Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lýsir yfir miklum áhyggjum Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra hefur skrifað Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, bréf þar sem hún lýsir yfir áhyggjum af ástandinu í Líbanon. Hvetur hún Ísraelsstjórn til að leita leiða til að binda enda á átökin strax. 29.7.2006 07:45
Tengivagnar verði bannaðir Tengivagnar ættu að vera bannaðir við olíu- og vöruflutninga, að mati Guðmundar Hallvarðssonar, formanns samgöngunefndar Alþingis. Þetta verðum við að gera þar til vegakerfið er komið í staðlað form, og vegirnir verða sjö og hálfs metra breiðir, segir Guðmundur. Ef sjóflutningar lognast af verður að stoppa þessi ósköp þar til vegakerfið er komið í lag. 29.7.2006 07:30
Frumvarp um endurgreiðslur Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra ætlar að leggja fram frumvarp þegar Alþingi kemur saman í haust til að leiðrétta þær skerðingar sem orðið hafa á vaxtabótum. 29.7.2006 07:30
Reynir að nota falsaðar evrur Lögreglan í Reykjavík varar við erlendum karlmanni sem reynt hefur að koma fölsuðum evrum í umferð. Maðurinn talar bjagaða ensku, er lágvaxinn, dökkur yfirlitum og líklega með gleraugu. Til hans hefur bæði sést við BSÍ í Reykjavík og í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði. 29.7.2006 07:15
Blaðið borið út að nóttu til fréttablaðið Miklar breytingar verða gerðar á dreifikerfi Fréttablaðsins á næstunni. Á höfuðborgarsvæðinu verður blaðið nú borið út á nóttunni en ekki milli sex og sjö að morgni eins og nú. Talsverð uppstokkun verður í blaðberahópnum á þeim svæðum sem þessar breytingar ná til þar sem bannað er að ráða unglinga til starfa um nætur. 29.7.2006 07:00
Líkamsárás og flugeldaskot Rúmlega þrítugur maður hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og var málið var þingfest í Héraðsdómi Vesturlands í gær. 29.7.2006 07:00
Ekki ákveðið með áfrýjun Stjórn Og Vodafone hefur ekki enn ákveðið hvort úrskurði Póst- og fjarskiptastofnunar um skyldulækkun á lúkningagjöldum verði áfrýjað. Póst- og fjarskiptastofnun hefur skyldað farsímafélögin til þess að lækka lúkningagjöld niður í 7,49 krónur á mínútu fyrir 1. júní 2008. Lækkunin verður í fjórum þrepum og er fyrsta lækkunin 1. september næstkomandi. 29.7.2006 06:45
Sprungur á virkjanasvæðinu Sprungubeltið við Kárahnjúka liggur nær framkvæmdasvæðinu en áður var talið, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar á framkvæmdasvæðinu. Fyrir framkvæmdirnar var það talið liggja tólf kílómetrum vestan við Kárahnjúkastíflu. Stíflan þolir jarðskjálfta upp á 6,2 á Richter-kvarða samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun, en ekki var talin ástæða til þess að bregðast sérstaklega við niðurstöðum rannsóknanna. 29.7.2006 06:45
Slasaðist þegar bíll lenti á tré Stúlka um tvítugt var flutt slösuð á Landspítalann í Fossvogi á öðrum tímanum í fyrrinótt eftir að bíl var ekið upp á hringtorg á gatnamótum Hringbrautar og Suðurgötu með þeim afleiðingum að hann hafnaði á tré. 29.7.2006 06:00
Ferðamenn fari varlega Mikill straumur ferðamanna í friðlandinu Kringilsárrana og á Eyjabökkum gæti ógnað viðkvæmu dýralífi sem þar er. Ferðamenn sem þarna eiga leið um verða að sýna ítrustu varkárni í umgengni sinni um friðlöndin. 28.7.2006 22:28
Lokuð flugbraut Stærsta flugfélag Spánar, Iberia, þurfti í dag að fresta öllu áætlunarflugi til Barselóna þar sem 2000 starfsmenn flugvallarins lokuðu einni flugbrautinni á öðrum stærsta flugvelli Spánar. 28.7.2006 22:21
