Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Síðustu þyrluvakt varnarliðslins lauk í morgun Síðustu vakt björgunarþyrlna Varnarliðsins á Miðnesheiði lauk í morgun. Þar með eru aðeins tvær björgunarþyrlur Landhelgisgæslunnar til taks ef á þarf að halda. 15.9.2006 16:30
13.500 heita betri hegðun í umferðinni Um 13.500 manns hafa skráð nafn sitt á heimasíðuna stopp.is sem Umferðstofa hefur sett á fót í tengslum við átak gegn umferðarslyum undir kjörorðingu "Nú segjum við stopp!". 15.9.2006 16:15
Magna fagnað í Smáralind á sunnudag Magni Ásgeirsson mun spila á ný með hljómsveit sinni Á móti sól á viðburði sem Skjárinn hefur skipulagt til heiðurs honum í Smáralind á sunnudag. Söngvarinn knái, sem vakið hefur þjóðarathygli fyrir frammistöðu sína í raunveruleikaþættinum Rockstar:Supernova, kemur heim á sunnudaginn og mun þjóðin þá taka á móti honum í Vetrargarði Smáralindar klukkan 16. 15.9.2006 16:00
Líðan drengsins óbreytt Líðan drengsins, sem slasaðist alvarlega þegar hann velti bíl sínum við bæinn Skipholt nálægt Flúðum aðfaranótt fimmtudags, er óbreytt. Honum er í öndunarvél og er honum haldið sofandi á gjörgæslu Landspítalans í Fossvogi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi virðist sem ofsaakstur hafi ollið slysinu en ummerki á vettvangi bentu til þess. Drengurinn var ekki í bílbelti en stúlkurnar tvær sem voru farþegar í bíl hans voru í bílbelti. Þær hlutu minniháttar áverka. 15.9.2006 15:30
Norðfjarðarvegur illfær vegna rigninga og blæðinga Vegna rigninga og mikilla blæðinga í slitlagi er Norðfjarðarvegur milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar illfær og er vegfarendum bent að fara ekki veginn nema að brýna nauðsyn beri til. 15.9.2006 15:15
Eldur í þaki Varmárskóla Slökkviliðsmenn frá slökkviliði höfuðborgasvæðisins eru nú staddir í Varmárskóla í Mosfellsdbæ þar sem eldur logar í þak skólans. Tveir dælubílar og einn körfubíll eru að störfum á svæðinu. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá bilun í rafmagnstöflu og var skólinn rýmdur um leið og ljóst var að eldur hafði komið upp. 15.9.2006 15:00
Breytingar á akstri um Vesturgötu Gerð hefur verið breyting á akstri um Vesturgötu í Reykjavík. Hún felur í sér að nú er einstefna til austurs frá gatnamótum Vesturgötu/Ægisgötu og að gatnamótum Vesturgötu/Garðastrætis. Á fyrrtöldu gatnamótunum er jafnframt stöðvunarskylda. Samkvæmt því skulu ökumenn sem fara um Vesturgötu nema staðar fyrir þá sem aka Ægisgötu. 15.9.2006 14:45
SPRON hækkar óverðtryggða vexti SPRON tilkynnti í dag að fyrirtækið myndi hækka vexti óverðtryggðra innlána og útlána um 02,5 - 0,5 prósentustig. í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands í gær. SPRON hækkar hins vegar ekki frekar en Glitnir og Landsbankinn vexti verðtryggðra íbúðalána, en bankarnir tveir hækkuðu óverðtryggða vexti sína í gær. 15.9.2006 14:15
Herdís stefnir á annað sæti í Norðvesturkjödæmi Herdís Sæmundardóttir, stjórnarformaður Byggðastofnunar, gefur kost á sér í annað sæti á lista Framsóknaflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar í vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herdísi. 15.9.2006 14:15
