Fleiri
Ísraelskar orrustuþotur flugu skjótandi yfir þýskt herskip 25.10.2006 17:54 Stærsta útkall Landhelgisgæslu um árabil Landhelgisgæslan fór í sitt stærsta útkall um árabil þegar Boeing 757 flugvél Continental flugfélagsins kom inn til lendingar í Keflavík eftir að tilkynna um bilun í hreyfli. 25.10.2006 17:42 Vandræði lággjaldaflugfélags fyrsta flugdag Þeir voru vandræðalegir stjórnendur Oasis lággjaldaflugfélagsins í Hong Kong þegar aflýsa þurfti fyrstu ferð flugfélagsins í dag. Ekki hafði fengist leyfi til að fljúga um rússneska lofthelgi. Vélin átti að fara frá Hong Kong og lenda á Gatwick flugvelli Lundúnum í dag. Stjórnendur Oasis segja þessi mistök ekki á þeirra ábyrgð. 25.10.2006 17:38 Fleiri týndu lífi en stjórnvöld héldu fram 135 fleiri almennir borgarar týndu lífi í átökum eftir kosningar í Eþíópíu í fyrra en stjórnvöld þar í landi hafa haldið fram. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar sem þingið skipaði til að rannsaka aðdraganda átaka sem blossuðu upp tvívegis eftir þingkosningarnar. 25.10.2006 17:24 Fjármálaráðgjafi Cherie Blair á flótta undan lögreglunni Ástralskur svikahrappur, sem meðal annars keypti tvær íbúðir fyrir Cherie Blair, slasaðist þegar hann stökk fram af brú, á flótta undan lögreglunni á Fiji eyjum. 25.10.2006 17:09 Álfheiður sækist eftir 1. - 2. sæti Álfheiður Ingadóttir varaþingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs gefur kost á sér til þingsetu fyrir flokkinn. Álfheiður sækist eftir 1. til 2. sæti í sameiginlegu prófkjöri VG sem fram fer 2. desember næstkomandi. 25.10.2006 17:00 Grundvöllur fyrir aðild að ESB innan fjögurra ára Þorsteinn Pálsson, ritstjóri og fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, telur að grundvöllur fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu verði kominn innan fjögurra ára. Þetta kom fram í erindi hans á ráðstefnu Evrópusamtakanna sem haldin var í gær undir heitinu Staða smáríkja í alþjóðlegu samstarfi. 25.10.2006 16:57 Þrjátíu og þrjú sjálfsvíg á Íslandi á síðasta ári Alls urðu þrjátíu og þrjú sjálfsvíg á Íslandi á síðasta ári. Hagstofa Íslands gaf í dag út tölur um dauðsföll á árinu 2005. Þar kemur fram að af þeim sem ákváðu að taka sitt eigið líf voru 24 karlar og 9 konur. Skipting á milli kynjanna er svipuðu og síðustu ár. 25.10.2006 16:55 Reyna að hræða flokksmenn sína með Hillary Clinton Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, er farinn að reyna að hræða repúblikana til þess að halda tryggð við flokkinn, með því að segja að ef þeir geri það ekki geti Hillary Clinton orðið næsti forseti Bandaríkjanna. 25.10.2006 16:50 Stofna félag um rekstur hitaveitu í Kína Enex Kína, sem er í eigu Enex, Glitnis og Orkuveitu Reykjavíkur, undirritaði í dag samning við kínverska félagið Shaanxi Geothermal Energy Development Corporation um stofnun félags um uppbygginu og rekstur jarðvarmaveitu í borginni Xian Yang í Shaanxi-héraði í Kína. 25.10.2006 16:37 Rannsakað sem banaslys í umferðinni Karlmaður sem fannst látinn um borð í Norrænu við komuna til Þórshafnar í Færeyjum í síðustu viku lést af innvortis áverkum sem hann hlaut í bílveltu tveimur dögum áður. 25.10.2006 16:37 Latibær tilnefndur til BAFTA-verðlaunanna Sjónvarpsþættirnir um Latabæ hafa verið tilnefndir til hinna virtu BAFTA-verðlauna í Bretlandi í flokki alþjóðlegs barnaefnis. 25.10.2006 16:25 Flugvél Continental lenti heilu og höldnu Flugvél frá bandaríska flugfélaginu Continental Airlines lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli klukkan tíu mínútur yfir fjögur en hún óskaði eftir að heimild til lendingar vegna bilunar í öðrum hreyfli vélarinnar. 25.10.2006 16:13 Vilja ekki veita Nyhedsavisen aðgang að bréfalúgum Að minnsta kosti tvö stór fyrirtæki sem leigja út íbúðir í og við Kaupmannahöfn hafa afþakkað fríblaðið Nyhedsavisen sem Dagsbrún Media gefur út í Danmörku. 25.10.2006 16:06 Sýndi frúnni fingurinn 25.10.2006 16:06 Sjá næstu 50 fréttir
Kirkjuþing samþykkir stefnumótun á sviði kærleiksþjónustu Kirkjuþing samþykkti í morgun stefnumótum á sviði kærleiksþjónustu og hjálparstarfs en með því eru sóknir hvattar til að huga sérstaklega að þeim þætti í þjónustu kirkjunnar er lítur að stuðningi við fólk í erfiðum aðstæðum og leggja sérstaka áherslu á vinaheimsóknir til þeirra sem eru einangraðir. 26.10.2006 10:22
Haraldur krónprins hótaði að hefja óvígða sambúð með Sonju Haraldur konungur Noregs verður sjötugur 21. febrúar næstkomandi og í tilefni af því hefur ævisaga hans verið skráð. Í henni kemur meðal annars fram að það vakti litla hrifningu hjá bæði hirðinni og þjóðinni þegar hann hóf samband sitt við Sonju Haraldsen. 26.10.2006 10:22
Herflugvélar NATO bana óbreyttum borgurum í Afganistan Herflugvélar frá Atlantshafsbandalaginu (NATO) bönuðu að minnsta kosti 50 óbreyttum borgurum í Suður-Afganistan, aðalega konum og börnum, í árás sem var gerð á meðan stærsta hátíð múslima, Eid al-Fitr, stóð yfir. 26.10.2006 10:08
Mun langdrægari metanbílar Sex nýir metanbílar verða afhentir Sorpu við hátíðlega athöfn í dag. Þessir bílar eru af nýrri kynslóð metanbíla sem eru mun langdrægari en fyrri metanbílar. Árni Þórður Jónsson, kynningarfulltrúi, segir bílana draga allt að 430 kílómetra á einum tanki, sem auki möguleikana á almennri notkun til muna. 60 metanbílar eru í notkun í Reykjavík í dag, flest fyrirtækjabílar. 26.10.2006 10:00
Loftlagsbreytingar geti leitt til heimskreppu Ef ríki heimsins grípa ekki til aðgerða gegn loftlagsbreytingum er hætta á mikilli heimskreppu á öldinni. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu sem fyrrverandi aðalhagfræðingur Alþjóðabankans hefur unnið fyrir bresk yfirvöld um áhrif loftlagsbreytinga á efnahagkerfi heimsins. 26.10.2006 09:52
Kviknaði í dæluskúr Eldur kviknaði í dæluskúr Hitaveitu Akureyrar við Laugaland í Eyjafjarðarsveit rétt um kl. 20 í kvöld. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en skúrinn er ónýtur að sögn lögreglu. Lögregla telur líklegt að kviknað hafi í skúrnum út frá rafmagni. 25.10.2006 23:45
Kveikt í rusli í gamla Hampiðjuhúsinu Eldur kviknaði í rusli í stigagangi gamla Hampiðjuhússins við Brautarholt í Reykjavík á níunda tímanum í kvöld. Tilkynning barst lögreglu kl. 20:22 og gekk greiðlega að slökkva eldin og slökkvistarfi lokið 26 mínútum síðar. Enginn var í hættu. Fjölmörg útköll hafa borist slökkviliði vegna elds í húsinu síðustu mánuði. 25.10.2006 23:30
Vill aukna samvinnu ASÍ og BSRB Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, óskar eftir samvinnu ASÍ og BSRB við undirbúning næstu kjarasamninga. Þetta kom fram í ræðu Grétars á 41. þingi BSRB í dag. 25.10.2006 23:15
Kalt vatn komið á aftur í Kópavogi Kalt vatn tók aftur að renna um krana hjá íbúum í stórum hluta Kópavogs um kl. 22 í kvöld eftir að það fór af á sjöunda tímanum. Grafa tók í sundur kaldavatnslögn við Nýbýlaveg og voru íbúar í Hjallahverfi, við Nýbýlaveg og víðar vatnslausir í á fjórðu klukkustund. 25.10.2006 23:00
Ofurfyrirsæta handtekin Breska lögreglan handtók í dag ofurfyrirsætuna Naomi Campbell. Lögregla handtók hin 36 ára gömlu fyrirsætu þar sem hún var stödd í húsi í Westminster í Lundúnum. Hún var þegar færð til yfirheyrslu. Ekki er vitað hver ástæðan er fyrir handtökunni. 25.10.2006 22:45
Jakob Sigurðsson nýr framkvæmdastjóri viðskiptasviðs ÍE Jakob Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Íslenskrar erfðagreiningar. Jakob er með B.S. gráðu í efnafræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Kellogg stjórnunarskólanum við Northwestern-háskóla í Illinois í Bandaríkjunum. Hann hefur undanfarin tvö ár starfað sem forstjóri Alfesca, áður SÍF. Jakob gegndi áður stjórnunarstöðum hjá alþjóðlega efnafyrirtækinu Rohm and Haas í Bandaríkjunum og í Evrópu. 25.10.2006 22:30
Samkynhneigð pör fá rétt á við gagnkynhneigð í New Jersey Dómstóll í New Jersey í Bandaríkjunum úrskurðaði í dag að samkynhneigðum pörum yrðu veitt sömu réttindi og giftum, gagnkynhneigðu fólki. Dómstóllinn lætur það svo í hendur löggjafans í ríkinu að ákveða hvort leyfa eigi samkynhneigðum að ganga í hjónaband. 25.10.2006 22:15
Óskir annarra trú- eða lífsskoðunarfélaga verið virtar við útför Samkvæmt nýrir ályktun um breytingar á lögum, sem samþykkt var á Kirkjuþingi í kvöld, verða styrktar reglur sem lúta að trúfrelsi og óskum annarra trú- og lífsskoðunarfélaga við útfarir. Ályktunin er um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kirkjugarð, greftrun og líkbrennslu. 25.10.2006 22:00
Vatnslaust í stórum hluta Kópavogs Kalt vatn fór af stórum hluta Kópasvogs á sjöunda tímanum í kvöld. Grafa tók í sundur kaldavatnslögn við Nýbýlaveg og hafa íbúar í Hjallahverfi, við Nýbýlaveg og víðar verið vatnslausir. Samkvæmt upplýsingum starfsmanna bæjarins stendur viðgerð yfir og er áætlað að vatn verði aftur komið á upp úr klukkan tíu. 25.10.2006 21:40
Samkomulag um annað ríki en Gvatemala og Venesúela Fulltrúar Gvatemala og Venesúela hafa komist að samkomulagi um að binda enda á baráttu landanna um sæti til 2 ára í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Eftir er þó að semja um hvaða ríki fái að sækja eitt um sætið sem er annað tvegjga sem tekin eru frá fyrir lönd rómönsku Ameríku. Atkvæða greiðslur á Allsherjarþingi SÞ hófust á ný í dag og engin niðurstaða fengin enda þarf 2/3 atkvæða til að hreppa sætið. 25.10.2006 21:30
Frambjóðandi íhaldsmanna með forskot á andstæðing sinn Alvara Noboa, frambjóðandi íhaldsmanna í forsetakosningunum í Ekvador, hefur nú 16% forskot á Rafael Correa, frambjóðanda vinstrimanna, fyrir seinni umferð forsetakosninganna þar í landi. 25.10.2006 21:15
Deilur um trúartákn harðna í Evrópu Deilur um trúartákn, svosem krossa og blæjur, fara harðnandi í Evrópu. Deilt er um hvort eigi að banna þau með öllu á opinberum vettvangi eða hvort menn eigi að fá að velja sjálfir hvort þeir hafa þau uppi. Síðast blossuðu upp deilur um þetta í Bretlandi. 25.10.2006 21:00
Stoð kippt undan Hornafirði Verið er að kippa einni stoðinni undan samfélaginu að ástæðulausu, segja bæjaryfirvöld á Hornafirði um þá ákvörðun að segja upp starfsmönnum ratsjárstöðvarinnar á Stokksnesi. Þau segja yfirvöld ekki geta fríað sig ábyrgð og bent á bandaríska herinn. 25.10.2006 20:45
Ímynd Íslands skaðist af hvalveiðum Ímynd landsins er verðmætasta auðlind íslensku þjóðarinnar, segir talsmaður ferðaþjónustunnar og íslensk stjórnvöld eru að taka þá áhættu að stórskaða hana með hvalveiðum. Á heimasíðu Greenpeace hafa 90 þúsund manns heitið því að íhuga alvarlega að sækja Ísland heim ef þjóðin hættir hvalveiðum. Þriðja langreyðurin var skotin við Snæfellsnes í dag. 25.10.2006 20:30
Latibær tilnefndur til BAFTA-verðlauna Sjónvarpsþættirnir um Latabæ hafa verið tilnefndir til hinna virtu BAFTA-verðlauna í Bretlandi í flokki alþjóðlegs barnaefnis. Magnús Scheving, höfundur og framleiðandi þáttanna, segir að um einstaka viðurkenningu sé að ræða. 25.10.2006 20:15
Hneyksli í uppsiglingu í Þýskalandi Hneyksli virðist í uppsiglingu í Þýskalandi eftir að dagblaðið Bild birti myndir af brosandi þýskum friðargæsluliðum í Afganistan að leika sér með hauskúpu. Á einni myndinni má sjá einn friðargæsluliðann halda á höfuðkúpunni upp að kynfærum sínum. 25.10.2006 20:00
Mögulega raðnauðgarar að verki Lögreglan í Reykjavík rannsakar hvort sömu mennirnir standi á bak við hrottalegar nauðganir á tveimur stúlkum í miðborg Reykjavíkur, sem áttu sér stað með hálfsmánaðar millibili. Þriðja nauðgunin, þar sem þolandi var erlend námsstúlka sem þáði bílfar með ókunnugum manni, gæti einnig tengst málinu. 25.10.2006 19:45
Madonna svarar fyrir sig Bandaríska poppsöngkonan Madonna segir ekkert athugavert við hvernig hún stóð að ættleiðingu á malavískum dreng á dögunum. 25.10.2006 19:30
Ferðinni til Bandaríkjanna haldið áfram Ferð farþegaflugvélar af gerðinni Boeing 758-200, sem lent var í öryggisskyni á Keflavíkurflugvelli kl. 16:10 í dag, var haldið áfram til Newark í Bandaríkjunum rúmri klukkustund síðar. Vélinni var flogið af stað aftur um kl. 17:30. Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli þegar flugvélinni, með 172 farþega innanborðs, var lent vegna bilunar í hreyfli. 25.10.2006 19:15
Óttast ekki lögsóknir Norskum tölvuref, sem búsettur er í Bandaríkjunum, hefur tekist að brjóta dulkóðun á iTunes-forriti Apple-fyrirtækisins. 25.10.2006 19:00
Torfæruhjól skemma reiðgötur Reiðgötur, víða um land, eru orðnar að slysagildrum af völdum fólks sem spænir þær upp á torfæruhjólum, segir formaður Landssambands hestamannafélaga. Alvarlegum slysum á hestamönnum hefur fjölgað. 25.10.2006 18:11
Forsætisráðherra Íraks ekki hafður með í ráðum Bandarískar og íraskar hersveitir gerðu í morgun áhlaup á Sadr-borg, fátækrahverfi í norð-austurhluta Bagdad, höfuðborgar Íraks. Hverfið er höfuðvígi herskáa sjía-klerksins Moqtada al-Sadr. Minnst 4 féllu í átökum og 18 særðust. Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, segist ekkert hafa vitað af árásinni eða gefið leyfi fyrir henni. Hann hafi ekki verið hafður með í ráðum. 25.10.2006 18:05
Kjartan höfðar mál gegn ríkinu til að fá gögn Kjartan Ólafsson ætlar að höfða mál gegn íslenska ríkinu og krefst þess að fá aðgang að öllum gögnum um hleranir. Lögmaður hans segir stjórnvöld fela þessi mál í afkimum til að stjórna umræðunni. 25.10.2006 18:04
Þolinmæðin ekki endalaus George Bush Bandaríkjaforseti segir sívaxandi ofbeldi í Írak mikið áhyggjuefni og að þolinmæði Bandaríkjamanna gagnvart íröskum stjórnvöldum sé ekki óþrjótandi. Árangur í Írak er lykilatriði, að mati forsetans, eigi landið ekki að falla í hendur öfgamanna. 25.10.2006 18:01
Óviðurkvæmilegt fréttabréf Í fréttabréfi Nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð nú í haust var birtur listi yfir Ellefu bestu lög til að nauðga við. Forseti skólafélagsins harmar að ritnefndin hafi brugðist því trausti sem henni var sýnd. 25.10.2006 17:56
Stærsta útkall Landhelgisgæslu um árabil Landhelgisgæslan fór í sitt stærsta útkall um árabil þegar Boeing 757 flugvél Continental flugfélagsins kom inn til lendingar í Keflavík eftir að tilkynna um bilun í hreyfli. 25.10.2006 17:42
Vandræði lággjaldaflugfélags fyrsta flugdag Þeir voru vandræðalegir stjórnendur Oasis lággjaldaflugfélagsins í Hong Kong þegar aflýsa þurfti fyrstu ferð flugfélagsins í dag. Ekki hafði fengist leyfi til að fljúga um rússneska lofthelgi. Vélin átti að fara frá Hong Kong og lenda á Gatwick flugvelli Lundúnum í dag. Stjórnendur Oasis segja þessi mistök ekki á þeirra ábyrgð. 25.10.2006 17:38
Fleiri týndu lífi en stjórnvöld héldu fram 135 fleiri almennir borgarar týndu lífi í átökum eftir kosningar í Eþíópíu í fyrra en stjórnvöld þar í landi hafa haldið fram. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar sem þingið skipaði til að rannsaka aðdraganda átaka sem blossuðu upp tvívegis eftir þingkosningarnar. 25.10.2006 17:24
Fjármálaráðgjafi Cherie Blair á flótta undan lögreglunni Ástralskur svikahrappur, sem meðal annars keypti tvær íbúðir fyrir Cherie Blair, slasaðist þegar hann stökk fram af brú, á flótta undan lögreglunni á Fiji eyjum. 25.10.2006 17:09
Álfheiður sækist eftir 1. - 2. sæti Álfheiður Ingadóttir varaþingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs gefur kost á sér til þingsetu fyrir flokkinn. Álfheiður sækist eftir 1. til 2. sæti í sameiginlegu prófkjöri VG sem fram fer 2. desember næstkomandi. 25.10.2006 17:00
Grundvöllur fyrir aðild að ESB innan fjögurra ára Þorsteinn Pálsson, ritstjóri og fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, telur að grundvöllur fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu verði kominn innan fjögurra ára. Þetta kom fram í erindi hans á ráðstefnu Evrópusamtakanna sem haldin var í gær undir heitinu Staða smáríkja í alþjóðlegu samstarfi. 25.10.2006 16:57
Þrjátíu og þrjú sjálfsvíg á Íslandi á síðasta ári Alls urðu þrjátíu og þrjú sjálfsvíg á Íslandi á síðasta ári. Hagstofa Íslands gaf í dag út tölur um dauðsföll á árinu 2005. Þar kemur fram að af þeim sem ákváðu að taka sitt eigið líf voru 24 karlar og 9 konur. Skipting á milli kynjanna er svipuðu og síðustu ár. 25.10.2006 16:55
Reyna að hræða flokksmenn sína með Hillary Clinton Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, er farinn að reyna að hræða repúblikana til þess að halda tryggð við flokkinn, með því að segja að ef þeir geri það ekki geti Hillary Clinton orðið næsti forseti Bandaríkjanna. 25.10.2006 16:50
Stofna félag um rekstur hitaveitu í Kína Enex Kína, sem er í eigu Enex, Glitnis og Orkuveitu Reykjavíkur, undirritaði í dag samning við kínverska félagið Shaanxi Geothermal Energy Development Corporation um stofnun félags um uppbygginu og rekstur jarðvarmaveitu í borginni Xian Yang í Shaanxi-héraði í Kína. 25.10.2006 16:37
Rannsakað sem banaslys í umferðinni Karlmaður sem fannst látinn um borð í Norrænu við komuna til Þórshafnar í Færeyjum í síðustu viku lést af innvortis áverkum sem hann hlaut í bílveltu tveimur dögum áður. 25.10.2006 16:37
Latibær tilnefndur til BAFTA-verðlaunanna Sjónvarpsþættirnir um Latabæ hafa verið tilnefndir til hinna virtu BAFTA-verðlauna í Bretlandi í flokki alþjóðlegs barnaefnis. 25.10.2006 16:25
Flugvél Continental lenti heilu og höldnu Flugvél frá bandaríska flugfélaginu Continental Airlines lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli klukkan tíu mínútur yfir fjögur en hún óskaði eftir að heimild til lendingar vegna bilunar í öðrum hreyfli vélarinnar. 25.10.2006 16:13
Vilja ekki veita Nyhedsavisen aðgang að bréfalúgum Að minnsta kosti tvö stór fyrirtæki sem leigja út íbúðir í og við Kaupmannahöfn hafa afþakkað fríblaðið Nyhedsavisen sem Dagsbrún Media gefur út í Danmörku. 25.10.2006 16:06