Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Læknir SÞ handtekinn Tíu manns voru handteknir í Kabúl í gær í tengslum við mannrán á þremur starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna. 22.11.2004 00:01
Sistani fordæmir árás á mosku Æðsti sjíaklerkur Íraks, Ali Husseini al Sistani, fordæmir árás bandarískra hermanna á moskuna Abu Hanifa í Bagdad. 22.11.2004 00:01
Verkfalli rútubílstjóra lokið Verkfalli rútubílstjóra í Finnlandi er lokið. Það stóð í tvær vikur. Samgöngur voru að komast í samt horf í gær en einhverjir hnökrar voru þó á þeim. 22.11.2004 00:01
Vilja selja úran til Kína Ástralska námafyrirtækið WMC á nú í viðræðum við kínversk stjórnvöld um sölu á úran. Ástralskar reglur um útflutning á úrani eru mjög strangar. 22.11.2004 00:01
Senda eftirlitsnefnd til Palestínu Evrópusambandið mun senda eftirlitsnefnd til Palestínu til að fylgjast með forsetakosningunum þegar kosið verður um eftirmann Jassers Arafat sem lést á sjúkrahúsi í París 11. nóvember. 22.11.2004 00:01
Strax hneyksli Hneyksli skyggði á fyrsta starfsdag nýs forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Jose Manuel Barroso mætti í dag til vinnu í fyrsta sinn og þurfti þegar í stað að taka á uppljóstrunum um aðild samgöngustjóra sambandsins að fjármálahneyksli í Frakklandi fyrir nokkrum árum. 22.11.2004 00:01
Frjálslyndi í öndvegi Frjálslyndir straumar virðast gera vart við sig í Bandaríkjunum, miðað við þá sem almenningur gæti helst hugsað sér sem forsetaframbjóðendur árið 2008. Könnun Gallups leiðir í ljós, að Bandaríkjamenn vilja helst sjá þau Hillary Clinton og Rudy Guiliani berjast um forsetaembættið eftir fjögur ár. 22.11.2004 00:01
53 létust í flugslysi Fimmtíu og þrír létust þegar flugvél endastakkst ofan í ísi lagt stöðuvatn aðeins nokkrum sekúndum eftir flugtak í svokallaðri Innri-Mongólíu í Kína í morgun. Ekki er vitað hvað kom upp á, veður var gott þegar slysið varð og margir á ferli við flugvöllinn. 21.11.2004 00:01
Stórveldin takast á Gamla Evrópa, eins og Bandaríkjamenn kalla Frakkland og Þýskaland, tregðast við að fella niður skuldir Íraka. Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að Frakkar voni að þeim mistakist að endurreisa Írak. 21.11.2004 00:01
Kosningar í Írak 30. janúar Kosninganefnd Íraks ákvað í morgun dagsetningu á fyrirhugaðar kosningar í landinu og var ákveðið að Írakar gangi að kjörborðinu þann 30. janúar næstkomandi. Mikil óöld ríkir í landinu og margir fréttaskýrendur hafa talið óvarlegt að boða til kosninga að svo komnu máli á meðan ekki hefur tekist að ná tökum á uppreisnarhópum víðs vegar um landið. 21.11.2004 00:01
Reknir úr hernum fyrir pyntingar Sextán þýskum hermönnum hefur verið vikið tímabundið úr hernum vegna ásakana um að þeir hafi misþyrmt nýliðum með rafmagnsstuði og æfingum sem líktu eftir pyntingum skæruliða. Þetta er haft eftir talsmanni þýska varnarmálaráðuneytisins. Rannsókn er hafin á atvikunum sem eiga að hafa átt sér stað síðastliðið sumar. 21.11.2004 00:01
Indverjar bakka í deilunni Stjórnvöld í Indlandi hafa kallað um þrjú þúsund indverska hermenn heim frá Kasmír-héraði en þetta er liður í því að bæta samskiptin á milli nágrannanna og fjandþjóðanna Indlands og Pakistans. Löndin tvö hafa deilt um yfirráð og landamæri Kasmír-héraðs í fimmtán ár og hafa þrisvar sinnum farið í stríð sín á milli vegna þessa. 21.11.2004 00:01
