Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Guðjón Friðksson sakar Matthías um lygaþvælu Guðjón Friðriksson sagnfræðingur sakar Matthías Johannessen fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins um að birta ærumeiðandi lygaþvælu á vefsíðu sinni. Þar heldur Matthías því fram að Guðjón hafi verið hrakinn úr kennslu fyrir pólitíska einkunnagjöf. 29.8.2008 21:45
Innanlandsflug úr skorðum í dag Veðrið setti innanlandsflug úr skorðum í dag og eitthvað tjón varð vegna foks, þó minna en óttast var. 29.8.2008 18:55
Ekki hætta á mengunarslysi Fyrrverandi varðskipið Þór rak í vonskuveðri upp að landi í Hvalfirði í morgun. Óttast var að mikil olía væri um borð og að mengunarslys væri í uppsiglingu. Dráttarbátnum Magna tókst hins vegar að draga Þór af staðnum. 29.8.2008 18:49
Formaður Vinstri grænna vill eitt ríkisfjármálaráðuneyti Formaður Vinstri grænna vill að stofnað verði eitt öflugt ríkisfjármálaráðuneyti til að taka á efnahagsvandanum. Hann segir reikninginn fyrir stóriðjuveisluna nú berast heimilunum í landinu. 29.8.2008 18:44
Deilur innan ÁTVR á Akureyri Uppnám er innan ÁTVR á Akureyri eftir að verslunarstjóri jós svívirðingum yfir starfsfólk sitt og lagði hendur á undirmann í samkvæmi. Níu starfsmenn hættu störfum vegna málsins. Aðstoðarforstjóri ÁTVR segir að verslunarstjórinn njóti trausts. 29.8.2008 18:33
Fyrsta skóflustungan að hjúkrunarheimili aldraða í Boðaþingi Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og fulltrúi félags- og tryggingamálaráðherra, Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri, tóku fyrstu skóflustunguna að fyrri áfanga hjúkrunarheimilis fyrir aldraða í Boðaþingi í Kópavogi í morgun. 29.8.2008 18:07
Banaslys í Mjóafirði Umferðarslys varð í botni Mjóafjarðar í Ísafjarðardjúpi um klukkan þrjú í dag. Að sögn lögreglu valt bifreið út af veginum og hafnaði á hvolfi ofan í á. Tveir aðilar voru í bifreiðinni. Annar þeirra var látinn þegar næstu vegfarendur komu að. Hinn aðilinn mun ekki hafa slasast alvarlega. Lögreglumenn og sjúkraflutningamenn eru á vettvangi og eru tildrög slyssins til rannsóknar að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. 29.8.2008 16:55
Með tíu grömm af kóki í endaþarminum Í gærdag var tæplega tvítugur karlmaður handtekinn á Akureyrarflugvelli þar sem fíkniefnahundur lögreglunnar merkti hann við eftirlit. Í ljós kom að maðurinn hafði meðferðis um 10 grömm af efni sem talið er vera kókaín og hafði hann falið efnið í endaþarmi sínum. Að lokinni skýrslutöku var maðurinn látinn laus og málið telst upplýst. 29.8.2008 16:55
Þakplötur og klæðning að fjúka af húsi í Bláfjöllum Um 15-20 björgunarsveitarmenn vinna nú í Bláfjöllum þar sem þakplötur og klæðning eru að fjúka af um 1100 fm, átta metra háu stálgrindarhúsi. 29.8.2008 16:14
Ingibjörg Sólrún í Betlehem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, flutti í dag framsöguræðu sem sérstakur gestur á fundi friðarráðs kvenna í Betlehem. 29.8.2008 16:10
Gæslan var á undan handboltahetjunum Þegar Ólympíuliðið í handbolta veitti Fálkaorðum sínum móttöku á Bessastöðum á miðvikudag var haft orð á því að þetta væri í fyrsta skipti sem liðsheild væri veitt þessi orða. 29.8.2008 15:47
Sprunga við Kárahnjúkavirkjun Mögulegt er að bergfylla losni úr vegg Hafrahvammagljúfurs á móts við Kárahnjúkafoss við Kárahnjúkavirkjun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun. Mannvirki eru ekki í hættu. 29.8.2008 15:41
