Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja banna hýr hjónabönd Repúblikanar lofa því að ekki einu sinni bakslag í þinginu geti komið í veg fyrir að bann við giftingum samkynhneigðra verði leitt í lög. 14.7.2004 00:01
Raðmorðingi játar aðra glæpi Franski raðmorðinginn Michel Fourniret segist hafa rænt og nauðgað ungri konu í norður Frakklandi árið 1998 til viðbótar við þær níu konur sem hann viðurkennir að hafa ráðið bana. </font /> 14.7.2004 00:01
Blair réðst inn í góðri trú Gögn bresku leyniþjónustunnar sem bentu til þess að Írakar byggju yfir efnavopnum fyrir innrásina í landið voru mjög gölluð og byggðu á óáreiðanlegum heimildum. Tony Blair forsætisráðherra er hins vegar ekki sekur um að hafa viljandi brenglað fyrirliggjandi gögn eða um vítaverða vanrækslu. 14.7.2004 00:01
Myrtu héraðsstjóra Mósúl Írakskir skæruliðar myrtu í dag héraðsstjóra Mósúl, þar sem hann var á leið sinni til Bagdad. Á sama tíma sprakk öflug bílsprengja í Bagdad, með þeim afleiðingum að ellefu létust og tugir særðust. Talið er að þetta hafi verið sjálfsmorðsárás og er hún sú mannskæðasta síðan Írakar tóku við stjórnartaumunum í landinu í lok júní. Hershöfðingjar tengja árásina við handtöku meira en 500 grunaðra hryðjuverkamanna fyrr í vikunni. 14.7.2004 00:01
Blair sleppur með skrekkinn Leiðtogi breska íhaldsflokksins segir Blair rúinn trausti og kröfum um afsögn hans er haldið á lofti. Stjórnmálaskýrendur telja þó að Blair sleppi með skrekkinn.Meðan Butler lávarður las niðurstöður sínar fóru fram hávær mótmæli fyrir utan gegn innrásinni í Írak og því sem mótmælendur kölluðu "hvítþvott" Butlers á ríkisstjórninni. 14.7.2004 00:01
Skaut undan sér Maður á þrítugsaldri var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir vörslu ólöglegrar haglabyssu í Sheffield á Englandi í gær. 14.7.2004 00:01
7 létust í fárviðri Sjö manns fórust og yfir 20 slösuðust í fárviðri sem gekk yfir borgina Shanghæ í Kína í gærkvöld. Veðurofsinn var mjög skyndilegur og fór vindhraði vel yfir 30 metra á sekúndu. Um 200 byggingar í borginni skemmdust. 13.7.2004 00:01
Heimkvaðning sem fyrst Algjör óvissa ríkir nú um hvort filippseyskir friðargæsluliðar í Írak verða kallaðir heim snemma í von um að gísl sem mannræningjar hafa hótað að afhöfða verði þyrmt. Filippseysk stjórnvöld hafa neitað heimkvaðningu en í gær sendi utanríkisráðherra landsins frá sér yfirlýsingu þess efnis að heimkvaðningin kæmi svo skjótt sem auðið væri. 13.7.2004 00:01
Kerry með naumt forskot John Kerry hefur naumt forskot á George Bush í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum, ef marka má skoðanakönnun Gallups fyrir CNN-sjónvarpsstöðina. 13.7.2004 00:01
25 lögreglumenn slösuðust Tuttugu og fimm lögreglumenn slösuðust þegar til átaka kom í einu af hverfum Belfast á Norður-Írlandi í gær þegar mótmælendum og kaþólikkum lenti saman. 13.7.2004 00:01
100.000 embættismenn reknir Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, kynnti í gær stórfelldan niðurskurð í embættismannakerfinu til að fjármagna félagsþjónustu og þjóðaröryggismál. 13.7.2004 00:01
