Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vestfirðingar krefjast lausna Um tvö hundruð Vestfirðingar mættu á hvatningar og baráttufund í dag. Blikur eru á lofti í atvinnulífi svæðisins og var fundurinn ákall til kjörinna fulltrúa Vestfjarða á þingi og sveitarstjórnum um að þeir taki höndum saman, leggi flokkspólitísk ágreiningsefni til hliðar og sameinist í að leysa brýn verkefni í atvinnu og byggðamálum Vestfjarða. 11.3.2007 16:15
Olmert fundar með Abbas Forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, kom til Jerúsalem í dag til þess að eiga viðræður við Mahmoud Abbas, forseta Palestínu. Þetta er annar fundur þeirra á innan við mánuði. Búist er við því að viðræðurnar eigi eftir að snúast um nýlegt samkomulag Fatah og Hamas hreyfinganna um þjóðstjórn í Palestínu og hvernig samskiptum Ísraels við hana verður háttað. 11.3.2007 16:10
Hvetur stjórnmálaflokka til áherslu á umhverfismál Framtíðarlandið hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem það hvetur alla stjórnmálaflokka á Íslandi ti þess að svara kalli almennings um auknar áherslur á náttúruvernd og umhverfismál, virða þau verðmæti sem felast í óspilltri náttúru landsins, og vaxtarhugmyndum sem byggja á hugviti, nýsköpun og útrás. 11.3.2007 16:00
Forsetahjónin heimsækja Ártúnsskóla Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú munu heimsækja Ártúnsskóla á morgun, mánudaginn 12. mars. Ártúnsskóli hlaut Íslensku menntaverðlaunin árið 2006 í flokki skóla sem sinnt hafa vel nýsköpun og farsælu samhengi í fræðslustarfi en þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem að forsetaembættið sendi frá sér í dag. 11.3.2007 15:45
Búist við því að Chirac bjóði sig ekki fram á ný Búist er við því að Jacques Chirac, forseti Frakklands, muni tilkynna í kvöld að hann ætli sér ekki að bjóða sig fram á ný. Yfirlýsingin verður flutt klukkan sjö í kvöld að íslenskum tíma. 11.3.2007 15:38
Elding olli skammhlaupi Svo virðist sem að eldingu hafi lostið niður í loftlínur á milli Kolviðarháls og Geitháls og ollið skammhlaupi. Atvikið virðist hafa haft áhrif á búnað hjá Reykjavíkurborg sem og álverunum á Grundartanga og í Straumsvík. 11.3.2007 15:15
Bandaríkin flýta klukkunni Bandaríkjamenn hafa flýtt klukkum sínum eina klukkustund þremur vikum fyrr en venjulega. Þetta gera þeir til þess að spara orku og menga minna. Þingmenn segja að þetta muni minnka til muna útblástur skaðlegra efna í andrúmsloftið og gæti sparað almenningi miklar fjárhæðir. 11.3.2007 14:45
Íranar bjartsýnir eftir friðarráðstefnu í Bagdad Utanríkisráðuneytið í Íran sagði í dag að alþjóðlega ráðstefnan í Bagdad, þar sem Íran og Bandaríkin áttu fyrstu viðræður síðan árið 2003, hefði verið gott fyrsta skref í áttina að auknu öryggi og stöðugleika í Írak. Ráðamenn í Tehran gáfu einnig til kynna að þeir vonuðust til þess að seinni fundurinn um málefni Íraks eigi eftir að verða jafngóður. Seinni fundurinn á að eiga sér stað í Apríl og hann munu sækja utanríkisráðherrar þeirra landa sem sem sóttu fundinn í gær. 11.3.2007 14:30
