Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flúðu á ofsahraða undan lögreglu Lögreglan í Borgarnesi leitar bifhjólamanns, sem mældist á yfir 200 kílómetra hraða skammt frá bænum, í fyrrinótt og stakk af. Fjöldi mótorhjóla hefur nær tvöfaldast á einu og hálfu ári og nýjum bifhjólamönnum um rösklega fimmtán hundruð. 29.7.2006 12:04
Hass í Kópavogi Lögreglan í Kópavogi lagði í nótt hald á nokkrar kannabisplöntur, sem hún fann við leit í íbúð í bænum. Jafnframt fannst þar talsvert af laufi, sem var í vinnslu. Þrír menn voru handteknir við rannsókn málsins en þeir voru látnir lausir að yfirheyrslum loknum. Grunur leikur á að afurðir úr ræktuninni hafi verið ætlaðar til sölu. 29.7.2006 10:18
Virti ekki biðskyldu Fernt var flutt á Slysadeild Landsspítalans eftir mjög harðan árekstur á mótum Hafnarfjarðarvegar og Álftanesvegar laust eftir miðnætti, þar sem tveir bílar lentu saman. Enginn slasaðist þó alvarlega, en bílarnir munu báðir vera ónýtir. Ökumaður annars bílsins virti ekki biðskyldu og ók í veg fyrir hinn, með þessum afleiðingum. 29.7.2006 10:01
Hópslagsmál á Selfossi Tveir menn liggja á sjúkrahúsi og fimm gista fangageymslur lögreglunnar á Selfossi eftir heiftarleg hópslagsmál, sem brutust út fyrir utan heimili þeirra slösuðu í nótt, þar sem meðal annars var beitt keðjum og bareflum. 29.7.2006 09:57
Fischer berst við svissneskan banka Íslendingurinn og stórmeistarinn Bobby Fischer stendur í deilum við svissneska bankann Union Bank of Switzerland. Bankinn hefur lokað reikningi hans en á honum voru um þrjár milljónir dollara eða 210 milljónir króna. 29.7.2006 09:52
Enginn að vinna að rannsókn á samráði Eini starfsmaður ríkissaksóknara sem vinnur að rannsókn á samráði olíufélaganna er í sumarfríi og liggur vinna við rannsóknina því niðri til 21. ágúst. Kröfu um heimildir til fleiri vinnustunda við málið var hafnað af kjaranefnd. 29.7.2006 09:00
Skattgreiðendur sjö þúsund fleiri en 2005 Metfjölgun skattgreiðenda á síðasta ári stafar aðallega af vaxandi fjölda erlends vinnuafls hér á landi. Sjö af tíu gjaldhæstu einstaklingum landsins búa í Reykjavík. Skattskrár eru öllum aðgengilegar til 11. ágúst næstkomandi. 29.7.2006 09:00
Svartir sauðir sem ekki láta sér segjast Þremur vélhjólum var ekið á ofsahraða um götur borgarinnar í fyrrakvöld. Sama kvöld hélt vélhjólafólk minningarathöfn um einn þriggja látinna vélhjólamanna á árinu. Prestur og vélhjólamaður kallar athæfið hryðjuverk. 29.7.2006 08:45
Vöknuðu við óboðinn gest Hjón á Seltjarnarnesi vöknuðu við það í fyrrinótt að maður þeim alls ótengdur var að sniglast um í svefnherbergi þeirra. 29.7.2006 08:30
Sakaðir um blekkingarleik Osta- og smjörsalan hefur sakað Mjólku um að herma eftir umbúðum fetaosts fyrirtækisins og krefst þess að Mjólka hætti sölu síns fetaosts án tafar. 29.7.2006 08:30
Á þriðja þúsund fá ekki háskólavist Háskólar landsins anna ekki eftirspurn og bekkjardeildir í nokkrum háskólum eru fullsetnar. Listaháskóli Íslands, Kennaraháskólinn og Háskólinn í Reykjavík vísa langflestum nemendum frá, jafnvel þótt fólk uppfylli öll inntökuskilyrði. 29.7.2006 08:30
Greiðir rúmar 170 milljónir Álagning Arngrímur Jóhannsson flugmaður, oft kenndur við flugfélagið Atlanta, er sá einstaklingur sem greiðir hæst opinber gjöld árið 2006. Samtals greiðir hann tæpa 171 milljón króna í tekjuskatt og útsvar. 29.7.2006 08:15
Unnið eins hratt og kostur er Fátækt og úrræðaleysi einkenna aðstæður margra geðfatlaðra, að sögn Auðar Styrkársdóttur, talsmanns aðstandendahóps geðfatlaðra. Nú er búið að gera stórátak í búsetumálum fatlaðra en geðfatlaðir sitja eftir. 29.7.2006 08:15