15 milljónir barna munaðarlaus Fimmtán milljónir barna hafa misst foreldra sína vegna alnæmis. Langflest þeirra búa í Afríku en þar hafa tólf milljónir barna misst foreldra vegna þessa vágests. 13.7.2004 00:01
Réttarhöldum frestað Réttarhöldum yfir Mikhaíl Khodorkovsky, aðaleiganda rússneska olíurisans Yukos, var í morgun frestað og hefjast þau að nýju síðdegis á morgun. Verjandi hans fór fram á að Khodorkovsky yrði látinn laus gegn tryggingu af heilsufarsástæðum en dómarar synjuðu því. 13.7.2004 00:01
Evrópudómstólinn ógildir ákvörðun Evrópudómstóllinn hefur ógilt ákvörðun fjármálaráðherra Evrópusambandsins sem frestuðu aðgerðum gegn Þjóðverjum og Frökkum vegna fjárlagahalla en hann var talinn ógna stöðguleika ESB. 13.7.2004 00:01
18 látnir í Tsjetsjeníu Að minnsta kosti átján létust í bardögum öryggissveita Tsjetsjeníu, sem hliðhollar eru yfirvöldum í Moskvu, og tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna suðaustur af Grosní, höfuðborg Tsjetsjeníu, í nótt. 13.7.2004 00:01
Mestu flóð í áratug Meira en tíu milljónir manna í Suður-Asíu hafa orðið fyrir barðinu á mestu rigningum og flóðum í álfunni í áratug. Hundruð hafa látist. 13.7.2004 00:01
ESB stefnir Svíum vegna einokunar Evrópusambandið hefur stefnt sænska ríkinu fyrir að leyfa ekki borgurum sínum að panta áfengi frá útlöndum. 13.7.2004 00:01
Filippseyingar láti ekki undan Stjórnvöld í Bagdad hvetja Filippseyinga til að láta ekki undan hótunum mannræningja í Írak sem segjast nú vera að undirbúa aftöku filippseysks gísls, ef filippseyskir hermenn verði ekki kallaðir heim. 13.7.2004 00:01
Fullorðnir glápa meira en börn Dönsk börn horfa talsvert minna á sjónvarp en fullorðnir samkvæmt nýrri rannsókn. Niðurstöðurnar ganga þannig gegn hinni bjargföstu almennu trú að ungt fólk horfi sífellt meira á sjónvarp. 13.7.2004 00:01
Rannsókn á rafmagnsleysinu Saksóknari á Grikklandi hefur hafið rannsókn á allsherjar rafmagnsleysi sem varð í höfuðborginni Aþenu í gær og á stóru svæði í suðurhluta landsins. Rafmagn fór af í nokkra klukkutíma sem gerði m.a. að verkum að hundruð manna festust í lyftum og lestarsamgöngur stöðvuðust. 13.7.2004 00:01
Trölli stolið Breska lögreglan leitar nú manna sem stálu 1,5 metra hárri útgáfu af græna tröllinu Shrek úr samnefndri teiknimynd. 13.7.2004 00:01
Vegabréf fyrir hunda og ketti Frá og með 1. október þurfa hundar og kettir sem fara á með yfir Eyrarsund að hafa svokölluð dýravegabréf. Dýralæknar hafa gefið út þessi vegabréf frá 3. júlí sl. 13.7.2004 00:01
Unnið að endurskipulagningu Kortagerðarmenn Ísraelshers vinna að því að endurteikna öryggismúrinn sem er í byggingu á vesturbakka Jórdanar. 13.7.2004 00:01
23 mafíósar handteknir Lögreglan á Sikiley hefur handtekið 23 manneskjur sem grunaðar eru um „mafíuglæpi“ eins og það er orðað í erlendum fréttamiðlum. 13.7.2004 00:01