Verkefni í vegagerð færð frá ríki til sveitarfélaga Vinna er hafin við það í samgönguráðuneytinu að færa ákveðin verkefni í samgöngumálum frá ríki til sveitarfélaga. Þetta kom fram í ávarpi Sturlu Böðvarssonar á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi í Grundarfirði í dag. 15.9.2006 13:45
Milljarðar bætast við markaðsvirði Exista Fyrirtækið Exista var tekið til skráningar í Kauphöllinni í morgun. Þetta er stærsta nýskráning í Kauphöllinni en markaðsvirði félagsins var um 230 milljarðar. Milljarðar hafa bæst við markaðsvirðið fram að hádegi vegna gengishækkunar í fyrstu viðskiptum. 15.9.2006 13:15
Samið um menningarsamskipti við Kína Íslendingar og Kínverjar hafa samið um menningarsamkipti á árunum 2007-2010 sem meðal annars felast í skiptiheimsóknum listamanna og stjórnenda á listasviðinu. Það var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og menningarmálaráðherra Kína sem það gerðu fyrir hönd þjóða sinna en Þorgerður er nú stödd í opinberri heimsókn í Kína. 15.9.2006 12:45
Samgönguvikan fyrir Hrein Loft Eflaust hafa margir rekið augun í auglýsingar fyrir samgönguvikuna sem hefst í dag en á þeim sést maður með mikið eldrautt hár og slagorðið fyrir ofan er "framtíð hreins lofts er í þínum höndum". Það sem færri vita er að maðurinn á myndinni heitir Hreinn Loftur. 15.9.2006 12:13
Nýr stjórnarfomaður Hjálparstofnunar kirkjunnar Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, hefur verið kosinn stjórnarformaður Hjálparstarfs kirkjunnar. Það var gert á aðalfundi stofnunarinnar þann 11. september. Auk hans voru Sigríður Lister hjúkrunarfræðingur og Gunnar Sigurðsson kerfisfræðingur kosin í stjórn stofnunarinnar. 15.9.2006 11:22
Bjóða sig fram í stjórn Heimdallar Hópur ungs fólks hefur ákveðið að bjóða sig fram til stjórnar Heimdallar með Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, frambjóðanda til formennsku í Heimdalli. Í tilkynningu frá hópnum segir að hann sé skipaður öflugu hugsjónafólki, sem vilji auka veg Heimdallar og virkja ungt fólk til starfa innan félagsins. 15.9.2006 11:15
330 milljónir til byggingar reiðhalla Landbúnaðarráðuneytið hefur úthlutað 330 milljónum króna í styrki til að byggja reiðhallir, reiðskemmur og reiðskála víða um land. Nefnd á vegum landbúnaðarráðherra sá um að úthluta styrkjunum en alls barst fjörutíu og ein umsókn en úthlutað var styrkjum til byggingar 28 reiðhúsa víðs vegar um landið. 15.9.2006 11:15
Landsframleiðsla vex um 2,75 prósent Landsframleiðsla á öðrum árfjórðungi þessa árs óx um 2,75 prósent að raungildi frá sama tíma í fyrra en hins vegar jukust þjóðarútgjöld um sjö prósent. Þetta leiða nýjar tölu Hagstofunnar í ljós. 15.9.2006 10:15
Exista skráð í Kauphöllina Fjármálafyrirtækið Exista hf. var skráð á aðallista Kauphallarinnar nú klukkan tíu þegar markaðir opnuðu. Þetta er stærsta nýskráning félags í Kauphöllina. Nemur virði félagsins miðað við útboðsgengi um 230 milljörðum króna við skráningu. 15.9.2006 10:00
Segir fyrirsögn Blaðsins uppblásna Blaðið gerir því skóna á forsíðu sinni í dag að fréttastöðin NFS fari innan skamms að leggja upp laupana, auk þess sem mikil hagræðing og endurskipulagning standi til í tímaritaútgáfu 365. Ari Edwald, forstjóri 365 segir fyrirsögnina uppblásna. Ekki hafi verið teknar neinar svo stórvægilegar ákvarðanir. 15.9.2006 09:45
13 bílhræ brunnu í Hafnarfirði Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að bílapartasölu við Stapahraun í Hafnarfirði, rétt fyrir ellefu í gærkvöldi, þar sem eldur logaði í bílhræjum á hlaðinu. Eldurinn barst síðan yfir í tvo gáma og einbeitti slökkviliðið sér fyrst um sinn að því að varna því að eldurinn bærist í húsið. 15.9.2006 09:15
Bensínverð lækkar Olíufélagið Esso og Atlantsolía lækkuðu verð á bensíni í dag. Esso lækkaði verð á bensínlítra um fjórar krónur og díselolía lækkaði um tvær krónur. Atlantsolía hefur lækkað verð á bensín og díelolíu þrisvar sinnum síðasta einn og hálfan sólarhring. Lækkanirnar nema samtals fimm krónum á bensíni og tveimur krónum á díselolíu. Handhafar dælulykla fá auk þess krónu í afslátt á hvern bensínlíterinn. Bæði olíufélögin segja verðlækkanir koma til vegna hagstæðrar þróunar á heimsmarkaðsverði og styrkingu krónunnar. 14.9.2006 21:25
Bensínverð nú það sama og í maí Olíufélagið ESSO ákvað í dag að lækka verð á eldsneyti umtalsvert. Lítrinn af bensíni lækkar um 4 krónur um land allt og lítrinn af díselolíu lækkar um 2 krónur um land allt. Þessi lækkun byggir á væntingum Olíufélagins Esso um að á næstu vikum verði markaðir tiltölulega stöðugir. 14.9.2006 21:15
Raunir ferðalangs Ökumaður, sem lagði bíl sínum í góðri trú í það sem hann taldi vera merkt langtímastæði við flugstöð Leifs Eiríkssonar, segir farir sínar ekki sléttar eftir að bíll hans var dreginn burt af stæðinu og hann rukkaður um tæpar átján þúsund krónur. Að auki greiddi hann tólf þúsund krónur í leigubíl og rútuferð til og frá Keflavík vegna málsins. 14.9.2006 21:13
Meirihluti fylgjandi ESB aðild Meirihluti landsmanna vill láta reyna á inngöngu í Evrópusambandið og að hér verði tekin upp evra. Þetta kemur fram í könnun sem Samtök iðnaðarins létu gera um afstöðu landsmanna til Evrópumála. 14.9.2006 21:07
Sáttaleið fyrir unga afbrotamenn Frá og með fyrsta október geta afbrotamenn undir átján ára aldri átt von á að verða leiddir fyrir fórnarlömb sín. Dómsmálayfirvöld hafa ákveðið að prófa svokallaða sáttaleið í málefnum ungra glæpamanna, sem gefið hefur góða raun víða um heim. 14.9.2006 21:05
Lokahrina varnarviðræðna yfirstaðin Lokahrinu varnarviðræðna íslenskra og bandarískra stjórnvalda var haldið áfram í dag í Washington og lauk rétt í þessu. Íslenka sendinefndin er á leiðinni heim og ekki fleiri fundir á döfinni segir aðstoðarmaður forsætisráðherra og neitar að tjá sig frekar. Forsætisráðherra hefur lýst því yfir að viðræðunum ljúki fyrir mánaðarmót. 14.9.2006 21:01
Liggur þungt haldinn á gjörgæslu eftir bílveltu Sautján ára drengur liggur liggur þungt haldinn á gjörgæslu Landspítalans í Fossvogi eftir bílveltu við bæinn Skipholt nálægt Flúðum síðastliðna nótt. Drengurinn kastaðist út úr bíl sínum og hlaut mikla höfuðáverka. Hann er í öndunarvél og er honum haldið sofandi. Tvær stúlkur, sem einnig voru í bílnum hlutu minniháttar áverka en þau voru öll flutt á slysadeild Landspítalans í nótt. Ekki er ljóst um tildrög slyssins en lögreglan á Selfossi vinnur að rannsókn málsins. 14.9.2006 20:53
Fjórhjól eða ekki við hreindýraveiðar? Forstöðumaður veiðistjórnunarsviðs hjá Umhverfisstofnun bendir á að allur akstur veiðimanna utan vega sé bannaður. Skilja má annað eftir sýknudóm hreindýraskyttu. 14.9.2006 20:45
Buðu upp á fiskisúpu á Laugarveginum Það skapaðist heldur óvenjuleg stemming við Laugarveginn í dag þegar félagar í Klúbbi matreiðslumanna hófu að bjóða vegfarendum fiskisúpu. 14.9.2006 20:07
Lögreglan lagði hald á fíkniefni og skotvopn Lögreglan í Hafnarfirði lagði hald á fíkniefni, skotvopn og þýfi þegar húsleit var gerð á tveimur stöðum í Hafnarfirði í dag. Franklín Steiner, sem er þekktur í fíkniefnaheiminum, var handtekinn. 14.9.2006 19:18
Ákærð fyrir rangar sakargiftir Ríkissaksókari krefst að tæplega tvítug kona, sem kærði mann fyrir tilraun til nauðgunar, verði dæmd fyrir rangar sakagiftir. Konan var með áverka og fór á neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb kynferðisbrota en ríkissaksóknari telur útilokað að maðurinn hafi veitt henni áverkana. 14.9.2006 18:45
Ekki útilokað að samið verði á Íslandi Íslensk stjórnvöld útiloka ekki þann möguleika að stríðandi fylkingum á Srí Lanka verði boðið til friðarviðræðna á Íslandi. Unnið verði náið með Norðmönnum en reynist rétt að deilendur treysti þeim ekki í viðræðunum ætli Íslendingar ekki að liggja á liði sínu. Í fréttum NFS í gærkvöldi var rætt við Keheliya Rambukwella, talsmann ríkisstjórnar Srí Lanka. Þar sagði hann koma til greina að setjast að samningaborðinu með uppreisnarmönnum Tamíl tígranna á Íslandi. Hann sagði stjórnina andvíga því að halda viðræðunar í Osló í byrjun október. Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, segir mestu skipta að koma deilendum að samningaborðinu í hennar huga sé ekki aðalatriðið hvar funur verði haldinn. Staðreyndin sé hins vegar sú að Norðmenn hafi verið í forystu í friðarviðræðum og vopnahlé hafi verið staðfest í Osló árið 2002. Norðmenn hafi allt þetta ár verið að reyna að koma þessum öflum að samningaborðinu. Valgerður vill ekki útiloka það að deilendum verði boðið til viðræðna á Íslandi. Spila þurfi úr hlutunum af yfirvegun og skynsemi. Rétt sé að geta þess að Norðmenn hafi meiri reynslu í þessum málum en Íslendingar en ef rétt reynist að Norðmönnum sé ekki treyst að fullu þá muni Íslendingar gera allt sem í sínu valdi stendur til að hjálpa í friðarviðræðum. 14.9.2006 18:45
Hækka ekki vexti af húsnæðislánum Hvorki Glitnir né Landsbankinn ætla að hækka vexti á verðtryggðum húsnæðislánum í framhaldi af fimmtíu punkta stýrivaxtahækkun Seðalbanka Íslans í morgun. 14.9.2006 17:30
Staðfestir sjö mánaða dóm fyrir ýmis brot Hæstiréttur staðfesti í dag sjö mánaða fangelsisdóm yfir karlmanni á þrítugsaldri sem ákærður var fyrir þjófnað, innbrot og fíkniefnabrot. Maðurinn hafði áður verið dæmdur fyrir ýmis brot en með þessum brotum rauf hann skilorð. 14.9.2006 17:15
Húsleit í tveimur húsum vegna fíkniefna Lögregla gerði í dag húsleit í tveimur húsum í Hafnarfirði þar sem grunur lék á finna mætti fíkniefni og vopn. Annað húsanna er í miðbæ Hafnarfjarðar og var einn maður handtekinn við innrás lögreglunnar þar. 14.9.2006 16:59
Lýsir yfir stuðningi við starfsemi Barnahúss Kvenfélagasamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við starfssemi Barnahúss og minnt á ályktun þess efnis sem samþykkt var á Landsþingi Kvenfélagasambands Íslands á Akureyri í sumar. 14.9.2006 16:30
Íslenska óperan kynnir glæsilega vetrardagskrá Ein viðamesta dagskrá Íslensku óperunnar frá upphafi var kynnt í dag. Íslenska óperumenningin er í blóma um þessar mundir og áhorfendur munu ekki fara varhluta af henni í vetur. 14.9.2006 16:15
Æfingar í ökugerði skylda frá og með árinu 2008? Allir þeir sem ætla að taka bílpróf frá og með árinu 2008 munu þurfa að verða sér úti um reynslu í svokölluðum ökugerðum ef hugmyndir samgönguráðherrra ná fram að ganga. 14.9.2006 15:53
Reyksíminn styrktur um sex milljónir króna Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að styrkja starfsemi Reyksímans með þriggja milljóna króna framlagi á ári í tvö ár. Þetta kemur fram á vef heilbrigðisráðuneytisins. 14.9.2006 15:45
Varnarviðræður hafnar í Washington Fundur viðræðunefnda Íslands og Bandaríkjanna í Washington vegna varnarmála landsins hófst klukkan kortér yfir tvö í dag en ekki liggur fyrir hversu lengi hann mun standa. Sem fyrr hvílir leynd yfir efni samningaviðræðnanna en íslenskir ráðamenn vonast til þess að þeim ljúki jafnvel í næstu viku. 14.9.2006 15:30
Fjögur fíkniefnamál hjá lögreglu Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Reykjavík í gær og nótt. Málin eru óskyld en samtals komu fimm aðilar við sögu en ætluð fíkniefni fundust á þeim öllum. Fólkið er á aldrinum 18-24 ára. Þá var maður á þrítugsaldri færður á lögreglustöð en hann var í annarlegu ástandi og hafði haft í hótunum við annan mann. 14.9.2006 15:16
Ríkishlutafélagið Matís stofnað í dag Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Matvælarannsóknir Keldnaholti og Rannsóknastofa Umhverfisstofnunar sameinast í hlutafélaginu Matís ohf. sem stofnað var formlega í dag. Það er að öllu leyti í eigu ríkisins en breytingarnar á stofnununum taka gildi um næstu áramót. 14.9.2006 15:00
Actavis fær viðvörun í Bandaríkjunum Bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið hefur veitt Actavis viðvörun eftir að hafa skoðaðað tiltekna þætti í starfsemi þess í Little Falls New Jersey. 14.9.2006 14:45
Fíkniefnarassía í Hafnarfirði Húsleit stendur nú yfir í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem grunur leikur á að finna megi fíkniefni. Óeinkennisklæddir lögreglumenn frá lögreglunni í Hafnarfirði eru á staðnum og njóta aðstoðar sérsveitar Ríkislögreglustjóra. 14.9.2006 14:30
Röskun á flugi vegna veikinda áhafna Röskun hefur orðið á flugi á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar og höfuðborgarinnar og Egilsstaða í gær og í dag. Ástæðan er veikindi hjá áhöfnum. Að sögn Ingu Birnu Ragnarsdóttur, markaðsstjóra Flugfélags Íslands, þurfti að seinka flugi til Ísafjarðar í gær um eina og hálfa klukkustund og í morgun um fjórar klukkustundir, og sameina þurfti tvö flug til Egilsstaða í gærdag. 14.9.2006 14:15
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent