Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umhverfisráðherra hvetur til afnáms á skaðlegum niðurgreiðslum Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra hvatti til afnáms á niðurgreiðslum sem geta haft skaðleg áhrif á umhverfið og til aukinnar þátttöku atvinnulífsins í baráttu gegn loftslagsbreytingum á fundi evrópskra umhverfisráðherra í Turku í Finnlandi. 17.7.2006 09:47
Alþjóðlegt friðargæslulið til Líbanon Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hvetja nú til að alþjóðlegt friðargæslulið verði sent til Líbanons til að freista þess að stöðva sprengingar Hezbollah í Ísrael. Segja þeir að þetta sé árangursríkast til friðar, því ef næst að binda endi á sprengingar í Ísrael, hafi Ísraelar ekki lengur ástæðu til að ráðast á Líbanon 17.7.2006 09:34
Fjórir handteknir vegna nauðgunarkæru Lögreglan í Reykjavík hefur handtekið fjóra unga karlmenn vegna nauðgunarkæru. Ung kona kærði nauðgun upp úr miðnætti og var flutt í neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb nauðgana á Landsspítalanum. Jafnframt hófst rannsókn, sem leiddi til handtakanna. Lífsýni hafa verið tekin úr mönnunum og verða þeir svo yfirheyrðir í dag. Verknaðurinn átti sér stað í heimahúsi. Á þessari stundu eru frekari málsatvik óljós, að sögn lögreglu. 17.7.2006 09:26
Íslenskt götuheiti í Svartfjallalandi Stjórnmálaflokkur í Svartfjallalandi hefur lagt fram tillögu um að breyta götuheiti þar í landi. Ætlunin er að gatan beri heiti eftir Íslandi en með því á að heiðra Íslendinga fyrir að hafa fyrstir orðið til þess að viðurkenna Svartfjallaland sem sjálfstætt ríki í maí á þessu ári. 17.7.2006 09:06
Íslenskar kartöflur Fyrstu nýju kartöflurnar úr sunnlenskum görðum koma á markað á höfuðborgarsvæðinu í dag. Það verða Premier kartöflur , sem Birkir Ármannsson í Vestur Holti í Þykkvabæ, byrjaði að taka upp í morgun. 17.7.2006 08:32
Engar rútuferðir á morgun Íslensk kona ásamt fjögurra mánaða ungabarni og eiginmanni sínum er ein þeirra sex Íslendinga sem enn eru strandaglópar í Beirút. Íslendingarnir voru komnir upp í rútu í hádeginu í dag þegar þeim var vísað út og sagt að Norðmenn gengju fyrir. Enn er óvíst um að Íslendingarnir komist áleiðis heim á morgun. 16.7.2006 18:45
Stjórnsýsluúttekt gerð á Strætó Gerð verður rekstrar- og stjórnsýsluúttekt á Strætó að beiðni borgaryfirvalda. Borgarfulltrúi í stjórn fyrirtækisins segir meirihlutann í borgarstjórn hafa verið upplýstan um þjónustuskerðingu fyrirtækisins. 16.7.2006 18:45
Öryggisráðið dragi fæturna Forseti Líbanon sakar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna um að draga fæturna í stað þess að grípa til aðgerða til að stöðva loftárásir Ísraela í Líbanon. Hann segir þetta með vilja gert til að gefa Ísrael meiri tíma til að knésetja Líbanon. 16.7.2006 18:30
Segir borgaryfirvöld velja einkabílinn. Formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir þjónustuskerðingu Strætó bitna illilega á námsmönnum. Ráðamenn í borginni velji einkabílinn fyrir borgarbúa. 16.7.2006 18:26
Einn leiðtoga Rauðu kmeranna liggur fyrir dauðanum Einn af herforingjum Rauðu kmeranna í Kambódíu liggur nú í dauðadái og eiga læknar ekki von á bata. Ta Mok hlaut viðurnefnið slátrarinn í þjóðernishreinsunum khmeranna i Kambódíu á áttunda áratugnum, sem eru með þeim verstu sem áttu sér stað í heiminum á síðustu öld. Óttast er að flestir ábyrgðarmanna þjóðarmorðanna verði látnir áður en næst að dæma þá fyrir glæpina sem þeir frömdu, en réttarhöld yfir þeim hafa enn ekki hafist. Málin hafa þó mjakast í rétta átt í mánuðinum þegar embættismenn voru kosnir til að skipuleggja réttarhöldin yfir þeim. 16.7.2006 16:45