Sex manna fjölskylda fundin Sex manna fjölskylda frá Suður-Wales er komin í leitirnar eftir að hafa verið saknað frá heimili sínu í Cardiff í tvær vikur. Sky fréttastofan greinir frá því að fjölskyldufaðirinn, sem er 57 ára, hafi gengið inná lögreglustöð í suðurhluta Englands eftir að hafa séð auglýst eftir fjölskyldu sinni í dagblaði. 13.7.2004 00:01
Óæskileg áhrif Berlusconis hindruð Ítalska þingið samþykkti í dag umdeilt frumvarp sem er ætlað að girða fyrir óæskileg áhrif forsætisráðherrans, Silvio Berlusconis, sem á einnig um helming í fjölmiðlum landsins. 13.7.2004 00:01
Óttast rafmagnsleysi Óttast er að rafmagnsleysi geti valdið usla á ólympíuleikunum í Aþenu í næsta mánuði verði áfram eins heitt í veðri og verið hefur. 13.7.2004 00:01
NATO kannar aðkomu að Írak Jaap De Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, ætlar að kynna leiðtogum aðildarríkjanna nýjar tillögur í mánuðinum, um hvernig bandalagið geti komið frekar að málum í Írak. Í síðasta mánuði samþykktu aðildarríki NATO að taka að sér herþjálfun Íraka. Scheffer vonast til að geta kynnt tillögur sínar í ágústbyrjun. 13.7.2004 00:01
Amnesty gagnrýnir Grikki Mannréttindasamtölin Amnesty International gagnrýnir öryggisgæslu grískra stjórnvalda fyrir ólympíuleikana í ágúst. Samtökin segja að hætta sé á að viðbúnaðurinn skerði félagsleg réttindi ýmissa minnihlutahópa á borð við sígauna, sem séu berskjaldaðir fyrir aðgerðum stjórnvalda. 13.7.2004 00:01
Tígrisdýr laust í Flórída Tvö hundruð og sjötíu kílóa tígrisdýr gengur enn laust í Flórída, annan daginn í röð. Tígurinn slapp úr búri eiganda síns, leikarans Steve Sipek, sem eitt sinn lék Tarzan. Lögregla hefur sett upp girðingu í kringum leitarsvæðið og leitar dýrsins ákaft. 13.7.2004 00:01
Dregin út úr Niagarafossum Ung kona var bókstaflega dregin út úr Niagarafossum um helgina. Ekki er vitað hvernig konan lenti í fossunum en hún náði að hanga í kletti við fossana. 13.7.2004 00:01
10 ára börn í herþjálfunarbúðum Tíu ára palestínskum börnum er kennt að drepa og sprengja í sérstökum herþjálfunarbúðum á Gasasvæðinu. Myndir frá þessum illræmdu búðum komu í fyrsta sinn fyrir almenningssjónir í dag á sjónvarpsstöðinni Sky. 13.7.2004 00:01
Leyfa eftirlíkingar alnæmislyfja Jacques Chirac, forseti Frakklands, kallar það jafngildi fjárkúgunar að Bandaríkjamenn skuli þrýsta á fátækar þjóðir að gefa eftir rétt sinn til að framleiða ódýrar eftirlíkingar af alnæmislyfjum í skiptum fyrir tilslakanir í viðskiptum. 13.7.2004 00:01
Peres og Sharon vinna saman Shimon Peres, einn leiðtoga Verkamannaflokks Ísraels, hefur fallist á að vinna með Ariel Sharon forsætisráðherra að brotthvarfi frá Gasa-svæðinu. Stjórnmálaleiðtogarnir ræddu einnig hugsanlega myndun þjóðstjórnar. 12.7.2004 00:01
Óvissa um örlög gíslsins Óvissa ríkir um örlög filipseysk gísls sem mannræningjar í Írak hafa hótað að drepa. Mannræningjarnir vilja að Filipseyingar kalli hermenn sína til baka þegar í stað en yfirvöld hafa hafnað því og segja þá koma heim að loknum verkefnum sínum í ágúst. 12.7.2004 00:01
