Fleiri
Ekkert bendir til þess að Díana hafi verið myrt 5.3.2007 14:02 Stór hluti meintra kynferðisbrotamála felldur niður 262 af 380 málum sem bárust ríkissaksóknara vegna meintra kynferðisbrota voru felld niður á árunum 1999-2006. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Valdimars Leós Friðrikssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins. 5.3.2007 13:53 Dæmdir fyrir pyntingar á Serbum Hæstiréttur Króatíu hefur staðfest fangelsisdóma yfir átta fyrrverandi herlögreglumönnum fyrir að pynta og myrða serbneska fanga í stríðinu árið 1992. Fórnarlömb þeirra voru bæði serbneskir hermenn og almennir borgarar. Mennirnir fengu sex til átta ára fangelsisdóma. 5.3.2007 13:35 Skattmann stekkur á Alexöndru Þegar Alexandra prinsessa sagði já við kærastann sinn klukkan fjögur á föstudag, urðu umtalsverðar breytingar á hennar högum. Hún er nú ekki lengur prinsessa heldur aðeins greifynja, og danski skattmann mun hér eftir hirða drjúgan skerf af tekjum hennar. 5.3.2007 13:18 Loftmengun minni eftir aldamót vegna meiri úrkomu Loftmengun var meiri í Reykjavík árin 1995 til 2000 heldur en árin 2002 til 2006 að því er segir á vef umhverfisssviðs Reykjavíkurborgar. Ástæðan er sögð meðal annars meiri úrkoma og betri mengunarbúnaður í bifreiðum þrátt fyrir fjölgun bíla. 5.3.2007 13:15 Átta fórust í árekstri flugvéla við skíðastað í Austurríki Átta manns fórust þegar þyrla og lítil einkaflugvél rákust saman í Austurríki, í dag. Slysið varð á skíðastaðnum Zell am See. Sjö manns voru um borð í þyrlunni, sem var að flytja tækjabúnað að nálægri orkuveitu. 5.3.2007 13:04 Konur í aðalhlutverki Sendinefndin sem fylgdi Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra á ferð hennar um Afríku í síðustu viku var þorra ferðarinnar eingöngu skipuð konum. Ekki eru dæmi um að svo hátt sett sendinefnd hafi verið þannig skipuð. 5.3.2007 13:00 Hvorugur endurskoðenda Baugs vissi um kaupréttarsamninga Endurskoðendur Baugs vissu hvorugir um kaupréttarsamninga yfirmanna Baugs fyrr en eftir að lögreglurannsókn hófst. Anna Þórðardóttir, endurskoðandi Baugs, kom fyrir réttinn í morgun. 5.3.2007 12:52 Sjá næstu 50 fréttir
Leikskólagjöld lækkuð á Seltjarnarnesi Bæjarstjórn Seltjarnarness hefur samþykkt að lækka leikskólagjöld í bæjarfélaginu. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá bænum felast breytingarnar í 10 prósenta lækkun á grunngjaldi, helmingshækkun systkinaafslátta auk um 30-60 prósenta hækkunar á framlögum til einkarekinna leikskóla. 6.3.2007 10:56
Þingið í Ekvador gegn forsetanum Þingið í Ekvador lagði fram tillögu hjá stjórnarskrárdómstólum landsins til þess að reyna að koma í veg fyrir að Rafael Correa, hinn vinstri sinnaði forseti landsins, geti haldið þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort hann megi halda stjórnarskrárþing og breyta stjórnarskrá landsins. Talið er líklegt að þetta eigi eftir að auka á spennu í landinu en stuðningsmenn Correa hafa verið duglegir við að mótmæla tilburðum þingsins til þess að setja sig upp á móti Correa. 5.3.2007 23:34
Bandaríkin og Norður-Kórea í sögulegum viðræðum Viðræður eru hafnar á milli erindreka Bandaríkjanna og Norður-Kóreu um að koma á eðlilegum diplómatískum samskiptum á milli ríkjanna tveggja. Fyrsti fundurinn var í dag og er hann sá fyrsti í 50 ár á milli landanna tveggja. 5.3.2007 23:19
Enn ekki samkomulag um refsiaðgerðir Sendiherrar hjá Sameinuðu þjóðunum funduðu í dag um væntanlegar refsiaðgerðir gegn Íran en samkomulag hefur enn ekki náðst. „Málið hefur verið fært til öryggisráðsins“ sagði aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, Nicholas Burns, eftir fund með Ban Ki-Moon, aðalritara Sameinuðu þjóðanna. 5.3.2007 23:02
Ætla að rannsaka möttul jarðarinnar Vísindamenn frá háskólanum í Cardiff í Bretlandi lögðu í dag af stað í leiðangur til þess að kanna hafsbotninn á Atlantshafinu en á staðnum sem þeir ætla að skoða vantar jarðskorpuna. Möttull jarðarinnar er þar óvarður en svæðið, sem er mörg þúsund ferkílómetrar að stærð, uppgötvaðist nýlega. 5.3.2007 22:40
Umferðaróhapp á Sæbraut í kvöld Umferðaróhapp varð á Sæbraut til móts við Aktu Taktu skyndibitastaðinn í kvöld. Slysið var ekki alvarlegt en farþegi í aftursæti í öðrum bílnum slasaðist lítillega. Ökumenn beggja bílanna sluppu ómeiddir. Lögreglan vísar sem stendur umferð af Sæbrautinni inn á Skúlagötuna á meðan hún sinnir störfum sínum. Bílarnir skemmdust eitthvað en ekki er vitað hvort að þeir séu ökufærir. 5.3.2007 22:23
Veður fer versnandi á Holtavörðuheiði Veður og færð fer versnandi á Holtavörðuheiði og eru ökumenn lítilla bíla beðnir að leggja ekki á heiðina fyrir nóttina. Veginum milli Ísafjarðar og Súðavíkur er lokaður og einnig er varað við snjóflóðahættu á veginum um Óshlíð. Björgunarsveitir voru kallaðar út til þess að aðstoða mann sem hafði fest sig á Steingrímsfjarðarheiði en Vegagerðin hafði varað fólk við að ferðast þar um þar sem þjónustu var hætt klukkan átta í kvöld. 5.3.2007 22:09
Reyndu að eyðileggja sönnunargögn Bandarískir hermenn reyndu að uppræta og eyðileggja allar myndir og myndbönd af skotárásinni sem átti sér stað í gær. Í henni létust að minnsta kosti tíu manns. Þetta kom fram á vefsíðu fréttastöðvarinnar Al Jazeera í dag. 5.3.2007 21:00
Cheney með blóðtappa Læknar í Bandaríkjunum fundu í dag blóðtappa í vinstri fótlegg Dick Cheneys varaforseta Bandaríkjanna. Hann fær lyf til þess að þynna blóðið en verður ekki lagður inn á spítala samkvæmt fregnum frá talsmönnum hans. 5.3.2007 20:45
Ókeypis hafragrautur handa svöngum nemendum Grunnskóli á Akureyri hefur brotið blað í sögu skóla þar í bæ með því að bjóða öllum nemendum sínum upp á ókeypis hafragraut. Börnin taka árbítnum fagnandi og rennur grauturinn ofan í maga nemenda í stríðum straumum. 5.3.2007 20:00
Akureyrarbær boðar kennara á sérfund Ríkissáttasemjari hefur ákveðið að funda með kennurum vegna kjaradeilunnar. Akureyrarbær hefur einnig boðað sína kennara á sérfund og er fyrsta sveitarfélagið sem tekur það það skref. 5.3.2007 19:45
Aftur í pápískuna Baldur Kristjánsson, sóknarprestur og fyrrverandi biskupsritari vill að Þjóðkirkjan sameinist Kaþólsku kirkjunni undir forsæti páfa. Telur hann sýnt að fækka muni áfram í Þjóðkirkjunni en nú þegar er fimmti hver Íslendingur utan hennar eða yfir fimmtíu þúsund manns. 5.3.2007 19:24
Íslenskur munkur í íslensku klaustri Munkaklaustur reglu kapúsína verður stofnað að Kollaleiru í Reyðarfirði í sumar. Verður þá hafið að nýju klausturlíf munka hér á landi eftir hlé frá siðaskiptum fyrir 450 árum. Íslenskur munkur er við nám á Ítalíu við reglu kapúsína og verður hann fyrsti íslenski munkurinn í íslensku munkaklaustri frá tímum siðaskipta. 5.3.2007 19:19