Féll á hliðina Vörubíll valt á hliðina í Bakkabakka á Norðfirði um hádegisbil í gær. Var verið að hífa byggingarefni af palli bílsins og varð þunginn til þess að hann valt. 29.7.2006 08:00
Túnið rafvætt fyrir Sigur Rós Rafmagnskaplar hafa verið grafnir niður í göngustíga á Klambratúni til að sjá tónleikum Sigur Rósar á morgun fyrir rafmagni. Að sögn Svanhildar Konráðsdóttur, forstöðumanns Höfuðborgarstofu, munu rafmagnskaplarnir verða í túninu um ókomna tíð. Þannig sé þeim möguleika haldið opnum að fleiri hljómsveitir geti haldið tónleika á svæðinu á komandi árum. 29.7.2006 08:00
Biðlistar eru á öllum leikskólum Nemendur við Háskóla Íslands sem eiga börn eru í miklum vandræðum með að koma þeim fyrir á leikskólum Félagsstofnunar stúdenta. Stofnunin rekur þrjá leikskóla og tekur við rekstri eins, Leikgarðs, hinn 1. september næstkomandi. Þá verður rekstri leikskólans við Efrihlíð hætt svo leikskólar stofnunarinnar verða enn þrír. 29.7.2006 08:00
Ný brú skapar aukið öryggi Ferðafélag Íslands vígði á fimmtudagskvöld nýja brú yfir ána Farið sem er til móts við Einifellið um einn og hálfan kílómetra í suðvestur frá skála félagsins. 29.7.2006 07:45
Lýsir yfir miklum áhyggjum Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra hefur skrifað Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, bréf þar sem hún lýsir yfir áhyggjum af ástandinu í Líbanon. Hvetur hún Ísraelsstjórn til að leita leiða til að binda enda á átökin strax. 29.7.2006 07:45
Tengivagnar verði bannaðir Tengivagnar ættu að vera bannaðir við olíu- og vöruflutninga, að mati Guðmundar Hallvarðssonar, formanns samgöngunefndar Alþingis. Þetta verðum við að gera þar til vegakerfið er komið í staðlað form, og vegirnir verða sjö og hálfs metra breiðir, segir Guðmundur. Ef sjóflutningar lognast af verður að stoppa þessi ósköp þar til vegakerfið er komið í lag. 29.7.2006 07:30
Frumvarp um endurgreiðslur Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra ætlar að leggja fram frumvarp þegar Alþingi kemur saman í haust til að leiðrétta þær skerðingar sem orðið hafa á vaxtabótum. 29.7.2006 07:30
Reynir að nota falsaðar evrur Lögreglan í Reykjavík varar við erlendum karlmanni sem reynt hefur að koma fölsuðum evrum í umferð. Maðurinn talar bjagaða ensku, er lágvaxinn, dökkur yfirlitum og líklega með gleraugu. Til hans hefur bæði sést við BSÍ í Reykjavík og í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði. 29.7.2006 07:15
Blaðið borið út að nóttu til fréttablaðið Miklar breytingar verða gerðar á dreifikerfi Fréttablaðsins á næstunni. Á höfuðborgarsvæðinu verður blaðið nú borið út á nóttunni en ekki milli sex og sjö að morgni eins og nú. Talsverð uppstokkun verður í blaðberahópnum á þeim svæðum sem þessar breytingar ná til þar sem bannað er að ráða unglinga til starfa um nætur. 29.7.2006 07:00
Líkamsárás og flugeldaskot Rúmlega þrítugur maður hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og var málið var þingfest í Héraðsdómi Vesturlands í gær. 29.7.2006 07:00
Ekki ákveðið með áfrýjun Stjórn Og Vodafone hefur ekki enn ákveðið hvort úrskurði Póst- og fjarskiptastofnunar um skyldulækkun á lúkningagjöldum verði áfrýjað. Póst- og fjarskiptastofnun hefur skyldað farsímafélögin til þess að lækka lúkningagjöld niður í 7,49 krónur á mínútu fyrir 1. júní 2008. Lækkunin verður í fjórum þrepum og er fyrsta lækkunin 1. september næstkomandi. 29.7.2006 06:45
