Fleiri fréttir

Rannsóknir hafnar vegna hugsanlegs álvers á Bakka

Hafnar eru rannsóknir á háhitasvæðum á Norðurlandi fyrir hugsanlegt álver á Bakka við Húsavík. Ætlunin er að kanna og rannsaka háhitasvæðin nægjanlega til þess að unnt verði að taka ákvörðun um nýtingu þeirra og uppbyggingu vegna stóriðjunnar.

Á góðum batavegi eftir hnífsstungu

Maðurinn sem var stunginn með hnífi í kviðinn á veitingastað við Laugaveg í fyrrinótt er á góðum batavegi. Hann dvelur enn á gjörgæslu en verður útskrifaður þaðan í dag og fluttur á almenna deild.

Mislæg gatnamót líklega boðin út fyrir áramót

Mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar verða að öllum líkindum boðin út fyrir áramót. Til stendur að leggja báðar brautirnar í stokk og leggja hringtorg ofan á, - í svokallaðri þriggja hæða lausn. Málið eru í algerum forgangi hjá nýjum meirihluta í Reykjavík, segir formaður samgöngu- og umhverfisráðs.

Pólverjinn kominn með húsaskjól

Eldri kona tók tvítugan Pólverja sem bjó í tjaldi í Laugardal upp á sína arma eftir frétt NFS á fimmtudaginn og veitti honum húsaskjól. Pólverjinn segist ánægður með að geta loksins farið í þurr föt á morgnana og er bjartsýnn á framtíðina.

Búið að handtaka fjóra vegna líkamsárásar

Lögreglan í Keflavík hefur handtekið fjóra menn vegna alvarlegrar líkamsárásar í bænum í morgun. Ráðist var á tvo menn og þurfti að flytja annan þeirra á sjúkrahús í Reykjavík vegna áverka á höfði.

Dvergþerna sést í fyrsta sinn á Íslandi

Lítil þerna fannst við Mikley á Höfn fyrir helgi sem greind var sem dvergþerna, að því er fram kemur á fréttavefnum Horn.is. Þetta er í fyrsta sinn sem sú fuglategund sést hér á landi.

Hátíðahöld fóru víðast hvar vel fram í gærkvöld

Hátíðahöld virðast hafa farið vel fram víða um land þótt ölvun hafi verið töluverð á mörgum stöðum. Í höfuðborginni var erill hjá lögreglu allt fram til klukkan sjö í morgun og voru sex fluttir á slysadeild í nótt, tveir vegna minni háttar líkamsárása og fjórir eftir að hafa hrasað vegna ölvunar.

Alvarleg líkamsárás í Keflavík í morgun

Alvarleg líkamsárás átti sér stað í Keflavík um sexleytið í nótt þegar ráðist var á tvo karlmenn á gangi í bænum. Bíl var ekið upp að mönnunum og stigu fjórir karlmenn út og réðust á tvímenningana. Annar þeirra hlaut alvarlega áverka á höfði og var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann í Fossvogi.

Dagblöðin fylla ekki tómarúmið eftir DV

Lestur fyrsta fríblaðs landsins, Fréttablaðsins, jókst mun meira í fyrstu mælingunum á lestri þess en lestur Blaðsins. Lestur Fréttablaðsins nánast tvöfaldaðist samkvæmt fyrstu fimm fjölmiðlakönnununum sem gerðar voru eftir stofnun þess.

Ný fyrirtæki spretta upp við hvert fótmál

Atvinnulíf í Fjarðabyggð blómstrar þessa dagana og uppbyggingar sér víða merki. Búist er við mikilli fólksfjölgun sem sést í mikilli aukningu íbúðarhúsnæðis. Fólk brosir út að eyrum, segir bæjarstjórinn í Fjarðabyggð.

Lagði hníf að hálsi manns

Maður á fertugsaldri lagði hníf að hálsi eins gesta hátíðarhaldanna í miðborg Reykjavíkur um miðjan dag í gær. Sá sem varð fyrir árásinni hafði sjálfur samband við lögreglu.

Tvær sprengikúlur fundust

Það er orðið að vana austur á Seyðisfirði að Árni Kópsson og föruneyti kafi niður að El Grillo, olíu- og flutningaskipinu, á þjóðhátíðardaginn. Þaðan var fjarlægð fallbyssa fyrir tveimur árum og nú á að ná í festingar sem tilheyra henni í skipið.

Kerfið verður skilvirkara

Aðkoma ríkisstjórnarinnar að endurskoðun kjarasamninga byggist að hluta eða öllu leyti á ákvörðun um lækkun á tekjuskattinum í staðinn fyrir lægra skattþrep. Í Fréttablaðinu í gær kom fram að til álita kæmi að lækka tekjuskattinn um eitt prósent og fresta opinberum framkvæmdum.

Varað við skelfiski í Hvalfirði

Hafrannsóknastofnunin varar fólk við því að tína skelfisk í Hvalfirði sér til matar næstu vikurnar. Ástæðan er mikið magn eitraðra svifþörunga en fjöldi svonefndra Dinophysis spp-skoruþörunga er mjög mikill og við slíkar aðstæður er hætta á DSP-eitrun í skelfiski.

