Fleiri fréttir

Guðlaugur þakkaði Ögmundi fyrir að standa að heræfingu í sumar

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðismanna þakkaði í dag Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra fyrir að láta ekki pólitíska fortíð sína flækjast fyrir sér í embættiverkum sínum. Þar átti hann við fyrirhugaða heræfingu sem stendur til að halda hér á landi í júní á vegum NATO. Guðlaugur sagði að einhverntíma hefðu önnur sjónarmið heyrst frá Ögmundi, sem oft hefur talað gegn heræfingum af þessu tagi. Hann bað ráðherrann síðan um að upplýsa þingheim nánar um þessa æfingu, sem furðu hljótt hafi farið fram að þessu.

Þrjátíu ár fyrir þjóðarmorð

Fyrrverandi yfirmaður hersins í Rwanda hefur verið dæmdur í þrjátíu ára fangelsi fyrir þátt sinn í þjóðarmorðinu árið 1994. Þá voru myrtir um 800 þúsund manns af ættbálki tútsa sem eru í minnilhuta í landinu.

Ögmundur vill ekki gera mál flugumannsins að utanríkismáli

Ögmundur Jónasson er ekki þeirrar skoðunnar að taka þurfi mál flugumannsins Mark Kennedys upp gagnvart breskum yfirvöldum. Í skýrslu ríkislögreglustjóra segir að ekkert bendi til þess að íslensk lögregluyfirvöld hafi vitað af því að Mark Kennedy hefði á sínum tíma verið flugumaður á vegum bresku lögreglunnar en hann tók þátt í mótmælaaðgerðum Saving Iceland við Kárahnjúka á sínum tíma.

Fatalína fyrir óléttar konur

Úrslit í fatahönnunarkeppni fyrir óléttar konur verða kynnt í kvöld. Keppnin er samvinnuverkefni milli fatahönnunarnema Listaháskóla Íslands og verslunarinnar Tvö líf sem selur fatnað fyrir konur á meðgöngu. Nemendur á öðru ári í fatahönnun tóku þátt í námskeiði undir leiðsögn Lindu Bjargar, fagstjóra fatahönnunarbrautar, þar sem markmiðið var að hanna fatalínu fyrir Tvö líf. Hver nemandi hannaði tíu alklæðnaði fyrir barnshafandi konur. Eitt af þessum verkefnum verður svo valið af aðstandendum verslunarinnar og er markmiðið að sú fatalína verði þróuð áfram og framleidd af verslunni en Tvö líf hefur áhuga á að þróa sitt eigið vörumerki. Fær sigurvegarinn einnig 150.000 kr. í verðlaun. Verðlaunin verða afhent vinningshafanum síðdegis í kvöld í versluninni Tvö líf. Fatahönnunarbraut Listaháskólans leggur áherslu á að vinna með fyrirtækjum í fataiðnaði á íslandi. Það er mikilvægt að nemendur vinni að raunverulegum verkefnum og taki þátt í nýsköpun í faginu.

Refsað fyrir að þegja um kynmök í skólarútu

Móðir í Ohio í Bandaríkjunum er ósátt við að 14 ára dóttur hennar skuli refsað fyrir að tilkynna ekki strax um að hún hefði séð tvö skólasystkini sín eiga kynmök í skólarútunni. Saundra Roundtree sagði Associated Press fréttastofunni að dóttir hennar hefði verið í skólaferðalagi.

Lögreglan lýsir eftir Stefaníu Casöndru

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Stefaníu Casöndru Guðmundsdóttur, Garðbraut 72, Garði. Stefanía er svarthærð og um 170 sentimetrar á hæð. Að sögn lögreglu var hún klædd í svartar leggingsbuxur og hvíta peysu og í strigaskóm.

Dæmdir fyrir vopnað rán í söluturni

Tveir karlmenn voru í dag dæmdir í átta mánaða fangelsi og einn í sex mánaða fangelsi fyrir að fremja vopnað rán í söluturni í Breiðholti í febrúar. Dómarnir eru skilorðsbundnir. Tveir þeirra ruddust inn í söluturninn grímuklæddir og vopnaðir hnífi og kúbeini. Einn þeirra beindi hnífnum að afgreiðslumanninum og skipaði honum að opna afgreiðslukassann. Á meðan ógnaði hinn fjórum ungmennum með kúbeininu. Þriðji maðurinn beið fyrir utan í bíl.