Leiðtogar stjórnarandstöðu í Zimbabwe handteknir Yfirvöld í Zimbabwe hafa handtekið leiðtoga stjórnarandstöðunnar þar í landi fyrir að hafa ætlað að halda fjöldabænafund þrátt fyrir bann stjórnvalda við að halda pólitískar samkomur. 11.3.2007 14:15
Dómari í máli Saddams flýr Írak Yfirdómarinn í máli Saddams Hússeins hefur flúið Írak og beðið um pólitískt hæli í Bretlandi. Dómarinn, Raouf Abdel-Rahman, er hluti af hinum kúrdíska minnihluta í Írak. Hann var yfirdómari í dómstólnum sem fann Saddam Hússein sekan og dæmdi hann síðan til dauða. 11.3.2007 14:00
Hamas og Fatah takast á Liðsforingi í Hamas samtökunum lét lífið í dag í skotabardögum við liðsmenn Fatah hreyfingarinnar á norðuhluta Gaza-svæðisins. Átökin hófust í Beit Hanoun en þar voru gerðar árásir með klasasprengjum og handsprengjum í morgun. 11.3.2007 13:30
Vonast til þess að hleypa vatni á fyrir kvöldið „Við vonumst til þess að þetta verði komið í lag fyrir kvöldið.“ sagði Guðmundur Sigurjónsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar í samtali við Vísi. Loka þurfti fyrir heitt vatn í Árbæjarhverfi í morgun þar sem leki hafði komið að aðalæðinni inn í hverfið. 11.3.2007 13:15
Stefnir í uppgjör í Zimbabwe Stjórnarandstæðingar í Zimbabwe hafa heitið því að halda samkomu þrátt fyrir að stjórnvöld hafi sett bann á allar stjórnmálasamkomur næstu þrjá mánuði. Bannið var sett á vegna ofbeldis sem braust út á samkomu stjórnarandstæðinga í síðasta mánuði. 11.3.2007 12:45
Illa búið að breskum hermönnum Yfir tuttugu þúsund breskir hermenn eru sagðir þjást af þunglyndi og öðrum geðsjúkdómum eftir að hafa verið sendir til Íraks og Afganistans. Þúsund manns úr þessum hópi eru á götunni og sú heilbrigðisþjónusta sem þeim býðst er bágborin. Nokkur dæmi eru um að þeir sem gegnt hafa herþjónustu í Írak hafi stytt sér aldur. 11.3.2007 12:30
Var ekki misnotaður Páll Pétursson formaður Lyfjaverðsnefndar þvertekur fyrir að hafa látið fyrirtækið Actavis misnota sig til að koma í veg fyrir samkeppni eins og fyrirtækið Portfarma heldur fram.Málið hefur verið kært til Samkeppniseftirlitsins en talsmenn Portfarma segja Pál hafa viðurkennt mistökin í vitna viðurvist. Páll segist ekki kunna að meta þessi sannleiksvitni frá Portfarma, en þeir fari ekki með rangt mál heldur ýki. 11.3.2007 12:13
Gríðarlegt vatnstjón í kjallara fjölbýlishúss Gríðarlegt vatnstjón varð í flóði í nótt í kjallara fjölbýlishúss við Sólvallagötu. Þetta er mesta vatnsflóð í húsi sem slökkvliðið hefur þurft að kljást við en talið var að allt að tvö þúsund tonn af vatni hafi verið í bíla- og geymslukjallara hússins. 11.3.2007 12:00
Rússar kjósa í sveitastjórnarkosningum í dag Meira en 30 milljón Rússar munu kjósa í sveitastjórnarkosningum í landinu í dag. Almennt er talið að kosningarnar séu nær því að vera undirbúningur fyrir þingkosningarnar en þær fara fram á næstunni. 11.3.2007 11:45
