Fleiri fréttir Þreyttur og kaldur eftir hrakningar næturinnar Maðurinn, sem leitað var að í Skaftafelli frá því á hádegi í gær, var orðinn hrakinn, kaldur og svangur þegar björgunarmenn fundu hann á Skeiðarársandi í morgun. Hann fannst kl. 8 í morgun u.þ.b fimm kílómetra fyrir sunnan þjóðveginn á milli Skaftafellsár og Skeiðarár. 8.8.2006 12:30 Stígamót gagnrýna villandi fréttaflutning Stígamót gagnrýna villandi fréttaflutning helgarinnar í tengslum við sjónarmið samtakanna varðandi útihátíðarhald og kynferðisbrot. Samtökin ítreka að þau hafi boðið upp á þjónustu sína fyrir helgina til þess eins að tryggja að skortur á þjálfuðu starfsfólki kæmi ekki í veg fyrir að áfallahjálp væri í boði yfir verslunarmannahelgina. 8.8.2006 12:15 Alþjóðlegt skátamót sett í Perlunni Það fór lítið fyrir sólinni þegar 250 skátar komu saman við Perlunna í morgun þar sem alþjóðlegt skátamót var sett. Bandalag íslenskra skáta stendur fyrir mótinu sem haldið er hér á landi í þriðja sinn. Skátarnir eru á aldrinum 15-30 ára og koma frá tíu löndum, meðal annars frá Færeyjum og Hong Kong. Skátarnir munu fara í ferðir um landið næstu fjóra daga en skátarnir velja sér ferðir sem boðið verður upp á víða um land. Að ferðunum loknum munu skátarnir sameinast á ný á Úlfljótsvatni og dvelja þar í tvær nætur. 8.8.2006 11:42 Gistinóttum fjölgaði um 8% í júnímánuði Gistinóttum á hótelum í júní síðastliðnum fjölgaði um tæp 8% eða úr tæplega 124.000 133.000 frá því í sama mánuði á síðasta ári. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarðar eða um 17%. Fjölgun gistinátta er bæði meðal Íslendinga og útlendinga en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 22% en um 5% meðal útlendinga. 8.8.2006 10:15 Engir mótmælendur á Kárahnjúkasvæðinu Allt er nú með kyrrum kjörum á Kárahnjúkasvæðinu eftir mótmæli síðustu daga. Síðustu mótmælendurnir voru fluttir frá búðunum við Lindir í gær og niður á Egilsstaði. Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn á Egilsstöðum, segir að flutningur fólksins hafi gengið vandræðalaust fyrir sig en allur hópurinn, um tólf manns, var fluttur á Egilsstaði. Það eru því engar búðir við Lindir núna og segir Óskar að lögreglan muni fylgjast með hvort mótmælendur fari á Kárahnjúkasvæðið á ný til að mótmæla. Flestir mótmælandanna eru útlendingar og telur Óskar að þeir séu enn á Egilsstöðum eða nágrenni, en búnaður fólksins er enn í haldi lögreglunnar. 8.8.2006 09:45 Hátt á 200 fíkniefnamál komu upp um helgina Á annað hundrað fíkniefnamál komu til kasta lögreglu um verslunarmannahelgina, aðallega í tengslum við útihátíðir og lang flest á Akureyri. Búist er við að ekki séu öll kurl enn komin til grafar og fleiri mál eigi eftir að koma í ljós. Í mörgum tilvikum er um svonefnd smámál að ræða, eða að fólk hefur verið tekið með fíkniefni til einkaneyslu, en nokkur sölumál eru einnig í rannsókn og í tengslum við þau var hald lagt á talsvert af fíkniefnum. Lögregla hafði víða mjög mjög öflugt eftirlit með þessum málum og kann það að skýra fjölda mála að hluta. 8.8.2006 09:30 Aðeins 107 kaupsamningum þinglýst í síðustu viku Aðeins 107 kaupsamningum vegna íbúðakaupa var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku, sem er 28 samningum undir meðaltali síðustu tólf vikna. Meðaltalið hefur líka lækkað ört, eða úr 150 samningum fyrir þremur vikum niður í 135 núna. Húsnæðiskaupveltan var 2,7 milljaðrar og hefur aðeins mælst lægri í janúar og apríl, á árinu. Meðal upphæð samninga lækkaði lítillega í síðustu viku, frá 12 vikna meðaltalinu. 