Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lögmaður eins sakborninga í Euromarket-málinu svokallaða, sem látið var niður falla á dögunum, segir skaðabótamál gegn ríkinu í farvatninu. Hann gagnrýnir lögreglu fyrir íburðarmikla blaðamannafundi, sem séu til þess fallnir að sveigja almenningsálitið. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 og fáum Helga Gunnlaugsson afbrotafræðing til okkar í myndver í beinni útsendingu. 3.3.2023 18:00
„Sjálfsagt að bregðast við fyrirspurn umboðsmanns“ Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mun bregðast við fyrirspurn umboðsmanns Alþingis vegna umdeildrar sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka. Þetta segir Bjarni í skriflegu svari til fréttastofu. 3.3.2023 17:19
Zmniejszyło się zainteresowanie licencjami na polowania Jóhann G. Gunnarsson, odpowiedzialny za polowania na renifery w Agencji Ochrony Środowiska, uważa, że w tym roku wpłynęło znacznie mniej wniosków o licencje na polowania na renifery niż w zeszłym. 3.3.2023 17:02
Yfirvinnubann flugmálastarfsmanna afboðað Yfirvinnubann flugmálastarfsmanna sem til stóð að hæfist klukkan fjögur í dag var afboðað skömmu áður en það átti að hefjast. Ekki liggur fyrir af hverju en viðræður eru sagðar hafa gengið lítið að undanförnu. 3.3.2023 16:58
Segjast enn verja Bakhmut Embættismenn í Úkraínu segja úkraínska hermenn enn verja bæinn Bakhmut í Dónetskhéraði. Yfirmaður herafla Úkraínu í austri er sagður hafa heimsótt hermennina þar í dag. Hersveitir Rússa eru þó nærri því að umkringja bæinn og eru sagðar beina fallbyssum sínum að einu birgðaleið Úkraínumanna inn og út úr bænum. 3.3.2023 16:43
Murdaugh dæmdur í lífstíðarfangelsi Bandaríski lögmaðurinn Alex Murdaugh hefur verið dæmdur í tvöfallt lífstíðarfangelsi fyrir að myrða eiginkonu sína og son. Murdaugh var dæmdur sekur í nótt en dómskvaðning fór fram nú fyrir skömmu í Suður-Karólínu. 3.3.2023 15:06
Þorsteinn Már tekur blaðamenn í kennslustund Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, skrifar bréf til starfsmanna sem birt er á vefsíðu útgerðarfyrirtækisins, þar sem hann leggur út af afsökunarbeiðni Aftenposten í Noregi og hefur hana til marks um að blaðamennska á Íslandi sé ekki uppá marga fiska. 3.3.2023 14:56
Íbúar Austur-Palestínu óttast langvarandi mengun Nærri því mánuður er liðinn frá því lest sem bar mikið magn eiturefna fór út af sporinu nærri bænum Austur-Palestínu í Ohio í Bandaríkjunum eru íbúar enn reiðir og óttaslegnir. Margir segjast enn finna fyrir áhrifum frá efnunum sem sluppu út í andrúmsloftið. 3.3.2023 14:30
Frelsissviptu mann, lömdu hann og skildu eftir nakinn við Elliðavatn Ákæra hefur verið gefin út á hendur þremur mönnum fyrir líkámsárás, frelsissviptingu og ólögmæta nauðung. Mönnunum er gert að sök að hafa svipt annan mann frelsi í að minnsta kosti tuttugu og fimm mínútur eftir að hann settist upp aftursæti bifreiðar eins mannanna þann 11. september 2019 við Árbæjarsafn. Mennirnir keyrðu með hann að Elliðavatni þar sem þeir réðust á hann og létu hann fara ofan í vatnið. 3.3.2023 13:58
Færri vilja á hreindýr nú en í fyrra Jóhann G. Gunnarsson umsjónarmaður hreindýraveiða hjá umhverfisstofnun telur að eitt og annað kunni að hafa áhrif á það að umsóknir um hreindýraleyfi eru talsvert færri nú en var í fyrra. 3.3.2023 13:39
„Mikið fagnaðarefni“ að umboðsmaður krefji Bjarna svara Þingmaður Samfylkingarinnar fagnar því að umboðsmaður Alþingis krefji fjármálaráðherra svara um hæfi hans við sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka. Nú gætu fengist svör við mikilvægum spurningum, sem ríkisendurskoðun hafi ekki getað knúið fram í sinni skýrslu. 3.3.2023 13:03
