Fleiri fréttir

Nýbygging IKEA í Garðabæ rýmd vegna eiturgufa

Búið er að rýma nýbyggingu IKEA í Garðabæ vegna eiturgufu sem myndaðist í húsinu. Flytja þurfti tvo menn til skoðunar á slysadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss þar sem þeir fundu fyrir óþægindum.

Krefst rannsóknar á framgöngu lögreglu gegn mótmælendum

Flokksstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs krefst þess að fram fari rannsókn á framferði lögreglunnar og meintu harðræði af hennar hálfu og aðgerðum sem falið hafa í sér óþarfa og jafnvel ólögmæta hindrun á ferðum fólks um öræfi landsins.

Ótrygg söfn í Rússlandi

Tilviljun ein réði því að stjórnendur ríkissafnsins í Rússlandi uppgötvuðu að búið var að stela mörg hundruð teikningum eftir virtan rússneskan arkitekt sem voru í eigu safnsins. Upp komst um þjófnaðinn þegar reynt var að selja níu teikningar eftir arkitektinn Yakov Chernkhov á uppboði í Bretlandi í júní. Ekki er vitað nákvæmlega hve mörgum teikningum var stolið en síðan í júní hafa hátt í þrjú hundruð til viðbótar fundist á mörkuðum í Rússlandi og annars staðar og eru þær samanlagt metnar á níutíu og tvær milljónir króna.

Ástralir fjölga í herliði sínu í Afganistan

Áströlsk stjórnvöld hafa ákveðið að senda hundrað og fimmtíu hermenn til Afganistan til viðbótar þeim sem þar eru fyrir. John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, tilkynnti þetta í morgun. Liðnir mánuðir hafa verið einhverjir þeir blóðugustu í Afganistan síðan fjölþjóðlegt herlið, undir forystu Bandaríkjamanna, steypti stjórn Talíbana árið 2001. Árásir Talíbana í suðri hafa verið nær daglegur viðburður síðustu vikur og kostað fjölmarga lífið.

Kópavogskirkjugarður vígður á morgun

Fyrstu hlutar Kópavogskirkjugarðs verða vígðir á morgun, fimmtudag. Teknir verða í notkun tveir reitir, einn kistugrafreitur og einn duftreitur. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri, mun ávarpa viðstadda og Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands mun vígja garðinn. Duftker Guðmundar Helgasonar málarameistara verður jarðsett, en hann verður vökumaður garðsins. Athöfnin fer fram við sáluhliðið í Kópavogskirkjugarði og hefst klukkan ellefu á morgun.

Askja afhendir Rauða krossinum átta sjúkrabíla

Askja afhenti á dögunum Rauði krossi Íslands tvo sjúkrabíla af gerðinni Benz Sprinter. Sex bílar til viðbótar sömu gerðar verða afhentir á næstu mánuðum og fara þeir í notkun vítt og breytt um landið. Fyrstu bílarnir fóru til Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og hafa reynst vel það sem af er, að sögn Benedikts Höskuldssonar deildarstjóra þar á bæ.

Hætta á sprengigosi í Mayon

Eldfjallasérfræðingar segja hættu á sprengigosi í eldfjallinu Mayon á Filippseyjum, en svo virðist sem eitthvað hafi stöðvað gasflæði frá fjallinu sem hefur gert vart við sig á síðustu dögum. Þetta gæti þýtt að eitthvað hafi stíflað fjallið og spenna magnist þannig að ef gjósi verði eldgos í fjallinu kröftugra en ella. Sérfræðingar benda þó á að þetta gæti einnig þýtt að fjallið hafi hægt á sér. Hættuástandi var lýst yfir á mánudaginn þar sem óttast var að eldgos væri á næsta leyti. Búið er að flytja um fjörutíu þúsund íbúa í tuttugu og fimm þorpum nálægt Mayon á brott frá heimilum sínum. Ekki hafa þó allir flúið heimili sín og margir íbúar við rætur eldfjallsins hafa neitað að færa sig um set.