Tvö mannskæð slys í Kína Fimmtíu og þrír létust þegar flugvél endastakkst ofan í ísi lagt stöðuvatn aðeins nokkrum sekúndum eftir flugtak í norðurhluta Kína í morgun. Níu námumenn létu jafnframt lífið í eldsvoða í sama landshluta í morgun. 21.11.2004 00:01
Tímamótakosningar í Úkraínu? Íbúar í Úkraínu ganga að kjörborði í dag til að kjósa sér nýjan forseta. Óttast er að til uppþota geti komið í landinu. Margir ganga svo langt að segja að valið standi á milli þess hvort Úkraína muni í framtíðinni fylgja Rússum eða Vestur-Evrópu að málum. 21.11.2004 00:01
Svíar líða fyrir Tsjernóbyl-slysið Talið er að ríflega áttahundruð manns í norðurhluta Svíþjóðar hafi fengið krabbamein í kjölfar kjarnorkuslyssins í Tsjernóbyl árið 1986. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar um afleiðingar slyssins. Geislavirk ský fóru yfir norðurhluta Evrópu í kjölfar slyssins og merkjanleg aukning varð á krabbameinstilfellum. 21.11.2004 00:01
Dönum fjölgar í Afganistan Fjöldi danskra hermanna í Afganistan mun þrefaldast á næsta ári samkvæmt því sem kemur fram í <em>Politiken</em> í dag. Hermennirnir eiga að sinna mannúðarstörfum og að taka þátt í þjálfun nýs hers Afganistans. Formaður samtakanna „Læknar án landamæra“ hefur áhyggjur af því að hermenn sinni einnig mannúðarstörfum. 21.11.2004 00:01
Sneri aftur í veisluna með byssu Danska lögreglan telur að tæplega fimmtugur karlmaður frá fyrrverandi Júgóslavíu hafi drepið samlanda sinn með því að skjóta hann nokkrum skotum í samkomuhúsi á Kaupmannahafnarsvæðinu í gærmorgun. Maðurinn neitar sök en hann gaf sig fram við lögreglu síðdegis í gær. 21.11.2004 00:01
80% skuldanna felld niður Rússar hafa samþykkt að fella niður 80 prósent skulda Íraka sem hljóða upp á um það bil 125 milljarða dollara. Þetta er haft eftir bandarískum embættismanni en Bandaríkjamenn leggja mikla áherslu á að skuldirnar verði felldar niður. 21.11.2004 00:01
Fleiri lík finnast Lík þriggja manna sem skotnir höfðu verið í höfuðið fundust á götum Mósúl í Írak í dag. Líklegt er talið að mennirnir séu úr þjóðvarðaliði Íraka en það hefur ekki verið staðfest. Í gær fundust lík níu írakskra þjóðvarðliða á víðavangi í borginni sem einnig höfðu verið drepnir með skoti í höfuðið. 21.11.2004 00:01
Frænda Allawis sleppt? Mannræningjarnir sem rændu frænda Iyads Allawis, forsætisráðherra Íraks, létu hann lausan í dag að sögn arabískrar sjónvarpsstöðvar. Talsmaður íröksku ríkisstjórnarinnar sagðist ekki geta staðfest fréttirnar í samtali við Reuters-fréttastofuna. Frænda forsætisráðherrans var rænt fyrr í mánuðinum. 21.11.2004 00:01
Fjögur morð á sólarhring í Napólí Fjórir menn hafa verið drepnir undafarinn sólarhring í borginni Napólí á Ítalíu. Lögreglan segir morðin að öllum líkindum tengjast innbyrðis átökum í mafíunni þar í borg. 21.11.2004 00:01
Boðað til kosninga í Írak Boðað hefur verið til þingkosninga í Írak þrítugasta janúar á næsta ári þrátt fyrir það upplausnarástand sem ríkir í landinu. Dagsetningin fyrir kosningarnar var kunngerð í dag en fyrirfram höfðu margir haft uppi varnaðarorð og efast um að kosningar geti verið óhlutdrægar við núverandi kringumstæður. 21.11.2004 00:01