Hlægilegar ásakanir Osta og Smjörsalan segir Mjólku brjóta lög með því að setja á markað eftirlíkingar af hinum vinsæla Feta osti -- Osta og Smjörsölunnar. Ólafur Magnússon forstjóri Mjólku segir ásakanirnar hlægilegar. 28.7.2006 22:17
Vilja skapa frið Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundar í næstu viku um aðgerðaáætlun til að stöðva átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. Bush Bandaríkjaforseti segir ráðið muni leggja stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna til grunns að aðgerðunum og eggja allar þjóðir til að taka þátt í að skapa frið. 28.7.2006 22:10
Tæring í akkeri Neðansjávarfornleifafræðingar Hólarannsóknarinnar sem hafa stundað rannsóknir sínar í og utan við ósa Kolku undanfarna daga telja ekki óhætt að lyfta akkeri sem þar fannst í gær og koma því á land fyrr en á mánudag. 28.7.2006 21:21
Finnur leiguhúsnæði um allan heim Íslenski leitarvefurinn www.evesta.is var nýlega opnaður. Vefurinn finnur skammtíma húsnæði um allan heim. Hægt er að tryggja sér gististað í fríinu áður en haldið er á vit ævintýranna. 28.7.2006 18:52
Segjast ekki eiga í deilum Formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra segir félagið ekki eiga í deilum við Flugmálastjórn, deilum hafi lokið með dómi félagsdóms. Hann segir félagsmenn vinna eftir vaktatöflu sem neytt var upp á þá og þannig hafi velvilji flugumferðastjóra minnkað. 28.7.2006 18:45
Úrvalsvísitalan hríðlækkar Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni hefur hrunið síðustu fimm mánuði, eftir stöðuga hækkun undanfarin misseri. Eftir meira en helmingshækkun undanfarin tvö ár og snarpa uppsveiflu í byrjun ársins hefur hún lækkað um fjórðung síðan í febrúar. 28.7.2006 18:45
Spóla í hringi á Selfossi Nokkuð hefur borið á því að ungir ökumenn á Selfossi noti Austurveg, sem er þjóðvegur eitt, til að reyna kerrur sínar og spóla í hringi með miklum reyk og látum. Lögreglan hefur þegar náð einum þeirra á myndband og sent hann aftur í ökupróf, einnig má hann búast við sektum. 28.7.2006 18:10
Ungir sjálfstæðismenn verja skattaupplýsingar Ungir Sjálfstæðismenn reyndu að koma í veg fyrir að fólk skoðaði skattskrána á skrifstofu Skattstjórans í Reykjavík í dag, þegar álagning skatta á landsmenn var gerð opinber. Í ályktun sem stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna sendi frá sér í dag er talað um opinberun gagnanna sem ósóma. 28.7.2006 17:15
Ægisdyr vilja frekari rannsóknir á jarðgöngum til Vestmannaeyja Ný skýrsla á vegum Ægisdyra metur kostnað við göng milli lands og Eyja tugum milljörðum lægra en nefnd samgönguráðuneytisins. Formaður Ægisdyra vill að jarðgöngum verði haldið uppi á borðinu þar til frekari rannsóknir hafa verið framkvæmdar. 28.7.2006 17:00
Íslensk stjórnvöld vilja tafarlaust vopnahlé í Líbanon Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, hefur í dag ritað Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, bréf þar sem hún lýsir yfir áhyggjum af ástandinu í Líbanon. Hún segir það viðhorf íslenskra stjórnvalda að gerð verði tafarlaus krafa um vopnahlé og eyðileggingu Líbanons hætt. 28.7.2006 15:49
Tveir bifhjólamenn teknir á yfir 140 km hraða Tuttugu og einn ökumaður var tekinn fyrir hraðakstur í Reykjavík á síðasta sólarhring. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að í þeim hópi hafi verið tveir bifhjólamenn sem óku á yfir 140 km hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 60 km. Ekki þurfi að hafa mörg orð um svona akstursmáta sem sé stórhættulegur. Bifhjólamenn héldu baráttufund í Laugardalshöll í gærkvöldi en þrír úr þeirra röðum hafa dáið í umferðarslysum á árinu. Lögreglan segir það því kaldhæðni örlaganna að lögreglan skuli stöðva för tveggja bifhjólamanna fyrir ofsaakstur, nokkru eftir að fyrrnefndum fundi lauk. Lögreglan tekur þó fram að meginþorri bifhjólamanna sé til fyrirmyndar og virði umferðarlög. En eins og oft vilji vera sé misjafn sauður í mörgu fé og þeir setji blett á allan hópinn. 28.7.2006 15:00