Bíða niðurstöðu blóðsýnisrannsóknar

Lögreglan á Selfossi bíður nú endanlegrar niðurstöðu rannsóknar á blóðsýni, sem tekið var úr rútubílstjóra, sem missti stjórn á bíl sínum á leið niður Kambana á sunnudagsmorgun, með sextán erlenda farþega um borð. Blásturssýni sem tekið var af ökumanninum á staðnum gefur til kynna að hann hafi verið ölvaður. Hann missti stjórn á bílnum, sem fór yfir á öfugan vegarhelming og barst langa leið utan í vegriðinu uns hann nam staðar og hafði þá annað framhjólið af-felgast. Það hefur því legið við stór slysi og fengu skelfingu lostnir farþegarnir far með öðrum hópferðabíl af vettvangi. Ákæruvaldið tekur afstöðu í málinu þegar áfengismagn í blóði bílstjórans liggur fyrir.

Rændi herbergi hótelgesta á meðan þeir brugðu sér frá

Bíræfinn þjófur spennti upp glugga og braust þannig inn í hótelherbergi á Akureyri, þegar gestirnir brugðu sér út úr herberginu í gærkvöldi. Þjófurinn stal meðal annars tveimur myndavélum og veski með greiðslukortum og skilríkjum, sem kemur sér afar illa þar sem hjónin sem gistu í herberginu eru erlendir ferðamenn. Þjófurinn er ófundinn.

Ísraelar flýja norðurhluta landsins

Fleiri Ísraelar hafa nú flúið þorp og bæi í Norður-Ísrael, en Hizbollah-skæruliðar hafa látið flugskeytum rigna yfir svæðið síðustu daga. Ísraelsk stjórnvöld hafa aðstoðað fólk við að flytja sig um set og hafa boðist til að veita því fjárhagsaðstoð vegna flutninganna. Stjórnvöld hafa tryggt um tuttugu þúsund manns tímabundið húsaskjól. Um það bil þrjú hundruð þúsund íbúar í Norður-Ísrael höfðu þegar yfirgefið heimili sín fyrir brottflutninginn í gær. Það voru að mestu einungis fátækir og sjúkir auk gamalmenna sem sátu eftir.

Rúmlega tvö þúsund einungis með fjármagnstekjur

Tæplega tvö þúsund og tvö hundruð framteljendur til skatts höfðu einungis fjármagnstekjur af peningum sínum í fyrra, og rúmlega sex þúsund og sex hundruð, eða fjögur prósent allra framteljenda, höfðu hærri fjármagnstekjur en venjulegar launatekjur. Þetta kemur fram í tölum sem ríkisskattstjóri hefur tekið saman fyrir Morgunblaðið. Skattur af fjármangstekjum er tíu prósent, en en tæp 37 prósent af venjulegum launatekjum.

Beðið um gæsluvarðhald yfir þremur mönnum

Lögreglan á Akureyri krafðist í gærkvöldi gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þremur ungum mönnum, sem handteknir voru í fyrrinótt og í gær vegna gruns um ýmis afbrot. Þegar tveir þeirra voru handteknir í fyrrinótt, fannst talsvert af þýfi í bíl þeirra og er sá þriðji, sem handtekinn var í gær, grunaður um að vera vitorðsmaður þeirra.

Líbanar bjóðast til að senda herlið til suðurhlutans

Ísraelsk stjórnvöld ákveða í dag hvort herlið þeirra verður sent lengra inn í Líbanon til að berjast við Hizbollah-skæruliða. Frakkar og Bandaríkjamenn endurskoða nú uppkast sitt að ályktun sem lögð verður fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og miðar að því að binda enda á átökin í Líbanon.

Umfang olíusamráðs verður minna hjá Ríkissaksóknara

Meðferð Ríkissaksóknara á samráði olíufélaganna lýkur í haust. Engin fordæmi eru fyrir því að einstaklingar séu sóttir til saka fyrir brot af þessu tagi. Umfangið verður minna en hjá samkeppnisyfirvöldum.

Vilja að Bandaríkjamenn borgi fyrir rannsóknir og hreinsun

Landvernd og systurfélög hennar annars staðar á Norðurlöndum vilja að Bandaríkjamenn borgi fyrir rannsóknir og hreinsun þeirra svæða sem varnarliðið hefur mengað undanfarna áratugi. Þau segja brýnt að bregðast skjótt við enda stutt í að herinn fari.