Sprungur á virkjanasvæðinu Sprungubeltið við Kárahnjúka liggur nær framkvæmdasvæðinu en áður var talið, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar á framkvæmdasvæðinu. Fyrir framkvæmdirnar var það talið liggja tólf kílómetrum vestan við Kárahnjúkastíflu. Stíflan þolir jarðskjálfta upp á 6,2 á Richter-kvarða samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun, en ekki var talin ástæða til þess að bregðast sérstaklega við niðurstöðum rannsóknanna. 29.7.2006 06:45
Slasaðist þegar bíll lenti á tré Stúlka um tvítugt var flutt slösuð á Landspítalann í Fossvogi á öðrum tímanum í fyrrinótt eftir að bíl var ekið upp á hringtorg á gatnamótum Hringbrautar og Suðurgötu með þeim afleiðingum að hann hafnaði á tré. 29.7.2006 06:00
Ferðamenn fari varlega Mikill straumur ferðamanna í friðlandinu Kringilsárrana og á Eyjabökkum gæti ógnað viðkvæmu dýralífi sem þar er. Ferðamenn sem þarna eiga leið um verða að sýna ítrustu varkárni í umgengni sinni um friðlöndin. 28.7.2006 22:28
Lokuð flugbraut Stærsta flugfélag Spánar, Iberia, þurfti í dag að fresta öllu áætlunarflugi til Barselóna þar sem 2000 starfsmenn flugvallarins lokuðu einni flugbrautinni á öðrum stærsta flugvelli Spánar. 28.7.2006 22:21
Hlægilegar ásakanir Osta og Smjörsalan segir Mjólku brjóta lög með því að setja á markað eftirlíkingar af hinum vinsæla Feta osti -- Osta og Smjörsölunnar. Ólafur Magnússon forstjóri Mjólku segir ásakanirnar hlægilegar. 28.7.2006 22:17
Vilja skapa frið Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundar í næstu viku um aðgerðaáætlun til að stöðva átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. Bush Bandaríkjaforseti segir ráðið muni leggja stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna til grunns að aðgerðunum og eggja allar þjóðir til að taka þátt í að skapa frið. 28.7.2006 22:10
Tæring í akkeri Neðansjávarfornleifafræðingar Hólarannsóknarinnar sem hafa stundað rannsóknir sínar í og utan við ósa Kolku undanfarna daga telja ekki óhætt að lyfta akkeri sem þar fannst í gær og koma því á land fyrr en á mánudag. 28.7.2006 21:21
Finnur leiguhúsnæði um allan heim Íslenski leitarvefurinn www.evesta.is var nýlega opnaður. Vefurinn finnur skammtíma húsnæði um allan heim. Hægt er að tryggja sér gististað í fríinu áður en haldið er á vit ævintýranna. 28.7.2006 18:52
Segjast ekki eiga í deilum Formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra segir félagið ekki eiga í deilum við Flugmálastjórn, deilum hafi lokið með dómi félagsdóms. Hann segir félagsmenn vinna eftir vaktatöflu sem neytt var upp á þá og þannig hafi velvilji flugumferðastjóra minnkað. 28.7.2006 18:45
Úrvalsvísitalan hríðlækkar Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni hefur hrunið síðustu fimm mánuði, eftir stöðuga hækkun undanfarin misseri. Eftir meira en helmingshækkun undanfarin tvö ár og snarpa uppsveiflu í byrjun ársins hefur hún lækkað um fjórðung síðan í febrúar. 28.7.2006 18:45
Spóla í hringi á Selfossi Nokkuð hefur borið á því að ungir ökumenn á Selfossi noti Austurveg, sem er þjóðvegur eitt, til að reyna kerrur sínar og spóla í hringi með miklum reyk og látum. Lögreglan hefur þegar náð einum þeirra á myndband og sent hann aftur í ökupróf, einnig má hann búast við sektum. 28.7.2006 18:10
Ungir sjálfstæðismenn verja skattaupplýsingar Ungir Sjálfstæðismenn reyndu að koma í veg fyrir að fólk skoðaði skattskrána á skrifstofu Skattstjórans í Reykjavík í dag, þegar álagning skatta á landsmenn var gerð opinber. Í ályktun sem stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna sendi frá sér í dag er talað um opinberun gagnanna sem ósóma. 28.7.2006 17:15
Ægisdyr vilja frekari rannsóknir á jarðgöngum til Vestmannaeyja Ný skýrsla á vegum Ægisdyra metur kostnað við göng milli lands og Eyja tugum milljörðum lægra en nefnd samgönguráðuneytisins. Formaður Ægisdyra vill að jarðgöngum verði haldið uppi á borðinu þar til frekari rannsóknir hafa verið framkvæmdar. 28.7.2006 17:00
