Fleiri fréttir Fleiri stelpur hafa sofið hjá Í rannsókn sem gerð var á heilsu og lífskjörum skólabarna nú í vor kemur í ljós að 32,4 prósent unglinga í 10. bekk hafa haft samfarir. Þetta hlutfall er hæst á Suðurnesjum, Suðurlandi og Vestfjörðum, um 40 prósent en lægst um 28 prósent í nágrenni Reykjavíkur. Í Reykjavík er þetta hlutfall rétt um landsmeðaltal. 15.7.2006 09:00 Gantaðist við verjanda sinn Romas Kosakovskis, Litháinn sem reyndi að smygla rúmum tveimur lítrum af amfetamínbasa og tæpum lítra af brennisteinssýru inn til landsins í lok febrúar síðastliðnum, var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þar að auki var honum gert að greiða rúma milljón króna í sakarkostnað. 15.7.2006 09:00 Sýknaður af fjársvikum Kristján B. Snorrason, fyrrverandi útibússtjóri KB banka í Borgarnesi, var í fyrradag sýknaður af fjár- og umboðssvikum í Héraðsdómi Reykjaness. 15.7.2006 08:45 Steytti á afnámi verndartolla landbúnaðarvara Fulltrúi bænda í matvælaverðsnefnd forsætisráðherra lagðist gegn hugmyndum um afnám verndartolla búvara. ASÍ vildi ekki standa að sameiginlegum tillögum nefndarinnar þar sem ekki var lögð til stórfelld uppstokun. 15.7.2006 08:30 Sprunga kom í stífluvegginn Sprungur komu í þriðju stærstu stíflu veraldar, sem er í suðurhluta Brasilíu, eftir að byrjað var að fylla hana af vatni, með þeim afleiðingum að allt vatnið flæddi úr stíflunni. Stíflan er sömu gerðar og sú sem verið er að reisa á Kárahnjúkum. 15.7.2006 08:15 Heimilin gætu sparað 130.000 Hægt er að lækka matarreikning heimilanna um 130 þúsund krónur á ári og færa matvöruverð undir meðaltal Evrópusambandsríkjanna. 15.7.2006 08:15 Alfreð fær hálfa efstu hæðina Deilan um nýtt húsnæði Blóðbankans við Snorrabraut hefur verið leyst farsællega og með samþykki allra hlutaðeigandi. Ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins segir deiluna hafa frá upphafi byggst á misskilningi. 15.7.2006 08:00 Átök í borgarstjórn Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn greiddu atkvæði gegn því að starf jafnréttisráðgjafa yrði lagt niður hjá Reykjavíkurborg í borgarráði í fyrradag. Í stað embættisins verður stofnað embætti mannréttindafulltrúa sem mun starfa með nýrri mannréttindanefnd borgarinnar, en stofnun hennar var ákveðin í vor. 15.7.2006 07:45 Indriði hættir sem skattstjóri 15.7.2006 07:30 Hafnaði kröfu Impregilo Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu verktakafyrirtækisins Impregilo um að fyrirtækið eigi ekki að standa skil á sköttum erlendra starfsmanna undirverktaka sinna fyrr en þeir hafa verið sex mánuði í starfi á Íslandi. 15.7.2006 07:00 Samið við starfsfólk HSA 15.7.2006 07:00 Ný keppnisgögn útbúin Borgarráð hefur ákveðið að halda áfram með hugmyndasamkeppni um heildarskipulag Vatnsmýrarinnar. 15.7.2006 07:00 Feginn að málinu sé lokið Mál þeirra þriggja manna sem lögreglan í Reykjavík handtók í janúar vegna gruns um fjársvik hefur nú verið fellt niður. Mennirnir, einn Íslendingur og tveir útlendingar, voru handteknir í Íslandsbanka, grunaðir um að hafa ætlað að svíkja hundruð milljóna íslenskra króna úr bankanum. 15.7.2006 06:45 Hjólhýsafólk varist vindinn 15.7.2006 06:45 Fótgangandi olli árekstri Ökumaður sendibíls slasaðist lítillega þegar bifreiðin sem hann ók og vörubifreið skullu saman á Reykjanesbrautinni á níunda tímanum í gærmorgun. 15.7.2006 06:30 Sæmd nafnbót heiðursdoktors 15.7.2006 06:30 Í úrvalsdeildinni í ofbeldi 15.7.2006 06:15 Ætla að hætta allri yfirvinnu 15.7.2006 06:15 Frábær ferð til Íslands 15.7.2006 06:15