Hæsta íbúðarhús á Íslandi mun rísa í vetur Framkvæmdir eru hafnar við hæsta íbúðarhús landsins við Skúlagötu í Reykjavík. Jarðvegsvinna er hafin við annan áfanga Skuggahverfisins, en fimm fjölbýlishús verða byggð í þessum áfanga. Það hæsta verður 62 metrar á hæð og 20 hæðir. Húsin verða svipuð þeim sem þegar hafa risið í Skuggahverfinu. Á hverri hæð verða um tvær stórar íbúðir með mikilli lofthæð. Útsýni úr íbúðunum verður með því besta sem gerist hér á landi. Sala á íbúðum þessa áfanga hefst ekki fyrr en á næsta ári en þegar hefur orðið vart við mikinn áhuga á þeim. Félagið 101 Skuggahverfi áætlar einnig að hefjast handa við þriðja áfanga Skuggahverfisins innan næstu tveggja ára. 28.7.2006 13:00
Samgönguráðherra mun skoða nýja skýrslu um jarðgöng til Eyja Samgönguráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna nýrrar skýrslu um jarðgöng til Vestmannaeyja sem unnin var fyrir Ægisdyr, félag áhugamanna um jarðgöng milli lands og Eyja, og var birt í gær. Samgönguráðuneytið vill taka fram að unnið sé að framtíðarlausnum í samgöngumálum Vestmannaeyja o skýrsla Ægisdyra verði skoðuð. 28.7.2006 12:49
Vinstri grænir skora á stjórnvöld Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs skorar á íslensk stjórnvöld að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að stöðva frekari manndráp og eyðileggingu í Líbanon. 28.7.2006 12:30
Fjármálaráðherra ætlar að leiðrétta vaxtabætur Árni Matthiesen, fjármálaráðherra, sagði í samtali við NFS rétt fyrir hádegi, að hann myndi leggja fram frumvarp á Alþingi í haust, til að leiðrétta þær skerðingar sem orðið hafa á vaxtabótum. 28.7.2006 12:06
Fundu skreyttan kamb frá sturlungaöld Skreyttur kambur frá sturlungaöld fannst við fornleifauppgröft í Kolkuósi í Skagafirði í gær. Kamburinn er afar heillegur, tvöfaldur og settur saman með bronsnöglum en að öðru leyti gerður úr beini. Á honum er hringlaga skreyting sem er dæmigerð fyrir skreytilist 13. aldar. 28.7.2006 12:04
Greiða yfir 40 milljónir króna í opinber gjöld Tuttugu og þrír Reykvíkingar greiða yfir 40 milljónir króna hver í opinber gjöld. Mest greiðir Ármann Ármannsson útgerðarmaður Helgu RE, rúmar 160 milljónir, sem að meðstu mun mega rekja til söluhagnaðar af skipi og kvóta. 28.7.2006 11:18
Belle and Sebastian og Emilíana Torrini á Nasa Skoska gleðisveitin Belle and Sebastian og íslenska söngkonan Emilíana Torrini skemmtu gestum á skemmtistaðnum Nasa við Austurvöll í gærkvöldi. 28.7.2006 10:43
Samtök herstöðvaandstæðinga mótmæla Samtök herstöðvaandstæðinga efna til mótmælastöðu fyrir framan bandaríska sendiráðið vegna stríðsins í Líbanon, föstudaginn 28. júlí kl. 17:30. 28.7.2006 09:45
Hreindýrshaus fannst í ruslatunnu Hreindýrshaus, skinn og lappir fundust í ruslatunnu við Freysnes í Öræfum á miðvikudagsmorgun. Fréttavefurinn Horn.is greinir frá því að reglur Umhverfisstofnunar banni stranglega að farið sé með úrgang hreindýra yfir í Öræfin, en Jökulsá á Breiðamerkursandi myndar sauðfjárveikivarnarlínu og skal fella þau dýr sem yfir ána fara. 28.7.2006 08:45
Falsaðar Evrur Lögreglan í Reykjavík varar við útlendingi sem virðist reyna að koma fölsuðum evrum í umferð. Þetta er lágvaxinn karlmaður sem talar bjagaða ensku. Hann er dökkur yfirlitum og er líklega með gleraugu. 28.7.2006 08:36