29 látnir og 12 slasaðir í Írak í morgun Bílsprengja sprakk í morgun í miðborg Bagdad og létu að minnsta kosti 19 manns lífið. Frá þessu skýrði lögregla í borginni í morgun. Sprengingin varð í Karrada hverfinu í Bagdad en í því búa mestmegnis sjía múslimar. 11.3.2007 11:30
Fjöldamótmæli í Madríd Tugþúsundir manna flykktust út á götu Madrídar, höfuðborgar Spánar í gær, til að mótmæla því að Jose Ignacio de Juana Chaos, liðsmaður Aðskilnaðarhreyfingar Baska, ETA, hefði verið færður úr öryggisgæslu yfir í stofufangelsi. 11.3.2007 11:15
Fyrstu frjálsu kosningarnar í Máritaníu í 50 ár Kosningar eru hafnar í norðvestur-Afríkuríkinu Máritaníu en þetta verða fyrstu frjálsu kosningarnar í landinu í tæplega fimmtíu ár. Meira en ein milljón manna verða á kjörskrá og kjósa á milli 19 frambjóðenda. 11.3.2007 11:00
Þrír teknir eftir bikarúrslitaleik Kalla þurfti lögreglu til eftir að átök brutust út á úrslitaleik í bikarkeppninni í handbolta í dag. Stuðningsmenn liðanna tveggja, Fram og Stjörnunnar, áttu þá í handalögmálum sem bárust út á völl. Öryggisverðir á leiknum komu þá til og héldu mönnunum og hentu þeim út. Lögregla handtók mennina og fór með þá niður á stöð þar sem þeir voru teknir tali. Eftir það var þeim sleppt. 10.3.2007 20:30
Bjórnum varpað beint úr ísskápnum Bandarískur hugbúnaðarverkfræðingur kynnti nýja og afar gagnlega uppfinningu í vikunni sem nú er senn á enda. Tækið sem hann fann upp getur skotið bjórdósum beint úr ísskápnum yfir í stofusófann. 10.3.2007 20:00
Gæti breytt lífi milljóna manna Íslenska fyrirtækið Icexpress hefur þróað byltingarkennda aðferð sem gerir nánast hverjum sem er kleift að smíða fullkomna gervilimi á aðeins fáeinum klukkustundum. Össur Kristinsson, einn stofnenda fyrirtækisins, segir að með uppfinningunni verði hægt að gerbreyta lífi milljóna manna í þróunarlöndunum. 10.3.2007 19:45
Ást verður hluti af leiknum Hinn þaulreyndi leikjahönnuður Peter Molyneux hefur tilkynnt að hann vilji að ást sé hluti af næsta leik sem hann hannar, Fable 2. „Þetta er djarfa áætlunin mín - ég ætla þér að upplifa eitthvað í Fable sem þú sem tölvuleikjaspilari hefur aldrei upplifað áður.“ lýsti Molyneux yfir. 10.3.2007 19:45
Fimm landa heimsókninni senn lokið George Bush forseti Bandaríkjanna og Hugo Chavez forseti Venesúela ferðast þessa dagana um Suður-Ameríku til að styrkja tengslin við bandamenn sína. Vart þarf að taka fram að þeir ferðast hvor í sínu lagi enda svarnir óvinir. 10.3.2007 19:30
Gæti haft bein áhrif á niðurstöðu dómstóla Frumvarp til breytinga á samkeppnislögum sem nú er til meðferðar hjá efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis gæti haft bein áhrif á niðurstöðu dómstóla í málinu gegn forstjórum olíufélaganna. Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn eru þó ekki á eitt sáttir en frumvarpið kveður á um skýrari refsiábyrgð einstaklinga í samkeppnismálum. 10.3.2007 19:15
Fulltrúar Írans og BNA ræddust við Forsætisráðherra Íraks biðlaði, á ráðstefnu í Bagdad í dag, til nágrannaríkja sinna um aðstoð við að binda enda á vargöldina sem ríkir í landinu. Fulltrúar Bandaríkjanna og Írans ræddust þar við með beinum hætti en stjórnmálasamband á milli ríkjanna hefur legið niðri í 28 ár. 10.3.2007 18:50