Sjá næstu 50 fréttir
Fleiri stelpur hafa sofið hjá Í rannsókn sem gerð var á heilsu og lífskjörum skólabarna nú í vor kemur í ljós að 32,4 prósent unglinga í 10. bekk hafa haft samfarir. Þetta hlutfall er hæst á Suðurnesjum, Suðurlandi og Vestfjörðum, um 40 prósent en lægst um 28 prósent í nágrenni Reykjavíkur. Í Reykjavík er þetta hlutfall rétt um landsmeðaltal. 15.7.2006 09:00
Gantaðist við verjanda sinn Romas Kosakovskis, Litháinn sem reyndi að smygla rúmum tveimur lítrum af amfetamínbasa og tæpum lítra af brennisteinssýru inn til landsins í lok febrúar síðastliðnum, var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þar að auki var honum gert að greiða rúma milljón króna í sakarkostnað. 15.7.2006 09:00
Sýknaður af fjársvikum Kristján B. Snorrason, fyrrverandi útibússtjóri KB banka í Borgarnesi, var í fyrradag sýknaður af fjár- og umboðssvikum í Héraðsdómi Reykjaness. 15.7.2006 08:45
Steytti á afnámi verndartolla landbúnaðarvara Fulltrúi bænda í matvælaverðsnefnd forsætisráðherra lagðist gegn hugmyndum um afnám verndartolla búvara. ASÍ vildi ekki standa að sameiginlegum tillögum nefndarinnar þar sem ekki var lögð til stórfelld uppstokun. 15.7.2006 08:30
Sprunga kom í stífluvegginn Sprungur komu í þriðju stærstu stíflu veraldar, sem er í suðurhluta Brasilíu, eftir að byrjað var að fylla hana af vatni, með þeim afleiðingum að allt vatnið flæddi úr stíflunni. Stíflan er sömu gerðar og sú sem verið er að reisa á Kárahnjúkum. 15.7.2006 08:15
Heimilin gætu sparað 130.000 Hægt er að lækka matarreikning heimilanna um 130 þúsund krónur á ári og færa matvöruverð undir meðaltal Evrópusambandsríkjanna. 15.7.2006 08:15
Alfreð fær hálfa efstu hæðina Deilan um nýtt húsnæði Blóðbankans við Snorrabraut hefur verið leyst farsællega og með samþykki allra hlutaðeigandi. Ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins segir deiluna hafa frá upphafi byggst á misskilningi. 15.7.2006 08:00
Átök í borgarstjórn Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn greiddu atkvæði gegn því að starf jafnréttisráðgjafa yrði lagt niður hjá Reykjavíkurborg í borgarráði í fyrradag. Í stað embættisins verður stofnað embætti mannréttindafulltrúa sem mun starfa með nýrri mannréttindanefnd borgarinnar, en stofnun hennar var ákveðin í vor. 15.7.2006 07:45
Hafnaði kröfu Impregilo Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu verktakafyrirtækisins Impregilo um að fyrirtækið eigi ekki að standa skil á sköttum erlendra starfsmanna undirverktaka sinna fyrr en þeir hafa verið sex mánuði í starfi á Íslandi. 15.7.2006 07:00
Ný keppnisgögn útbúin Borgarráð hefur ákveðið að halda áfram með hugmyndasamkeppni um heildarskipulag Vatnsmýrarinnar. 15.7.2006 07:00
Feginn að málinu sé lokið Mál þeirra þriggja manna sem lögreglan í Reykjavík handtók í janúar vegna gruns um fjársvik hefur nú verið fellt niður. Mennirnir, einn Íslendingur og tveir útlendingar, voru handteknir í Íslandsbanka, grunaðir um að hafa ætlað að svíkja hundruð milljóna íslenskra króna úr bankanum. 15.7.2006 06:45