Segir borgarstjóra í „hefndarleiðangri“ Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst gegn fyrirhugaðri lokun Borgarskjalasafns og segir vinnu að baki tillögunni óvandaða. Hann túlkar ákvörðunina sem hefndaraðgerð borgarstjóra gegn safninu. Borgarstjóri segir að vandað verði til verka í hvívetna; milljarðar muni sparast með breyttum rekstri. 3.3.2023 12:46
Tilnefningar til blaðamannaverðlauna kynntar Blaðamannafélag Íslands hefur tilkynnt um tilnefningar til Blaðamannaverðlauna félagsins fyrir árið 2022. Verðlaunin verða veitt föstudaginn 10. mars við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu. 3.3.2023 12:15
Friðarverðlaunahafi dæmdur í fangelsi í Belarús Yfirvöld í Belarús, eða Hvíta-Rússlandi, hafa dæmt Alex Bialiatski til tíu ára fangelsisvistar. Það er samkvæmt Viasna, mannréttindasamtökum sem hann stofnaði en Bialiatski var dæmdur fyrir að hafa fjármagnað mótmæli í gegn alræðisstjórn Alexanders Lúkasjenka, einræðisherra Belarús. 3.3.2023 12:08
Dó líknardauða sextán árum eftir að hafa myrt fimm börn sín Belgísk kona, sem myrti fimm börn sín árið 2007, hefur dáið líknardauða, sextán árum eftir að hún banaði fimm börnum sínum. 3.3.2023 11:52
Lögregla lýsir eftir Stefáni Arnari Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Stefáni Arnari Gunnarssyni, 44 ára. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að Stefán Arnar sé búsettur á Arnarhrauni í Hafnarfirði en síðast er vitað um ferðir hans síðdegis í gær. 3.3.2023 11:49
Prófessor dæmir í máli Ástríðar sem vill ekki endurgreiða ofgreidd laun Gunnar Þór Pétursson, prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík, er settur dómari í máli Ástríðar Grímsdóttur, héraðsdómara, gegn ríkinu vegna endurgreiðslna á launum sem ríkið ofgreiddi henni og öðrum háttsettum embættismönnum. 3.3.2023 11:46
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um söluna á Íslandsbanka en umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir svörum frá Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra um hæfi hans í tengslum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka til félags í eigu föður Bjarna. 3.3.2023 11:37
Sprengdu brýr við Bakhmut og virðast ætla hörfa Útlit er fyrir að úkraínskir hermenn ætli sér að hörfa eða séu þegar byrjaðir að hörfa frá Bakhmut í Dónetskhéraði. Rússar hafa gert umfangsmiklar árásir á bæinn um mánaða skeið og hafa nú nærri því umkringt hann. 3.3.2023 11:06
Ósátt húsfélög höfðu ekki erindi sem erfiði vegna nýs KR-svæðis Úrskurðarnefnd auðlindamála hefur vísað frá kæru tveggja húsfélaga í grennd við KR-svæðið, vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar svæðisins. 3.3.2023 10:50
Ráðinn skrifstofustjóri í ráðuneyti Guðlaugs Þórs Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, hefur tekið ákvörðun um að skipa Ólaf Darra Andrason í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu eftirfylgni og fjármála til næstu fimm ára. 23 sóttu um stöðuna. 3.3.2023 10:43
Umboðsmaður spyr um hæfi Bjarna vegna Íslandsbankasölunnar Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir svörum frá Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra um hæfi hans í tengslum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka til félags í eigu föður Bjarna. 3.3.2023 10:11
Settur ríkissáttasemjari sækir um nýtt starf Ástráður Haraldsson, héraðsdómari og settur ríkissáttasemjari, og Kjartan Bjarni Björgvinsson, héraðsdómari og formaður Dómarafélags Íslands, eru í hópi fjögurra sem hafa sótt um stöðu sem dómari við Landsrétt sem auglýst var laus til umsóknar á dögunum. Fjórir héraðsdómarar sóttu um stöðuna. 3.3.2023 09:59