8.8.2006 09:15 Enn gestir í Vestmannaeyjum Slatti af þjóðhátíðargestum er enn í Vestmannaeyjum en búist er við að flestir eða allir komist heim í dag. Þar fór allt vel fram í gærkvöldi og í nótt. Það fóru heldur ekki allir gestir frá Akureyri í gærkvöldi og voru tveir þeirra handteknir í nótt grunaðir umm innbrot og jafnvel fleiri afbrot um helgina. 8.8.2006 09:00 Umferð gekk vel Þrátt fyrir mjög mikla umferð til höfuðborgarsvæðisins í gær og fram á kvöld, er ekki vitað til þess að neitt slys eða umtalsverð óhöpp hafi orðið. Að sögn lögreglumanna má vel við una, ekki síst í ljósi þess að margir bílar drógu tjaldvagna, fellihýsi eða hjólhýsi, sem ökumenn eru óvanir að hafa aftan í bílum sínum. Þrátt fyrir að umferðin væri alla jafnan róleg, stöðvaði lögreglan á Blönduósi fimmtíu ökumenn fyrir of hraðan akstur og í Vestur Skaftafellssýslu voru 80 stöðvaðir um helgina fyrir hraðakstur. 8.8.2006 08:45 Fannst á Skeiðarársandi Maðurinn, sem leitað var að í Skaftafelli frá því á hádegi í gær, fannst klukkan átta í morgun á Skeiðarársandi. Hann var þreyttur og hrakinn, en heill á húfi, þegar björgunarsvietarmenn á fjórhjólum óku fram á hann. Hann var ekki vel búin til útivistar, en rigning var á leitarsvæðinu í nótt. Hátt í 200 leitarmenn tóku þátt í leitinni ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar og sporhundum, en leitin var strax blásin af. Ekki liggur fyrir hvers vegna maðurinn yfirgaf tjaldstæðið við þjónustumiðstöðina í fyrrinótt. 8.8.2006 08:14 Kaupendur í betri stöðu en seljendur Seljendur fasteigna hafa þrýst á um hærra verð en fasteignasalar hafa ráðlagt. Vegna samdráttar í sölu seljast slíkar eignir síður. Fasteignasali segir fólk ekki selja langt undir verðmati. Það hætti frekar við og leigi út. 8.8.2006 08:00 Neituðu að greiða atkvæði Skipting menntaráðs Reykjavíkurborgar í tvennt með stofnun leikskólaráðs var afgreidd af fundi menntaráðs í gær. Minnihluti Samfylkingar og Vinstri grænna sat hjá við afgreiðsluna. 8.8.2006 08:00 Starfa undir eigin merkjum Marel hefur keypt danska matvælavélaframleiðandann Scanvaegt International á 109,2 milljónir evra, eða sem nemur tæplega 9,9 milljörðum íslenskra króna. 8.8.2006 07:45 Lífeyrissjóðir sýni félagslega ábyrgð Formaður Samfylkingar kallar eftir samfélagslegri ábyrgð lífeyrissjóða gegn misskiptingu í þjóðfélaginu. Stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna segir önnur markmið en skýr ávöxtunarsjónarmið vera lögbrot. 8.8.2006 07:45 Vexti á lánum þarf að lækka 8.8.2006 07:45 Ísland beiti áhrifum sínum Íslandsdeild Amnesty International sendi Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra áskorun á föstudaginn vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. 8.8.2006 07:45 Segir stjórnvöld undir þrýstingi bænda Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segir stjórnvöld óttast afnám verndartolla búvara enda þrýsti bændur á óbreytt kerfi. Mörg atkvæði séu í húfi. Landbúnaðarráðherra hafnar því og varar við auknum beingreiðslum til bænda. 8.8.2006 07:30 Aðstandendur eru sáttir Þótt veðurguðirnir hafi ekki verið í sínu besta skapi um helgina var gleðin mikil víðsvegar um landið. 8.8.2006 07:30 Látin áður en þyrlan kom Kona á fertugsaldri lét lífið í bílslysi á Suðurlandsvegi við Langastaði í Flóahreppi, um hálf eittleytið aðfaranótt mánudags. 8.8.2006 07:30 Hraðatakmarkandi búnaður skylda Lögbundið er að hafa hraðatakmarkandi búnað í vöruflutningabílum hérlendis sem hindrar það að þeir komist hraðar en á níutíu kílómetra hraða. Þetta segir Jón Magnús Pálsson, formaður Landssambands vörubifreiðastjóra. 