Fótgangandi olli árekstri Ökumaður sendibíls slasaðist lítillega þegar bifreiðin sem hann ók og vörubifreið skullu saman á Reykjanesbrautinni á níunda tímanum í gærmorgun. 15.7.2006 06:30
Ryksugurisi í mál við NilFisk Meðlimir Stokkseyar-bakka-bandsins Nilfisk, eiga yfir höfði sér lögsókn að hálfu ryksuguframleiðandans Nilfisk. Ryksugurisinn krefst þess að hljómsveitin samnefnda breyti heiti sínu og að allur varningur hennar verði gerður upptækur. Piltarnir í hljómsveitinni Nilfisk urðu Íslendingum fyrst að góðu kunnir árið 2003 en þá hituðu upp fyrir bandarísku hljómsveitina Foo Fighters kunn er um alla veröld. Tildrög þess voru þau að eftir að sjálfur söngvari Foo figthers David Grohl, fyrrverandi trommari Nirvarna, hafði lokið máltíð á Stokkseyri gekk hann á tóna sem honum bárust til eyrna úr nærliggjandi skúr. Þar inni hitti hann fyrir unga drengi á hljómsveitaræfingu og svo heillaður varð rokkarinn að hann bað þá um að hita upp fyrir hljómsveit sína. Atburðurinn vakti mikla athygli og á vafalaust stóran þátt í þeirri athygli sem drengirnir hafa fengið. En nú hefur annar risi sýnt Stokks-eyra bandinu áhuga. Reyndar er það ekki goðsögn úr samtímatónlistinni sem hefur augastað á drengunum nú heldur risa ryksuguframleiðandinn Nilfisk. Ryksuguframleiðandinn hótar drengjunum lögsókn breyti þeir ekki nafni sínu og innkalli varning sinn. 14.7.2006 22:24
Vöruflutningabíll fastur í Hvalfjarðargöngum Vöruflutningabíll festist í gangamunna Hvalfjarðarganga Reykjavíkurmegin rétt fyrirklukkan níu í kvöld og lokuðust göngin að hluta til á meðan. Mikil röð myndaðist við göngin af þessum sökum og var ökumönnum bent á að sýna biðlund. Þetta er fimmti vöruflutningabíllinn á skömmum tíma sem festir sig í gangamunnanum sem þykir með ólíkindum þar sem merkingar við göngin sem tilgreina hæð þeirra eru mjög greinileg. 14.7.2006 22:16
Vildu frávísun morðmáls Dómari í máli gegn bandarískum hermanni, sem grunaður er um að hafa orðið tvítugri konu að bana á Keflavíkurflugvelli í ágúst, hefur neitað að vísa málinu frá. Verjendur mannsins kröfðust frávísunar á grundvelli þess hversu lengi hermaðurinn hefur verið í haldi. 14.7.2006 18:45
Hægt að lækka matvælaverð um fjórðung Matvælanefnd forsætisráðuneytisins er klofin í afstöðunni til leiða til að lækka matvælaverð hér á landi, en formaðurinn telur að hægt sé að lækka verðið um fjórðung. Nefndin lauk störfum í dag. 14.7.2006 18:45
Enn standa spilliefni á gamla lagersvæði Olís Mikið magn spilliefna stendur enn á gamla lagersvæði Olís við Kölluarklettsveg þrátt fyrir að fögur fyrirheit fyrirtækisins um að öll efni yrðu horfin af lóðinni í lok þessarar viku. Undanfarnar þrjár vikur hafa hin ýmsu spilliefni staðið á gamla lagersvæði Olís vegna flutninga en til stendur að afhenda Faxaflóahöfnum lóðina fljótlega. Búið er að rýma öll húsin en eftir standa spilliefni um alla lóð sem eftir er að flytja í nýja lagerhúsnæðið. Hjá Olís fengust þær upplýsingar að menn væru nú í óða önn að fjarlægja það litla sem enn væri eftir en þegar fréttamann bar að gerði var engin við þó hlið stæðu opin. -- Og en var mikill fjöldi efna á lóðinni. Þó svæðið sé afgirt er hægarleikur að bregða sér í gegnum girðingarnar, eins og sjá má á myndunum. Samúel Guðmundsson, framkvæmdastjóri vörustýringarsviðs Olís, sagði fréttamanni fyrir skömmu að ekki væri verulegt magn að ræða og skamman tíma tæki að fjarlægja það sem eftir væri. Í dag greindi hann frá því að menn væru nú að störfum við að fjarlægja það litla sem eftir væri af efnum af svæðinu. Á myndum sem teknar voru í dag má þó sjá að enn stendur mikið magn efna á lóðinni og engin starfsmaður var sjáanlegur að störfum. 14.7.2006 17:41