Afhjúpa nýuppgötvað hólf í Pýramídanum mikla Egypsk fornleifayfirvöld sviptu hulunni af nýuppgötvuðu og lokuðu hólfi í Pýramídanum mikla í Giza í gær. Óljóst er hver tilgangur hólfsins var en það er ekki aðgengilegt utan frá. 3.3.2023 09:35
Stuðningur við ríkisstjórnina aldrei verið minni Fylgi ríkisstjórnarinnar minnkar um fjögur prósentustig í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup og stendur nú í 42 prósentum. Stuðningur við stjórnarflokkana þrjá mælist fjörutíu prósent og minnkar um tvö prósentustig. 3.3.2023 09:08
Geta stefnt Trump vegna árásarinnar á þinghúsið Lögreglumönnum og þingmönnum er heimilt að stefna Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, vegna árásar stuðningsmanna hans á þinghúsið, að mati bandaríska dómsmálaráðuneytisins. Trump heldur því fram að hann njóti friðhelgi fyrir slíkum kröfum. 3.3.2023 08:50
Fótbrotnaði á Fagradalsfjalli Kona sem var á göngu á Fagradalsfjalli í gær fótbrotnaði. Björgunarsveitin Þorbjörn sá til þess að konan og dóttir hennar kæmust niður fjallið. 3.3.2023 08:42
Þingmaður stefnir ríkinu og fer fram á skaðabætur Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, og eiginmaður hennar, Hafþór Ólafsson, hafa ákveðið að stefna ríkinu vegna fjárhagslegs tjóns sem þau segjast hafa orðið fyrir „vegna lögbrota embættis sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu“ í tengslum við uppboð á heimili þeirra vorið 2017. 3.3.2023 08:11
Rólegt veður í dag og áfram hæglætis veður á morgun Veðurstofan gerir ráð fyrir rólegu veðri í dag með hægri, breytilegri átt og þurrt að kalla. Þó verða stöku skúrir sunnan- og vestantil á landinu. 3.3.2023 07:36
Atkvæðagreiðsla um miðlunartillögu hefst í hádeginu Atkvæðagreiðsla um miðlunartillögu ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins, sem kynnt var á miðvikudaginn, hefst í hádeginu í dag. Henni lýkur svo næstkomandi miðvikudag, 8. mars klukkan tíu fyrir hádegi. 3.3.2023 07:08
Engri losun vegna kola sópað undir teppið Losun gróðurhúsalofttegunda vegna kolanotkunar stóriðju á Íslandi er talin fram í losunarbókhaldi hennar þrátt fyrir að Orkustofnun telji kolin ekki lengur hluta af frumorkunotkun á landinu. Sviðsstjóri hjá Orkustofnun segir að engin losun sé dulin með breytingunni. 3.3.2023 07:00
Segjast allir lítið peð í risastóru kókaínskákinni Mennirnir fjórir sem ákærðir eru fyrir aðild að stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar játa allir þátttöku sína í málinu en segja sína þætti veigalitla. Allir höfðu þeir afmörkuð hlutverk og rannsakendur segja alþekkt að sú aðferð sé notuð við innflutning fíkniefna. Mörgum spurningum er ósvarað. Ein sú stærsta er hver einstaklingurinn sé sem kallar sig ýmist „Nonni“ eða „Harry“? 3.3.2023 07:00
Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína og son Bandaríski lögmaðurinn Alex Murdaugh var í nótt fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína og son í þeim tilgangi að draga athyglina frá margmilljóna dala efnahagsbrotum sínum. 3.3.2023 06:37
Kærð fyrir að virða ekki gangbrautarrétt í Vesturbænum Nokkuð rólegt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Síðdegis í gær var lögregla þó kölluð út þar sem kona var kærð fyrir að hafa ekki virt gangbrautarrétt gangandi vegfaranda í vesturbæ Reykjavíkur. 3.3.2023 06:09
Foreldrar krafist úrbóta áður en myglan greindist en talað fyrir daufum eyrum Unnið er að leiðum til að bregðast við myglu í Melaskóla og framkvæmdir gætu hafist í vor. Deildarstjóri viðhalds hjá Reykjavíkurborg segir bestu leiðina vera að endurnýja innra og ytra byrði hússins en til þess þurfi að aflétta friðunarákvæði. Formaður foreldrafélags skólans segir félagið lengi hafa kallað eftir því að brugðist verði við slæmu ástandi hússins en talað fyrir daufum eyrum. 2.3.2023 23:51