Fundur ríkja sunnan Sahara Nokkur hundruð manns eru nú saman komin í Goa í Malí til að kljást við ýmis vandamál sem hrjá Afríkuríki sunnan Sahara-eyðimerkurinnar. Fundurinn er settur á sama tíma og fundur átta helstu iðnríkja heims til þess að vekja athygli á ýmsum umræðuefnum sem forsvarsmenn ráðstefnunnar segja ekki hljóta neina umfjöllun á G8-fundinum, svo sem vopnuð átök sunnan Sahara, eyðni, skuldastaða Afríkuríkja og viðskiptahættir vestrænna fyrirtækja í Afríku. 16.7.2006 16:30
Mótmælendur krefjast þess að Aristide fái að koma til Haíti Þúsundir krefjast þess að Aristide fyrrverandi forseti Haiti fái að snúa aftur til heimalands síns eftir að hafa flúið Haíti þegar honum var steypt af stóli fyrir tveimur árum síðan. Núverandi forseti Haíti, Rene Préval, hefur sagt að það sé ekki útilokað að Aristide fái að snúa aftur til eyrikisins en ráðamenn í Bandaríkjunum segja þetta óráðlegt þar sem það myndi kynda undir óróleika í landinu. 16.7.2006 16:15
Leiðtogi Hezbollah sagður slasaður Ísraelsk sjónvarpsstöð heldur því nú fram að Nasrallah, leiðtogi Hezbollah-samtakanna, hafi slasast í loftárásum Ísraelsmanna. Þetta hefur hins vegar ekki enn fengist staðfest frá yfirvöldum en vitað er að sprengjuárásir Ísraela hafa meðal annars beinst gegn höfuðstöðvum Hezbollah. 16.7.2006 16:00
Fluttur frá Borgarnesi til Reykjavíkur eftir líkamsárás Maður var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss í Fossvogi í nótt eftir líkamsárás. Atvikið átti sér stað á Mótel Venus fyrir utan Borgarnes. Áverkar mannsins virtust miklir í fyrstu en við skoðun í Fossvogi reyndist hann ekki mikið skaddaður heldur einungis með glóðarauga og bólgið andlit. Búið er að útskrifa manninn. 16.7.2006 15:45
Smáskífa Nylon selst vel í Bretlandi Fyrsta smáskífa hljómsveitarinnar Nylon í Bretlandi endaði í 29. sæti sölulistans eftir vikuna. Smáskífan "Losing a Friend" kom í verslanir á mánudag og var uppseld í stórum hluta verslana í miðborg London sama dag. Meðal þeirra sem þurftu að láta í minni pokann fyrir Nylon flokknum eru meðlimir hljómsveitarinnar Red Hot Chili Peppers sem einnig gáfu út smáskífu í vikunni. 16.7.2006 15:15
Fjölmenn mótmæli í Indónesíu gegn árásum Ísraela Þúsundir manna komu saman á götum Jakarta, höfuðborgar Indónesíu í dag til að mótmæla árásum Ísraela á Líbanon og palestínsku sjálfstjórnarsvæðin. Margir báru spjöld sem sögðu Ísrael stunda hryðjuverk en aðrir báru palestínska fána. Ísraelski fáninn var fótum troðinn til að sýna fyrirlitningu mótmælendanna á ríkinu. Mótmælin eru þau stærstu í Indónesíu síðan árásir Ísraela á Líbanon hófust á miðvikudaginn. Indónesía hefur lengi stutt Palestínu að málum og neitar að viðurkenna Ísraelsríki. 16.7.2006 14:15
Einn látinn í skógareldum í Kaliforníu Enn er ekki búið að ná tökum á skógareldum í Kalirforníu í Bandaríkjunum. Um fjögur þúsund slökkviliðsmenn unnu að því að slökkva eldana í gær. Lögreglumenn fundu í gær lík manns sem saknað hefur verið síðan á þriðjudag þegar hann bjóst til að yfirgefa heimili sitt á flótta undan eldunum. Slökkviliðsmenn hafa náð einhverjum tökum á eldunum sem geisa við Sawtooth en ekki eldum við Millard. 16.7.2006 14:00
Hátt í sextíu manns hafa látist í flóðum í Asíu Náttúruhamfarir víða um heim hafa tekið sinn toll í Asíu síðustu daga. Um sextíu manns hafa látist í flóðum í suðausturhluta Kína og í Suður-Kóreu. 16.7.2006 13:45
Norður-Kóreumenn ætla ekki að hætta tilraunum sínum Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti samhljóða í nótt að setja takmarkað viðskiptabann á Norður-Kóreu vegna tilraunaskota þeirra á langdrægum eldflaugum. Norður-Kóreumenn svöruðu umsvifalaust að ekki kæmi til greina að falla frá frekari eldflaugaprófunum. 16.7.2006 13:30
Öryggisráðið kallar ekki til vopnahlés í Líbanon Ekki náðist samkomulag í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um að kalla til vopnahlés milli Ísraela og Hezbollah, eins og forsætisráðherra Líbanons bað um í gær. Líbanskir diplómatar kenna Bandaríkjamönnum um að hafa stöðvað tillöguna í ráðinu. 16.7.2006 13:15
Íslendingar skildir eftir í Beirút Íslendingunum í Beirút, höfuðborg Líbanons, var meinað að yfirgefa borgina í rútum þar sem Norðmenn voru látnir ganga fyrir. Utanríkisráðherra segist vonsvikinn vegna málsins, en brýnt þótti að fólkið kæmist heim hið fyrsta vegna þess stríðsástands sem ríkir í landinu. 16.7.2006 13:00
Rændi úr peningakassanum og sló afgreiðslukonu Maður á þrítugsaldri, með klút fyrir andlitinu, rændi verslun í vesturbæ Reykjavíkur klukkan fjögur í gærdag. Hann var kominn í peningakassann þegar afgreiðslukona kom að honum og reyndi að stöðva hann. Hann sló hana þannig að hún féll í gólfið og hvarf á brott á bíl. Konan sem hann réðst á náði númeri bílsins og gat því veitt lögreglu gagnlegar upplýsingar. Tæplega þremur tímum síðar var hann handtekinn og gistir nú fangageymslur lögreglu en verður yfirheyrður síðar í dag. 16.7.2006 11:15
Beltin björguðu Talið er að bílbelti hafi bjargað því að ekki fór verr þegar bíll valt út af veginum í Mjóafirði í Ísafjarðardjúpi um kvöldmatarleytið í gær. Að sögn lögreglu var fernt í bílnum og sluppu þau öll ómeidd enda öll með bílbelti. 16.7.2006 11:00
400 e-töflur fundust við húsleit í Keflavík Lögreglan í Keflavík handtók á föstudagskvöld sex manns vegna fíkniefnaviðskipta. Við húsleit fundust um 400 e-töflur, 15 grömm af amfetamíni og lítilræði af kókaíni. Fólkinu hefur öllu verið sleppt. Markaðsvirði e-taflnanna gæti numið um einni og hálfri milljón. Þrír gistu svo fangageymslur lögreglunnar í Keflavík í nótt vegna ölvunar, þar á meðal ökumaður sem tekinn var snemma í morgun fyrir ölvunarakstur en brást illa við og beit lögregluþjón. 16.7.2006 10:45
Vopnað rán í Krónunni í Mosfellsbæ Maður vopnaður hnífi ógnaði starfsfólki Krónunnar í Mosfellsbæ seint í gærkvöldi, heimtaði peninga og hafði á brott með sér talsvert fé. Fimm aðrir eru taldir tengjast ráninu. Tólf mínútur í ellefu var lögreglu tilkynnt um ránið og sautján mínútum síðar náðist sá grunaði vopnaður hnífi. Um miðnætti voru meintir vitorðsmenn hans handteknir í heimahúsi. Allir sex gistu fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík í nótt og verða þeir yfirheyrðir í dag. 16.7.2006 10:30
Níu Ísraelar féllu í árás Hezbollah á Haifa Sprengjuárásir Ísraela og skæruliðasamtakanna Hezbollah halda áfram á báða bóga. Bæir í norðurhluta Ísraels, við landamærin að Líbanon, hafa nú flestir verið yfirgefnir vegna sprengjuárása Hezbollah undanfarna daga. Hezbollah-skæruliðasamtökin gerðu árás á ísraelsku hafnarborgina Haifa í morgun, þar sem í það minnsta níu manns létu lífið. 16.7.2006 10:15
Takmarkað viðskiptabann sett á Norður-Kóreu Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti samhljóða að setja takmarkað viðskiptabann á Norður-Kóreu vegna prófana á langdrægum eldflaugum. Einnig var þess krafist að látið verði tafarlaust af öllum slíkum tilraunum. Það taka stjórnvöld í Norður-Kóreu hins vegar ekki í mál. Viðskiptabannið sem samþykkt var í gær á að hindra öll viðskipti með þau efni og hluti sem notuð eru til að smíða eldflaugar. 16.7.2006 10:00
Segir landbúnaðaráðherra ráða of miklu Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, vill að vörugjald og tollvernd af búvöru verði afnumin eins og róttækustu dæmi í skýrslu formanns matvælanefndar sýna. Hann segir landbúnaðarráðuneytið ráða of miklu um matvælaverð í landinu. 15.7.2006 18:45
Nilfisk hótar Nilfisk lögsókn Meðlimir Stokkseyrarbandsins Nilfisk, eiga yfir höfði sér lögsókn að hálfu ryksuguframleiðandans Nilfisk. Ryksugurisinn krefst þess að hljómsveitin samnefnda breyti heiti sínu og að allur varningur hennar verði gerður upptækur. 15.7.2006 17:12
139 hlauparar lögðu af stað úr Landmannalaugum Það voru 139 ofurhugar sem lögðu af stað úr Landmannalaugum í morgun með það að markmiði að hlaupa Laugaveginn inn í Þórsmörk, um 55 km leið. Þrátt fyrir slæma veðurspá var veðrið sæmilegt í morgun og meira að segja sólarglæta. 15.7.2006 16:15
Þrjú ker gangsett í skála 3 Endurgangsetning á þremur kerjum í skála 3 í Álverinu í Straumsvík í dag tókst með ágætum en engin framleiðsla hefur verið í skálanum síðan í júní. Til stendur að endurgangsetja öll kerin á næstu vikum og mánuðuðum. 15.7.2006 16:00
Vestrænar þjóðir óska eftir aðstoð Þjóðverja í málefnum Líbanons Nokkrar þjóðir á Vesturlöndunum hafa beðið Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, að miðla málum í deilu Ísraela og Líbana. Bandaríkjastjórn bað víst Merkel að ræða við háttsetta Ísraelsmenn og hún sagði þeim að ástandið í Líbanon væri viðkvæmt og mætti ekki við aðgerðum Ísraela. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Der Spiegel, en nánar verður fjallað um málið í næsta tölublaði tímaritsins. Þjóðverjar hafa áður beitt sér í viðræðum Ísraela við Hizbollah-samtökin. 15.7.2006 15:33
Útafakstur á Ólafsfjarðarvegi Bíll keyrði út af Ólafsfjarðarveginum milli Akureyrar og Dalvíkur um eittleytið í dag. Ökumaður var á leið í norður og missti stjórn á bíl sínum á móts við bæin Hátún með þeim afleiðingum að hann keyrði út af veginum, velti bílnum og endaði ofan í skurði. Ökumaður var einn í bílnum og sat fastur. Kalla þurfti tækjabíl á vettvang sem klippti manninn út úr bílnum. Maðurinn er lítillega slasaður og var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Ökumaður er grunaður um ölvun. 15.7.2006 14:33
Afnám verndartolla gangi að íslenskum landbúnaði dauðum Á vef Landssambads kúabænda, naut.is, skrifar Þórólfur Sveinsson pistil í dag undir fyrirsögninni "Allt í lagi" hættan. Þar fjallar Þórólfur um umfjöllun Kastljóssins um skýrslu matvælanefndar sem birt var í gær. Hann segir viðmælendurna hafa verið á þeirri skoðun að það væri allt í lagi að fella niður tolla á erlendar landbúnaðarvörur til verndar íslenskum matvælum. Þessi hugsunarháttur sé hættulegur því augljóst sé að ef smásöluverð lækki til jafns við það sem kemur fram í skýrslunni sé ekkert fjármagn eftir til að borga starfsmönnum laun. Atvinnugrein sem hafi ekki efni á launagreiðslum hljóti hverfa. 15.7.2006 14:30
Stöð 2 og Sýn hækka Fyrirtækið 365 hefur sent frá sér tilkynningu um hækkun á áskriftarstöðvum sínum frá og með 20. júlí næstkomandi. Áskrift að Stöð 2 og erlendum pökkum hækkar um 8% og áskrift að Sýn um 12% fyrir M12 áskrifendur en 13% í almennri áskrift. 15.7.2006 13:06
Atkvæðagreiðsla um refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu Bandaríkjamenn ætla í dag ásamt Japönum að biðja um atkvæðagreiðslu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu vegna eldflaugatilrauna þeirra. Sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum segir að þjóðirnar tvær hafi ákveðið að sleppa því að vísa til sjöunda kafla stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna til að forða því að Kínverjar beiti neitunarvaldi. 15.7.2006 13:00
