Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þyrlan sótti veika konu Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út nú fyrir hádegið til að sækja konu sem veiktist alvarlega í Hvannagilshnausum, sunnan við Álftavatn. Von var á því að þyrlan myndi lenda á spítala í Reykjavík um hádegisbil. Ekki er vitað með vissu hvers eðlis veikindi konunnar eru. 4.9.2011 12:02
Miklir vatnavextir í Múlakvísl Rafmagnsmastur sem staðsett var í varnargarðinum við Múlakvísl féll í gærkvöldi en miklir vatnavextir hafa verið í ánni að undanförnu. Örlygur Jónasson starfsmaður hjá Rarik segist hafa fengið fréttir frá Vegagerðinni í gærmorgun um að varnargarðurinn gæti gefið sig og lét þá aftengja rafmagnslínuna, en um svokallaða tengilínu er að ræða sem flytur rafmagn á milli Víkur og Klausturs. Engin truflun varð þó á sambandi enda er um nokkurksonar varalínu að ræða. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni stafa vatnavextirnir fyrst og fremst vegna mikilla rigninga síðustu daga sem og bráðnun jökla en farið er að sjatna í ánni nú. 4.9.2011 11:46
Búið að slökkva eldinn í Arnarsmára Búið er að slökkva eldinn sem kom upp í íbúð í Arnarsmára í Kópavogi nú í morgun. Enginn var í búðinni þegar eldurinn kom upp, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hve miklar skemmdir urðu á íbúðinni. 4.9.2011 11:12
Eldur í Arnarsmára Eldur kom upp í íbúð í Arnarsmára í Kópavogi nú í morgun. Enginn er í íbúðinni, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu. Við segjum nánar frá þessu síðar í dag þegar meiri upplýsingar hafa borist. 4.9.2011 10:44
Þúsundir manna á Ljósanótt Talið er að allt að 60 þúsund manns hafi verið á Ljósanótt í Reykjanesbæ í gær, laugardag. Hátíðin náði hámarki með stórglæsilegri flugeldasýningu sem björgunarsveitamenn sáu um. Hátíðin fór að mestu leyti vel fram en þó handleggsbrotnaði níu ára gömul stúlka í gær þegar hún festi hendina í leiktæki í tívolíinu og var hún flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús. Lögreglan segir að fjöldi fólks hafi skemmt sér frameftir nóttu og næturlífið hafi farið vel fram. 4.9.2011 10:12
Jörð skelfur víða Jörðin skelfur víðar en í Kötlu. Nokkrir skjálftar hafa mælst á Reykjanesi í kvöld. Líkt og í Kötlu eru skjálftarnir undir þremur á Richter. Jón Frímann Jónsson, sem fylgist með jarðhræringum, sagði á vefsíðu sinni í dag að Katla væri byrjuð að bólgna út, sem venjulega þýðir að kvika streymi inn í eldstöðina. Þó er ekki fullvíst hvað er á seyði og jarðskjálftafræðingar á Veðurstofunni eru rólegir yfir stöðu mála. 3.9.2011 21:18
Lottóvinningurinn gekk ekki út Það var enginn með allar réttar l lottóinu í kvöld. Fyrsti vinningur sem var rúmar fimm milljónir gekk því ekki út. Tölurnar voru 10 15 16 20 39 og bónustalan var 36. Það var heldur enginn með allar fimm Jókertölurnar réttar í réttri röð. Tölurnar voru 5 5 5 5 5. Einn var með fjórar réttar Jókertölur í réttri röð. Hann fær 200 þúsund krónur í sinn hlut. 3.9.2011 19:44
