Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skjóta niður eiturlyfjasmyglara Brasilíumenn ætla, eftir þrjá mánuði, að byrja að skjóta niður flugvélar sem þá grunar að séu notaðar til eiturlyfjaflutninga yfir hina víðáttumiklu frumskóga landsins. Yfirvöld í Brasilíu segja að yfir 4000 óskráðar flugvélar séu á sveimi yfir Amazon skógunum, sem eru víðáttumeiri en bandaríska meginlandið. 19.7.2004 00:01
Stefnt fyrir að hygla ættingjum Evrópusambandið hefur stefnt Edit Cresson, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands fyrir mannréttindadómstólinn, vegna ásakana um að hún hafi hyglað ættingjum sínum og vinum, þegar hún átti sæti í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Sambandið hefur aldrei áður stefnt jafn hátt settum embættismanni fyrir dómstóla. 19.7.2004 00:01
NATO varar Serba við Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir yfirvöld í Serbíu/Svartfjallalandi verða að sýna vilja í verki og handtaka og framselja eftirlýsta stríðsglæpamenn ef koma á traustum og góðum tengslum við NATO. 19.7.2004 00:01
Tunglför fagnað á morgun Sigri Bandaríkjamanna í kapphlaupinu til tunglsins verður fagnað í geimferðastofnuninni NASA á morgun, þegar liðin verða 35 ár síðan Neil Armstrong steig fyrstur manna á tunglið. George Bush, Bandaríkjaforseta, langar til að senda aðra ferju til tunglsins en mörgum þykir það vera bæði of dýrt og skorta tilgang. 19.7.2004 00:01
Nýir sporvagnar í Aþenu Skipuleggjendur Ólympíuleikanna í Grikklandi anda léttar eftir að sporvagnar voru teknir í notkun í Aþenu í morgun. Þeir eiga að létta á umferðarþunganum og er ætlað að flytja áhorfendur á leikvanga Ólympíuleikanna. Allur floti NATO verður á vakt meðan á leikunum stendur en öryggisgæsla í tengslum við þá hefur aldrei verið meiri. 19.7.2004 00:01
Skýstrókur veldur tjóni Skýstrókur olli tjóni í Ruhr-héraði í Þýskalandi í gærkvöld. Skýstrókurinn gekk yfir þrjá bæi og var svo öflugur að flutningagámar hófust á loft og lentu úti í á skammt frá. Strókurinn skildi eftir sig slóð eyðileggingar og nokkrir slösuðust. Stór hluti bæjanna varð rafmagnslaus, ár flæddu yfir bakka sína og almenningssamgöngur lágu niðri fram eftir degi. 19.7.2004 00:01
Hóta að segja sig úr ráðinu Japanir hóta að segja sig úr Alþjóðahvalveiðiráðinu verði banni við hvalveiðum í atvinnuskyni ekki aflétt. Þeir segjast ennfremur ætla að auka vísindaveiðar sínar til muna. Líkur hafa aukist á að hvalveiðar í atvinnuskyni verði leyfðar á ný, eftir átján ára bann. 19.7.2004 00:01
Filippseyingar heim á morgun Filippseysk stjórnvöld segja að hermenn þeirra yfirgefi Írak á morgun til að lífi filippseyska gíslsins sem er í haldi írakskra mannræningja verði þyrmt. Ræningjarnar hafa hótað að afhöfða manninn verði hermennirnir ekki kvaddir heim fyrir 20. júlí. 18.7.2004 00:01
Arafat uppræti spillingu Palestínskir mótmælendur hafa gengið um götur Gasaborgar og krafist þess að Jasser Arafat forseti uppræti spillingu. Valdabarátta milli palestínskra afla verður æ meira áberandi eftir því sem nær dregur áætlunum Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, um að kalla hersveitir sínar af svæðinu og leggja niður landnemabyggðir á næsta ári. 18.7.2004 00:01
Þungaðar konur með anorexíu Æ fleiri þungaðar konur og nýbakaðar mæður eru lagðar inn til meðferðar við átröskunarsjúkdómum á Ríkisspítalann í Kaupmannahöfn. Yfirlæknir spítalans segir þetta verulegt áhyggjuefni og segir afleiðingarnar geta verið hræðilegar fyrir bæði móður og barn. 18.7.2004 00:01
