminn. Um 300 námuverkamenn voru í námunni sem er í Shaanxi héraði þegar sprengingin átti sér stað en um 127 námumenn sluppu.

Borgarastyrjöld vofir yfir

Borgarastyrjöld er yfirvofandi í Úkraínu eftir að héraðsstjórnir í austurhluta landsins hótuðu að skilja sig frá vesturhlutanum og krefjast sjálfsstjórnar, vegna deilunnar um forsetakosningarnar.  

Reynt að ráða Bush af dögum

Stærsti skæruliðahópur í Kólumbíu áformaði að ráða George Bush af dögum þegar hann var þar í heimsókn á mánudaginn var. Ströng öryggisgæsla er talin hafa komið í veg fyrir tilræðið.

Ferðamenn á ný til Afganistan

Ferðaþjónusta er aftur að lifna við í Afganistan eftir áratugalöng átök í landinu. Afganistan var vinsæll áfangastaður ferðamanna á áttunda áratug síðustu aldar, en síðastliðin ár og áratugi hefur lítið farið fyrir ferðamönnum á svæðinu vegna áratugalangra átaka.

Janukovitsj verði rekinn úr starfi

Stjórnarandstaðan í Úkraínu krefst þess að Viktor Janukovitsj, forsætisráðherra landsins, verði rekinn úr starfi. Mótmælendur hrópuðu "niður með Kútsjma". Hæstiréttur fjallar í dag um áfrýjun Viktors Júsjenko vegna kosningaúrslitanna.

Hafa samráð við Palestínumenn

Ísraelsmenn munu rýma landnemabyggðir á Gaza-ströndinni í samráði við palestínsk stjórnvöld að sögn Ariels Sharon, forsætisráðherra Ísraels.

Neyðarfundur innan stundar

Neyðarfundur úkraínska þingsins hefst í Kænugarði innan stundar, og verður fjallað um þá ólgu sem ríkt hefur í landinu eftir forsetakosningarnar um síðustu helgi. Fulltrúar allra stjórnmálaflokka hafa tilkynnt þátttöku sína á fundinum, nema flokkur Viktors Janúkóvits, forsætisráðherra.

Barghouti hættir við

Palestínski uppreisnarmaðurinn, Marwan Barghouti, sem situr í fangelsi í Ísrael, ætlar ekki að gefa kost á sér í væntanlegum forsetakosningum í Palestínu og taka við hlutverkinu af Jassirs Arafats, sem lést 11. nóvember síðastliðinn. Barghouti áformaði að bjóða sig fram gegn Mahmoud Abbas, en hætti við það og lýsti yfir stuðningi við Abbas

Úrslitin verði ógilt

Forseti úkraínska þingsins telur að ógilda eigi úrslit forsetakosninganna til að binda enda á þá ólgu sem ríkt hefur í landinu. Úkraínska þingið fjallar um þá ólgu sem ríkt hefur í landinu eftir forsetakosningarnar um síðustu helgi, en allir stjórnmálaflokkar, nema flokkur Viktors Janúkóvits, forsætisráðherra, sitja neyðarfundinn.

Rúmenar fá 50 milljarða aukastyrk

Evrópusambandið hefur ákveðið að veita Rúmeníu ríflega 50 milljarða íslenskra króna í aukastyrki þegar landið gengur í Evrópusambandið árið 2007. Bróðurpartur upphæðarinnar fer í að auka öryggi við landamæri Rúmeníu.

Kastaði sér fram af Empire State

Miðaldra maður henti sér niður af 86. hæð Empire State byggingarinnar í New York í gær. Maðurinn klifraði yfir girðingu á útsýnispalli byggingarinnar og lét sig falla niður. Eins og nærri má geta er hann allur eftir verknaðinn. Þetta er í 31. skipti sem sjálfsmorð er framið með þessum hætti síðan Empire State byggingin var opnuð árið 1931.

Innilokaðir í brennandi húsi

Sex slökkviliðsmenn eru fastir inni í bílastæðahúsi í bænum Gretzenbach í Sviss en eldur varð laus í húsinu í morgun. Slökkviliðsmennirnir urðu inniloka þegar þak hússins hrundi og að sögn talsmanns lögreglunnar í bænum eru líkurnar á því að mennirnir finnist á lífi orðnar hverfandi.

Dó brennivínsdauða á flóttanum

Liðlega þrítugur finnskur karlmaður rændi í gær hótel í bænum Turku í vesturhluta landsins, drakk sig öfurölvi og dó síðan brennivínsdauða í leigubíl þar sem lögreglan handtók hann. Ræninginn hafði hótað starfsmanni í afgreiðslu hótelsins með vopni og heimtað fé og áfengi.

Sjá næstu 50 fréttir