Ekkert bendir til að lögreglan hafi vitað af flugumanninum

Engar upplýsingar hafa komið fram sem benda til þess að ríkislögreglustjóri hafi vitað af Mark Kennedy, flugumanni á vegum bresku lögreglunnar, sem tók þátt í mótmælum við Kárahnjúka. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra óskaði eftir upplýsingum frá embættinu um hvort vitneskja um málið hefði verið fyrir hendi.

Hröktu sjóræningja á flótta

Æ fleiri skipafélög setja nú vopn um borð í skip sín til þess að verjast árásum sjóræningja undan ströndum Afríku. Meðal þeirra er danska skipafélagið Maersk. Um síðustu helgi hröktu öryggisverðir á einu skipi félagsins sjóræningja á flótta með aðvörunarskotum.

Norðmenn krafðir svara um flóttamenn

Stjórnvöld á Sri Lanka hafa krafið Norðmenn skýringa á því að þeir hafa hjálpað tólf Tamílum að flýja land og veitt þeim pólitískt hæli í Noregi. Blóðugri borgarastyrjöld lauk á Sri Lanka fyrir tveim árum þegar stjórnarherinn gersigraði Tamíltígrana svokölluðu og drap alla leiðtoga þeirra.

Nýstárleg mannvirki í Öskjuhlíð

Í Öskjuhlíð hafa verið reist 7 hús á síðustu dögum sem koma til með að standa þar í nokkra daga. Mannvirkin eru hönnuð og byggð af nemendum í byggingartæknifræði við Háskólann í Reykjavík og arkitektanemum við LHÍ. Verkefnið er hluti af námskeiðinu Hönnun, ferli, framkvæmd, sem er undir leiðsögn arkitektanna Björns Guðbrandssonar og Jóhanns Sigurðssonar.

Samtök atvinnulífsins samþykkja kjarasamningana

Aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins hafa samþykkt nýgerða kjarasamninga í allsherjaratkvæðagreiðslu sem fram fór í síðustu viku. Samningarnir voru samþykktir með 75% greiddra atkvæða, 21,5% atkvæða voru greidd gegn samningunum en 3,5% tóku ekki afstöðu. Kosningaþátttaka var 57% að því er fram kemur í tilkynningu frá SA.

Gáfaðir eins og plankar

Að planka er nýtt æði í Ástralíu. Það felst í því að menn leggjast einhversstaðar á magann og liggja þar stífir eins og plankar meðan teknar eru myndir af afrekinu. Sumir leggjast á garðbekki.

Tókst á loft og endaði á ljósastaur

Ölvaður ökumaður ók niður ljósastaur við Esjubraut á Akranesi á fimmtudaginn í síðustu viku. Vitni lýstu atburðinum þannig að bifreiðinni hafi verið ekið með miklum hraða um Esjubraut og síðan yfir hringtorg þar sem hann tókst á loft. Hann lenti síðan á gangstétt og stöðvaðist á ljósastaur sem þar var fyrir. Ökumaður var talsvert lemstraður og var fluttur á slysadeild en reyndist ekki alvarlega meiddur.

Álfasala SÁÁ að hefjast

Tuttugasta og önnur Álfasala SÁÁ fer fram 19.-22. maí næstkomandi. Eins og undanfarin ár er álfurinn tileinkaður unga fólkinu og mun allt söfnunarfé renna til rekstrar unglingadeildar á sjúkrahúsinu Vogi. Álfasalan skiptir SÁÁ gríðarlega miklu máli og er mikilvægasta fjáröflunarleið samtakanna, að því er segir í tilkynningu frá SÁÁ. Álfurinn verður til sölu víðsvegar á landinu og við allar helstu stórverslanir á höfuðborgarsvæðinu, við alla útsölustaði ÁTVR og nýlundan í ár er að N1 hefur gengið til liðs við SÁÁ með myndarlegum hætti og ætlar að bjóða upp á Álfinn á sínum bensínstöðvum víðsvegar um landið. Auk þess verður hægt að kaupa Álfinn með rafrænum hætti inn á heimasíðu SÁÁ, www.saa.is. Það er hugsað fyrst og fremst fyrir þá Íslendinga sem eru erlendis og vilja kaupa Álfinn. Við þetta má bæta að Álfurinn er komin með sína eigin Facebook síðu.