Þurfa að greiða kennara bætur

Sveitarfélagið Árborg hefur verið dæmt til að greiða Kristínu Stefánsdóttur, heimilisfræðikennara, tæpar átta hundruð þúsund krónur vegna launamissis sem hún varð fyrir í kjölfar gerðra kjarasamninga árið 2002.

Ólöglegir innflytjendur láta lífið í bílslysi

Bifreið full af ólöglegum innflytjendum valt í dag í Bandaríkjunum nálægt landamærunum við Mexíkó með þeim afleiðingum að níu menn létu lífið og tólf til viðbótar slösuðust.

Lögregluyfirvöld á Austurlandi telja réttinn sín megin

Lögregluyfirvöld á Austurlandi telja sig hafa skýra lagastoð fyrir aðgerðum sínum gegn mótmælendum Kárahnjúkavirkjunar. Mótmælendurnir hyggjast kæra lögregluna og segja hana hafa beitt þá víðtæku ofbeldi.

Íslendingar ferðast meira innanlands

Fjöldi þeirra Íslendinga sem gistir á hótelum hér á landi hefur aukist um fimmtung. Ferðamálastjóri segir ánægjulegt að Íslendingar ferðist meira innanlands.

Vonsvikinn með úrskurð eignarnámsnefndar

Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar hefur verið gert að greiða húsasmiði á Akranesi sjö og hálfa milljón króna í bætur fyrir landspildu sem hitaveitan tók eignarnámi. Stjórnarformaður Hitaveitunnar segir niðurstöðu matsnefndarinnar vonbrigði.

Nafn konunnar sem lést

Konan sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi við Langsstaði aðfaranótt mánudags hét Rósa Björg Guðmundsdóttir til heimilis að Vallarási 1 í Reykjavík. Rósa var fædd 4. apríl 1970. Hún var ógift og barnlaus.

Kríuvarp virðist hafa brugðist á suðvesturhorninu

Kríuvarp virðist hafa brugðist á suðvesturhorninu og þá sérstaklega vestast á Seltjarnarnesi þar sem algjör viðkomubrestur varð hjá kríunni. Fuglafræðingur telur að sandsílaskorti sé um að kenna og segir hann það vera áhyggjuefni fyrir fleiri fuglategundir.

Bílar á bið í Herjólf

Svo mikil örtröð er í Herjólf, eftir Þjóðhátíð í Eyjum, að fólk með bíla kemst ekki frá Vestmannaeyjum í land.

Hinsegin dagar framundan

Hátíðin Hinsegin dagar er ein af stærstu árlegu hátíðum landsins og verður nú haldin í áttunda sinn, dagana 10.- 13. ágúst.

Betur fór en á horfðist í hörðum árekstri strætó og fólksbíls

Fólksbíll og strætisvagn lentu í hörðum árekstri á gangamótum, Stangar og Breiðholtsbrautar á ellefta tímanum í morgun. Í fyrstu var talið að um alvarlegt slys væri að ræða og því viðbúnaður slökkviliðs og lögreglu töluverður. Betur fór þó en á horfðist en ökumaður og farþegi fólksbílsins voru fluttir á slysadeild Landspítalans með skurð á höfði og ökumaður strætóins kenndi sér eymsla í hné. Töluvert tjón varð á ökutækjum.

Fékk reykeitrun við störf á vettvangi

Einn lögreglumaður þurfti að leggjast inn á sjúkrahús vegna reykeitrunar sem hann fékk við störf á vettvangi þegar eldur kviknaði í Síldarverksmiðjunni á Akranesi síðastliðinn föstudag. Hann er enn óvinnufær vegna eitrunarinnar. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða en málið er í rannsókn og miðar henni vel.

Annasöm helgi hjá lögreglunni á Eskifirði

Helgin var nokkuð erilsöm hjá lögreglunni á Eskifirði vegna útihátíðarinnar Neistaflugs. Talið er að um 2000 manns hafi sótt hátíðina. Engin líkamsárás var kærð til lögreglu en þrjú fíkniefnamál komu upp um helgina. Alls voru 23 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og þá voru nokkrir ökumenn kærðir fyrir önnur umferðarlagabrot. Lögreglumenn voru þó almennt ánægðir með umferðina sem var mikil og þung alla helgina.