Stunginn með hnífi í kviðinn

Karlmaður á fimmtugsaldri var stunginn í kviðinn með hnífi á veitingastað ofarlega við Laugaveg aðfaranótt laugardags. Hann var fluttur á slysadeild Landsspítalans í Fossvogi og voru sár hans svo alvarleg að hann var lagður inn á gjörgæsludeild.

Falleg athöfn á Bessastöðum

Ellefu Íslendingar voru sæmdir riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Á meðal þeirra sem hlutu orðuna voru Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, fyrir störf að velferð og réttindum kvenna, Hjálmar Jónsson, dómkirkjuprestur, fyrir störf í þágu kirkju og samfélags og Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri, fyrir störf í þágu menningar og leiklistar.

Safna fé undir fölsku flaggi

Dæmi eru um að svikahrappar hafi hringt í fólk og sagst vera að safna fé til styrktar Fjölskylduhjálp Íslands sem er líknarfélag í þágu þeirra sem minna mega sín í Reykjavík. Svikahrapparnir bjóðast til að koma heim til fólks og sækja féð.

Foreldrar fái eingreiðslu

Markmið meirihlutasamstarfs Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Sveitarfélaginu Árborg er að byggja upp fjölskylduvænt sveitarfélag. Fram kemur í nýkynntum málefnasamningi þeirra að foreldrum þeim sem kjósa að vera heima með börn sín frá níu til átján mánaða aldurs bjóðist valgreiðsla að upphæð 20.000 krónur á mánuði. Ennfremur er stefnt að því að öllum börnum frá átján mánaða aldri verði tryggð leikskólavist á kjörtímabilinu.

Samkomulag um loftferðir

Náðst hefur samkomulag milli Íslands og Indónesíu um loftferðir, sem mun veita íslenskum flugfélögum tækifæri til að stunda flug til og frá þremur borgum í landinu með tengingum við flug til annarra staða. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Vill leita að samstarfsfleti

Stefna Landspítala - háskólasjúkrahúss þess efnis að yfirmenn hjá sjúkrahúsinu séu í 100 prósenta starfshlutfalli og sinni ekki öðrum lækningastörfum þess utan mun standa óbreytt í máli Tómasar Zoëga læknis, sem og annarra á spítalanum. Reynt verður að fá Tómas til að starfa áfram.

Vilja móta framtíðarsýn

Fullt var út úr dyrum á stofnfundi samtakanna Framtíðarlandið, félags áhugafólks um framtíð Íslands, sem haldinn var í Austurbæ í gær. Við gátum ekki hugsað okkur að fara í skrúðgönguna án þess að sýna sjálfstæði okkar í verki fyrst, sagði María Ellingsen, sem var kynnir á fundinum ásamt Margréti Vilhjálmsdóttur, í upphafi fundar.

Tugþúsundir við hátíðahöld

Talið er að á bilinu 50-60 þúsund manns hafi lagt leið sína í miðbæinn í gær til þess að fylgjast með hátíðardagskrá í tilefni þjóðhátíðardagsins.

Tugir teknir fyrir hraðakstur

Lögreglan á Akureyri tók tæplega þrjátíu ökumenn fyrir of hraðan akstur í gær. Þrír voru einnig teknir fyrir minniháttar fíkniefnabrot og þrjátíu útköll voru síðasta sólarhring sem tengdust skemmtanahaldi og ölvun.

Sigldi úr höfn með 14 farþega

Liðlega fertugur maður hefur verið ákærður fyrir að hafa í ágúst í fyrra lagt úr höfn á haffærislausu skemmtiskipi, Söndru RE, með fjórtán farþega. Í ákærunni kemur fram að einungis hafi verið einn fjögurra manna björgunarbátur um borð. Landhelgisgæslan stöðvaði för skipsins þar sem það var á suðurleið skammt vestur af Viðey.

Segja framtíð landsins ráðast á næstu misserum

Fullt var út úr dyrum á stofnfundi Framtíðarlandsins, félags áhugafólks um framtíð Íslands, í Austurbæ í hádeginu. Talsmenn félagsins telja að framtíð landsins muni ráðast á næstu mánuðum eða misserum og vilja hafa áhrif á hana og gera Ísland að draumalandi.

Gæsluvarðhald vegna hnífsstungu

Karlmaður um tvítugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 23. júní vegna hnífsstungu á veitingastað við Laugaveginn í nótt.

Ættjarðarstemmning hjá Íslendingum í Kaupmannahöfn

Ættjarðarstemmningin sveif yfir vötnum á 17. júní hátíðahöldum Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn í dag. Þar komu Íslendingar saman á Amager-ströndinni að því er greint er frá á fréttavefnum Suðurnland.net.

Ellefu Íslendingar sæmdir fálkaorðunni

Ellefu Íslendingar voru sæmdir heiðursorðu hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, sex karlar og fimm konur. Þar á meðal voru Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, fyrir störf að velferð og réttindum kvenna, Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur fyrir störf í þágu kirkju og samfélags, Margrét Pála Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar svokölluðu, fyrir frumkvæði í menntamálum.

