Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Togarajaxlar fagna á Akureyri Hátíð togarajaxla og maka þeirra verður haldin á Akureyri fimmtánda og sextánda júlí næstkomandi. Þar munu aldnar sem ungar hetjur hafsins hittast yfir mat og drykk í Sjallanum föstudaginn 15. júlí og hefst borðhaldið kl. 19.00. 6.7.2011 11:14
Gæti gosið á morgun eða eftir tuttugu ár "Hún er búin að vera tilbúin að gjósa síðustu þrjú eða fjögur ár,“ segir Gunnar B. Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands. 6.7.2011 10:58
Hekla virðist vera að bæra á sér Ríkislögreglustjóri hefur gert Almannavarnanefndum á Suðurlandi viðvart um óvenjulegar hreyfingar í Heklu, sem gætu bent til kvikusöfnunar í fjallinu. Ekki er þó beinlínis varað við eldgosi, en mælingar sýna að fjallið hefur verið að bólgna síðan þar gaus síðast, fyrir ellefu árum. 6.7.2011 10:30
Haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæslu Liðlega sextugum íslenskum karlmanni er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hann lenti í þriggja bíla árekstri í Víðidal í fyrradag. 6.7.2011 10:17
Össur standi fyrir máli sínu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir fundi í utanríkismálanefnd Alþingis eins fljótt og auðið er. 6.7.2011 09:15
Tekinn á 159 kílómetra hraða á Reykjanesbraut Ökumaður var stöðvaður á Reykjanesbraut, skammt frá Grindavíkurafleggjara seint í gærkvöldi, eftir að bíll hans hafði mælst á 159 kílómetra hraða. Ökumenn á brautinni létu lögregluna í Keflavík vita af ofsaakstri mannsins, og því náðist hann. Hann verður sviftur ökuleyfi í tvo mánuði, sektaður um 140 þúsund krónur og fær auk þess punkta í ökuferilskránna. 6.7.2011 09:01
Lyktin kom upp um kannabisræktun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti töluverða kannabisræktun í einbýlishúsi í austurborginni í gærkvöldi og handtók ræktandann. Lögreglu barst ábending um einkennilega lykt frá húsinu og við rannsókn fundust 80 kannabisplöntur í kjallara þess auk tveggja kílóa af tilbúnu kannabis. 6.7.2011 08:52
Fær kennslustund hjá snillingi Þrettán ára fiðlunema, Ágústu Dómhildi Karlsdóttur, hlotnaðist í gær óvæntur heiður þegar einn allra virtasti fiðluleikari veraldar bauð henni ókeypis kennslustund. 6.7.2011 07:45
Hálendisvegir loksins að opnast Hálendisleiðirnar eru nú að opnast ein af annarri, hátt í mánuði síðar en verið hefur undanfarin ár. Þó eru báðar Fjallabaksleiðirnar enn lokaðar og sömuleiðis vegurinn yfir Sprengisand. Vegagerðin er víða að ditta að þeim vegum, sem búið er að opna og hún ráðleggur vegfarendum að vera aðeins á fjórhjóladrifnum bílum á hálendisvegunum. 6.7.2011 07:15
Sandfangari byggir nýtt land Bygging sandfangara, sem er 276 metra langur brimvarnargarður, við Vík í Mýrdal gengur að óskum. Garðurinn gengur hornrétt út frá fjörunni neðan við kauptúnið og hlutverk hans er að fanga sand og hamla þannig landbroti í Víkurfjöru. Þegar hefur verið lokið við 170 metra af garðinum. 6.7.2011 07:15
Lögreglan tók níutíu byssur af skotglöðum byssusafnara Lögreglan á Selfossi lagði hald á um níutíu byssur og gríðarlegt magn skotfæra á heimili Páls Reynissonar, forstöðumanns og eiganda Veiðisafnsins á Stokkseyri, eftir að tilkynnt var um skothvelli frá húsinu aðfaranótt sunnudags. Maðurinn hélt á tveimur skammbyssum og stóð fyrir skothríð þegar lögreglu bar að garði. 6.7.2011 07:00
