Fleiri fréttir

Flóð í Eþíópíu

Sjötíu manns létust í morgun í Eþíópíu þegar áin Dire Dawa flæddi yfir bakka sína. Að minnsta kosti fimmtíu manns slösuðust alvarlega og yfir hundrað hús eyðilöggðust. Unnið er að björgun íbúa í þorpum í nágrenni árinnar.

Átök í rénum í bænum Muttur

Stjórnarherinn í Sri Lanka segist vera búinn að ná stjórn yfir bænum Muttur í norðausturhluta landsins. Þúsundir hafa flúið bæinn eftir harða bardaga þar síðustu daga. Í síðustu viku lokuðu Tamíl tígrarnir fyrir vatn til bæja sem stjórnarherinn ræður yfir í norðausturhlutanum. Seinni partinn í gær dró úr átökunum en enn er ekki búið að leysa vandamál varðandi vatnsskort. Stjórnarherinn og Tamíl tígrarnir undirrituðu samning um vopnahlé árið 2002 eftir tæplega tveggja áratuga borgarastríð þar í landi. Bardagar hafa þó verið tíðir, sérstaklega í kringum bæinn Muttur sem er undir stjórn hersins en á svæði Tamíl tígranna.

Brúnni yfir Jökulsá á Dal lokað

Loka þurfti brúnni yfir Jökulsá á Dal vegna vatnavaxta síðdegis í gær. Þetta hefur þó ekki mikil áhrif á framkvæmdir á Kárahnjúkasvæðinu. Hvort tveggja er að vatnshæðin er ekki meiri en svo að vaða má yfir ána og svo eru menn viðbúnir vatnavöxtunum.

Fjölmenni á unglingalandsmóti

Milli átta og tíu þúsund manns eru samankomnir á ungmennamóti UMFÍ á Laugum í Þingeyjarsveit. Mótshaldið hefur gengið mjög vel að sögn Björns Jónssonar, forseta UMFÍ, hann segir að það eina sem hafi komið upp á hafi verið að þrír piltar sáust drekka áfengi og voru þeir þá sendir heim.

Tveir teknir eftir líkamsárás

Tveir menn voru handteknir eftir að þeir réðust á þann þriðja í Austurstræti í Reykjavík í nótt. Sá sem ráðist var á slasaðist nokkuð á höfði og var sendur á sjúkrahús en árásarmennirnir í fangaklefa lögreglunnar.

Árni hættir sem kynnir þjóðhátíðar

Fjölmenni er á skemmtunum víða um land en tíðindi helgarinnar koma sennilega frá Vestmannaeyjum þar sem Árni Johnsen er nú kynnir á Þjóðhátíð í síðasta sinn. Sá sem tekur við af honum er Bjarni Ólafur Guðmundsson, oft kallaður Daddi diskó.

Samkomulag sem miðar að friði

Sendiherrar Frakka og Bandaríkjanna náðu samkomulagi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í dag um ályktanartillögu sem miðar að því að binda endi á átökin í Líbanon.

Allt fullt á Akureyri nema búðarhillurnar

Akureyri er vinsælasti staðurinn þessa verslunarmannahelgina en þangað hafa átján þúsund manns lagt leið sína. Öll tjaldstæði eru fullnýtt og farið að bera á vöruskorti í höfuðstað Norðurlands.

Ökumenn gerðu lögreglu erfitt fyrir á slysstað

Mildi þykir að ekki urðu alvarleg meiðsli á fólki þegar Hummer jeppi skall framan á Yaris smábíl á Suðurlandsvegi við Sandskeið um klukkan tvö í dag. Í kjölfarið mynduðust langar bílalestir og óþolinmóðir ökumenn gerðu lögreglu erfitt fyrir.

Piltar grunaðir um íkveikju

Grunur leikur á að tíu til tólf ára piltar hafi verið að verki þegar kveiktur var eldur í Síldarvinnslu HB Granda á Akranesi í gær. Það hefur þó ekki verið staðfest og á eftir að ræða við piltana.