Alvarlegt slys á Ljósanótt Alvarlegt slys varð í leiktæki á hátíðarsvæði á Ljósanótt í dag. Níu ára gömul telpa hlaut opið beinbrot og ljótan áverka þegar hún festi handlegg í tívolítæki. Hún var flutt með sjúkrabíl til Reykjavíkur í aðgerð, eftir því sem fram kemur á vef Víkurfrétta. Þar segir jafnframt að leiktækið hafi verið tekið úr umferð um tíma en síðan aftur tekið í notkun eftir að breytingar höfðu verið gerðar á því. Engar upplýsingar var að hafa um málið þegar Vísir leitað þeirra hjá lögreglu. 3.9.2011 19:34
Skjálftahrina í Kötlu Svo virðist sem jarðskjálftahrina hafi hafist í Kötlu í dag. Hingað til eru stærstu skjálftarnir innan við 3 á Richter á 1,1 kílómetra dýpi. Jón Frímann Jónsson, sem fylgist mikið með jarðhræringum á Íslandi, segir hins vegar að gæði skjálftanna séu góð. Flestir skjálftar eiga upptök sín í Hábungu. Jarðskjálfti var einnig í Kötlu í gær og var hann yfir þrír. 3.9.2011 19:25
Lítil nýliðun meðal augnlækna áhyggjuefni Formaður Augnlæknafélags Íslands segir fækkun augnlækna hér á landi geta valdið því að sérþekking á ákveðnum sviðum hverfur. Það getur tekið allt að tíu ár að þjálfa nýja sérfræðinga í augnlækningum. 3.9.2011 18:26
Þúsundir skelltu sér á Hamraborgarhátíð Þúsundir Kópavogsbúa nutu veðurblíðunnar á Hamraborgarhátíð í Kópavogi í dag. Hamraborginni var breytt í göngugötu, sölutjöldum var slegið upp og um 120 manns seldu gamalt dót og nýtt beint úr skottinu á bílnum sínum. 3.9.2011 17:54
Starfsmenn fagna fimmtíu ára afmæli Lyngáss Fjöldi núverandi og fyrrverandi starfsmanna dagheimilisins Lyngáss ætlar að koma saman á laugardag eftir viku til þess að fagna því að þá eru 50 ár liðin síðan dagheimilið var fyrst opnað. Halla Jónsdóttir þroskaþjálfi segir þarna vera kominn kjörinn vettvang fyrir alla þá sem hafa starfað á dagheimilinu þennan tíma geti hist og rifjað upp gamla tíma. 3.9.2011 16:53
Kristján Valur nýr vígslubiskup Séra Kristján Valur Ingólfsson hefur verið kjörinn vígslubiskup í Skálholti. Kjörfundi lauk þann 26. ágúst síðastliðinn og atkvæði voru talin í dag. Á kjörskrá voru 149 manns og greidd voru 142 atkvæði. Séra Kristján Valur fékk 80 atkvæði en séra Sigrún Óskarsdóttir fékk 61 atkvæði. Einn seðill var auður. 3.9.2011 16:16
Lifrarbólgusmitaður læknir fær bætur Skurðlæknir á Landspítalanum sem varð fyrir slysi og smitaðist af lifrarbólgu C við vinnu sína fær bætur vegna slyssins, samvkæmt niðurstöðu Úrskurðarnefndar almannatrygginga frá því í síðustu viku. Með úrskurðinum var snúið við synjun Sjúkratrygginga ÍSlands sem áður hafði hafnað bótakröfu úr slysatryggingum almannatrygginga. 3.9.2011 15:09
Þörf á unglingafangelsi Ný stofnun þar sem hægt væri að vista fanga undir átján ára aldri er nauðsynleg til þess að hægt sé að lögfesta Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Slík stofnun er meðal þeirra úrræða sem Barnaverndarstofa bendir á að greinagerð til velferðarráðuneytisins um úrbætur í barnaverndarmálum. Greinargerðinni var dreift á Alþingi í gær. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir að tvær tillögur felist í greinagerðinni. Sú fyrri miði að því að hægt verði að lögfesta Barnasáttmálann. 3.9.2011 13:43
Læknum fækkaði um 10% Læknum á íslenskum heilbrigðisstofnunum hefur fækkað um meira en 10 prósent síðan þeir voru hvað flestir árið 2008 og þar til nú. 3.9.2011 12:12