8.8.2006 07:15 Ráðherra leyfi litað bensín Forráðamenn Atlantsolíu afhentu í gær Árna Mathiesen fjármálaráðherra áskorun þess efnis að heimilt verði að selja litað bensín á bensínstöðvum. Telja þeir þetta réttlætismál, sem gæti þýtt mikla kjarabót fyrir þá sem nota bensínknúin tæki sem ekki aka á vegakerfi landsins. 8.8.2006 07:15 Um þrjátíu bílar skemmdir Töluvert var um skemmdarverk á Akureyri í fyrrinótt. Þá voru rúður brotnar í um þrjátíu bílum í bænum aðfaranótt mánudags og rúða í íbúðarhúsi brotinn. 8.8.2006 07:00 Lögregla lokaði í gær búðum mótmælenda Fjórtán mótmælendur voru handteknir við Kárahnjúkavirkjun í fyrrinótt og tjaldbúðum mótmælenda við Snæfell hefur verið lokað. Íslandsvinir segja mikilvægt að lögregla hagi sér samkvæmt sínum vinnureglum. 8.8.2006 07:00 Þriðjungur fólks fær krabbamein á ævinni Einn af hverjum þremur fær krabbamein einhvern tíma á ævinni, að því er fram kemur í krabbameinsskrá. Fimm ára lífshorfur þeirra sem fá með krabbamein hafa tvöfaldast á fimmtíu árum. Helmingur allra sem greinast er eldri en 65 ára. 8.8.2006 07:00 Á lítið erindi inn á þing „Mér finnst sjálfsagt að hann reyni ef hann vill þetta á annað borð, en mér persónulega finnst hann eiga lítið erindi inn á þing,“ segir Andrés Jónsson formaður Ungra jafnaðarmanna, en hugsanlegt framboð Árna Johnsen, fyrrverandi alþingismanns, í prófkjör Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi hefur verið í umræðunni að undanförnu. 8.8.2006 07:00 Yfir hundrað fíkniefnamál Um 111 fíkniefnamál komu upp á landinu um helgina. Að sögn Guðmundar Guðjónssonar, yfirlögregluþjóns hjá Ríkislögreglustjóra, má búast við að talan hækki næstu daga, þar sem um bráðabirgðatölur er að ræða. 8.8.2006 06:30 Með fíkniefni í foreldrahúsum Tveir voru teknir fyrir helgi í heimahúsi í Reykjavík með áttatíu grömm af hassi og fjörutíu af hvítu efni, væntanlega amfetamíni. Einnig fundust peningar sem lögregluna grunar að hafi fengist með dópsölu. Annar mannanna er nítján og hinn 25 ára. 8.8.2006 06:30 Bílprófið ellefu daga gamalt Sautján ára piltur mældist á 141 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni við Stekkjarbakka um ellefuleytið á sunnudagskvöld. Leyfilegur hámarkshraði á þessum stað er sjötíu kílómetrar á klukkustund. Ökumaður framvísaði ökuskírteini sínu, sem var ellefu daga gamalt. 8.8.2006 06:15 Vitar á Norðausturlandi 8.8.2006 06:00 Slegin í andlitið og rænd Þrír tæplega tvítugir menn réðust á konu neðarlega á Laugaveginum aðfaranótt mánudags, slógu hana í andlitið og hrifsuðu af henni veski. 8.8.2006 06:00 Áhyggjur vegna þurrka Orkuverð í Noregi mun að öllum líkinum rjúka upp í haust þegar þarlendar vatnsaflsvirkjanir hafa ekki nægilega mikið vatn til að knýja rafala sökum mikilla þurrka undanfarið í Evrópu, að því er fram kemur í dagblaðinu Aftenposten. 8.8.2006 06:00 Mesta umferðin að norðan Samdóma álit lögreglumanna víðs vegar um landið er að umferðin hafi gengið vel í gær. Lögreglan í Reykjavík segir mikla umferð hafa legið til borgarinnar allan daginn, sem hafi tekið að þyngjast upp úr hádeginu. Vilhjálmur Stefánsson, lögreglumaður á Blönduósi, segir að góða veðrið fyrir norðan hafi augljóslega trekkt fólk að og veðrið í gær á Norðurlandi hafi orðið til þess að fólk var seinna á ferðinni. Lögreglan á Blönduósi stöðvaði um fimmtíu ökumenn í gær fyrir of hraðan akstur, en sá bíræfnasti ók á 149 kílómetra hraða. 8.8.2006 05:30 Björgunarsamstarf aukist Hlýnun jarðar, nýjar siglingaleiðir og breytingar á þjóðréttarsamningum voru meðal umræðuefna á þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál sem fram fór í Kiruna í Svíþjóð dagana 2.