Búið að opna Suðurlandsveginn

Suðurlandsvegur hefur verið opnaður fyrir umferð að nýju, en honum þurfti að loka vegna fjögurra bíla áreksturs sem varð við Sandskeið um klukkan hálf tvö. Hummer jeppi, sem ók eftir Suðurlandsvegi í átt til Reykjavíkur, ók inn í hliðina á Yaris smábíl sem kom á móti. Smábíllinn hentist til á veginum og við það skemmdust tveir fóksbílar. Í smábílnum voru hjón með barn, en að sögn vakthafandi læknis á slysadeild eru þau ekki alvarlega slösuð. Sömu sögu eru að segja af fullorðinni konu, sem keyrði annan fólksbílinn. Loka þurfti Suðurlandsvegi í rúma klukkustund sem varð til þess að langar bílalestir mynduðust og var erfiðleikum bundið að koma dráttarbílum á slysstað. Lögreglu fannst ökumenn ekki sýna næga biðlund og tillitsemi, en margir reyndu að taka fram úr án þess að árangur af því væri sýnilegur.

Fjögurra bíla árekstur

Árekstur varð við Sandskeið á öðrum tímanum í dag. Samkvæmt fyrstu upplýsingum frá lögreglu lentu fjórir bílar í árekstrinum en ekki er vitað hversu alvarleg slys á fólki eru.

Ísraelsher herðir árásir sínar

Ísraelsher herti árásir sínar í Líbanon í morgun. Að minnsta kosti fjórir létust í loftárásum á suðurhluta Beirúts og sjö létust í árásum í hafnarborginni Týrus.

Allt fullt á Akureyri

Akureyringar eru orðnir að minnihlutahóp í eigin heimabæ en skipuleggjendur hátíðahalda þar telja að átján þúsund manns hafi lagt leið sína í bæinn. Mikil ölvun var þar í nótt og talsvert um ryskingar.

7000 manns skemmtu sér fallega í Eyjum í nótt

Fjölmennt var á skemmtunum í Ásbyrgi og Galtalæk og gestir Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum eru um sjö þúsund. Hátíðargestr fá ágætiseinkunn hjá lögreglu um land allt.

Slasaðist alvarlega við fall

Maður slasaðist alvarlega þegar hann féll af stigapalli á steypta stétt á Húsavík í gærkvöld. Hann rifbeinsbrotnaði, axlar- og mjaðmagrindarbrotnaði.

Fjórir létust í árásum Ísraelshers á Gaza

Fjórir Palestínumenn létust í árásum Ísraelshers á suðurhluta Gaza í morgun. Tveir hinna látnu voru systkini á aldrinum fimmtán og sautján ára. Hundrað og sjötíu Palestínumenn og einn ísraelskur hermaður hefur látist frá því að Ísraelsher hóf árásir sínar í lok júní. Í dag og á morgun verður landamærastöð á landamærum Gazasvæðisins og Egyptalands opnuð svo hægt verði að koma nauðsynjum inn á Gazasvæðið en þetta er í annað sinn frá því að hernaðaraðgerðir Ísraela á Gasasvæðinu hófust sem landamærastöðin er opnuð.

Jeff Who vakti mikla lukku á Innipúkanum í gær

Hátíðin Innipúkinn í Reykjavík er hafin. Innipúkinn er árleg hátíð um verslunarmannahelgi fyrir fólk sem nennir ekki að þvælast út á land og gista í leku tjaldi til að fara á góða tónleika. Innipúkinn er líka fyrir fólkið sem er fast í bænum vegna vinnu en langar samt að lyfta sér upp á kvöldin. Hátíðin er haldinn í fimmta sinn í ár og er hún á Nasa. Dr. Gunni opnaði hátíðina upp úr klukkan sex með hinu góðkunna lagi Snakk fyrir pakk.

Tveir gistu fangageymslur

Tveir menn fengu að gista fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík í nótt. Nóttin var þrátt fyrir það nokkuð róleg í Reykjavík og kann það að hafa ráðið einhverju um rólegheitin að margir eru utanbæjar vegna Verslunarmannahelgarinnar.

Sagði nokkurri hörku beitt

Sautján manns voru handteknir eftir að hafa hlekkjað sig við vinnutæki við Desjarárstíflu við Kárahnjúka í gær. Vinna stöðvaðist við stífluna á meðan á mótmælum stóð.