HIV-faraldur hjá sprautufíklum Aldrei hafa sprautufíklar verið jafnstór hluti þeirra sem greinast með HIV og nú. Það sem af er ári hafa sautján greinst með veiruna, þar af eru þrettán sprautufíklar. Á síðasta ári greindust 24 með HIV-smit, fleiri en nokkru sinni, þar af voru tíu sprautufíklar. 3.9.2011 09:00
Tveir handteknir vegna fíkniefnasölu á Akureyri Tveir karlmenn voru handteknir við húsleit á Akureyri í gærkvöld. Húsleitin var gerð vegna gruns um að þar færi fram fíkniefnasala. Sá grunur reyndist réttur því þar fundust 50 grömm af amfetamíni, e-töflur, sterar og kannabisefni. Þá fannst jafnframt ein og hálf milljón króna í reiðufé sem ætla má að hafi verið fengin með sölu fíkniefna. Karlmennirnir tveir voru handteknir en sleppt aftur að lokinni yfirheyrslu. Lögreglan rannsakar málið áfram. 3.9.2011 08:59
Nýtt athvarf fyrir fólk á leið úr vændi Stígamót opnuðu nýtt athvarf fyrir konur sem eru að stíga út úr vændi og mansali í gær. Athvarfið er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Fjöldi sjálfboðaliða mun vinna á staðnum, en heimilisfangið verður ekki gefið upp til að vernda þá sem þangað sækja. 3.9.2011 08:30
Elstu teikningarnar frá 1944 Sýning með teikningum eftir Erró opnar í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi í dag. Um 200 teikningar eru á sýningunni sem er skipulögð í náinni samvinnu við Erró og byggð á verkum sem koma úr einkasafni listamannsins og safneign Listasafns Reykjavíkur. 3.9.2011 08:15
Þráinn stöðvaði stjórnkerfisbreytingar Til stóð að allsherjarnefnd afgreiddi frumvarp um stjórnkerfisbreytingar í gær en til þess kom þó ekki. Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri grænna, greiddi atkvæði gegn frumvarpinu og þar með var ekki meirihluti fyrir því. 3.9.2011 08:00
Opinber útgjöld nær helmingur landsframleiðslu Opinber útgjöld, að frádregnum ellilífeyrisgreiðslum almannatrygginga, eru hlutfallslega hæst á Íslandi meðal Evrópuríkja. Þetta kemur fram í tölum sem Samtök atvinnulífsins (SA) hafa birt. 3.9.2011 07:30
Rafbækur og nettónlist í lægra þrep Efnahags- og skattanefnd afgreiddi í gær frumvarp um að lækka virðisaukaskatt á rafbækur og tónlist á netinu. Þessir vöruflokkar eru nú í hærra skattþrepi og bera 25,5 prósenta skatt, en munu bera 7 prósenta skatt verði breytingin að veruleika. 3.9.2011 06:30
Fagnar áhuga Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fagnar áhuga kínverska auðjöfursins Huangs Nubo á fjárfestingum hérlendis. Þetta kemur fram í viðtali breska dagblaðsins Financial Times við forsetann. 3.9.2011 06:15
Allt á uppleið eða í kaldakoli Ætla mætti að stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar lifi ekki í sama samfélaginu, ef marka má umræður á Alþingi. Þing kom saman að nýju í gær og til umræðu var munnleg skýrsla forsætisráðherra um stöðuna í efnahags- og atvinnumálum. Stjórnarliðar gerðu mikið úr þeim árangri sem náðst hefði í efnahagsmálum og vitnuðu til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og erlendra, jafnt sem innlendra, álitsgjafa máli sínu til stuðnings. 3.9.2011 05:45
Reglum um erfðabreyttan mat frestað Neytendamál Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur frestað til áramóta gildistöku reglugerðar um merkingu og rekjanleika erfðabreyttra matvæla, sem átti að taka gildi síðastliðinn miðvikudag. Neytendasamtökin mótmæla frestuninni harðlega en lögfræðingur í ráðuneytinu segir innflytjendur hafa beðið um frestinn. Sá hluti reglugerðarinnar sem veit að merkingum dýrafóðurs úr erfðabreyttum hráefnum hefur þegar tekið gildi. 3.9.2011 05:30
Hefur ekki lagt fram formlegt tilboð Byggingarreiturinn sunnan við tónlistarhúsið Hörpu var boðinn út í júlí síðastliðnum. Eignarhaldsfélaginu Sítus, dótturfélagi Austurhafnar ehf., bárust sex formleg tilboð frá aðilum sem lýstu yfir áhuga á að reisa þar hótel. Samkvæmt upplýsingum frá Sítusi var Nubo ekki einn þeirra. Þeir sem gerðu tilboð í reitinn koma meðal annars frá Indlandi, Sviss og Íslandi. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hver þessara sex aðila, ef einhver, fái reitnum úthlutað en verið er að fara yfir málið. 3.9.2011 05:15
Segir Samkeppniseftirlitið leggja Forlagið í einelti Jóhann Páll Valdimarsson, útgefandi hjá Forlaginu, segir Samkeppniseftirlitið hafa lagt fyrirtækið í einelti síðustu ár. Þrátt fyrir blómlega samkeppni í útgáfu láti eftirlitið fyrirtækið ekki í friði. 3.9.2011 04:30
Segja Jóhönnu fara rangt með Samtök atvinnulífsins (SA) segja að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafi farið með rangt mál á Alþingi í gær þegar hún fullyrti að hlutur launa í landsframleiðslu hefði aldrei verið lægri en nú, eða 59 prósent samanborið við yfir 72 prósent árið 2007. 3.9.2011 04:30
Huang Nubo vill reisa lúxus-hótel við hliðina á Hörpu Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo vill reisa 300 herbergja lúxushótel í Reykjavík. Nubo vill hefja framkvæmdir við uppbyggingu ferðamannaþjónustu á Grímsstöðum á Fjöllum sem fyrst, en hann bíður nú eftir undanþágu frá innanríkisráðuneytinu fyrir kaupum á lóðinni. Þetta segir Halldór Jóhannsson, aðstoðarmaður Nubo á Íslandi. 3.9.2011 04:15
ÍLS braut ekki jafnréttislög Íbúðalánasjóður braut ekki jafnréttislög þegar hann réð Sigurð Erlingsson sem framkvæmdastjóra sjóðsins haustið 2010. Þetta er niðurstaða kærunefndar jafnréttismála. 3.9.2011 04:15
Sendi 100 dali í þakkarskyni Bandarískur ferðamaður sem björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ bjargaði úr sjálfheldu snemma í ágúst sendi sveitinni þakkarbréf frá Bandaríkjun-um, og lét fylgja með ávísun að andvirði 100 Bandaríkjadala, sem jafngildir um 11.500 krónum. 3.9.2011 03:30
Borgina vantar 43 starfsmenn Reykjavíkurborg vantar enn 43 starfsmenn til að manna stöður á frístundaheimilum. Fjöldi barna á biðlista eftir plássi er nú um 350. Í síðustu viku vantaði 86 starfsmenn og um 650 börn voru á biðlista. Eva Einarsdóttir, formaður íþrótta- og tómstundaráðs, vonast til þess að búið verði að ráða í allar stöður á næstu tveim til þrem vikum. „Það endaði að minnsta kosti þannig í fyrra. Þetta small saman að lokum,“ segir Eva.- sv 3.9.2011 02:45
Slasaðist illa og hjólið brotnaði í tvennt Þegar Guðbjörg Halldórsdóttir fór í hjólreiðatúr í Fossvogsdalnum á góðviðrisdegi í júlíbyrjun átti hún ekki von á því að hún yrði meira og minna frá vinnu næstu tvo mánuðina. 3.9.2011 02:30
Meintur nauðgari neitaði sök Ákæra hefur verið gefin út á hendur manni sem situr í varðhaldi, grunaður um nauðgun á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Ákæran var þingfest fyrir Héraðsdómi Suðurlands á fimmtudag og neitaði maðurinn sök. 3.9.2011 02:15
Arineldur veldur uppþoti í Asparfelli Eldsvoðinn í Asparfelli reyndist ekki vera annað en bjarmi af arineldi sem speglaðist í rúðum einnar íbúðar í húsinu. 5 bílar frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru sendir á staðinn. Þegar þeir komu á vettvang var ekki um neinn eldsvoða að ræða. 2.9.2011 23:53
Eldsvoði í Asparfelli Hringt var vegna eldsvoða í Asparfelli í Breiðholti nú rétt í þessu. Þrír dælubílar og tveir körfubílar frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru samstundis sendir á staðinn. Ekki er enn vitað hve alvarlegur eldsvoðinn er og slökkviliðið vill ekki tjá sig frekar um málið í bili. 2.9.2011 23:27
Enn vatnslaust eftir Grímsvatnagos Bærinn Múlakot á Kirkjubæjarklaustri hefur verið vatnslaus síðan Grímsvötn gusu í vor á þessu ári. Sigurður Baldursson, íbúi á Múlakoti, segir hvern einasta dag hefjast á því að hann keyri yfir á næsta bæ með 1000 lítra vatnsker að sækja vatn ofan í fólkið og skepnurnar. „Og svo erum við bara að andskotast í þessu allan daginn og langt fram á kvöld,“ segir Sigurður. 2.9.2011 20:07
Erró opnar sýningu á morgun Íslenski málarinn Erró heldur í fyrsta skipti sýningu á teikningum sínum hér á landi allt frá því hann var tólf ára til dagsins í dag. Hann segir þær alla tíð hafa verið mikið feimnismál og hann hafi langt í frá verið talinn besti teiknarinn þegar hann var að læra. Hann verður áttræður á næsta ári og segist ekki taka það í mál að setjast í helgan stein. 2.9.2011 22:30
Árangur skógræktar kemur í ljós Árangur skógræktarátaks, sem hófst fyrir tuttugu árum, er nú að koma í ljós og landið mun klæðast miklum skógi á næstu árum og áratugum, segir formaður Skógræktarfélags Íslands. Helsta áhyggjuefni skógræktarmanna er þó sauðkindin, enn sem fyrr. 2.9.2011 21:30
Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltu Bíll valt í Ártúnsbrekkunni uppúr klukkan sjö í dag. Tveir farþegar voru í bílnum og voru þeir báðir fluttir á slysavarðstofu. Hvorugur reyndist alvarlega slasaður. 2.9.2011 21:15
Mannekla á frístundaheimilum Rúmlega þrjú hundruð og fimmtíu reykvísk börn hafa enn ekki fengið pláss á frístundaheimilum, en ellefu dagar eru síðan skólahald hófst. Allt kapp lagt á að manna stöður svo börnin komist að segir formaður íþrótta og tómstundaráðs. 2.9.2011 21:00
Þingfundir hefjast undir mótmælum Mótmælendur ráku hátt í 200 svarta krossa í túnið á Austurvelli þegar þingfundir hófust að nýju í morgun. Innan dyra Alþingis körpuðu þingmenn um árangur ríkisstjórnarinnar í baráttunni við efnahagsvandann. 2.9.2011 20:30
Perlan auglýst til sölu á morgun Perlan í Öskjuhlíð verður auglýst til sölu í dagblöðum á morgun. Perlan er ein þeirra eigna sem stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti að selja í janúar síðastliðnum. Fasteignasalan Miklaborg sér um söluferlið. 2.9.2011 20:20
Ætlaði aldrei að verða lífstíðar þingmaður Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður Samfylkingarinnar hefur sagt af sér þingstörfum og ætlar að hefja nám í Háskóla Íslands í haust. Tilkynningin kom þingmönnum í opna skjöldu í dag. 2.9.2011 20:00