-4. ágúst. Íslensku þingmennirnir lögðu mikla áherslu á aukið samstarf á sviði leitar- og björgunarmála, vegna brotthvarfs varnarliðsins frá Íslandi og aukinna flutninga á olíu og gasi við Íslandsstrendur. 8.8.2006 05:00 Óþarfa afskipti af ferðafólki Náttúruverndarsamtök Íslands gagnrýna harðlega aðgerðir lögreglu gagnvart mótmælendum og öðru ferðafólki á Kárahnjúkum. Samtökin segja að í lýðræðisþjóðfélagi hafi fólk rétt á því að mótmæla með friðsamlegum hætti og eigi yfirvöld að sýna mótmælendum fulla virðingu. Lögreglan hefur ítrekað stöðvað ferðir fólks á svæðinu og leitað í bílum þess. 8.8.2006 04:30 Fór af tjaldsvæði um nóttina Óskað var eftir aðstoð björgunarsveita í gær við leit að 45 ára gömlum karlmanni í Skaftafelli. 8.8.2006 04:30 Sendi inn erindi um litað bensín Ólafur Tryggvason skemmtibátaeigandi sendi í maí erindi til umboðsmanns Alþingis, þar sem hann fór þess á leit að skoðað yrði af hverju sala á lituðu bensíni er ekki leyfð. Hann taldi ekki viðunandi að tveir eigendur báta, annar með bensínvél, en hinn með dísilvél, stæðu ekki jafnfætis hvað varðar eldsneytisgjöld. 8.8.2006 04:00 Fimm teknir með fíkniefni Um fimm þúsund manns gistu í Ásbyrgi aðfaranótt laugardags eftir tónleika Sigur Rósar. Talsverður erill var hjá lögreglunni á Húsavík vegna þessa. 8.8.2006 04:00 Eldri borgarar fá frítt í strætó Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur lýst sig reiðubúna til að taka við málefnum 67 ára og eldri frá ríkisvaldinu. 8.8.2006 04:00 Fer í fangelsi vegna kveikjara Sigurður Elísson þarf að sitja tvo daga í fangelsi borgi hann ekki 5.000 króna sekt fyrir að koma með gaskveikjara frá Aserbaídsjan til landsins. Hann hyggst ekki borga sektina. 8.8.2006 03:45 Fauk út af og velti bílnum Bíll valt á Tjörnesi í Suður-Þingeyjarsýslu um tvöleytið í fyrradag þegar hjólhýsi sem hann dró tókst á loft í miklu hvassviðri og splundraðist. 8.8.2006 03:30 Kona lést í bílslysi Kona á fertugsaldri lést í árekstri á Suðurlandsvegi austan við Selfoss um klukkan hálf eitt í nótt. Konan var undir stýri fólksbíls sem lenti í árekstri við jeppa sem kom úr gagnstæðri átt. 7.8.2006 09:58 Tjón upp á einn og hálfan milljarð Tjón á húsnæði vegna eldsvoða var metið á 1.640 milljónir króna á síðasta ári. Það er heldur yfir meðaltali síðustu ára á undan. Þetta kemur fram í ársskýrslu Brunamálastofnunar. Þar kemur jafnframt fram að einn týndi lífi í eldsvoða og er það nokkuð minna en í meðalári. 49 hafa látist í eldsvoðum frá árinu 1979, þrefalt fleiri karlar en konur. Flestir hafa látist í eldsvoðum á laugardegi, tólf talsins, en fæstir á þriðjudögum, eða tveir. 7.8.2006 20:00 Leitað að manni í Skaftafelli Lögregla og fjöldi björgunarsveitarmanna leita nú að karlmanni á fimmtugsaldri í Skaftafelli, sem ekkert hefur spurst til síðan um klukkan hálf þrjú í nótt. Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur sent um 80 björgunarsveitarmenn á staðinn og er að senda leitarhunda. Þá hefur fjöldi fólks af svæðinu tekið þátt í leitinni í dag. Þegar ljóst var að maðurinn væri ekki í eða við tjaldsvæðið í Skaftafelli var ákveðið að efla leitina. 7.8.2006 19:45 Meira en tíu þúsund manns á þremur stöðum Þrjár útihátíðir náðu líklega því marki að fá tíu þúsund gesti. Flestir voru á Akureyri en mikið fjölmenni var einnig í Vestmannaeyjum og á Unglingalandsmóti UMFÍ að Laugum. 7.8.2006 19:15 Náttúrusamtök Íslands gangrýna framgöngu lögreglu Lektor við Háskólann í Reykjavík segir að lögregla megi hafa afskipti af mótmælendum, hindra ferðir þeirra eða leita í vistarverum þeirra ef hún telur að af þeim geti stafað einhver ógn eða hætta. Náttúruverndarsamtök Íslands eru þessu ósammála. 7.8.2006 19:00 Sjá næstu 50 fréttir