Vatnsleki í íbúð í Safamýri

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan tvö í dag vegna vatnsleka í íbúð í Safamýri. Húsráðendur voru heima þegar heitt vatn tók að leka í baðherbergi í íbúðinni, sem eru í fjölbýli, en fólkinu var engin hætta búin. Slökkviliðsmenn vinna nú að því að stöðva lekann. Svo virðist sem gólfefni séu skemmd en vatnið hefur ekki borist inn í nærliggjandi íbúðir.

Segir Íslendinga hafa keypt gullmola

Danska blaðið Jótlandspósturinn segir að Íslendingar hafi keypt gullmola í danska iðnaðinum með kaupunum á Skanvægt um helgina. Í undirfyrirsögn segir að fyrst hafi það verði stórmagasín, síðan flugfélög, dagblaðsútgáfa og nú sé röðin komin að kaupum Íslendinga á iðnaðarfyrirtækjum. Reyndar gleymir blaðið að Íslendingar eiga líka orðið umtalsverðan hlut í dönsku bjórframleiðslunni og eru orðnir umsvifamiklir í fasteignarekstri í Kaupmannahöfn.

Framtíð friðargæslu á Sri Lanka rædd

Framtíð friðargæslu á Srí Lanka ræðst á næstu dögum en sendifulltrúi norræna eftirlitsins fundar með fulltrúum stríðandi fylkinga fram eftir vikunni. Tveir hjálparstarfsmenn fundust myrtir í bænum Muttur í morgun.

Sprengjuæfing síðar í mánuðinum

Fimmta og ef til vill síðasta fjölþjóðlega sprengueyðingaræfingin verður haldin á Keflavíkurflugvelli síðar í mánuðinum, með þáttöku hátt í 80 erlendra sérfræðinga. Æfingar þessar, sem bera heitið Northern Challenge, hófust eftir að bandaríkjaher hætti að efna til reglubundinna æfinga bandaríska heimavarnarliðsins hér á landi.

Þreyttur og kaldur eftir hrakningar næturinnar

Maðurinn, sem leitað var að í Skaftafelli frá því á hádegi í gær, var orðinn hrakinn, kaldur og svangur þegar björgunarmenn fundu hann á Skeiðarársandi í morgun. Hann fannst kl. 8 í morgun u.þ.b fimm kílómetra fyrir sunnan þjóðveginn á milli Skaftafellsár og Skeiðarár.

Stígamót gagnrýna villandi fréttaflutning

Stígamót gagnrýna villandi fréttaflutning helgarinnar í tengslum við sjónarmið samtakanna varðandi útihátíðarhald og kynferðisbrot. Samtökin ítreka að þau hafi boðið upp á þjónustu sína fyrir helgina til þess eins að tryggja að skortur á þjálfuðu starfsfólki kæmi ekki í veg fyrir að áfallahjálp væri í boði yfir verslunarmannahelgina.

Orðalag ályktunar rætt

Minnst fimmtán óbreyttir borgarar féllu í um áttatíu loftárásum sem Ísraelsher gerði á Líbanon í nótt og í morgun. Á meðan sitja fulltrúar þeirra ríkja sem eiga sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna á rökstólum og ræða orðalag ályktunar sem á að verða grunnur að vopnahléi í landinu.

Alþjóðlegt skátamót sett í Perlunni

Það fór lítið fyrir sólinni þegar 250 skátar komu saman við Perlunna í morgun þar sem alþjóðlegt skátamót var sett. Bandalag íslenskra skáta stendur fyrir mótinu sem haldið er hér á landi í þriðja sinn. Skátarnir eru á aldrinum 15-30 ára og koma frá tíu löndum, meðal annars frá Færeyjum og Hong Kong. Skátarnir munu fara í ferðir um landið næstu fjóra daga en skátarnir velja sér ferðir sem boðið verður upp á víða um land. Að ferðunum loknum munu skátarnir sameinast á ný á Úlfljótsvatni og dvelja þar í tvær nætur.

Gistinóttum fjölgaði um 8% í júnímánuði

Gistinóttum á hótelum í júní síðastliðnum fjölgaði um tæp 8% eða úr tæplega 124.000 133.000 frá því í sama mánuði á síðasta ári. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarðar eða um 17%. Fjölgun gistinátta er bæði meðal Íslendinga og útlendinga en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 22% en um 5% meðal útlendinga.

Sjá næstu 50 fréttir