Íslensk stjórnvöld vilja tafarlaust vopnahlé í Líbanon Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, hefur í dag ritað Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, bréf þar sem hún lýsir yfir áhyggjum af ástandinu í Líbanon. Hún segir það viðhorf íslenskra stjórnvalda að gerð verði tafarlaus krafa um vopnahlé og eyðileggingu Líbanons hætt. 28.7.2006 15:49
Tveir bifhjólamenn teknir á yfir 140 km hraða Tuttugu og einn ökumaður var tekinn fyrir hraðakstur í Reykjavík á síðasta sólarhring. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að í þeim hópi hafi verið tveir bifhjólamenn sem óku á yfir 140 km hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 60 km. Ekki þurfi að hafa mörg orð um svona akstursmáta sem sé stórhættulegur. Bifhjólamenn héldu baráttufund í Laugardalshöll í gærkvöldi en þrír úr þeirra röðum hafa dáið í umferðarslysum á árinu. Lögreglan segir það því kaldhæðni örlaganna að lögreglan skuli stöðva för tveggja bifhjólamanna fyrir ofsaakstur, nokkru eftir að fyrrnefndum fundi lauk. Lögreglan tekur þó fram að meginþorri bifhjólamanna sé til fyrirmyndar og virði umferðarlög. En eins og oft vilji vera sé misjafn sauður í mörgu fé og þeir setji blett á allan hópinn. 28.7.2006 15:00
Hæsta íbúðarhús á Íslandi mun rísa í vetur Framkvæmdir eru hafnar við hæsta íbúðarhús landsins við Skúlagötu í Reykjavík. Jarðvegsvinna er hafin við annan áfanga Skuggahverfisins, en fimm fjölbýlishús verða byggð í þessum áfanga. Það hæsta verður 62 metrar á hæð og 20 hæðir. Húsin verða svipuð þeim sem þegar hafa risið í Skuggahverfinu. Á hverri hæð verða um tvær stórar íbúðir með mikilli lofthæð. Útsýni úr íbúðunum verður með því besta sem gerist hér á landi. Sala á íbúðum þessa áfanga hefst ekki fyrr en á næsta ári en þegar hefur orðið vart við mikinn áhuga á þeim. Félagið 101 Skuggahverfi áætlar einnig að hefjast handa við þriðja áfanga Skuggahverfisins innan næstu tveggja ára. 28.7.2006 13:00
Samgönguráðherra mun skoða nýja skýrslu um jarðgöng til Eyja Samgönguráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna nýrrar skýrslu um jarðgöng til Vestmannaeyja sem unnin var fyrir Ægisdyr, félag áhugamanna um jarðgöng milli lands og Eyja, og var birt í gær. Samgönguráðuneytið vill taka fram að unnið sé að framtíðarlausnum í samgöngumálum Vestmannaeyja o skýrsla Ægisdyra verði skoðuð. 28.7.2006 12:49
Vinstri grænir skora á stjórnvöld Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs skorar á íslensk stjórnvöld að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að stöðva frekari manndráp og eyðileggingu í Líbanon. 28.7.2006 12:30
Fjármálaráðherra ætlar að leiðrétta vaxtabætur Árni Matthiesen, fjármálaráðherra, sagði í samtali við NFS rétt fyrir hádegi, að hann myndi leggja fram frumvarp á Alþingi í haust, til að leiðrétta þær skerðingar sem orðið hafa á vaxtabótum. 28.7.2006 12:06
Fundu skreyttan kamb frá sturlungaöld Skreyttur kambur frá sturlungaöld fannst við fornleifauppgröft í Kolkuósi í Skagafirði í gær. Kamburinn er afar heillegur, tvöfaldur og settur saman með bronsnöglum en að öðru leyti gerður úr beini. Á honum er hringlaga skreyting sem er dæmigerð fyrir skreytilist 13. aldar. 28.7.2006 12:04
Greiða yfir 40 milljónir króna í opinber gjöld Tuttugu og þrír Reykvíkingar greiða yfir 40 milljónir króna hver í opinber gjöld. Mest greiðir Ármann Ármannsson útgerðarmaður Helgu RE, rúmar 160 milljónir, sem að meðstu mun mega rekja til söluhagnaðar af skipi og kvóta. 28.7.2006 11:18