Segja íbúa við Þjórsá beitta opinberi valdbeitingu Samtökin Sól á Suðurlandi segja íbúa við Þjórsá mismunað og beitta opinberi valdbeitingu. Samtökin segja slæmt að athugasemdir sem almenningur gerði við skipulagið voru sendar til lögfræðings á vegum Landsvirkjunar, sem fyrirtækið greiddi fyrir að svara athugasemdunum á þann veg sem því hentaði. 29.8.2008 15:20
Íslendingur handtekinn í Kína - Í varðhaldi síðan á laugardag Íslenskur ríkisborgari hefur verið í varðhaldi í Guangzhou í Kína síðan á laugardag. Dvalarleyfi mannsins er útrunnið og var hann því handtekinn af kínverskum yfirvöldum og hnepptur í varðhald. 29.8.2008 14:15
Móðir öryggisvarðar ósátt við vægan dóm árásamanns Fjölskylda Óttarrs Ómarssonar sem varð fyrir lífshættulegri árás í 10-11 í Austurstræti í apríl er mjög ósátt við dóminn sem árásamaður hans hlaut. „Okkur finnst rugl að hann þurfi aðeins að sitja inn í einn og hálfan mánuð. Þar að auki finnst okkur ekki tímabært að meta strax hve mikil áhrif þessi árás mun hafa á Óttarr," segir Hrefna Snæhólm móðir Óttarrs. 29.8.2008 14:13
15 mánaða fangelsi fyrir lífshættulega árás 23 ára Kópavogsbúi hefur verið dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir 10-11 árásina svokölluð. 29.8.2008 13:56
Fráleitt að Þorgerður segi af sér Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir fráleitt að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, þurfi að segja sér vegna tveggja ferða hennar á Ólympíuleikana. 29.8.2008 13:46
Vonar að Þór hafi ekki orðið fyrir skemmdum Gamla varðskipið Þór strandaði undan Hvammsvík skömmu fyrir hádegi. Þór hefur ekki verið í þjónustu Landhelgisgæslunnar síðustu ár en hann er nýttur við kvikmyndatökur við Grundartanga. Leikstjóri myndarinnar segir að skipið hafi verið mannlaust enda hafi tökuliðið fengið frí í gær vegna slæmrar veðurspár. Hann er vongóður um að skipið hafi staðist raunina. 29.8.2008 13:02
Hulda ráðin forstjóri Landspítala Hulda Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Landspítala -háskólasjúkrahúss og tekur til starfa um miðjan október. Guðlaugur Þór Þórðarsson, heilbrigðisráðherra, tilkynnt þetta á fundi með starfsmönnum nú í hádeginu og tók starfsfólk á móti Huldu með dynjandi lófataki. 29.8.2008 12:03
Gervigrasvöllur varð rokinu að bráð Gámurinn við Klébergsskóla á Kjalarnesi sem fauk í óveðrinu í morgun eyðilagði tvo ljósastaura og stórskemmdi grindverkið umhverfis gervigrasvöllinn við skólann. Björgvin Þór Þórhallson, skólastjóri segir að þetta sé þó ekki eina tjónið sem hlaust af rokinu því vindurinn feykti upp nýlögðu gervigrasinu við skólann. 29.8.2008 11:42
Borgarfulltrúar greiði úr eigin vasa fyrir boðsferðir Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir á vefsíðu sinni að borgarfulltrúar eiga að greiða sjálfir fyrir boðsferðir sem þeim er boðið að taka þátt í. 29.8.2008 11:14
Lausamunir fjúka í óveðri Mikið óveður hefur gengið yfir landið í nótt og í morgun og hafa Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins þurft að sinna nokkrum beiðnum í morgun vegna þess. 29.8.2008 11:01
Innanlandsflug liggur niðri Allt innanlandsflug liggur niðri vegna veðurs. Athugað verður með flug klukkan eitt eftir hádegi. Áætlunarferðum til Viðeyjar hefur verið aflýst í dag. 29.8.2008 10:42
Nýr forstjóri LSH kynntur á eftir Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, mun eftir hádegi tilkynna hver verður nýr forstjóri Landspítala háskólasjúkrahúss. 29.8.2008 10:32
Fyrirmyndarökumenn í Hvalfjarðargöngum Alls óku 56 ökumenn of hratt í Hvalfjarðargöngum á mánudag og þriðjudag. Lögreglan vaktaði 3.015 ökutæki á 46 klukkustundum og reyndust innan við 2% af heildarfjölda ökumanna aka of hratt. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 kílómetrar á klukkustund en þarna er 70 kílómetra hámarkshraði. Sá sem hraðast ók var á 118 kílómetra hraða. 29.8.2008 10:31
Hollenski smyglarinn áfram í gæsluvarðhaldi Hollenskur karlmaður á áttræðisaldri var í gær úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna aðildar að fíkniefnasmygli en tollverðir fundu tæp 200 kíló af fíkniefnum um borð í húsbíl hans þegar hann kom til landsins með ferjunni Norrænu 10. júní síðastliðinn. 29.8.2008 09:45
Lögreglan rannsakar enn innbrot í Seljahverfi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn inbrotsþjófs eða þjófa, sem brutust inn í einbýlishús í Seljahverfi í Reykjavík í gærdag og stálu miklum verðmætum. Meðal annars tölvum, rafmagnstækjum og skartgripum. Engin nágranni virðist hafa séð til þjófanna. 29.8.2008 08:19
Steypubíll valt við Akureyri Full lestaður steypubíll valt út af þjóðveginum norðan við Akureyri í gærkvöldi, skammt frá Ólafsfjarðarafleggjara. Ökumaður slapp ómeiddur, en bíllinn náðist ekki upp á veginn aftur fyrr en eftir miðnætti, og hafði steyputunnan þá verið losuð af honum. Tildrög eru óljós.- 29.8.2008 08:12
Fundu notaðar sprautunálar í Kókópuffs pakka Unglingar fundu nokkrar notaðar sprautur og nálar í kókópuffs pakka, á milli eins grunnskólans og leikskólans á Selfossi í gærkvöldi. Þeir hirtu dótið upp en köstuðu því frá sér í runna við félagsmiðstöðina, í stað þess að láta lögreguna vita. 29.8.2008 08:06
Gámur fauk af vörubíl Fjörutíu feta gámur fauk af vörubíl á Kjalarnesi undir morgun en þar fer vindurinn upp undir 30 metra á sekúndu í kviðum. Þar fauk líka stór gámur við Klébergsskóla, en olli ekki skemmdum eftir því sem best er vitað. Lögregla varar ökumenn við að fara þarna um. 29.8.2008 07:49
Árni á meðal stofnfjáreigenda í Byr - gefur ekki upp hve stór hluturinn er Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, er á meðal stofnfjáreigenda í Byr. Þetta staðfestir Árni í samtali við Vísi. Hann vill þó ekki gefa upp hve stór hluturinn er, né hvenær hann keypti hann. Hann segist þó ekki hafa átt hann ýkja lengi. Árni seldi stofnfjárbréf í Sparisjóði Hafnarfjarðar sumarið 2005 og fékk hann fyrir þá hluti fimmtíu milljónir króna. Á þeim tíma sagði Árni í viðtali við Blaðið að þeir tímar væru liðnir að stjórnmálamenn ættu að vera að skipta sér af fjármálastofnunum. Sparisjóður Hafnarfjarðar sameinaðist síðar Sparisjóði Vélstjóra og úr varð Byr. Árni segir himinn og haf á milli þess að eiga í Byr og SPH. 29.8.2008 18:01
Fyrsti hauststormurinn á leiðinni Búist er við miklum stormi víða um land, þó einkum sunnan- og vestanlands, í nótt og fram eftir morgni. Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að fyrsta alvöru haustrokið komi yfirleitt flestum í opna skjöldu og því verði fólk að vera vart um sig. 28.8.2008 22:07
Dalabyggð krefur stjórnvöld og Rarik um úrbætur Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur sent frá sér ályktun þar sem það skorar á stjórn Rarik og stjórnvöld að finna viðunandi lausn á rafmagnsmálum svæðisins án tafar. 28.8.2008 22:26
Dagbók Matthíasar: Sverrir með mikilvæg trúnaðarskjöl í sínum fórum Fyrrverandi bankastjóri Landsbankans mætti með trúnaðarskjöl um skuldastöðu stjórnmálaflokka og einstaklinga á fund fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins . Þetta má ráða af opinberri dagbókarfærslu Matthíasar Johannessen. 28.8.2008 19:06
Rúmlega 80% telja að afnema eigi verðtryggingu Rúmlega áttatíu prósent landsmanna telja að afnema eigi verðtryggingu af lánum. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Capacent gerði fyrir Stöd 2. 28.8.2008 18:24
Árni Þór: Eðlilegt að samgöngunefnd hafi fengið hótelgistingu Þingmanni Vinstri grænna í Reykjavík finnst eðlilegt að samgöngunefnd gisti á hóteli á höfuðborgarsvæðinu, þegar nefndin er í vettvangsferð þar, þótt þorri þeirra eigi heimili á svæðinu, jafnvel í nokkurra mínútna fjarlægð frá hótelinu. 28.8.2008 18:35
Mikil íbúafjölgun orsakasta af aðflutningi Nýtt vefrit fjármálaráðuneytisins segir að sá miklu fólksfjöldi sem orðið hafi hérlendis undanfarin ár megi að mestu rekja til mikil aðflutnings erlendra ríkisborgara. Í nýlegum tölum Hagstofu Íslands um mannfjölda á Íslandi kemur fram að hér bjuggu rúmlega 319 þúsund manns á miðju ári 2008, sem eru tæplega átta þúsund fleiri íbúar en voru hér fyrir ári síðan og er það næstmesta fjölgun íbúa á einu ári. 28.8.2008 18:10
Skessa á ferli í Reykjanesbæ Íbúar í Reykjanesbæ hafa tekið eftir dularfullum tröllasporum í bænum undanfarna daga og leiða menn líkum að því að þar sé á ferð hin þjóðþekkta skessa sem sagt er frá í bókunum um Siggu og skessuna í fjallinu. Skessan sú arna hyggur nú á búferlaflutninga í Svartahelli við Grófarhöfn. 28.8.2008 17:48
Bolvískar mæður í kröppum dansi í Frankfurt Fréttamiðillinn Bæjarins besta á Ísafirði greinir frá óskemmtilegri reynslu bolvískrar móður sem varð fyrir því að maður reyndi var að ræna barni hennar í Frankfurt. Hrund Karlsdóttir var ásamt sjö ára dóttur sinni í verslunarmiðstöð þegar ókunnugur maður vatt sér að þeim og reyndi að grípa stúlkuna. 28.8.2008 17:15
Kaupa sér velvild Stefán Jóhann Stefánsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að fá íþróttafélög hafi efni á því að bjóða borgarfulltrúum og embættismönnum í boð og veislur. ,,Það eru nokkur félög sem hafa efni á að halda slík boð og með því eru þau að kaupa sér ákveðna velvild." 28.8.2008 17:15
Kirkjumálaráðherra: Biskupinn var einstakur maður „Með Sigurbirni Einarssyni er genginn öflugur málsvari kristni og mannúðar,” segir Björn Bjarnason ráðherra kirkjumála. 28.8.2008 17:12
Ekið á konu við Höfðabakka Ekið var á konu sem var fara að ganga yfir gangbraut á gatnamótum Dvergshöfða og Höfðabakka á sjötta tímanum. 28.8.2008 16:53
Tankur rifinn niður á Raufarhöfn Fjórir tankar hafa staðið á Raufarhöfn síðan ein af stærstu loðnubræðslum landsins var starfrækt þar en hún hætti fyrir tólf árum. Var fyrsti tankurinn af fjórum rifinn niður í gær. 28.8.2008 16:47
Forseti Íslands: Sigurbjörn biskup skipar heiðursess í hugum þjóðarinnar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að Sigurbjörn Einarsson biskup sé í hópi fárra biskupa sem hafi öðlast heiðursess í hugum þjóðarinnar. Hans verði lengi minnst. Sigurbjörn lést í morgun, 97 ára að aldri. 28.8.2008 16:31
Frumvarp um bann við nektardansi liggur fyrir í þinginu Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri, Grænna lagði fram frumvarp í byrjun árs, þess efnis að nektarsýningar í atvinnuskyni yrðu með öllu óheimilar. 28.8.2008 16:13