Danir vilja hvalveiðar að nýju Danir ætla að leggja fram tillögu í Alþjóða hvalveiðiráðinu sem á að liðka fyrir því að hvalveiðar í viðskiptaskyni geti hafist að nýju eftir tæplega tveggja áratuga hvalveiðibann. Samkvæmt fréttum á vefsíðu Politiken í Danmörku hefur tillögu þar að lútandi verið dreift til aðildarríkja ráðsins fyrir fund þess sem fram fer síðar í vikunni. 18.7.2004 00:01
Myrti a.m.k. 19 manns Lögregla í Suður-Kóreu hefur handtekið 34 ára gamlan mann sem grunaður er um að hafa myrt a.m.k. 19 manns og yrði, ef rétt reynist, mesti raðmorðingi í sögu landsins. Lögreglan segir rökstuddan grun um að hann hafi myrt 15 manns á innan við ári, aðallega konur, en einnig roskið fólk í hverfi velstæðs fólks í höfuðborginni. 18.7.2004 00:01
11 látast í árás Bandaríkjamanna Bandaríkjaher felldi ellefu Íraka í loftárás á hús í Fallúja í morgun. Upplýsingar um tölu fallinna komu frá lækni á aðalsjúkrahúsi borgarinnar og Bandaríkjaher hefur staðfest að hafa staðið fyrir loftárásinni. 18.7.2004 00:01
20 börn enn í lífshættu Tuttugu börn, sem brunnu illa í eldsvoða í barnaskóla í smábæ á Indlandi á föstudag, berjast enn fyrir lífi sínu. Fjöldi fólks gekk þögult um götur bæjarins Kumbakonam í gær til að votta aðstandendum samúð sína og knýja á um að stjórnvöld í landinu bæti ástand skólabygginga en skólarnir eru margir starfræktir í óviðundandi húsnæði. 18.7.2004 00:01
Miklir eldar í Nevada 750 slökkviliðsmenn hafa barist við elda í Nevada-ríki í Bandaríkjunum þar sem miklir skógareldar hafa geisað frá því á miðvikudag. Sextán heimili hafa orðið eldinum að bráð, tvö fyrirtæki og á þriðja tug útihúsa. 18.7.2004 00:01
Tveir Danir létust í rútuslysi Tveir létust og á sjötta tug eru slasaðir, þar af tíu alvarlega, eftir að tveggja hæða langferðabifreið ók fram af brú á hraðbraut við Köln í Þýskalandi í morgun. 18.7.2004 00:01
Aflífaður fyrir nauðgunartilraun Maður sem sekur var um tilraun til að nauðga konu var hálshöggvinn í borginni Ríad í Sádi Arabíu í dag. Maðurinn hafði brotist ölvaður inn á heimili konunnar, stungið hana hnífi í hálsinn og hótað að myrða börnin hennar. Konan veitti manninum mótþróa og tókst honum ekki að koma fram vilja sínum við hana. 18.7.2004 00:01
Rússneskur ritstjóri myrtur Ritstjóri rússnesks menningartímarits fannst myrtur í miðborg Moskvu, höfuðborgar Rússlands, í gær. Maðurinn, <span class="frettatexti">Pail Peloyan að nafni,</span> hafði verið stunginn nokkrum sinnum í brjóstið og bar þess merki að hafa verið sleginn ítrekað í andlitið. 18.7.2004 00:01
Barði unnustuna með krókódíl Rúmlega fertugur karlmaður var handtekinn í gær í Flórída í Bandaríkjunum fyrir að berja unnustu sína með þriggja feta krókódíl. Maðurinn hélt krókódílinn sem gæludýr í baðkarinu sínu í hjólhýsinu þar sem skötuhjúin búa. 18.7.2004 00:01
Treysta Blair ekki í annað stríð Meirihluti breskra kjósenda treystir Tony Blair forsætisráðherra ekki lengur til að leiða land sitt í stríð samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem birtist í Sunday Times. 57 prósent segjast ekki myndu treysta Blair ef kæmi til annars stríðs og aðeins 31 prósent sagðist treysta honum til að leiða landið í öðru stríði. 18.7.2004 00:01
6 látnir og 40 slasaðir í bílslysi Að minnsta kosti sex létust og um 40 slösuðust í tuttugu bíla árekstri fyrir sunnan Róm á Ítalíu í dag. Ekki er vitað um tildrög slyssins en getgátur eru uppi um að hraðakstur eigi hlut að máli, ellegar að reykur vegna bruna nálægt hraðbrautinni hafi truflað einhverja ökumenn. 18.7.2004 00:01