Borguðu klippingu næsta manns á eftir Posinn á hársnyrtistofu Torfa Geirmundssonar, rakara við Hlemm, hefur ítrekað tekið rangar upphæðir af kortum viðskiptavina stofunnar á síðustu dögum. Fyrri viðskiptavinur borgar fyrir þann sem á eftir kemur. 6.7.2011 07:00
Sjálfboðaliðar fegra borgina Fulltrúar frá sjálfboðaliðasamtökunum SEEDS, eða SEE beyonD borderS, vinna þessa dagana að því að fegra ásýnd miðborgarinnar. Borgin hvetur húseigendur til að taka þátt í átakinu 6.7.2011 06:45
Undir stöðugu eftirliti lögreglu Móðir kornabarns sem fannst látið í gámi í Reykjavík á laugardag er undir stöðugu eftirliti lögreglu þar sem hún liggur á Landspítalanum. Hún hefur enda verið úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald og til að sæta geðrannsókn. 6.7.2011 06:45
Hertar reglur um netaveiði í sjó Settar hafa verið nýjar reglur um veiðar á göngusilungi í sjó, samkvæmt tilkynningu frá Fiskistofu. Er þeim ætlað að vernda sjóbleikju- og laxastofna á nokkrum svæðum við landið. 6.7.2011 06:15
Sílastofninn virðist ekki ná sér á strik Fyrstu vísbendingar úr rannsóknarleiðangri á Breiðafirði benda ekki til þess að sílastofninn sé að ná sér á strik. Þetta segir Valur Bogason líffræðingur og einn leiðangursmanna. Hríðminnkandi sílastofn kemur illa niður á varpi sjófugla við sunnan- og vestanvert landið, til dæmis er fuglalíf í Flatey með daufasta móti að sögn íbúa þar. 6.7.2011 06:00
Mótmæla læknisleysi harðlega Hreppsnefnd Vopnafjarðar hefur mótmælt því við við velferðarráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Austurlands að Vopnafjörður verði án grunnlæknisþjónustu eins og var um þriggja daga skeið í síðasta mánuði. 6.7.2011 05:45
Afsala sér veiðirétti í Elliðaánum Borgaryfirvöld hafa ákveðið að þeir veiðidagar í Elliðaánum sem borgin hefur til ráðstöfunar verði nýttir af borgarbúum en ekki borgarfulltrúum og starfsmönnum Orkuveitu Reykjavíkur eins og löngum hefur verið. 6.7.2011 05:30
Ögmundur segir sjálfsagt að ræða EFTA-dómstólinn „Auðvitað er það þannig að íslenskir dómstólar og EFTA-dómstóllinn fara með ólík hlutverk,“ segir Skúli Magnússon, dómritari EFTA-dómstólsins. „Íslenskir dómstólar dæma um íslensk lög en EFTA-dómstóllinn fer ásamt Evrópudómstólnum með endanlegt úrskurðarvald um túlkun EES-samningsins. Svo lengi sem Íslendingar vilja vera aðilar að EES-samningnum verða þeir að sætta sig við að íslenskir dómstólar fara ekki með endanlegt úrskurðarvald um efni þessara reglna. Það liggur einfaldlega í eðli alþjóðlegra samninga.“ 6.7.2011 05:30
Svona mál eiga ekki að fyrnast Séra Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Ölfusi, greindi frá kynferðisbrotum gegn konu sem lést nýverið. Baldur sagði frá brotunum í líkræðu konunnar. 6.7.2011 05:30
Framkvæmdir í Laxárstöðvum Landsvirkjun vinnur nú í sumar að fjölmörgum viðhaldsverkefnum í Laxárstöðvum. Þess vegna verður ekki mögulegt að taka á móti gestum í Laxárstöðvar í sumar eins og fyrri ár. 6.7.2011 04:30
Hafa leitað til innlendra og erlendra aðila „Við erum í þeirri stöðu að vera með bakið upp við vegg. Það eru ofboðslega þung skref fyrir Vestmannaeyjar að taka aftur upp siglingar í Þorlákshöfn eingöngu,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Yfirvöld í bænum hafa nú leitað til einkaaðila, innanlands og utan, til að kanna áhuga á því að sigla í Landeyjahöfn. 6.7.2011 04:00
Góð áhrif íslenskra jurta Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir, nálastungu- og grasalæknir, hefur yfirfært kínverskar lækningar á íslenskar jurtir. Í endurútgefinni bók hennar, Íslenskar lækningajurtir, er að finna þann fróðleik. 5.7.2011 22:30