Húsfyllir á fundi Framtíðarlandsins í Austurbæ

Um 600 manns sóttu stofnfund Framtíðarlandsins, félags áhugafólks um framtíð Íslands. Fundurinn var haldinn í Austurbæ í hádeginu. Aðstandendur félagsins telja að framtíð landsins ráðist á næstu mánuðum eða misserum.

Konur hafi borið skarðan hlut frá borði í kosningum

Félagsmálaráðherra telur konur hafa borið skarðan hlut frá borði í sveitastjórnarkosningunum í lok maí. Tveggja ára gömul jafnréttisáætlun ráðuneytisins verður tekin til endurskoðunar á næstunni.

Dræm þátttaka áhyggjuefni

Íslendingar mega ekki gleyma þeim fórnum sem færðar voru til að koma hér á almennum kosningarétti. Þetta sagði forsætisráðherra í þjóðhátiðarræðu sinni í morgun. Töluvert af fólki var í miðbænum í morgun, þrátt fyrir að veðrið væri með grárra móti.

Skilmálar ekki í samræmi við lög

Skilmálar borgarinnar vegna útboðs um framtíðarskipulag Vatnsmýrarinnar eru ekki í samræmi við lög segir kærunefnd útboðsmála. Þetta kemur fram á forsíðu Morgunblaðsins í dag.

Töluverður erill hjá lögreglunni á Akureyri

Töluverður erill var hjá lögreglunni á Akureyri í gær og nótt en nóttinn gekk þó slysalaust fyrir sig. Mikil ölvun var í bænum og þurfti lögregla að hafa afskipti af allmörgum ungmennum sem ekki höfðu lögaldur til að neyta áfengis.

Pétur Gautur hlaut flest verðlaun á Grímunni

Leikritið Pétur Gautur, sem sýnt hefur verið í Þjóðleikhúsinu í vetur, kom sá og sigraði á Grímunni, íslensku leiklistarverðlaununum, sem voru afhent við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í gærkvöld.

17. júní undirbúinn í kvöld

Það er óhætt að segja að það hafi verið blautt í miðbænum í kvöld þar sem verið var að undirbúa dagskrá morgundagsins, 17. júní. Hún hefst nú klukkan tíu þegar lagður verður blómsveigur á leiði Jóns Sigurðssonar og henni lýkur ekki fyrr en tíu í kvöld, meðal annars með tónleikum við Arnarhól.

Óttast að Miðstöð mæðraverndar heyri sögunni til

Forstöðumaður Heilsuverndar barna óttast að Miðstöð mæðraverndar heyri sögunni til í núverandi mynd ef starfsemi Heilsuverndarstöðvarinnar á Barónsstíg verður flutt í Mjóddina. Starfsmenn Heilsuverndarstöðvarinnar vilja að ríkið reyni að fá húsið aftur.

Komst út úr logandi húsi sínu við illan

Guðrún Guðmundsdóttir, íbúi að Hólmaseli í Flóahreppi, komst út úr brennandi húsi sínu við illan leik í gærkvöldi. Það var henni til happs að nágrannar hennar sáu eldinn og kom henni til bjargar.

Vill að lífeyriskjör verði reiknuð upp til launa

Formaður VR vill að lífeyriskjör æðstu embættismanna verði með sambærilegum hætti og almennra launþega en að núverandi lífeyriskjör þeirra verði reiknuð upp til launa. Hann skorar á stjórnvöld að lýsa yfir vilja til breytinga á kerfinu.

Fyrsta verkefni Félagsmálaráðherra í Íbúðarlánasjóði

Magnús Stefánsson nýsettur félagsmálaráðherra opnaði nýja og notendavænni heimasíðu Íbúðarlánasjóðs með viðhöfn vopnaður tölvumús. Þetta var fyrsta opinbera verkefni Magnúsar í embætti félagsmálaráðherra. kvót Magnús gat þó ekki starldað lengi við í húsakynnum Íbúðarlánasjóðs en notaði þó heimsóknina til að kynna sér starfsemina sem þar er rekinn. Hann kvaðst þó ekki reiðubúinn svara neinum spurningum um framhald þessarar stofnunnar sem mikið hefur verið í umræðunni að undanfarinn misserri eða allt frá því að bankar hófu lánastarfsemi fyrir húsnæðiskaupum.

Hafró varar við kræklingatínslu víða um land

Hafrannsóknarstofnun varar fólk eindregið við því að tína sér krækling eða annan skelfisk til matar í Hvalfirði vegna gríðarlegs magns eiturþörunga í sjónum þar. Einnig er varað við því að tína skelfisk í nágrenni Stykkishólms og í Eyjafirði.

Flugferðum fjölgað eftir vistaskiptin

Flugferðum til Barcelona frá Íslandi verður fjölgað eftir kaupin á Eiði Smára. Barcelona-treyjur eru uppseldar í Reykjavík, en stórar sendingar eru á leiðinni.

Sjá næstu 50 fréttir