Formaður Lyfjaverðsnefndar sakaður um gáleysi Fyrirtækið Portfarma ásakar Pál Pétursson, formann Lyfjaverðsnefndar, um að hafa látið fyrirtækið Actavis misnota sig í janúar þegar hann krafðist þess að Actavis lækkaði verð á samheitalyfjum hér til samræmis við verð sem það byði á öðrum Norðurlöndum. Actavis, sem ræður níutíu og átta prósentum markaðarins, hafi gripið tækifærið og lækkað að stórum hluta verð á lyfjum eina samkeppnisaðilans í landinu. 10.3.2007 18:45
Tæki sem gefa börnum sjón í kössum í sjö mánuði Tæki sem Vátryggingafélag Íslands gaf Sjónstöð Íslands fyrir ári hafa legið ónotuð í kössum í að minnsta kosti sjö mánuði. Með tækjunum er hægt að búa til snertilinsur fyrir börn, sem augasteinar hafa verið fjarlægðir úr, þannig að þau geti séð án þess að þurfa á þungum og þykkum gleraugum að halda. 10.3.2007 18:30
Friðsöm mótmæli í dag Þúsundir manna gengu fylktu liði um götur Kaupmannahafnar í dag til að mótmæla niðurrifi Ungdómshússins á Norðurbrú í vikunni. Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa krafist rannsóknar á framgöngu lögreglunnar í garð mótmælenda um síðustu helgi. 10.3.2007 18:30
Sluppu með skrekkinn Þrír íslenskir námsmenn, búsettir í bænum Naples í Flórídaríki í Bandaríkjunum sluppu með skrekkinn í nótt. Þeir voru á leið heim af skemmtistað þegar á þá var ráðist með hafnaboltakylfu. Þeim tókst að komast undan ræningjanum og brátt var svæðið umkringt 18 lögreglubílum. 10.3.2007 18:15
Írakar vongóðir eftir fyrsta fund Utanríkisráðherra Íraks, Hoshyar Zebari, var vongóður eftir fyrsta alþjóðlega fundinn um framtíð Íraks og hvernig sé hægt að koma ró á í landinu. „Fundurinn var jákvæður og uppbyggjandi,“ sagði Zebari. „Niðurstöður fundarmanna voru góðar.“ 10.3.2007 18:00
Veður fer versnandi á landinu "Já það er versnandi veður á sunnan og vestanverðu landinu og síðar í kvöld má búast við stórhríð á heiðum á Vestfjörðum og einnig gæti orðið talsvert blint á Holtavörðuheiði og raunar víðar gangi spár eftir" segir Sigurður Þ. Ragnarsson yfirveðurfræðingur á Veðurstofu Stöðvar 2. 10.3.2007 17:45
Slagsmál á milli stuðningsmanna Upp úr sauð á milli nokkurra stuðningsmanna Stjörnunnar og Fram á bikarúrslitaleik liðanna sem lauk rétt í þesu með sigri Stjörnunnar. Í seinni hálfleik hófust slagsmál í stúkunni og brátt barst leikurinn út á gólfið. Gera þurfti hlé á leiknum í nokkrar mínútur á meðan öryggisverðir komu mönnunum út úr húsi. Reikna má með því að atvikið hafi einhverja eftirmála fyrir félögin. 10.3.2007 17:30
Sagaði húsið í tvennt Þjóðverji einn ákvað að binda endi á skilnaðardeilu við konu sína með því að saga timburhús þeirra í tvennt með keðjusög og fara með sinn hluta í burtu með gaffallyftara. 10.3.2007 16:45
Tveimur þjóðverjum rænt í Írak Tveimur þýskum ríkisborgunum hefur verið rænt í Írak. Áður óþekktur uppreisnarhópur setti í dag myndband af þeim á netið og gaf þýskum stjórnvöldum tíu daga til þess að draga hermenn sína frá Afganistan. Annars myndu þeir aflífa fólkið. Hópurinn kallar sig „Örvar Réttlætisins.“ Þýsk stjórnvöld ætla sér að gera allt sem í sínu valdi stendur til þess að frelsa fólkið. 10.3.2007 16:30