Ók á tré Ökumaður og farþegi hans slösuðust þegar bíll þeirra hafnaði á tré á mótum Suðurgötu og Hringbrautar, við hornið á gamla kirkjugarðinum í nótt. Hvorugur er alvarlega slasaður, en ökumaðurinn, sem var á vestuleið eftir Hringbraut, ók fyrst upp á miðju hringtorgsins, þaðan sem bíllinn kastaðist á tréð. 28.7.2006 08:30
Gengi lækkar hjá Landsbankanum og KB banka Þrátt fyrir mjög góð hálfsársuppgjör KB banka og Landsbankans, hafa báðir bankarnir lækkað í verði síðan tölurnar voru birtar. Gengi á bréfum í KB banka hefur lækkað um 3% og um 1% í Landsbankanum. 28.7.2006 08:15
Tíu þúsund fá engar bætur Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu fá tíu þúsund færri einstaklingar vaxtabætur þetta árið. Greiðslur vaxtabóta lækka jafnframt um sjö hundruð milljónir vegna tekna árið 2005. Þessa skerðingu má meðal annars rekja til hækkunar á fasteignamati um 35 prósent á milli ára. 28.7.2006 08:00
Segir að uppeldi sé ekki í verkahring lögreglunnar Erfitt er að sporna gegn straumi unglinga á útihátíðir. Á sumum stöðum er aldurstakmark á tjaldstæði og treyst á eftirlit lögreglu. Ekki hlutverk lögreglunnar að ala upp börn, segir lögreglustjórinn á Akureyri. 28.7.2006 08:00
Mældist á 165 km hraða Vélhjólamaður mældist á 165 kílómetra hraða á Reykjanesbraut á móts við Smáralind í gærkvöldi, þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar á klukkustund. Hann virti stöðvunarmerki Kópavogslögreglunnar að vettugi, sem reyndi ekki einu sinni að veita honum eftirför, heldur hafði samband við lögregluna í Hanfarfirði um að gera honum fyrirsát. 28.7.2006 07:56
Íhugar þingframboð Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík, sest á skólabekk í Háskóla Íslands í haust. 28.7.2006 07:45
Mannskaði ef eldur brýst út Gríðarlega erfitt yrði að forða fólki úr Hvalfjarðargöngum ef kviknaði í olíuflutningabíl inni í þeim, að sögn slökkviliðsstjóra í Borgarnesi. 28.7.2006 07:45
Geðfatlaðir sagðir sviknir um sambýli Árið 2004 var gert ráð fyrir opnun tveggja nýrra heimila fyrir geðfatlaða í Reykjavík og tveimur á Reykjanesi. Þessi heimili voru aldrei opnuð og segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir tíð skipti á ráðherrum tefja framkvæmdir. 28.7.2006 07:45
Landsvirkjun sögð raska Eyjabökkum Samtökin Íslandsvinir saka Landsvirkjun um að ganga gegn umhverfismati við byggingu lóns á Eyjabökkum og þurrka að auki upp fossa í Jökulsá á Fljótsdal. Landsvirkjun vísar ásökununum á bug og segir mótmælendur illa upplýsta. 28.7.2006 07:30
Tafir á aðstöðu fyrir áhætturannsóknir Aðstaða fyir áhætturannsóknir sem byggja átti upp á Keldum fyrir 1. febrúar verður ekki tilbúin í tæka tíð. Ástæðan er stöðvun sem stjórnvöld settu á útboð allra opinberra framkvæmda, að sögn Helga Helgasonar framkvæmdastjóra. 28.7.2006 07:30
Átta ára börn send til einkaþjálfara Dæmi eru um að foreldrar sendi átta ára börn í einkaþjálfun. Einkaþjálfari segir foreldra oft gera óraunhæfar kröfur. Eigandi World Class segir strangar reglur gilda um einkaþjálfun. Almennt sé miðað við sextán ára aldur. 28.7.2006 07:30
Orkuboltarnir á Reykhólum Það er sólskin og blíða þegar Jón Sigurður Eyjólfsson kemur akandi að Reykhólum. Þar búa kraftmiklir og sjálfsöruggir sveitungar enda fá þeir auka orku úr þanginu og vissuna úr völunni hans Dalla. 28.7.2006 07:30
Engin lagastoð fyrir birtingu Samkvæmt skattalögum ber skattstjórum að leggja fram álagningarskrár almenningi til sýnis í hverju sveitarfélagi, þar sem skattar á hvern gjaldanda eru tilgreindir. En hvergi er kveðið á um í lögum að taka skuli saman lista yfir hæstu gjaldendur til birtingar. 28.7.2006 07:30