Hlaupa hringinn í kringum landið í þágu friðar og kærleika Tuttugu hlauparar, frá þrettán þjóðlöndum, munu næstu tvær vikur hlaupa í þágu friðar og kærleika hringinn í kringum Ísland. "Friður byrjar í hjarta hvers og eins“, segir skipuleggjandi Friðarhlaupsins 2011. 5.7.2011 19:51
Breyta JL húsinu í listaverk Málarar vinna nú hörðum höndum að því að breyta JL húsinu í listaverk. Heiðurinn að hinu nýja útliti þessa sögufræga húss á kennari við Myndlistarskóla Reykjavíkur. 5.7.2011 19:39
Pólitísk réttarhöld Í grein eftir Guðna Th. Jóhannesson sagnfræðing, sem birtist í Fréttablaðinu í dag fjallar hann um réttarhöldin yfir Geir H. Haarde og þá tilhneygingu manna að vilja að endurskrifa söguna. 5.7.2011 19:24
Hefur ekki áhyggjur af niðurskurði vegna jafnréttismála Formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur hefur ekki áhyggjur af því að skorið verði á fjárveitingar til íþróttafélaga sem sinna ekki jafnréttismálum. Hann hvetur til þess að jafnréttismál verði skoðuð í fleiri tómstundagreinum sem eru á framfæri borgarinnar. 5.7.2011 19:10
Börn segja frá kynferðisbrotum Þónokkrum málum hefur verið vísað til barnaverndarnefnda eftir að sex ára börn komu fram og sögðu frá kynferðislegri misnotkun í kjölfar fræðslu skólahjúkrunarfræðinga. Þrjú mál komu upp hjá einum skólahjúkrunarfræðingi sem hitti fimmtíu börn. 5.7.2011 19:00
Afhjúpar varnarnet stjórnmála- og bankamanna Þröstur Olaf Sigurjónsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, beitti nýstárlegri aðferð til að afhjúpa varnarnet stjórnmála- og bankamanna vegna gagnrýni á bankakerfið í aðdraganda hrunsins. Hann segir að sama tækni geti nýst til að afhjúpa einhliða umræðu nú. 5.7.2011 18:57
6500 hafa sagt sig úr Þjóðkirkjunni frá desember 2009 Um 6500 manns sögðu sig úr þjóðkirkjunni frá 1. desember árið 2009 til síðustu mánaðarmóta. Mikil óánægja hefur verið með Þjóðkirkjuna vegna viðbragða hennar við kynferðisbrotum Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi biskups. 5.7.2011 18:41
Álverð hækkaði áttfalt meira en nýja orkuverðstengingin Álverð hefur hækkað um þrjátíu prósent á því eina ári sem liðið er frá því Landsvirkjun samdi við álverið í Straumsvík um að afnema tengingu raforkuverðs við verðþróun á áli. Það er áttfalt meiri hækkun en á bandarísku neysluvísitölunni, sem tekin var upp í staðinn sem verðtenging, en hún hefur hækkað um 3,6 prósent á síðustu tólf mánuðum. 5.7.2011 18:30
Páll Hreinsson dómari við EFTA dómstólinn Páll Hreinsson hæstaréttardómari hefur verið skipaður dómari við EFTA dómstólinn frá 15. september næstkomandi. Þorgeir Örlygsson lætur þá af því starfi og tekur sæti í Hæstarétti. 5.7.2011 16:43
Dæmd fyrir að stela frá fötluðum skjólstæðingum sínum Kona á fertugsaldri var dæmd í 45 daga fangelsi í júní fyrir að draga sér fé af bankareikningum tveggja heimilismanna á sambýli Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vesturlandi. 5.7.2011 15:43
Sakaði kennara um líkamsárás - höfðaði mál níu árum síðar Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði kennara í Hvassaleitisskóla af skaðabótakröfu fyrrverandi nemanda síns, sem þá var í 10. bekk. 5.7.2011 14:54
Skilorðsbundinn dómur fyrir fjölmörg brot Héraðsdómur Austurlands dæmdi í dag tvítugan Reykvíking í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjölmörg brot. Meðal annars fyrir að hafa stolið bílnúmerum af bíl í Faxafeni í Reykjavík og setja þau á óskráðan bíl sinn. Hann var einnig sakaður um innbrot inn á verkstæði Skógræktar ríkisins, Mörk, Hallormsstað, á milli jóla og nýárs fyrir síðustu áramót auk innbrota í sumarbústaði í Fjarðarbyggð, innbrot í hafnsögubát og fleiri brota. Maðurinn játaði brot sín. 5.7.2011 14:20
Kannabisræktandi sviptur ökuréttindum Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að hafa ræktað 46 kannabisplöntur á heimili sínu með það að markmiði að selja kannabisefnið. 5.7.2011 14:13
Lamdi mann og beit dyravörð Tæplega þrítugur karlmaður frá Reykjanesbæ var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Maðurinn er sakfelldur fyrir að hafa sparkað í búk manns og slegið hann ítrekað í andlitið fyrir utan skemmtistaðinn Manhattan í október á síðasta ári. 5.7.2011 14:06
Snjallir strákar slá garða í sumar Þorgils Baldursson, Aron Sævarsson og Ýmir Gíslason eru 14 ára bekkjarfélagar úr Hlíðaskóla. Þá langaði hreint ekki til að vera aðgerðarlausir í sumar og tóku til sinna ráða. "Mér datt bara í hug að fara að slá garða og þeir voru til í að vera með mér í því,“ segir Þorgils. Þeir félagarnir fengu lánaða sláttuvél og klippur og voru þá tilbúnir í slaginn. 5.7.2011 14:00
Fjöldi metanbíla tvöfaldast Fjöldi bíla sem ganga fyrir metangasi er kominn upp í 555, samkvæmt tölum frá Umferðarstofu. Að sögn Sverris Viðars Haukssonar, formanns verkefnisstjórnar Grænu orkunnar, hefur þessi fjöldi tvöfaldast á síðustu átján mánuðum. 5.7.2011 13:30
Ók inn í Hróa hött Forláta Lexus jepplingi var ekið inn á Hróa hött við Langarima í Grafarvogi í hádeginu í dag. Samkvæmt upplýsingum Vísis slasaðist enginn í óhappinu. Lögregla hafði ekki fengið tilkynningu um óhappið þegar spurt var út í það í dag. 5.7.2011 13:14
Meintur byssumaður gengur laus Héraðsdómur Suðurlands hafnaði kröfu lögreglustjórans á Selfossi um gæsluvarðhald á manni sem handtekinn var í fyrrakvöld eftir að hafa hleypt skotum af byssu á Stokkseyri. Jafnframt var hafnað kröfu um að maðurinn sætti geðrannsókn. Málið er í rannsókn og fer að henni lokinni til meðferðar hjá saksóknara. 5.7.2011 13:08
Ráðherra í leiðangri um vestfirska vegi Ráðherra vegamála, Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lagði í morgun upp í þriggja daga leiðangur um Vestfirði til að kynna sér ástand vegamála. Með í för eru Hreinn Haraldsson vegamálastjóri og nokkrir sérfræðingar Vegagerðarinnar. Helsti tilgangur leiðangursins er að leita leiða til að höggva á hnút í vegagerð um Austur-Barðastrandarsýslu; deilur um nýtt vegstæði um Teigsskóg, sem Vegagerðin telur bestu lausnina til að leysa af fjallvegi um Ódrjúgsháls og Hjallaháls. 5.7.2011 12:30
Hrunið erfitt fyrir orkuskólann Reyst Orkuskólinn REYST stendur ágætlega fjárhagslega og getur vel rekið sig, þrátt fyrir að Háskóli Íslands hafi dregið sig úr verkefninu og Orkuveita Reykjavíkur hætt fjárstuðningi, að sögn framkvæmdastjóra skólans. Tíu til tuttugu nemendur hefja nám við skólann í haust. 5.7.2011 12:15
Barnslát: Búið að yfirheyra alla nema móðurina Yfirheyrslum lögreglu yfir samstarfsfólki og aðstandendum konunnar, sem grunuð er um að hafa komið nýfæddu barni sínu fyrir í ruslagámi þar sem það fannst látið, er að mestu lokið. 5.7.2011 12:10
Sextugur karlmaður liggur þungt haldinn eftir árekstur í Víðidal Liðlega sextugur íslenskur karlmaður, sem ók einum bílanna, sem lentu í þriggja bíla árekstri í Víðidal í gær, liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landsspítalans. Manninum er haldið sofandi í öndunarvél. 5.7.2011 12:06