Eitt kennileita Belfast sprengt Það mannvirki í Belfastborg á Norður-Írlandi, sem mest hefur borið á, var jafnað við jörðu í dag. Churchill-húsið hefur staðið í miðborg Belfast í fjörutíu ár en yfirvöld ákváðu að landsvæðið væri svo verðmætt að það borgaði sig að sprengja húsið í morgun til að rýma fyrir nýjum byggingum. 21.11.2004 00:01
Yushchenko líklega sigurvegari Útgönguspár í forsetakosningunum í Úkraínu, sem voru birtar rétt í þessu, benda til þess að Viktor Yushchenko beri sigur úr býtum. Yushchenko boðar breytta tíma í Úkraínu og náin tengsl við Vesturlönd. Stuðningsmenn hans eru að safnast saman í miðborg Kíev því þeir óttast að sigurinn verði hafður af þeim með kosningasvindli. 21.11.2004 00:01
Hryðjuverkin í Madrid Eduardo Zaplana, fyrrverandi talsmaður ríkisstjórnar Spánar, heldur því fram að hryðjuverkárásunum í Madríd þann 11. mars á þessu ári hafi verið stýrt af erlendum aðila í von um að koma forsætisráðherranum, Jose Maria Aznar, frá völdum. 21.11.2004 00:01
Ghazi Allawi sleppt úr gíslingu Ghazi Allawi, frændi Iyads Allawi, forsætisráðherra Íraks, var látinn laus á sunnudag í Bagdad en hann var tekinn í gíslingu þann 10. nóvember. 21.11.2004 00:01
Friður í suður-Súdan Sameinuðu þjóðirnar munu staðsetja þúsundir hermanna í Suður-Súdan þegar ríkisstjórnin í Khartoum, höfuðborg Súdans, og byltingarhreyfingin í suðrinu hafa skrifað undir friðarsamning. 21.11.2004 00:01
Kindur mótmæla Um það bil 1200 kindur ráfuðu um götur Madrídar í gær, 21. nóvember, til að vekja athygli á kröfu um verndun á árstíðabundnum flutningi búpenings milli beitilanda á láglendi og hálendi, en það er aldagömul hefð á Spáni. 21.11.2004 00:01
Týndir í Sahara Fimm þýskir ferðamenn fundust heilir á húfi eftir að hafa verið saknað í fjölda daga í Sahara-eyðimörkinni. Ferðalangarnir eiga yfir höfði sér kæru fyrir stuld á fornminjum. 21.11.2004 00:01
Kúrdar drepnir Tyrkneskir hermenn drápu tvo Kúrda sem réðust að herstöð í suðausturhluta Tyrklands í gær. Kúrdarnir skutu úr sjálfvirkum rifflum á hermennina en féllu þegar þeir svöruðu fyrir sig, samkvæmt heimildum hersins. 21.11.2004 00:01
Safn um helförina Safn í Jerúsalem um helförina hefur opnað heimasíðu með aðgangi að lífshlaupi um þriggja milljóna gyðinga sem deyddir voru af nasistum. Gagnasafnið er það yfirgripsmesta sinnar tegundar. 21.11.2004 00:01
Kusu tengsl við Vesturlönd Útgönguspár seinni umferðar forsetakosninga í Úkraínu sem voru í gær benda til þess að Viktor Júsjenko beri sigur úr býtum. 21.11.2004 00:01
ESB ekki á dagskrá í Noregi Þrátt fyrir að meirihluti Norðmanna sé fylgjandi aðild að Evrópusambandinu og tveir stærstu stjórnmálaflokkar Noregs einnig, þá eru Evrópumálin ekki á dagskrá í norskri stjórnmálaumræðu. 21.11.2004 00:01
Kosningar í Írak ákveðnar Tilkynnt var í gær að fyrstu kosningarnar í Írak eftir fall Saddams Hussein verði haldnar 30. janúar. Ekki á að fresta kosningum vegna átaka í landinu. "Kjörstjórn hefur einróma samþykkt að íhuga 30. janúar sem kjördag," sagði formaður kjörstjórnar, Abdel Hussein al-Hindawi, við fréttamenn í Bagdad. 21.11.2004 00:01
Nú liggja Danir í því Hundruð Dana eru öskureiðir vegna umdeildra póstkorta frá lífeyrissjóði þeirra. Talsmaður sjóðsins biðst afsökunar og segir fyrirtækið hafa farið yfir strikið. Póstkortið er stílað á karlmanninn á heimilinu en vekur meiri athygli og jafnvel reiði hjá unnustum og eiginkonum, þegar það svífur inn um bréfalúguna eða póstkassann. 21.11.2004 00:01
Danski þingmaðurinn látinn laus Danskur þingmaður, Flemming Oppfeldt, sem er sakaður um að hafa kynferðislega misnotað þrettán ára dreng, hefur verið látinn laus. Úrskurður dómstóla þess efnis er þvert á úrskurð undirréttar sem á þriðjudaginn framlengdi gæsluvarðhald yfir þingmanninum. Flemming segist í dönskum fjölmiðlum vera saklaus. 20.11.2004 00:01
Fékk sjúkragögn Arafats afhent Ekkja Arafats, Suha, sótti í gær sjúkragögn hins látna eiginmanns síns á hersjúkrahúsið í París þar sem hann naut aðhlynningar síðustu daga ævi sinnar. Í gögnunum er dánarorsök tilgreind en palestínsk yfirvöld hafa sóst eftir að fá þær upplýsingar. 20.11.2004 00:01
Tugur fallinn í morgun Skæruliðar vopnaðir sjálfvirkum rifflum og sprengjuvörpum börðust við bandarískar og írakskar hersveitir í hverfum súnní-múslima í Bagdad í morgun. Að minnsta kosti sjö skæruliðar féllu og þrír lögreglumenn. 20.11.2004 00:01
Fanga sleppt vegna mistaka Lögregluyfirvöld í Manchester á Englandi leita nú manns sem ákærður er fyrir sex morðtilraunir en honum var sleppt fyrr í vikunni vegna mistaka. Maðurinn, sem sagður er mjög hættulegur, var hnepptur í gæsluvarðhald í síðustu viku og átti að mæta fyrir dómara í gær. 20.11.2004 00:01
Enn kýta Frakkar og Bandaríkjamenn Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að Frakkar voni að þeim mistakist að koma á friði og lýðræði í Írak. 20.11.2004 00:01
Viðurkenndi morðið á banabeði Móðir í Kaliforníu viðurkenndi fyrir dóttur sinni á banabeði sínu að hún hefði myrt föður hennar. Líkið hefði hún geymt í frystikistu í 14 ár og látið fjölskylduna halda að hann hefði dáið í bílslysi. Móðirin lést úr krabbameini fyrir viku. Á fimmtudag fannst lík hins myrta þar sem hún hafði vísað á það, í birgðageymslu. 20.11.2004 00:01
Aftökurnar halda áfram Írakskir hryðjuverkamenn myrtu í dag enn tvo gísla sína og settu aftöku þeirra á Netið. Að þessu sinni voru fórnarlömbin tveir Kúrdar sem morðingjarnir segja að hafi tilheyrt lýðræðisflokki þjóðflokksins. Sá flokkur er annar af tveimur stjórnmálahreyfingum Kúrda sem á aðild að bráðabirgðastjórninni í Írak. 20.11.2004 00:01
Deilt um skuldir Íraka Ríkustu þjóðum heims gengur erfiðlega að ná samkomulagi um hvort og hversu mikið af skuldum Íraka þær felli niður. Erlendar skuldir Íraka eru um 122 milljarðar króna og hafa þeir beðið um niðurfellingu á þeim þar sem byrðin sé að sliga landið og hindra eðlilega uppbyggingu. 20.11.2004 00:01
Nýnasistar skipuleggja hryðjuverk Hópur sænskra nýnasista hefur verið handtekinn, grunaður um áætlun um morð og hryðjuverk. Fjórir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Nýnasistarnir höfðu gert áætlun sem gerði ráð fyrir að lama mikilvægar stofnanir samfélagsins, svo sem orkuver, skóla, sjúkrahús og ráðhús. 20.11.2004 00:01
Endurbætur í Fallujah Bandarískir hermenn vinna nú að því að koma aftur á vatni, rafmagni og öðrum nauðsynlegum þjónustuþáttum í lag í borginni Fallujah í Írak. Það gæti tekið tímann sinn því Fallujah er nánast í rúst eftir bardagana undanfarnar vikur. Bandaríkjamenn treysta sér ekki til þess að segja til um hvenær íbúarnir, sem flúðu bardagana, geti snúið aftur. </font /> 20.11.2004 00:01