„Akkúrat ekkert“ sem réttlæti svona hátt leiguverð Formaður VR vakti í dag athygli á háu leiguverði fyrir þriggja herbergja íbúð í Reykjavík. Leiguverðið var 375 þúsund krónur. Formaður Samtaka leigjenda segir að ekkert geti réttlætt slíkt verð, það sé þó ekki einsdæmi. 2.3.2023 21:54
Opinber störf vegna fiskeldis fari á sunnanverða Vestfirði Forystumenn á Vestfjörðum þrýsta á að rannsóknar- og eftirlitsstörf vegna fiskeldis verði staðsett í fjórðungnum enda séu vestfirsk samfélög og firðir undir. Formaður bæjarráðs Vesturbyggðar segir að til þessa hafi ekkert einasta opinbert starf vegna greinarinnar komið á sunnanverða Vestfirði. 2.3.2023 21:42
Krefst þess að lögreglan biðjist afsökunar Sex ára rannsókn á máli sem lögreglan kynnti sem eitt umfangsmesta fíkniefna og peningaþvættismál sögunnar er lokið án þess að gefin verði út ákæra. Fyrrverandi sakborningur í málinu krefst afsökunarbeiðni. 2.3.2023 20:53
Meðhöndlarinn sem braut á fjölda kvenna ætlar með málið til Evrópu Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem hlaut uppsafnað sjö ára fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot gegn fimm konum, fær mál sitt ekki tekið upp hjá Endurupptökudómi. Hann hefur hrundið af stað fjáröflun í eigin þágu og hyggst fara með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Þá segir hann heimildamynd um sögu sína vera í bígerð. 2.3.2023 20:13
95 ára sprækur hestamaður Góður hestur á að vera geðgóður, viljugur og gangrúmur, segir 95 ára gamall hestamaður, sem slær ekki slöku við í hestamennskunni. Hann tók sér frí að fara á hestbak eftir Covid en ætlar að drífa sig aftur á bak í vor. 2.3.2023 20:05
Enga menningu að finna í boxum Pósthús eru menning á undanhaldi að sögn rithöfundar sem harmar breytta póstþjónustu. Pósthúsum hefur víða verið lokað og segir hún að reka þurfi áróður fyrir bréfaskriftum. 2.3.2023 19:48
Czynsz za wynajem wyższy niż minimalna płaca Ragnar Þór Ingólfsson, prezes VR, mówi, że sytuacja na rynku mieszkaniowym całkowicie się popsuła. Mówiąc to pokazuje niedawne ogłoszenie, w którym oferowane jest do wynajęcia 3-pokojowe mieszkanie za 375 tys. koron miesięcznie. 2.3.2023 19:19
Skilaboð Blinkens til Lavrovs voru einföld og skýr Skuggi innrásar Rússa í Úkraínu skyggði á öll önnur málefni á fundi utanríkisráðherra 20 helstu iðnríkja heims á Indlandi í dag. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna skoraði á Rússa að láta af hernaði sínum og utanríkisráðherra Rússlands sagði aldrei hafa staðið á Rússum að semja við Bandaríkin um örlög Úkraínu. 2.3.2023 18:57
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sex ára rannsókn á máli sem lögreglan kynnti sem eitt umfangsmesta fíkniefna- og peningaþvættismál sögunnar er lokið án þess að gefin verði út ákæra. Við fjöllum um málið, sem kennt hefur verið við Euromarket, í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við einn sakborninga. 2.3.2023 18:01
Handtekinn vegna sprengjuhótunar í Reykjanesbæ Karlmaður var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í gær við komuna til landsins. Hann er grunaður um að standa að baki sprengjuhótunar sem send var á nokkrar stofnanir og vinnustaði í Reykjanesbæ í síðustu viku. Ráðhús Reykjanesbæjar var rýmt vegna hótunarinnar auk þess sem hún beindist gegn nokkrum leikskólum. Lögreglustjóri segir manninn eiga langan sakaferil að baki. 2.3.2023 16:32