Flaug kjarnorkusprengjuvélinni Flugmaður vélarinnar, sem varpaði kjarnorkusprengjunni á Nagasakí í Japan á lokadögum síðari heimsstyrjaldarinnar, lést í fyrradag á sjúkrahúsi í Boston í Bandaríkjunum. Hann hét Charles W. Sweeney og var 84 ára gamall. 18.7.2004 00:01
Mótmæla málsmeðferð Mannréttindahópar hafa lýst áhyggjum af því hver verður framgangur réttarhalda yfir írönskum fangaverði sem er sakaður um að hafa myrt íransk-kanadískan ljósmyndara. 18.7.2004 00:01
Aftur í faðm fjölskyldunnar Tæpum fjórum áratugum eftir að bandaríski hermaðurinn Charles Jenkins hvarf frá herdeild sinni í Suður-Kóreu og birtist í Norður-Kóreu er hann í fyrsta skipti kominn í land þar sem Bandaríkjamenn eiga möguleika á að fá hann framseldan. 18.7.2004 00:01
Glæpamaður verður borgarstjóri Sögulegum borgarstjórakosningum í rússnesku borginni Vladivostok við Kyrrahafið lauk í gær með sigri Vladimir Nikolayev. Nikolayev var legið á hálsi í kosningabaráttunni fyrir að reyna að hylja yfir glæpsamlega fortíð sína. Hann var handtekinn árið 1998 ásakaður um fjárkúganir og ofbeldisverk en náðaður ári síðar. 18.7.2004 00:01
Kveikt í skrifstofum á Gasa Liðsmenn Fatah-hreyfingar Jassers Arafats, forseta Palestínu, kveiktu í skrifstofum heimastjórnar Palestínumanna á Gasasvæðinu í dag.Mikil reiði er meðal Palestínumanna vegna þeirra breytinga sem Arafat gerði á öryggissveitum heimastjórnarinnar. Stjórnarkreppa er í landinu og neyðarástand ríkir í Gasaborg. 18.7.2004 00:01
Hefðu átt að vita betur Fyrrum vopnaeftirlitssérfræðingur Bandaríkjanna, David Kay, segir að George W. Bush og Tony Blair hefðu átt að gera sér grein fyrir því áður en þeir hófu stríðið í Írak að upplýsingar um gjöreyðingavopn Íraka hefðu verið byggðar á veikum grunni og að ekkert benti til að Saddam Hussein ógnaði öryggi Vesturlanda. 18.7.2004 00:01
Náttúruhamfarir víða um heim Manntjón hefur orðið í náttúruhamförum víðs vegar um veröldina undanfarna daga. Slökkviliðsmenn hafa barist við skógarelda í Bandaríkjunum, fimmtán hafa látist í flóðum í Japan og að minnsta kosti sex hafa týnt lífi í ofsaveðri í Síberíu. 18.7.2004 00:01
Hart sótt að Arafat Staða Jasser Arafats, leiðtoga Palestínumanna, er erfiðari en hún hefur verið um margra ára skeið. Mikillar óánægju gætir með spillingu sem þykir hafa vaðið uppi innan heimastjórnarinnar auk þess sem hópar Palestínumanna keppast nú um að tryggja sér áhrif í aðdraganda þess að Ísraelar draga sig á brott frá Gazasvæðinu. 18.7.2004 00:01
Krytur við upphaf viðræðna Tveir stærstu stjórnmálaflokkar Ísraels hafa sett sér tveggja vikna tímamörk fyrir því að ná samkomulagi um aðkomu Verkamannaflokksins að ríkisstjórn. Frammámenn í báðum flokkum ítrekuðu þó í gær að mörg ljón væru í veginum fyrir samkomulagi. 18.7.2004 00:01
Jarðskjálfti í Japan Jarðskjálfti upp á 5,5 stig á Richter varð í höfuðborg Japans, Tókýó og nágrenni hennar, í dag. Engar fregnir hafa borist af slösuðu fólki en myndir og málverk skekktust og duttu niður af veggjum. 17.7.2004 00:01
Neyðarástand á Gasa Heimastjórn Palestínumanna hefur lýst yfir neyðarástandi á Gasasvæðinu í kjölfar mannrána og ólgu. Svo alvarlegt er ástandið að jafnvel er búist við að Ahmed Qurea forsætisráðherra segi af sér eða verði þvingaður til þess. 17.7.2004 00:01
6 látnir og tugir sárir Tugir manna liggja sárir og að minnsta kosti sex eru látnir eftir að tvær bílasprengjur sprungu í Bagdad í Írak í morgun. Önnur þeirra sprakk við bílalest dómsmálaráðherra landsins í nágrenni við heimili hans. Ráðherrann slapp ómeiddur en fjórir lífverðir hans létust. 17.7.2004 00:01
Börnin jarðsett í dag Börnin níutíu sem létust þegar eldur braust út í skólabyggingu í suðurhluta Indlands í gær verða jarðsett í dag. Flest þeirra voru yngri en tíu ára. Þrjátíu önnur eru stórslösuð. 17.7.2004 00:01
Forsætisráðherrann segir af sér Ahmed Qurie, forsætisráðherra Palestínumanna, sagði af sér nú fyrir stundu og tilkynnti hann Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, ákvörðun sína. Arafat neitaði hins vegar að taka við afsögninni. Fundur stendur nú yfir á meðal ráðamanna þjóðarinnar. 17.7.2004 00:01
Einn lést og annar særðist Bandarískur hermaður lést og annar særðist í sprengjuárás uppreisnarmanna í Írak í dag. Um var að ræða sprengju í vegarkanti nálægt borginni Baijí í norðurhluta landsins. 17.7.2004 00:01
Streita á meðgöngu afdrifarík Konur sem þjást af streitu um miðbik meðgöngunnar eru líklegri en aðrar konur til að eignast börn sem síðar á lífsleiðinni stríða við hegðunarvandamál. Vísindamenn í Bandaríkjunum tilkynntu þessar niðurstöður rannsóknar sinnar í gær. 17.7.2004 00:01
Sleppa gíslinum á morgun Mannræningjar sem hafa haft egypskan bílstjóra, Mohammed al-Gharabawi að nafni, í haldi sínu í Írak að undanförnu segjast ætla að sleppa honum á morgun að sögn Reuters-fréttastofunnar. 17.7.2004 00:01
37% fylgjandi innrásinni í Írak Einungis 37 prósent Bandaríkjamanna eru þeirrar skoðunar að George Bush, forseti landsins, hafi breytt rétt þegar hann ákvað að ráðast inn í Írak. 51 prósent þjóðarinnar er þeirrar skoðunar að Bandaríkin hefðu ekki átt að ráðast til atlögu. Þetta eru niðurstöður skoðanakönnunar sem dagblaðið <em>The New York Times</em> og sjónvarpsstöðin CBS birtu í dag. 17.7.2004 00:01
350 km langar bílaraðir 350 kílómetra langar raðir bifreiða voru á frönsku hraðbrautunum í dag en þessi helgi er fyrsta stóra ferðahelgi Frakka. Verst er ástandið í suðaustur Frakklandi en þar eru 120 kílómetra langar umferðarteppur. Biðraðirnar mynduðust strax í morgunsárið þegar fólksbíll og rúta lentu saman og leiddi það til 30 kílómetra umferðarteppu. 17.7.2004 00:01
Afsögn forsætisráðherra Palestínu Ahmed Qureia, forsætisráðherra Palestínu, tilkynnti ríkisstjórn sinni í dag að hann hygðist láta af embætti. Hann greindi Jasser Arafat, forseta Palestínu, frá ákvörðun sinni á fundi í morgun en Arafat neitaði að samþykkja hana. 17.7.2004 00:01
50 ára kampavín af hafsbotni Breskir kafarar fundu 20 þúsund flöskur af vel kældu kampavíni sem höfðu legið á botni Ermarsunds í nær hálfa öld. Ekki fæst gefið upp nákvæmlega hvar fjársjóðurinn fannst. 17.7.2004 00:01
Mannfall heldur áfram Tugir manna liggja sárir og að minnsta kosti sex eru látnir eftir að tvær bílsprengjur sprungu í Bagdad í Írak í morgun. Önnur sprakk í námunda við bílalest nýskipaðs dómsmálaráðherra landsins, Maliks Dohans al-Hassans. Ráðherrann slapp ómeiddur en fjórir lífverðir hans létust. 17.7.2004 00:01
Vildu samstarf um árásir Íranskir embættismenn settu sig í samband við al-Kaída eftir árás samtakanna á bandaríska herskipið Cole. Vildu írönsk stjórnvöld eiga samstarf við samtökin um árásir á Bandaríkin í framtíðinni að því er fram kemur á vef bandaríska vikublaðsins Time. 17.7.2004 00:01
Upplausn í heimastjórninni Palestínska heimastjórnin er í upplausn vegna deilna um öryggismál og spillingar. Ahmed Qureia, forsætisráðherra í palestínsku heimastjórninni, sendi Jasser Arafat Palestínuforseta afsagnarbeiðni í gærmorgun en Arafat neitaði að taka hana gilda. Qureia sagði ráðherrum sínum hins vegar að hann ætlaði sér að standa fastur á afsögn sinni. 17.7.2004 00:01