Lánum KB-banka þinglýst með 4,9 % vöxtun Lánum hjá Kb banka er ekki þinglýst með 4,15% vöxtum heldur 4,9%. Margir viðskiptavinir bankans hafa undanfarið fengið send bréf þess efnis að þeir uppfylli ekki skilyrði lánanna fyrir afslættinum. Um fimmtíu handhafar íbúðalána Kb-banka hafa fengið sent bréf frá bankanum þar sem þeim er bent á að þeir uppfylli ekki skilyrði lánanna um bankaviðskipti. 14.7.2006 17:40
Tímamót hjá UNICEF á Íslandi Tímamót urðu í dag í starfi Barnahjálpar Sameinuðu Þjóðanna á Íslandi þegar gengið var frá samningi um framtíðarsamstarf. Framkvæmdastjóri UNICEF er stödd hér á landi í tilefni þessa. 14.7.2006 17:39
Ungir Framsóknarmenn skora á Birki í formennsku Fufan, Félag ungra Framsóknarmanna á Akureyri og nágrenni, skorar á Birki Jón Jónsson þingmann Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi að bjóða sig fram til forystu flokksins á flokksþingi Framsóknarmanna sem verður 18-19 ágúst næstkomandi. Stjórn ungra framsóknarmanna á Akureyri telur að nú sé tækifæri til að yngja upp í forustusveit Framsóknarflokksins. 14.7.2006 17:38
Dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi þrítugan Litháa í tveggja og hálfs árs fangelsi í dag. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í lok febrúar og verður sá tími dreginn frá refsingunni. Ákærði var einnig dæmdur til að greiða rúmlega eina milljón í sakarkostnað. Maðurinn var tekinn þegar hann kom með með flugi frá Heatrow flugvelli í London en í farangri hans fundust fimm vínflöskur sem innihéldu fljótandi amfetamín. 14.7.2006 17:35
Vöxtum þinglýst hærra en opinberlega er boðið upp á Lánum hjá KB banka er ekki þinglýst með 4,15% vöxtum heldur 4,9%. Um fimmtíu handhafar íbúðalána KB banka hafa fengið sent bréf frá bankanum þar sem þeim er bent á að þeir uppfylli ekki skilyrði lánanna um bankaviðskipti. Lánum frá KB banka er þinglýst með 4,9% vöxtum en lántökum er síðan gefinn 0,75 prósentustiga afsláttur af vaxtagreiðslum gegn því að þeir séu með launareikning sinn hjá KB banka og nýti sér aðra þjónustu bankans. Ef lántakendur uppfylla ekki þessi skilyrði er því hægt að setja 4,9% vexti á lán þeirra. 14.7.2006 17:15
Matvælanefnd klofin í afstöðunni um lækkun matvælaverðs Matvælanefnd forsætisráðuneytisins er klofin í afstöðunni til leiða til að lækka matvælaverð hér á landi, en formaðurinn telur að hægt sé að lækka verðið um fjórðung. Nefndin lauk störfum í dag. Matvælanefnd sem forsætisráðherra skipaði í ársbyrjun kemst ekki að sameiginlegri niðurstöðu um hvernig lækka eigi matvælaverð. Helsta ágreiningsatriðið er lækkun eða afnám tollverndar búvöru. Meðal leiða, sem bent er á í skýrslu nefndarinnar, í því skyni að lækka verð á matvöru eru fyrir utan afnám búvörutolla skattbreytingar, afnám vörugjalds, samræmingu og lækkun á virðisaukaskatti. 14.7.2006 17:07
Utanríkisráðherra fundar með framkvæmdastjóra UNICEF Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra átti fund með Ann M. Veneman, framkvæmdastjóra Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, en hún er hér á landi til að skrifa undir framtíðarsamning við landssamband UNICEF á Íslandi. 14.7.2006 14:27
Bíll út í Sogið Mikill viðbúnaður var nú fyrir skömmu við Sogið í Árnessýslu þar sem bíll fór út í ána. Betur fór þó en á horfðist því maðurinn er kominn á þurrt og lítið sem ekkert meiddur. 14.7.2006 14:06
Ríkisskattstjóri lætur af embætti Indriði G. Þorláksson, ríkisskattstjóri, hefur tilkynnt samstarfsfólki sínu að hann muni láta af embætti í lok september, næstkomandi. Indriði staðfesti þetta í samtali við NFS, fyrir stundu. 14.7.2006 13:58
Styrkir til Vestfjarða frá Ferðamálastofu Ferðamálastofa skrifaði í gær undir samning vegna verkefna í uppbyggingu og úrbótum á ferðamannastöðum á Vestfjörðum. 14.7.2006 13:42
Eign lífeyrissjóðanna lækkar Hrein eign lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris nam 1.333 milljörðum króna í lok maí en lækkaða um rúma 11 milljarða milli mánaða samkvæmt tölum sem Seðlabankinn birti í vikunni. 14.7.2006 13:13
Morðmáli ekki vísað frá Dómari í máli bandarískrar konu, sem samstarfsmaður hennar myrti á Keflavíkurflugvelli, hefur neitað að vísa málinu frá, eins og verjendur höfðu farið fram á. 14.7.2006 13:10
Þrír enn óvinnufærir eftir klórgasslysið Þrír eru enn óvinnufærir eftir klórgasslysið í sundlauginni á Eskifirði á dögunum. Rafmagnskerfi laugarinnar, sem er glæný, virkar ekki sem skyldi eftir slysið og gæti því þurft að skipta algjörlega um. 14.7.2006 12:30
Sjálfkjörið í stjórn Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka Sjálfkjörið er í stjórn Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka og rann framboðsfrestur til stjórnarinnar út í gær. 14.7.2006 12:20
Engar loðnuveiðar í sumar Ekkert verður af loðnuveiðum í sumar þar sem Hafrannsóknastofnun finnur enga loðnu og gefur því ekki út neinn kvóta. Undanfarin misseri eru því þau lélegustu frá upphafi loðnuveiða. 14.7.2006 12:12
Hugmyndasamkeppni um skipulag Vatnsmýrarinnar Borgarráð varð á fundi sínum í gær einhuga um að halda áfram með hugmyndasamkeppni um heildarskipulag Vatnsmýrarinnar. 14.7.2006 11:58
F-listinn krefst leiðréttingar frá borgarstjóra F-listinn segir upplýsingar borgarstjóra um kynjahlutföll í nefndum, ráðum og stjórnum borgarinnar rangar og krefst þess að þær verði leiðréttar þar sem þær gefi skakka mynd af skipan þessara mála hjá F-listanum. 14.7.2006 11:21
Framhaldsskólanemar fagna tillögum menntamálaráðherra Hagsmunaráð íslenskra framhaldsskólanema fagnar tillögum menntamálaráðherra um endurskoðun starfsnáms og eflingu þess til framtíðar. 14.7.2006 11:13
Aflinn minni í júní í ár en á sama tíma í fyrra Heildarafli íslenskra skipa í júní í ár var 10,2% minni en í fyrra, sé hann metinn á föstu verði. 14.7.2006 10:35
Mánaðarlaun hækkuðu um 10,4% frá 2004 til 2005 Á síðasta ári voru regluleg mánaðarlaun á almennum vinnumarkaði að meðaltali 244 þúsund króna, heildarmánaðarlaun 315 þúsund krónur og árslaun 4,2 milljónir króna. 14.7.2006 10:23
Blóðgjafafélag Íslands 25 ára Blóðgjafafélag Íslands á stórafmæli sunnudaginn næstkomandi en þá verður það 25 ára gamalt. 14.7.2006 10:05