Slasaðist á skíðaæfingu Ein stúlka slasaðist á skíðaæfingu í Bláfjöllum í dag og var farið með hana á slysadeild. Óttast er að hún hafi fótbrotnað. Búið er að loka í Bláfjöllum vegna skyndilega versnandi veðurs. Nú er skollinn á snjóbylur í fjöllunum og skyggni orðið mjög lítið. 10.3.2007 16:19
Tvö þúsund manna mótmæli í Kaupmannahöfn Tvö þúsund manns ganga nú fylktu liði frá Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn að Norðurbrú og krefjast þess að nýtt Ungdómshús verði reist á þeim slóðum í stað hússins umdeilda sem stóð við Jagtvejen og var rifið í vikunni. Mótmælin eru friðsamleg en lögregla hefur uppi mikinn viðbúnað. 10.3.2007 16:15
Samtök iðnaðarins með athyglisverðasta sýningarsvæðið Sýningarsvæði Samtaka iðnaðarins var nú síðdegis valið það athyglisverðasta á stórsýningunni Tækni og viti 2007, sem haldin er í Fífunni. Önnur verðlaun hlaut fyrirtækið CAOZ, sem sérhæfir sig í gerð tölvugerðra teiknimynda. Fyrirtækin Rue de Net, sem er hugbúnaðarfyrirtæki, og hönnunarfyrirtækið H2 hönnun skiptu síðan milli sín þriðju verðlaunum. 10.3.2007 15:45
Fimmfaldur pottur: stefnir í 35 milljónir Fyrsti vinningur í lottóinu gekk ekki út um helgina og er því fimmfaldur laugardaginn 10. mars og stefnir í 35 milljónir sem er stærsti fimmfaldi fyrsti vinningur frá upphafi. 10.3.2007 15:15
Bush kominn til Úrugvæ George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hélt í dag ferðalagi sínu um Suður-Ameríku áfram. Í dag fundaði hann með forseta Úrugvæ en þeir vilja ólmir skrifa undir fríverslunarsamninga við Bandaríkin, jafnvel þó svo þeir þyrftu að yfirgefa fríverslunarbandalag ríkja í Suður-Ameríku 10.3.2007 15:00
Söngvari Boston látinn Söngvari hljómsveitarinnar Boston fannst látinn á heimili sínu í gær. Brad Delp, sem var 55 ára, var söngvari sveitarinn þegar hún gerði lögin „More Than a Feeling“ og „Long Time“ vinsæl. 10.3.2007 14:30
Osama fimmtugur í dag Osama Bin Laden er fimmtugur í dag. Það er að segja ef hann er enn á lífi. Þrátt fyrir að meira hafi verið leitað að honum en nokkrum öðrum manni getur hann enn frjálst um höfuð strokið. Bandaríkjamenn telja að hann sé einhvers staðar á landamærum Pakistan og Afganistan. 10.3.2007 14:15
Í ökuferð um verslanamiðstöð Bílstjóri í bænum Augusta í Georgíu-ríki í Bandaríkjunum á yfir höfði sér refsingu eftir að hafa farið í ökuferð um óvenjulegar slóðir. Hann ók bifreið sinni í gegnum glerdyr á verslanamiðstöð borgarinnar og keyrði svo í hægðum sínum framhjá upplýstum búðargluggunum. 10.3.2007 14:00
Ætla að læra í sólarhring Nemendur Menntaskólans Hraðbraut ætla að læra í 24 tíma til að safna sér fyrir útskriftarferðinni sinni. Kennarar og foreldrar gefa vinnu sína og sitja yfir þeim til að tryggja að allt fari rétt fram. Þau hafa fengið þónokkurn styrk frá stórum fyrirtækjum. 10.3.2007 13:45