Ógnandi framkoma lögreglu

„Mér var hótað handtöku, það voru teknar myndir af okkur í tjaldbúðunum við Snæfell, ég var krafin um að sýna ökuskírteini og það var skoðað inn í bílinn hjá mér,“ segir Hrund Ólafsdóttir sem var stödd í fjölskyldubúðum við Snæfell í grennd við virkjanasvæðið á Kárahnjúkum um síðustu helgi. „Mér er stórlega misboðið hvernig lögreglan kom þarna fram við venjulega borgara og erlenda gesti.“

Hápunktur skákhátíðar

Í dag hefst IV. alþjóðlega Grænlandsmótið, Flugfélagsmótið 2006, í Tasiilaq á Grænlandi. Er mótið hápunktur skákhátíðar sem Hrókurinn ásamt stuðningsaðilum hefur staðið fyrir á Austur-Grænlandi síðan á þriðjudag.

Tekjur hækkað um 100 milljarða króna

Fjármagnstekjur hækkuðu um rúmlega sextíu prósent frá 2004 til 2005. Páll Kolbeins segir hækkunina umtalsverða og athyglisverða. Sigurður Kári Kristjánsson segir hálaunafólk skila miklu til samfélagsins með skattgreiðslum.

Ferðast tæpa nítján hundruð kílómetra

Um verslunarmannahelgina er oft og tíðum sama hljómsveitin bókuð á þrjár útihátíðir víðs vegar um landið. Plötusnúðurinn Páll Óskar ferðast tæplega nítján hundruð kílómetra um helgina til að standa við skuldbindingar sínar.

Ekki borga allir jafn mikið fyrir löggæslu

Aðstandendur hátíða um verslunarmannahelgi þurfa að taka mismikinn þátt í kostnaði vegna löggæslu. Gert er ráð fyrir að allur kostnaður umfram venjuleg löggæslustörf falli á þann sem fyrir hátíðinni stendur.

Segjast ekki safna heldur selja

Fjársöfnunarfélagið Fátæk börn á Íslandi fer ekki eftir lögum og reglum um opinberar fjársafnanir. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu barst ábending vegna söfnunar þessa félags í seinustu viku.

Þyrla sinnir eftirliti með helgarumferð

Minni þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, mun aðstoða lögregluna í Reykjavík við umferðareftirlit um allt land um verslunarmannahelgina. Er þetta samstarfsverkefni Landhelgisgæslunnar, lögreglustjórans í Reykjavík og Ríkislögreglustjóra.

Stjórnvöld verða að horfast í augu við rekstrarvandann

Einar Oddur Kristjánsson segir nauðsynlegt fyrir stjórnvöld að horfast í augu við raunverulegan rekstrarvanda ríkisvaldsins. Óskynsamir launasamningar eru rót vandans, segir Einar Oddur. Meira en fjórðungur fjárlagaliða fór fram úr heimildum.

Segir tekjuójöfnuð vera meiri en áður

Tekjuójöfnuður á Íslandi hefur aukist mikið undanfarin ár. Samkvæmt útreikningum hagfræðiprófessors er ójöfnuður í tekjudreifingu á Íslandi langmestur af Norðurlöndunum og með því mesta í Evrópu.

Brennuvargur gengur laus

Verulegt tjón varð í eldsvoða við og í Síldarverksmiðjunni á Akranesi í gær. Lögregla segir ljóst að um íkveikju hafi verið að ræða og að brennuvargur gangi laus í bænum.

Miðar fara í almenna sölu

Þeir sem kaupa miða á tónleika Morrisseys næstkomandi laugardag í Laugardalshöll munu hafa forkaupsrétt á miðum á tvenna tónleika Sufjans Stevens í Fríkirkjunni í nóvember. Forsalan mun standa til 14. ágúst, en þá verður opnað fyrir almenna sölu.

Norðurlöndin öll utan ESB

Lagt er til að öll Norðurlöndin standi utan Evrópusambandsins í ályktun Norræns þjóðfundar sem haldinn var á Íslandi dagana 28. til 30. júlí.