Rekstur Valaskjálfar niðurgreiddur - Samkeppniseftirlitið skoðar málið

Eigendur gisti- og veitingahúsa á Fljótsdalshéraði hafa kvartað til Samkeppnisyfirlitsins vegna rekstrarfyrirkomulags félagsheimilisins Valaskjálfar. Þeir segja það lítillækkandi að keppa við rekstur sem niðurgreiddur sé af sveitarfélaginu. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Austurgluggans, http://www.austurglugginn.is/index.php/Frettir/Frettir/Veitingamenn_kvarta_til_samkeppnisyfirvalda_Fljotsdalsherad_nidurgreidir_rekstur_Valaskjalfar Sveitarfélagið Fljótsdalshérað rifti seinasta haust samningi við leigutaka félagsheimilishluta Valaskjálfar eftir drátt á leigugreiðslu og samskiptaerfiðleika við leikhópa. Húsnæðið var auglýst til leigu en auglýst var tvisvar þar sem tilboðin sem bárust í fyrra skiptið þóttu ekki ásættanleg. Í upphafi árs var samið við Hótel Egilsstaði. Það fyrirtæki tilheyrir Hringhótelum sem á húsnæðið í heild sinni, en leigir félagsheimilið áfram til sveitarfélagsins. Þetta fyrirkomulag leggst illa í samkeppnisaðila á svæðinu sem hafa kvartað til samkeppnisyfirvalda. Gunnlaugur Jónasson, sem rekur Gistihúsið á Egilsstöðum, segir það "lítilsvirðingu" og "með öllu óásættanlegt" að sveitarfélagið greiði niður rekstur eins samkeppnisaðila. Nógu erfitt sé að halda þjónustunni gagnandi yfir vetrartímann. Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, viðurkennir að það geti "orkað tvímælis að sveitarfélagið taki á sig skuldbindingar eins og þær sem felast í langtímaleigusamningi á umræddu húsnæði sem síðan er endurleigt aðilum á lægra verði en sveitarfélagið greiðir." Hann segir erfitt að gera svo öllum líki en markmiðið sé ekki að vega að þeirri starfsemi sem fyrir er. Sjá fréttina á vef Austurgluggans.

Norðmenn hóta að beita neitunarvaldi

Norsk stjórnvöld ræða nú í fullri alvöru um að beita neitunarvaldi sínu og hafna því að taka inn í norsk lög tilskipun Evrópusambandsins (ESB) um samkeppni í póstþjónustu.

Hefði viljað sjá hærra mat

„Þetta er ákveðinn varnarsigur og jákvætt svo langt sem það nær. Það hefði verið betra að hækka okkur. En þetta styður við það mat manna að Ísland sé að rétta úr kútnum,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um nýtt mat Fitch um lánshæfishorfur ríkissjóðs sem birt var í gær.

Þyrluflugmenn í kröppum dansi á Grænlandi

Þyrluflugmenn frá Vesturflugi komust í hann krappann fyrir nokkrum dögum þegar þeir voru á leið til tveggja staða á Austurströnd Grænlands, til að þjónusta vinnuflokka við rannsóknir vegna fyrirhugaðrar námuvinnslu.

Bílvelta í Vesturbæ

Bíll valt á gatnamótum Boðagranda og Eiðisgranda laust fyrir klukkan sex í morgun og var ökumaður fastur í bílnum, sem nam staðar á hvolfi.

Strandveiðisvæði D verður lokað á miðnætti

Strandveiðisvæði D, sem nær frá Hornafirði með allri Suðurströndinni allt að Borgarbyggð í Faxaflóa verður lokað á miðnætti, þar sem heildarkvóti strandveiðibáta á svæðinu í þessum mánuði er að klárast.

Reyndu að stinga lögreglu af eftir díselþjófnað

Tveir ungir menn á stórum pallbíl reyndu að stinga lögreglu af þegar hún stóð þá að verki við að stela dísilolíu af stórum flutningabíl í Víðidal á höfuðborgarsvæðinu í nótt.

Miklar truflanir á lestarferðum á Sjálandi

Miklar truflanir hafa verið á lestarkerfinu á Sjálandi í Danmörku í morgun. Margar lestanna keyra aðeins á 20 mínútna fresti í stað fimm mínútna og sumar lestir keyra alls ekki.