Gera lítið úr ágreiningi Formenn og varaformenn stjórnarflokkanna gerðu lítið úr ágreiningi sínum eftir að hafa verið á fundi í forsætisráðuneytinu í morgun. Engin niðurstaða er enn komin í málið. 5.3.2007 19:14
Árni vill sömu ríkisstjórn áfram Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, segir að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur eigi að halda áfram stjórnarsamstarfi sínu, haldi þeir meirihluta sínum í komandi kosningum. 5.3.2007 19:07
Stjórnarandstaðan vill auðlindaákvæði í stjórnarskrá Þingflokkar Samfylkingar, vinstri grænna og frjálslyndra vilja greiða fyrir því að ákvæði um þjóðareign á náttúruauðlindum verði tekið upp í stjórnarskrá. Þingflokkarnir samþykkja jafnframt að afgreiðsla frumvarps til nýrra stjórnskipunarlaga, með slíku innihaldi, verði forgangsmál í störfum Alþingis það sem eftir lifir þingtímans. 5.3.2007 19:00
Átta fórust í flugslysi í Austurríki Átta manns létu lífið þegar lítil eins hreyfils flugvél lenti í árekstri við þyrlu yfir skíðasvæðinu í Zell am See í Austurríki í dag. Sjö voru um borð í þyrlunni en einn í flugvélinni og komst enginn lífs af. 5.3.2007 18:45
Ungdómshúsið rifið Ungdómshúsið, á Norðurbrú í Kaupmannahöfn, var rifið í morgun af grímuklæddum verkamönnum sem óttuðust hefndaraðgerðir mótmælenda. Frekari mótmæli hafa verið boðuð í borginni á næstu dögum. 5.3.2007 18:30
Íslendingar kosta skólamáltíðir í Úganda Íslensk stjórnvöld ætla að kosta skólamáltíðir 65.000 barna á átakasvæðum Norður-Úganda næstu tvö árin. Með ákvörðuninni kemst Ísland í hóp þeirra ríkja sem verja mestu fé til Matvælahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Úganda, sé miðað við höfðatölu. Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, heimsótti á dögunum flóttamannabúðir á svæðinu. 5.3.2007 18:30
Ísafjarðardjúp ófært vegna snjóflóða Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni er Ísafjarðardjúp ófært vegna snjóflóða og ekki verður mokað vegna snjóflóðahættu fyrr en í fyrramálið. Vegna slæms veður mun færð á Steingrímsfjarðarheiði þyngjast mjög fljótlega eftir að þjónustu lýkur kl. 20.00 í kvöld. 5.3.2007 18:22
NATO banar níu almennum borgurum í Afganistan Níu almennir borgarar í norðurhluta Afganistan létu lífið í loftárásum NATO í dag. NATO gerði þá árásir fyrir mistök á íbúðarhúsnæði en þeir töldu að þar hefðu verið hryðjuverkamenn á ferð. 5.3.2007 17:46
Vilja ræða um hvort stytta eigi leyfistíma nagladekkja Viðræður um styttingu á leyfistíma nagladekkja við Umferðarstofu og athugun á kostum og göllum þess að taka upp einhvers konar takmarkanir eins og gjaldtöku á notkun nagladekkja í samvinnu við ríki og önnur sveitarfélög eru meðal aðgerða sem umhverfisráð borgarinnar samþykkti á fundi sínum í dag. 5.3.2007 16:53
Flestum meintum hryðjuverkamönnum sleppt Meirihluti þeirra sem hafa verið handteknir samkvæmt hryðjuverkalögum, í Bretlandi, síðan árásin var gerð á bandaríkin 11. september 2001, hefur verið látinn laus án ákæru. Samkvæmt tölum frá innanríkisráðuneytinu, sem birtar voru í dag, voru 1.126 handteknir frá árásinni til loka síðasta árs. Fjörutíu til viðbótar sátu í varðhaldi vegna aðgerða lögreglu gegn hryðjuverkum. Af þessum var 652 sleppt án ákæru. 5.3.2007 16:41
Megrunarpilla gefin frjáls Megrunarlyfið Alli hefur verið leyst undan lyfseðilsskyldu í Bandaríkjunum, og verður í sumar hægt að fá það í hvaða verslun sem er. Það var Bandaríska lyfjastofnunin sem ákvað að gefa lyfið frjálst. Lyfið nýtur mikilla vinsælda þar vestra. 5.3.2007 16:35
Lést í umferðarslysi í Hörgárdal Maðurinn sem lést í umferðarslysinu í Hörgárdal aðfaranótt sunnudagsins síðastliðinn hét Marcello Bruno La Fata, fæddur 9. júní 1968, til heimilis að Grettisgötu 43 í Reykjavík. Hann var ítalskur ríksborgari en hefur verið búsettur hér á landi í nokkur ár. 5.3.2007 16:30
Lækka gjaldskrá í félagsmiðstöðvum Velferðarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í morgun að lækka gjaldskrá fyrir veitingar í félagsmiðstöðvum Reykjavíkurborgar. 5.3.2007 16:21
Fyrsti fundur nýs hlutafélags um Ríkisútvarpið Stofnfundur Ríkisútvarpsins ohf. fór fram í Þjóðmenningarhúsinu í dag en eins og kunnugt er var samþykkt á Alþingi snemma á árinu að breyta stofnuninni í opinbert hlutafélag. 5.3.2007 16:09
Frakkar senda liðsauka til Mið-Afríku Frakkar hafa sent liðsauka frá Gabon til Mið-Afríku lýðveldisins, eftir að hermenn þeirra þar lentu í átökum við uppreisnarmenn um helgina. Um eitthundrað hermenn voru sendir úr liði sem Frakkar hafa í Gabon. Uppreisnarmennirnir vilja steypa Francois Bozize, forseta af stóli. 5.3.2007 15:43
Stjórnarandstaðan tilbúin að greiða fyrir auðlindamáli á þingi Þingflokkar Samfylkingarinnar, Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs og Frjálslynda flokksins lýsa sig reiðubúna til að greiða fyrir því að ákvæði um þjóðareign á náttúruauðlindum sem ekki eru háðar einkaeignarrétti verði tekið upp í stjórnarskrá. Þetta kom á blaðamannafundi flokkanna í dag í Alþingishúsinu. 5.3.2007 15:40
Slippurinn að líkindum upp á Grundartanga Slippurinn í Reykjavík flyst að líkindum upp á Grundartanga ef hugmyndir eigenda Stálsmiðjunnar ná fram að ganga. Stálsmiðjan hefur rekið það sem eftir er af slippnum við Mýrargötu en hann verður brátt að víkja fyrir íbúðarhúsnæði. 5.3.2007 15:30
Danir vilja grafa 9000 km af raflínum í jörðu Mikil samstaða er um það hjá stjórnmálaflokkum í Danmörku að grafa 9000 kílómetra af raflínum í jörðu, aðallega til þess að losna við risastór möstur og línur sem eru lýti á umhverfinu. Að sögn Jótlandspóstsins er meirihluti fyrir því á þingi að grafa línurnar. 5.3.2007 15:07
Vegi lokað í Steingrímsfirði vegna umferðaróhapps Búið er að loka veginum við Kirkjuból í Steingrímsfirði um óákveðinn tíma vegna umferðaróhapps. Þær upplýsingar fengust hjá lögreglunni á Ísafirði að flutningabíll hefði oltið og að lögreglan á Hólmavík væri á vettvangi. Frekari upplýsingar væri ekki að fá að svo stöddu. 5.3.2007 15:06
Skordýraeitur ógnar regnskógum Kosta Ríka Skordýraeitur ógnar nú mjög vernduðum regnskógum í Kosta Ríka, jafnvel þó að því sé dreift í margra kílómetra fjarlægð frá skógarjaðrinum. Þetta er vegna þess að eitrið leysist upp í rigningarvatni, gufar upp og fellur svo strax aftur sem regn í skógunum. Þetta kemur fram í tímaritinu Enviromental Science & Technology. Meðal afleiðinga þessa er að froskar og skriðdýrategundir í útrýmingarhættu drepast úr eitrinu. 5.3.2007 15:00
Yfir 60 umferðaróhöpp í borginni um helgina Sextíu og fjögur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina, flest minni háttar. Í þremur tilfellum var fólk flutt á slysadeild en í þeim hópi var 17 ára piltur sem velti bíl sínum á Suðurlandsvegi. 5.3.2007 14:59
Þrennt flutt á slysadeild eftir árekstur í Garðabæ Þrennt var flutt á slysadeild með minni háttar meiðsl um ellefuleytið í morgun eftir harðan árekstur tveggja bíla á mótum Reykjanesbrautar og Vífilstaðavegar Í Garðabæ. Breytingar standa nú yfir á gatnamótunum. 5.3.2007 14:52
Rauðglóandi Visakort Sænskri móður brá í brún þegar hún fékk Visa reikninginn sinn þar sem fram kom að hún hefði keypt fyrir rífar 260 þúsund krónur í vefversluninni Playahead. Það kom enda á daginn að það var þrettán ára dóttir hennar sem hafði gerst svona umsvifamikil í viðskiptum og keypt bæði fyrir sjálfa sig og fjörutíu félaga sína. 5.3.2007 14:29
Menntaráð vill hækka styrki til einkarekinna grunnskóla Menntaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að beina því til borgarráðs að hækka styrki til einkarekinna grunnskóla í borginni úr rúmum 515 þúsund krónum á nemanda á ári í 600 þúsund og að hækkunin verði afturvirk frá áramótum. 5.3.2007 14:13
Stór hluti meintra kynferðisbrotamála felldur niður 262 af 380 málum sem bárust ríkissaksóknara vegna meintra kynferðisbrota voru felld niður á árunum 1999-2006. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Valdimars Leós Friðrikssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins. 5.3.2007 13:53
Dæmdir fyrir pyntingar á Serbum Hæstiréttur Króatíu hefur staðfest fangelsisdóma yfir átta fyrrverandi herlögreglumönnum fyrir að pynta og myrða serbneska fanga í stríðinu árið 1992. Fórnarlömb þeirra voru bæði serbneskir hermenn og almennir borgarar. Mennirnir fengu sex til átta ára fangelsisdóma. 5.3.2007 13:35
Skattmann stekkur á Alexöndru Þegar Alexandra prinsessa sagði já við kærastann sinn klukkan fjögur á föstudag, urðu umtalsverðar breytingar á hennar högum. Hún er nú ekki lengur prinsessa heldur aðeins greifynja, og danski skattmann mun hér eftir hirða drjúgan skerf af tekjum hennar. 5.3.2007 13:18
Loftmengun minni eftir aldamót vegna meiri úrkomu Loftmengun var meiri í Reykjavík árin 1995 til 2000 heldur en árin 2002 til 2006 að því er segir á vef umhverfisssviðs Reykjavíkurborgar. Ástæðan er sögð meðal annars meiri úrkoma og betri mengunarbúnaður í bifreiðum þrátt fyrir fjölgun bíla. 5.3.2007 13:15
Átta fórust í árekstri flugvéla við skíðastað í Austurríki Átta manns fórust þegar þyrla og lítil einkaflugvél rákust saman í Austurríki, í dag. Slysið varð á skíðastaðnum Zell am See. Sjö manns voru um borð í þyrlunni, sem var að flytja tækjabúnað að nálægri orkuveitu. 5.3.2007 13:04
Konur í aðalhlutverki Sendinefndin sem fylgdi Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra á ferð hennar um Afríku í síðustu viku var þorra ferðarinnar eingöngu skipuð konum. Ekki eru dæmi um að svo hátt sett sendinefnd hafi verið þannig skipuð. 5.3.2007 13:00
Hvorugur endurskoðenda Baugs vissi um kaupréttarsamninga Endurskoðendur Baugs vissu hvorugir um kaupréttarsamninga yfirmanna Baugs fyrr en eftir að lögreglurannsókn hófst. Anna Þórðardóttir, endurskoðandi Baugs, kom fyrir réttinn í morgun. 5.3.2007 12:52