Þreyttur og kaldur eftir hrakningar næturinnar Maðurinn, sem leitað var að í Skaftafelli frá því á hádegi í gær, var orðinn hrakinn, kaldur og svangur þegar björgunarmenn fundu hann á Skeiðarársandi í morgun. Hann fannst kl. 8 í morgun u.þ.b fimm kílómetra fyrir sunnan þjóðveginn á milli Skaftafellsár og Skeiðarár. 8.8.2006 12:30
Stígamót gagnrýna villandi fréttaflutning Stígamót gagnrýna villandi fréttaflutning helgarinnar í tengslum við sjónarmið samtakanna varðandi útihátíðarhald og kynferðisbrot. Samtökin ítreka að þau hafi boðið upp á þjónustu sína fyrir helgina til þess eins að tryggja að skortur á þjálfuðu starfsfólki kæmi ekki í veg fyrir að áfallahjálp væri í boði yfir verslunarmannahelgina. 8.8.2006 12:15
Alþjóðlegt skátamót sett í Perlunni Það fór lítið fyrir sólinni þegar 250 skátar komu saman við Perlunna í morgun þar sem alþjóðlegt skátamót var sett. Bandalag íslenskra skáta stendur fyrir mótinu sem haldið er hér á landi í þriðja sinn. Skátarnir eru á aldrinum 15-30 ára og koma frá tíu löndum, meðal annars frá Færeyjum og Hong Kong. Skátarnir munu fara í ferðir um landið næstu fjóra daga en skátarnir velja sér ferðir sem boðið verður upp á víða um land. Að ferðunum loknum munu skátarnir sameinast á ný á Úlfljótsvatni og dvelja þar í tvær nætur. 8.8.2006 11:42
Gistinóttum fjölgaði um 8% í júnímánuði Gistinóttum á hótelum í júní síðastliðnum fjölgaði um tæp 8% eða úr tæplega 124.000 133.000 frá því í sama mánuði á síðasta ári. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarðar eða um 17%. Fjölgun gistinátta er bæði meðal Íslendinga og útlendinga en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 22% en um 5% meðal útlendinga. 8.8.2006 10:15
Engir mótmælendur á Kárahnjúkasvæðinu Allt er nú með kyrrum kjörum á Kárahnjúkasvæðinu eftir mótmæli síðustu daga. Síðustu mótmælendurnir voru fluttir frá búðunum við Lindir í gær og niður á Egilsstaði. Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn á Egilsstöðum, segir að flutningur fólksins hafi gengið vandræðalaust fyrir sig en allur hópurinn, um tólf manns, var fluttur á Egilsstaði. Það eru því engar búðir við Lindir núna og segir Óskar að lögreglan muni fylgjast með hvort mótmælendur fari á Kárahnjúkasvæðið á ný til að mótmæla. Flestir mótmælandanna eru útlendingar og telur Óskar að þeir séu enn á Egilsstöðum eða nágrenni, en búnaður fólksins er enn í haldi lögreglunnar. 8.8.2006 09:45
Hátt á 200 fíkniefnamál komu upp um helgina Á annað hundrað fíkniefnamál komu til kasta lögreglu um verslunarmannahelgina, aðallega í tengslum við útihátíðir og lang flest á Akureyri. Búist er við að ekki séu öll kurl enn komin til grafar og fleiri mál eigi eftir að koma í ljós. Í mörgum tilvikum er um svonefnd smámál að ræða, eða að fólk hefur verið tekið með fíkniefni til einkaneyslu, en nokkur sölumál eru einnig í rannsókn og í tengslum við þau var hald lagt á talsvert af fíkniefnum. Lögregla hafði víða mjög mjög öflugt eftirlit með þessum málum og kann það að skýra fjölda mála að hluta. 8.8.2006 09:30
Aðeins 107 kaupsamningum þinglýst í síðustu viku Aðeins 107 kaupsamningum vegna íbúðakaupa var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku, sem er 28 samningum undir meðaltali síðustu tólf vikna. Meðaltalið hefur líka lækkað ört, eða úr 150 samningum fyrir þremur vikum niður í 135 núna. Húsnæðiskaupveltan var 2,7 milljaðrar og hefur aðeins mælst lægri í janúar og apríl, á árinu. Meðal upphæð samninga lækkaði lítillega í síðustu viku, frá 12 vikna meðaltalinu. 8.8.2006 09:15
Enn gestir í Vestmannaeyjum Slatti af þjóðhátíðargestum er enn í Vestmannaeyjum en búist er við að flestir eða allir komist heim í dag. Þar fór allt vel fram í gærkvöldi og í nótt. Það fóru heldur ekki allir gestir frá Akureyri í gærkvöldi og voru tveir þeirra handteknir í nótt grunaðir umm innbrot og jafnvel fleiri afbrot um helgina. 8.8.2006 09:00
Umferð gekk vel Þrátt fyrir mjög mikla umferð til höfuðborgarsvæðisins í gær og fram á kvöld, er ekki vitað til þess að neitt slys eða umtalsverð óhöpp hafi orðið. Að sögn lögreglumanna má vel við una, ekki síst í ljósi þess að margir bílar drógu tjaldvagna, fellihýsi eða hjólhýsi, sem ökumenn eru óvanir að hafa aftan í bílum sínum. Þrátt fyrir að umferðin væri alla jafnan róleg, stöðvaði lögreglan á Blönduósi fimmtíu ökumenn fyrir of hraðan akstur og í Vestur Skaftafellssýslu voru 80 stöðvaðir um helgina fyrir hraðakstur. 8.8.2006 08:45
Fannst á Skeiðarársandi Maðurinn, sem leitað var að í Skaftafelli frá því á hádegi í gær, fannst klukkan átta í morgun á Skeiðarársandi. Hann var þreyttur og hrakinn, en heill á húfi, þegar björgunarsvietarmenn á fjórhjólum óku fram á hann. Hann var ekki vel búin til útivistar, en rigning var á leitarsvæðinu í nótt. Hátt í 200 leitarmenn tóku þátt í leitinni ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar og sporhundum, en leitin var strax blásin af. Ekki liggur fyrir hvers vegna maðurinn yfirgaf tjaldstæðið við þjónustumiðstöðina í fyrrinótt. 8.8.2006 08:14
Kaupendur í betri stöðu en seljendur Seljendur fasteigna hafa þrýst á um hærra verð en fasteignasalar hafa ráðlagt. Vegna samdráttar í sölu seljast slíkar eignir síður. Fasteignasali segir fólk ekki selja langt undir verðmati. Það hætti frekar við og leigi út. 8.8.2006 08:00
Neituðu að greiða atkvæði Skipting menntaráðs Reykjavíkurborgar í tvennt með stofnun leikskólaráðs var afgreidd af fundi menntaráðs í gær. Minnihluti Samfylkingar og Vinstri grænna sat hjá við afgreiðsluna. 8.8.2006 08:00
Starfa undir eigin merkjum Marel hefur keypt danska matvælavélaframleiðandann Scanvaegt International á 109,2 milljónir evra, eða sem nemur tæplega 9,9 milljörðum íslenskra króna. 8.8.2006 07:45
Lífeyrissjóðir sýni félagslega ábyrgð Formaður Samfylkingar kallar eftir samfélagslegri ábyrgð lífeyrissjóða gegn misskiptingu í þjóðfélaginu. Stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna segir önnur markmið en skýr ávöxtunarsjónarmið vera lögbrot. 8.8.2006 07:45
Ísland beiti áhrifum sínum Íslandsdeild Amnesty International sendi Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra áskorun á föstudaginn vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. 8.8.2006 07:45
Segir stjórnvöld undir þrýstingi bænda Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segir stjórnvöld óttast afnám verndartolla búvara enda þrýsti bændur á óbreytt kerfi. Mörg atkvæði séu í húfi. Landbúnaðarráðherra hafnar því og varar við auknum beingreiðslum til bænda. 8.8.2006 07:30
Aðstandendur eru sáttir Þótt veðurguðirnir hafi ekki verið í sínu besta skapi um helgina var gleðin mikil víðsvegar um landið. 8.8.2006 07:30
Látin áður en þyrlan kom Kona á fertugsaldri lét lífið í bílslysi á Suðurlandsvegi við Langastaði í Flóahreppi, um hálf eittleytið aðfaranótt mánudags. 8.8.2006 07:30
Hraðatakmarkandi búnaður skylda Lögbundið er að hafa hraðatakmarkandi búnað í vöruflutningabílum hérlendis sem hindrar það að þeir komist hraðar en á níutíu kílómetra hraða. Þetta segir Jón Magnús Pálsson, formaður Landssambands vörubifreiðastjóra. 8.8.2006 07:15
Ráðherra leyfi litað bensín Forráðamenn Atlantsolíu afhentu í gær Árna Mathiesen fjármálaráðherra áskorun þess efnis að heimilt verði að selja litað bensín á bensínstöðvum. Telja þeir þetta réttlætismál, sem gæti þýtt mikla kjarabót fyrir þá sem nota bensínknúin tæki sem ekki aka á vegakerfi landsins. 8.8.2006 07:15
Um þrjátíu bílar skemmdir Töluvert var um skemmdarverk á Akureyri í fyrrinótt. Þá voru rúður brotnar í um þrjátíu bílum í bænum aðfaranótt mánudags og rúða í íbúðarhúsi brotinn. 8.8.2006 07:00
Lögregla lokaði í gær búðum mótmælenda Fjórtán mótmælendur voru handteknir við Kárahnjúkavirkjun í fyrrinótt og tjaldbúðum mótmælenda við Snæfell hefur verið lokað. Íslandsvinir segja mikilvægt að lögregla hagi sér samkvæmt sínum vinnureglum. 8.8.2006 07:00
Þriðjungur fólks fær krabbamein á ævinni Einn af hverjum þremur fær krabbamein einhvern tíma á ævinni, að því er fram kemur í krabbameinsskrá. Fimm ára lífshorfur þeirra sem fá með krabbamein hafa tvöfaldast á fimmtíu árum. Helmingur allra sem greinast er eldri en 65 ára. 8.8.2006 07:00
Á lítið erindi inn á þing „Mér finnst sjálfsagt að hann reyni ef hann vill þetta á annað borð, en mér persónulega finnst hann eiga lítið erindi inn á þing,“ segir Andrés Jónsson formaður Ungra jafnaðarmanna, en hugsanlegt framboð Árna Johnsen, fyrrverandi alþingismanns, í prófkjör Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi hefur verið í umræðunni að undanförnu. 8.8.2006 07:00
Yfir hundrað fíkniefnamál Um 111 fíkniefnamál komu upp á landinu um helgina. Að sögn Guðmundar Guðjónssonar, yfirlögregluþjóns hjá Ríkislögreglustjóra, má búast við að talan hækki næstu daga, þar sem um bráðabirgðatölur er að ræða. 8.8.2006 06:30
Með fíkniefni í foreldrahúsum Tveir voru teknir fyrir helgi í heimahúsi í Reykjavík með áttatíu grömm af hassi og fjörutíu af hvítu efni, væntanlega amfetamíni. Einnig fundust peningar sem lögregluna grunar að hafi fengist með dópsölu. Annar mannanna er nítján og hinn 25 ára. 8.8.2006 06:30
Bílprófið ellefu daga gamalt Sautján ára piltur mældist á 141 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni við Stekkjarbakka um ellefuleytið á sunnudagskvöld. Leyfilegur hámarkshraði á þessum stað er sjötíu kílómetrar á klukkustund. Ökumaður framvísaði ökuskírteini sínu, sem var ellefu daga gamalt. 8.8.2006 06:15
Slegin í andlitið og rænd Þrír tæplega tvítugir menn réðust á konu neðarlega á Laugaveginum aðfaranótt mánudags, slógu hana í andlitið og hrifsuðu af henni veski. 8.8.2006 06:00
Áhyggjur vegna þurrka Orkuverð í Noregi mun að öllum líkinum rjúka upp í haust þegar þarlendar vatnsaflsvirkjanir hafa ekki nægilega mikið vatn til að knýja rafala sökum mikilla þurrka undanfarið í Evrópu, að því er fram kemur í dagblaðinu Aftenposten. 8.8.2006 06:00
Mesta umferðin að norðan Samdóma álit lögreglumanna víðs vegar um landið er að umferðin hafi gengið vel í gær. Lögreglan í Reykjavík segir mikla umferð hafa legið til borgarinnar allan daginn, sem hafi tekið að þyngjast upp úr hádeginu. Vilhjálmur Stefánsson, lögreglumaður á Blönduósi, segir að góða veðrið fyrir norðan hafi augljóslega trekkt fólk að og veðrið í gær á Norðurlandi hafi orðið til þess að fólk var seinna á ferðinni. Lögreglan á Blönduósi stöðvaði um fimmtíu ökumenn í gær fyrir of hraðan akstur, en sá bíræfnasti ók á 149 kílómetra hraða. 8.8.2006 05:30
Björgunarsamstarf aukist Hlýnun jarðar, nýjar siglingaleiðir og breytingar á þjóðréttarsamningum voru meðal umræðuefna á þingmannaráðstefnu um norðurskautsmál sem fram fór í Kiruna í Svíþjóð dagana 2.-4. ágúst. Íslensku þingmennirnir lögðu mikla áherslu á aukið samstarf á sviði leitar- og björgunarmála, vegna brotthvarfs varnarliðsins frá Íslandi og aukinna flutninga á olíu og gasi við Íslandsstrendur. 8.8.2006 05:00
Óþarfa afskipti af ferðafólki Náttúruverndarsamtök Íslands gagnrýna harðlega aðgerðir lögreglu gagnvart mótmælendum og öðru ferðafólki á Kárahnjúkum. Samtökin segja að í lýðræðisþjóðfélagi hafi fólk rétt á því að mótmæla með friðsamlegum hætti og eigi yfirvöld að sýna mótmælendum fulla virðingu. Lögreglan hefur ítrekað stöðvað ferðir fólks á svæðinu og leitað í bílum þess. 8.8.2006 04:30
Fór af tjaldsvæði um nóttina Óskað var eftir aðstoð björgunarsveita í gær við leit að 45 ára gömlum karlmanni í Skaftafelli. 8.8.2006 04:30
Sendi inn erindi um litað bensín Ólafur Tryggvason skemmtibátaeigandi sendi í maí erindi til umboðsmanns Alþingis, þar sem hann fór þess á leit að skoðað yrði af hverju sala á lituðu bensíni er ekki leyfð. Hann taldi ekki viðunandi að tveir eigendur báta, annar með bensínvél, en hinn með dísilvél, stæðu ekki jafnfætis hvað varðar eldsneytisgjöld. 8.8.2006 04:00
Fimm teknir með fíkniefni Um fimm þúsund manns gistu í Ásbyrgi aðfaranótt laugardags eftir tónleika Sigur Rósar. Talsverður erill var hjá lögreglunni á Húsavík vegna þessa. 8.8.2006 04:00
Eldri borgarar fá frítt í strætó Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur lýst sig reiðubúna til að taka við málefnum 67 ára og eldri frá ríkisvaldinu. 8.8.2006 04:00
Fer í fangelsi vegna kveikjara Sigurður Elísson þarf að sitja tvo daga í fangelsi borgi hann ekki 5.000 króna sekt fyrir að koma með gaskveikjara frá Aserbaídsjan til landsins. Hann hyggst ekki borga sektina. 8.8.2006 03:45
Fauk út af og velti bílnum Bíll valt á Tjörnesi í Suður-Þingeyjarsýslu um tvöleytið í fyrradag þegar hjólhýsi sem hann dró tókst á loft í miklu hvassviðri og splundraðist. 8.8.2006 03:30
Kona lést í bílslysi Kona á fertugsaldri lést í árekstri á Suðurlandsvegi austan við Selfoss um klukkan hálf eitt í nótt. Konan var undir stýri fólksbíls sem lenti í árekstri við jeppa sem kom úr gagnstæðri átt. 7.8.2006 09:58
Tjón upp á einn og hálfan milljarð Tjón á húsnæði vegna eldsvoða var metið á 1.640 milljónir króna á síðasta ári. Það er heldur yfir meðaltali síðustu ára á undan. Þetta kemur fram í ársskýrslu Brunamálastofnunar. Þar kemur jafnframt fram að einn týndi lífi í eldsvoða og er það nokkuð minna en í meðalári. 49 hafa látist í eldsvoðum frá árinu 1979, þrefalt fleiri karlar en konur. Flestir hafa látist í eldsvoðum á laugardegi, tólf talsins, en fæstir á þriðjudögum, eða tveir. 7.8.2006 20:00
Leitað að manni í Skaftafelli Lögregla og fjöldi björgunarsveitarmanna leita nú að karlmanni á fimmtugsaldri í Skaftafelli, sem ekkert hefur spurst til síðan um klukkan hálf þrjú í nótt. Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur sent um 80 björgunarsveitarmenn á staðinn og er að senda leitarhunda. Þá hefur fjöldi fólks af svæðinu tekið þátt í leitinni í dag. Þegar ljóst var að maðurinn væri ekki í eða við tjaldsvæðið í Skaftafelli var ákveðið að efla leitina. 7.8.2006 19:45
Meira en tíu þúsund manns á þremur stöðum Þrjár útihátíðir náðu líklega því marki að fá tíu þúsund gesti. Flestir voru á Akureyri en mikið fjölmenni var einnig í Vestmannaeyjum og á Unglingalandsmóti UMFÍ að Laugum. 7.8.2006 19:15
Náttúrusamtök Íslands gangrýna framgöngu lögreglu Lektor við Háskólann í Reykjavík segir að lögregla megi hafa afskipti af mótmælendum, hindra ferðir þeirra eða leita í vistarverum þeirra ef hún telur að af þeim geti stafað einhver ógn eða hætta. Náttúruverndarsamtök Íslands eru þessu ósammála. 7.8.2006 19:00