Fleiri fréttir

Vangaveltur um túlkun eins ákvæðis

Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, fékk ekki frumvarp til breytinga á lögum um landsdóm til umsagnar og átti engin samskipti við forseta dómsins vegar frumvarpsins.

Ekkert ákveðið með framhald

Óvíst er hvort Helga Sigríður Sigurðardóttir, tólf ára stúlka frá Akureyri, þarf á hjartaígræðslu að halda en í ljós hefur komið að hún þjáist af kransæðastíflu.

Þurftu að fylla upp í fimm milljarða gat

Borgaryfirvöld í Reykjavík gera ráð fyrir nær tveggja milljarða hækkun á þjónustugjöldum og sköttum í fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir næsta ár. Meirihluti Besta flokksins og Samfylkingar lagði áætlunina fram á borgarstjórnarfundi í gær.

Enginn með byssu við höfuðið á Braga

Björgvin Þorsteinsson, lögmaður eigenda Árbótar, sagði í viðtali í síðdegisútvarpi Rásar 2 á fimmtudaginn að Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, hefði undirritað starfslokasamninginn við Árbót þar sem samið var um 30 milljóna króna uppgjör við heimilið.

Skortur á kjúklingi í verslunum enn á ný

Salmonellusmit hjá kjúklingaframleiðendum á þessu ári hefur leitt til viðvarandi skorts á kjúklingi í verslunum, að mati framkvæmdastjóra Bónuss og Krónunnar. Upp kom smit í kjúklingum frá Matfugli og Reykjagarði í síðustu viku á ný og voru vörur innkallaðar úr verslunum í kjölfarið.

Sendi 42 tonn af vatni til Haítí

„Þarna er mikil neyð og við ákváðum því að gefa meira vatn,“ segir Jón Ólafsson, stjórnarformaður Icelandic Water Holdings, sem framleiðir átappað lindarvatn á flöskum undir merkjum Icelandic Glacial á jörðinni Hlíðarendi við Þorlákshöfn.

Tillögur að umbótum kynntar

Skýrsla og tillögur umbótanefndar Samfylkingarinnar verða kynntar og ræddar á flokksstjórnarfundi á laugardag.

Húsgagnasmíði slær í gegn hjá nýnemum

Guðmundur Hreinsson, skólastjóri Byggingartækniskólans, segir ásókn í húsgagnasmíði hafa sprungið út síðustu misseri. Alls sóttu 22 um að byrja í húsgagnasmíði á komandi vorönn. Undanfarið hafa nýnemar hverju sinni verið tíu talsins.

Sveppi með sex dvd-diska

„Þetta er náttúrlega bara rugl,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, grínisti með meiru.

Kýldi og kjálkabraut karlmann við Krílið

Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Vestfjarða dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa slegið annan karlmann ítrekað hnefahöggum í andlitið með þeim afleiðingum að hann kjálkabrotnaði, tveir endajaxlar losnuðu og slímhúð í kjálka rofnaði, ásamt því að tilfinning í neðri vör skertist.

Fangar með torfæruhjól á Kvíabryggju

Við skoðun sem fangelsismálayfirvöld gerðu á Kvíabryggju í lok síðustu viku kom í ljós að mótorhjól, bifreiðar og fjórhjól í eigu fanga hafa verið geymd í fangelsinu um eitthvert skeið. Hafa fangarnir haft tækin til umráða. Starfsmenn Ríkisendurskoðunar fóru að Kvíabryggju í gær, þar sem bókhald fangelsisins sætir nú rannsókn vegna gruns um fjárdrátt forstöðumannsins.

Framtíð Aldrei fór ég suður í óvissu

Hugsanlegt er að ísfirska tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður hafi sungið sitt síðasta og verði ekki haldin um næstu páska. Ástæðan er þreyta sem er kominn í mannskapinn sem hefur staðið að undirbúningnum undanfarin ár.

Þessir voru kjörnir á stjórnlagaþing

Niðurstöður stjórnlagaþingskosninganna voru kynntar í Laugardalshöll nú síðdegis. Það var Ástráður Haraldsson sem kynnti niðurstöðurnar. Listinn sem við birtum hér er ekki í samræmi við magn atkvæða sem fólk hlaut heldur er um stafrófsröð að ræða.

Saksóknari segist ekki hafa rætt við forseta landsdóms

Saksóknari Alþingis fékk frumvarp Alþingis um breytingar á lögum um landsdóm ekki til umsagnar og átti engin samskipti við forseta landsdóms vegna frumvarpsins. Þetta segir Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis. Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, sem til stendur að ákæra fyrir landsdómi hefur gagnrýnt aðkomu saksóknarans að samningu frumvarpsins.

Allir hættir að tala um Parísarklúbbinn

„Það hefur enginn minnst á Parísarklúbbinn í heilt ár,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra við upphaf þingfundar í dag. Þar svaraði hann gagnrýni þingmanna stjórnarandstöðunnar þess efnis að endurreisn efnahagslífsins og uppbygging atvinnu gengi hægt. Parísarklúbburinn er stofnun sem gjaldþrota þjóðir leita til vegna úrlausna sinna mála.

67 milljónir í viðbót frá ríkinu vegna eldgosanna

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun 67 milljóna króna framlag til verkefna í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi. 27 milljónir króna verða veittar til greiðslu kostnaðar við átaksverkefni á gossvæðinu þar sem einstaklingar voru ráðnir af atvinnuleysisskrá til ýmissa verkefna og 12 milljónum króna verður varið til að mæta kostnaði við viðgerðir á varnargörðum í Markarfljóti.

Leiðrétting: Lögregla hvatti til kæru

Vísir greindi frá því 27. október síðastliðinn að 22. ára gömul kona hefði verið lött til þess að kæra nauðgun af yfirmanni kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Björgvini Björgvinssyni. Konan lýsti reynslu sinni þar sem hún sagðist hafa orðið fyrir nauðgun í Vestmannaeyjum síðustu verslunarmannahelgi. Þegar hún hafi ætlað kæra árásina sagði hún í viðtali við Vísi að hún hefði fengið þau svör að það væri tímasóun að kæra málið í ljósi þess að hún sá aldrei gerandann.

Fjölskylduhjálpin opnar í Reykjanesbæ

Fjölskylduhjálp Íslands opnar nýja starfsstöð í Reykjanesbæ þann 9. desember. Er þetta þriðja starfsstöð Fjölskylduhjálparinnar sem fyrir starfar í Reykjavík og á Akureyri.

Útgerðarfélag stefnir íslenska ríkinu

Útgerðarfélagið Rammi hf. hefur stefnt íslenska ríkinu vegna þeirrar ákvörðunar Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að gefa ekki út úthafsrækjukvóta á yfirstandandi fiskveiði. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir helgi og fær flýtimeðferð.

Úrslit kosninganna kynnt síðar í dag

Formaður landskjörstjórnar segir að vel hafi gengið að vinna úr úrslitum stjórnlagaþingskosninganna í morgun og hann reikni með að hægt verði að kynna úrslitin seinnipartinn í dag.

Björninn unninn á Langjökli

Bjargey Ólafsdóttir myndlistarmaður teiknaði fjögur þúsund fermetra stóran ísbjörn á Langjökul á föstudag.

Nítján Íslandsmet í ár

Sundmaðurinn frækni, Jón Margeir Sverrisson, hefur sett nítján Íslandsmet i ellefu sundgreinum á þessu ári. Jón Margeir er átján ára gamall og þroskaheftur en hann lætur ekki fötlun sína aftra sér frá því að taka þátt í íþróttum fremur en öðru.

Rændi verslun í Kópavogi

Rán var framið í verslun í Kópavogi á föstudagskvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru málsatvik þau að átján ára piltur kom í verslunina, ógnaði starfsmanni hennar og krafði um peninga og hafði síðan eitthvað af þeim á brott með sér. Kauði komst hinsvegar ekki langt með ránsfenginn því hann var handtekinn skömmu seinna í húsi skammt frá vettvangi.

Grannt fylgst með landrisi við Krýsuvík

Jarðvísindamenn fylgjast nú grannt með skjálftahrinum og landrisi við Krýsuvík og hafa upplýst almannavarnir um þróun mála. Aukinn þrýsingur í jarðskorpunni þar undir er talinn geta stafað annaðhvort af kvikuinnstreymi eða breytingum í jarðhitakerfum.

Reykjavíkurborg hækkar skatta

Skattar verða hækkaðir á borgarbúa í nýrri fjárhagsáætlun sem meirihlutinn í Reykjavík leggur fyrir borgarstjórn í dag. Stefnt er að blandaðri leið hagræðingar og gjaldahækkana til að stoppa upp í 5 milljarða halla á borginni.

Veruleg hækkun á bensínverði

Veruleg hækkun á verði bensíns liggur í loftinu eftir að tonnið af bensíni fór yfir 800 dollara á heimsmarkaði í gær. Sérfræðingar búast við að hækkunin geti orðið að minnsta kosti fimm krónur á lítrann og reið Skeljungur á vaðið nú á tólfta tímanum.

Tók lögreglumann hálstaki

Liðlega tvítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa veist að lögreglumanni, sem var að færa mann í lögreglutök, og tekið hann hálstaki með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn marðist. Árásin átti sér stað fyrir framan skemmtistaðinn Glaumbar þann 17. október í fyrra.

Hlín Einars: „Þetta var rosalegt sjokk“

„Þetta var ekki alveg leiðin sem ég ætlaði að nota til að kynna vefinn, en þeir sem vissu ekki hvað bleikt.is var í gær þeir vita það í dag," segir Hlín Einardóttir, ritstjóri vefritsins bleikt.is, sem fór úr axlarlið í hljóðveri Bylgjunnar í gær þar sem hún ætlaði að kynna vefinn í þættinum Í bítið. Fjallað var um atvikið á öllum helstu fréttamiðlum landsins og því óhætt að segja að óhapp Hlínar hafi orðið til þess að enn fleiri en ella heyrðu af vefnum hennar sem væntanlegur er í loftið innan tíðar.

Ólafur kominn af gjörgæsludeild

Ólafur Þórðarson, tónlistarmaður úr Ríó tríóinu, er kominn af gjörgæsludeild. Ólafur varð fyrir fólskulegri árás um miðjan nóvember og hefur legið á Landspítalanum síðan þá. Samkvæmt upplýsingum Vísis var Ólafur svo færður á heila- og taugadeild fyrir örfáum dögum og má merkja hægar en jákvæðar breytingar á líðan hans.

Vill fund í allsherjarnefnd vegna kosninganna

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir fundi í allsherjarnefnd með landskjörstjórn og yfirlögfræðingi Alþingis vegna nýliðinna kosninga til stjórnlagaþings. Vigdis bendir á það í tölvubréfi til Róberts Marshall, formanns allsherjarnefndar, að fréttir hefðu borist af miklu magni ógildra og gallaðra atkvæðaseðla. Upphaflega stóð til að úrslit kosninganna yrðu kunngjörð í gær, en landskjörstjórn sendi frá sér yfirlýsingu síðdegis þar sem tilkynnt var að það myndi dragast vegna mikils fjölda vafaatkvæða.

Fátækt í Danmörku: Biðraðir eftir mat aldrei verið lengri

Það er ekki aðeins á Íslandi þar sem biðraðir eftir matargjöfum hafa verið að lengjast því í Danmörku hefur ástandið ekki verið verra á síðari tímum. Danska blaðið Politiken greinir frá þessu og segir að ásókn fólks í hjálp fyrir jólin hafi sjaldan eða aldrei verið meiri.

Síbrotamaður í varðhald

Ungur maður, sem lögreglan á Selfossi handtók í Grímsnesi ásamt öðrum, snemma á föstudagsmorgun, hefur verið úrskurðaður í svonefnda síbrotagæslu, eða gæsluvarðhald til 22. desember.

Meðferðarheimili skoðuð allt aftur til ársins 1996

Ríkisendurskoðun hefur hafið athugun á samningum við meðferðarheimili og starfslokum þeirra. Stofnunin sendi bréf á Barnaverndarstofu, félagsmálaráðuneytið og fjármálaráðuneytið fyrir helgi og óskaði eftir öllum gögnum sem varða samninga við meðferðarheimili barna frá árinu 1996 og samningslok þar sem það á við.

Tryggingastofnun á Facebook

Tryggingastofnun hefur opnað síðu á samskiptavefnum Facebook. Þar með bætist við leið til að koma upplýsingum um almannatryggingakerfið á framfæri, en auk þess koma þar fram tilkynningar um það sem hæst ber hjá stofnuninni hverju sinni.

Stjórnvöld geirnegli áætlun

Það er undir ríkisstjórninni komið hvort stofnað verður til nýs samstarfs á vinnumarkaði. Hún þarf að ganga þannig frá málum að ekki verði hægt að svíkja gefin loforð.

Styrkir til GR lækka um 45 milljónir

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur fallist á að styrkveiting Reykjavíkurborgar til félagsins fyrir árin 2010 til 2013 verði lækkuð úr 230 milljónum króna í 185 milljónir.

Sjá næstu 50 fréttir