Strauss-Kahn í hinu alræmda Riker Island fangelsi

Dominique Strauss-Kahn forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur verið fluttur í fangaklefa í hinu alræmda Riker Island fangelsi í New York. Þar mun hann dvelja fram á föstudag.

Blá lömb spígspora um Steingrímsfjörð

"Gamlir og þrjóskir bændur eru búnir að finna upp alls konar brellur,“ segir Guðbrandur Sverrisson, bóndi á Bassastöðum í Steingrímsfirði, sem heilsprautaði í vor fjögur nýborin lömb með bláum merkjalit.

Hinsegin dagar hlutu verðlaun

Hinsegin dagar hlutu í gær Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar. Jón Gnarr borgarstjóri afhenti Þorvaldi Kristinssyni, forseta Hinsegin daga, verðlaunin í Höfða.

Kallar eftir hugarfarsbreytingu þingmanna

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, hefur áhyggjur af yfirbragði stjórnmálaumræðunnar í landinu og segir þörf á hugarfarsbreytingu.

Ákærðir fyrir lífshættulega árás

Tveir menn, 37 og 43 ára, hafa verið ákærðir fyrir húsbrot, ólögmæta nauðung og stórfellda líkamsárás sem framin var í Reykjanesbæ á síðustu nýársnótt.

Aflandskrónum komið í vinnu

Seðlabankinn áformar að efna til uppboðs á erlendum gjaldeyri fyrir eigendur aflandskróna. Um tilraunaverkefni er að ræða og verða lágar fjárhæðir boðnar upp, að sögn Más Guðmundssonar seðlabankastjóra.

Ákærður fyrir að fótbrjóta ökuníðing

Ríkissaksóknari hefur ákært lögreglumann fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot. Meint brot áttu sér stað þegar lögreglumaðurinn veitti ökumanni eftirför úr Reykjavík í Mosfellsbæ.

Eiginkonan enn í öndunarvél

Konan sem varð fyrir árás eiginmanns síns á heimili þeirra í Grafarholti á sunnudagsmorgun var enn þungt haldin í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans í gærkvöldi. Maðurinn var á sunnudagskvöld úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. maí grunaður um manndrápstilraun.

Ólína segir allt á sömu bókina lært

Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður segir að stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á málefnum sorpbrennslna á Íslandi sýni enn og aftur fram á þá brotalöm sem virðist vera í íslenskri stjórnsýslu og ýmsar skýrslur ríkisendurskoðunar hafa staðfest að undanförnu.

Fattaði að ég væri bara enn eitt fíflið á leið í fangelsi

Þegar ég gekk inn á Litla hraun í fyrsta sinn fattaði ég að ég væri bara enn eitt fíflið á leið í fangelsi. Þetta segir Grétar Sigurðsson sem fékk tveggja og hálfs árs dóm fyrir aðild sína að líkfundarmálinu svokallaða árið 2005.

Fjórir fluttir á spítala eftir skinkurifrildi

Ástæðurnar fyrir því að fólk fer að rífast eru margar hverjar óvenjulegar og sumar eru óskiljanlegar. Frekar óvenjulegt atvik kom upp í stórverslun í bænum Livorno á Ítalíu á dögunum þegar fjórir voru fluttir á spítala eftir rifrildi um skinku.

Fréttaskýring: Varasamar breytingar á kvótakerfi

Drög liggja fyrir að frumvarpi Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Fréttablaðið bar hugmyndirnar í frumvarpinu undir hagfræðinga til að fá svar við því hverjar afleiðingar breytinganna eru líklegar til að verða.

Björgunin markaði tímamót

Minningarguðþjónusta um sögulegt björgunarfrek við Íslandsstrendur var haldin í bænum Grimsby í Bretlandi um helgina. Björgunin markaði upphaf þess að gúmmíbátar urðu skylduútbúnaður á skipum.

MR besti framhaldsskóli landsins

Menntaskólinn í Reykjavík er besti framhaldsskóli landsins ef marka má úttekt stærðfræðings sem byggði á sautján gæðavísum. Úttektin er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.

Enn þungt haldin á gjörgæsludeild

Kona sem varð fyrir árás á heimili sínu í gærmorgun liggur enn þungt haldin á gjörgæsludeild. Henni er haldið sofandi í öndunarvél.

Sjá næstu 50 fréttir