Fjölgun erlendra lækna í Danmörku Fjöldi erlendra lækna sem starfa í Danmörku hefur þrefaldast á síðustu árum. Vegna mikils skorts á heilbrigðisstarfsfólki í landinu ráðgera stjórnvöld nú að flytja inn starfsfólk frá Austur- Evrópu. 12.7.2004 00:01
Nikkei hækkar vegna kosninga Japanska hlutabréfavísitalan, Nikkei, hækkar í dag um 1,39 prósent, eftir að ljóst varð að samsteypustjórn Koizumis forsætisráðherra héldi meirihluta í efri deild japanska þingsins. Endanleg úrslit í kosningunum hafa ekki verið birt en samkvæmt spám tapar flokkur Koizumis fylgi og hlýtur 49 af 121 þingsæti í efri deildinni. 12.7.2004 00:01
Stálmúr í kringum þinghúsið Breska innanríkisleyniþjónustan, MI 5, vill að róttækar breytingar verði gerðar á fyrirkomulagi öryggismála í og við breska þingið til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Meðal þess sem sérfræðingar MI 5 eru sagðir ætla að leggja til er stálmúr í kringum Westminster sem er þinghús þeirra Breta. 12.7.2004 00:01
Möguleg frestun kosninga Bandarísk stjórnvöld hafa undirbúið neyðaráætlun til að fresta fyrirhuguðum forsetakosningum í nóvember ef hryðjuverk verða framin í Bandaríkjunum skömmu fyrir kjördag. Þetta kemur fram í vikuritinu Newsweek í dag. 12.7.2004 00:01
Friðargæsluliðar særðust í Kósóvó Fjórir finnskir friðargæsluliðar særðust lítillega í árás byssumanna í Kósóvó um helgina. Friðargæsluliðarnir voru í eftirlitsferð skammt frá þorpinu Terbovc þegar skotið var á þá. Sex Albanir voru yfirheyrðir vegna málsins en þeim hefur verið sleppt. 12.7.2004 00:01
Rafgmagnslaust í Aþenu Rafmagn virðist vera farið af stærstum hluta Aþenu, höfuðborgar Grikklands. Starfsmaður rafmagnsveitunnar þar í borg segir fólk hafa verið að hringja hvaðanæva frá í borginni til að tilkynna ragmagnsleysi en ekki er vitað hvað veldur. 12.7.2004 00:01
Blóðugasti dagurinn til þessa Gærdagurinn var sá blóðugasti það sem af er San Fermin hátíðinni í Pamplona þetta árið. Átta einstaklingar fengu að kenna á hornum nautanna sem þeir reyndu að hlaupa á undan og í það minnsta tíu til viðbótar meiddust með einum eða öðrum hætti. 12.7.2004 00:01
Frakkar og Írakar taka upp þráðinn Frakkar hafa tekið upp stjórnmálasamband við Íraka að nýju en því var slitið eftir innrás Íraka í Kúveit árið 1990. Í yfirlýsingu frá franska utanríkisráðuneytinu nú fyrir stundu segir að stefnt sé að því að stjórnmálasamskiptin muni koma báðum ríkjum til góða. 12.7.2004 00:01
Óttast nýtt vígbúnaðarkapphlaup Pakistönsk stjórnvöld hafa áhyggjur af auknum útgjöldum Indverja til varnarmála og óttast að nýtt vígbúnaðarkapphlaup kunni að hefjast á milli þessara nágrannaríkja sem hafa átt í stöðugum deilum um áratugaskeið. 12.7.2004 00:01
Klerkar óttast hörð áfengislög Króatískir klerkar óttast að ný lög gegn ölvunarakstri eigi eftir að koma í bakið á þeim. Stjórnvöld hafa brugðist við fjölgun banaslysa í umferðinni með því að setja lög sem kveða á um að ekkert áfengi megi finnast í blóði ökumanna. Klerkarnir óttast að þetta komi sér illa fyrir þá vegna þess að hluti af messuhaldi sé að drekka messuvín. 12.7.2004 00:01