Segir stjórnvöld geta sveipað söguna blæju

Ragnari Aðalsteinssyni hæstaréttarlögmanni var meinaður aðgangur að gögnum um hleranir dómsmálaráðuneytisins í kalda stríðinu. Hann íhugar að leita til dómstóla með málið. Þjóðskjalavörður segir lög óskýr varðandi aðgang að gögnunum.

Tveir grunaðir handteknir

Lögreglan í Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum handtók í gær tvo menn í tengslum við raðmorð sem skelft hafa íbúa borgarinnar í meira en ár. Mennirnir eru taldir tengjast máli leyniskyttu sem kölluð er „The Serial Shooter“ en ekki öðrum fjöldamorðingja sem gengur undir nafninu Baseline-morðinginn.

Tíu fíkniefnamál á Akureyri

Lögreglan á Akureyri hafði afskipti af tíu mönnum vegna fíkniefnamála í fyrrakvöld og fram eftir nóttu.

Þjónustu skortir í Hátúninu

Búsetuúrræði geðfatlaðra eru úr takt við tímann, að mati Silju Magnúsdóttur, sálfræðings hjá Geðhjálp. „Það er ósk forsvarsmanna Geðhjálpar að búsetuúrræði fyrir geðfatlaða verði í formi lítilla eininga í framtíðinni, en í stórum einingum eins og öryrkjablokkunum í Hátúninu vantar sárlega þjónustu og liðveislu við íbúana.

Hafa gripið til skömmtunar

Þetta er í fyrsta skipti sem við lendum í því að reyktur lundi selst upp, segir Magnús Bragason, lundasölumaður í Vestmannaeyjum. Hann segir að menn hafi ætíð byrgt sig upp fyrir þjóðhátíð en núna hafi eftirspurnin slegið öll met.

Fjölgun öryrkja vekur furðu

Tryggingastofnun ríkisins greiddi 6,8 milljarða í örorkulífeyri árið 2005, rúmum átta prósentum meira en árið 2004.Örorkuþegum fjölgaði um 6,2 prósent milli ára og voru í ársbyrjun 12.755 talsins. Sigríður Lillý Baldursdóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Tryggingastofnunar, segir þessar tölur koma á óvart.

Á 160 framhjá Smáralindinni

Maður á fertugsaldri var mældur á tæplega 160 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni við Fífuhvammsveg, rétt hjá Smáralindinni í Kópavogi, í fyrradag. Maðurinn var stöðvaður um tíu leytið um morguninn í töluverðri umferð.

Ræða leiðir til að binda enda á átökin

Fulltrúar stórveldanna í öryggisráði SÞ héldu í gær áfram viðræðum um leiðir til að binda enda á átökin í Líbanon. Ágreiningur ríkir enn um hvort skuli koma á undan, vopnahlé eða friðargæslulið. Ísraelar héldu áfram loftárásum og sprengiflaugahríð Hizboll

Færri frjókorn en í meðalári

Heildarfjöldi frjókorna í júlí var undir meðallagi í Reykjavík og á Akureyri en frjótími grasa stendur sem hæst um þessar mundir. Nokkrar grastegundir eru enn í blóma eins og vallarfoxgras en frjókorn þess eru skæður ofnæmisvaldur. Uppspretta grasfrjóa er því enn til staðar.

Tíu þúsund gestir mættir

Tæplega tíu þúsund manns voru saman komnir við setningu Unglingalandsmóts UMFÍ á Laugum í Þingeyjarsveit í gærkvöldi. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, ávarpaði landsmótsgesti og sagði mótið bera vott um hið góða starf sem ungmennafélögin vinna.

Erfitt að banna öflug hjól

Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, segir að hugfar þeirra mótorhjólamanna sem aka á ofsahraða verði að breytast en telur illmögulegt að banna kraftmestu hjólin, líkt og stungið hefur verið upp á.

Karlahópurinn á Akureyri

Vegna veðurs og samgönguerfiðleika er karlahópur femínistafélagsins ekki í Vestmannaeyjum um helgina eins og til stóð. Þess í stað er karlahópurinn á Akureyri og dreifir þar barmmerkjum, svifdiskum og bæklingum.

Sjá næstu 50 fréttir