Sænsk stjórnvöld ætla að flytja sænska ríkisborgara frá Líbanon Sænsk stjórnvöld eru byrjuð að gera ráðstafanir til að flytja sænska ríkisborgara frá Líbanon. Stjórnin hefur reitt fram jafnvirði rúmlega hálfs miljarðs íslenskra króna til að kosta heimförina. Talið er að um 4.500 Svíar séu í Líbanon. Norska utanríkisráðuneytið kallaði sendiherra Ísraels í Osló á sinn fund í gær en þar var honum gerð grein fyrir því að Norðmenn telja Ísraela ábyrga fyrir öryggi 300 Norðmanna í Líbanon. 15.7.2006 12:45
Pútín vill ekki íraskt lýðræði Vladimir Pútín Rússlandsforseti kærir sig ekki um lýðræði eins og það sem Írakar hafi. Þetta sagði forsetinn á sameiginlegum blaðamannafundi með George Bush Bandaríkjaforseta í morgun en Bush hafði lýst því yfir fyrir ferð sína til Rússlands að hann myndi ræða áhyggjur manna af þróun lýðræðisins í Rússlandi við Pútín. 15.7.2006 12:30
Tafir á vél Iceland Express vegna bilanar Talsverðar tafir urðu á flugi vélar Iceland Express til Friedrichshafen í morgun. Fyrirtækið sendi frá sér tilkynningu þar sem kemur fram að bilun hafi komið upp í loku í hjólabúnaði vélarinnar. Þegar vélin var komin í loftið fóru hjólin upp með eðlilegum hætti en lok búnaðarins féll ekki að. Ákveðið var að lenda vélinni til að gera við lokuna. Eftir viðgerðina var vélinni flogið í stutt reynsluflug og að því búnu gengu farþegar um borð á ný. Áætlað er að vélin lendi í Friedrichshafen kl. 13.54 að íslenskum tíma, um klukkutíma á eftir áætlun. 15.7.2006 12:07
Leki í stýris- og bremsubúnaði Discovery Geimfarar Discovery hafa fundið leka frá aflgjafa stýris- og bremsubúnaðar geimflaugarinnar. Ekki er hægt að ganga úr skugga um hvaða efni lekur frá aflgjafanum en starfsmenn NASA ganga út frá því að um eldfimt efni sé að ræða. 15.7.2006 12:00
Átak gegn mávum í Hafnarfirði Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa ákveðið að fylgja eftir átaki Sjálfstæðismanna í Reykjavík og fækka mávum sem sagðir eru herja á bæjarbúa. Í tilkynningu frá bænum kemur fram að mávurinn veki ótta hjá hafnfirskum börnum auk þess sem hann sæki í rusl og annað ætilegt í bænum. 15.7.2006 11:30
Úrskurður óbyggðanefndar um þjóðlendu við Sólheimajökul felldur úr gildi Eigendur Ytri-Sólheimajarða unnu mál gegn íslenska ríkinu fyrir héraðsdómi Suðurlands í gær. Felldur var niður úrskurður óbyggðanefndar frá því í desember 2004 um að landið Hvítmaga í Mýrdalshreppi teldist þjóðlenda. 15.7.2006 11:30
Vilhjálmur og Harry fordæma myndbirtinguna Synir Díönu prinsessu, þeir Vilhjálmur og Harry fordæmdu í gær ákvörðun ítalsks tímarits um að birta mynd af Díönu eftir bílslysið sem dró hana til dauða árið 1997. Myndin var tekin af Díönu þar sem hún liggur mikið slösuð í aftursæti bíls og er sjúkraliði við að setja á hana súrefnisgrímu. Birting myndarinnar hefur vakið mikla reiði í Bretlandi. Vilhjálmur og Harry sögðust í gær vera sorgmæddir yfir lágkúru ítalska blaðsins og að þeir væru að bregðast minningu móður sinnar ef þeir verðu hana ekki. 15.7.2006 11:15
Lögreglumenn slökktu eld í vörubíl Snör handtök lögreglunnar á Ólafsvík forðuðu því að ekki fór verr þegar kviknaði í gömlum vörubíl sem stóð á yfirbyggðu porti nálægt fiskikerjum bæjarins í gærkvöldi. Talið er að unglingar sem hafi það fyrir sið að reykja í portinu hafi í ógáti kveikt í bílnum. Að sögn lögreglu á staðnum er mikill eldmatur nálægt portinu sem bíllinn stóð í og því skipti miklu að snarlega tókst að ráða niðurlögum eldsins. 15.7.2006 11:00
Komst í gang aftur Hjálparbeiðni barst frá bát sem var vélarvana úti fyrir Hornvík um klukkan átta í morgun og voru björgunarbátar kallaðir út. Áður en bátarnir komust á staðinn var hjálparbeiðnin afturkölluð þar sem skipverjum tókst að koma vél bátsins í gang að nýju. 15.7.2006 10:45
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent