Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skaðleg áhrif á fataiðnaðinn? Evrópusambandið hyggst athuga hvort aukinn innflutningur á klæðnaði sem framleiddur er í Kína skaði evrópskan fataiðnað, að beiðni Frakklands, Ítalíu og Grikklands. Spánverjar hafa auk þess gagnrýnt mikinn innflutning á ákveðnum tegundum fatnaðar. 28.4.2005 00:01
NATO lítur til Afríku Atlantshafsbandalagið hefur ákveðið að hefja viðræður við bandalag Afríkuríkja um mögulega aðstoð við hjálparstarf í Darfur-héraði í Súdan eftir að beiðni þess efnis hafði borist NATO. 28.4.2005 00:01
Lien og Hu funda Lien Chan, leiðtogi stjórnarandstöðunnar á Taívan, er kominn til Peking til viðræðna við Hu Jintao, forseta Kína. Svo háttsettur taívanskur embættismaður hefur ekki sótt Kína heim síðan þjóðernissinnar flúðu til Formósu árið 1949 og settu á fót ríkið sem í dag er Taívan. 28.4.2005 00:01
Ásdís Halla verður forstjóri Byko Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri í Garðabæ, hefur verið ráðin forstjóri Byko. Hún tekur við starfinu í lok næsta mánaðar. Við starfi Ásdísar Höllu sem bæjarstjóri tekur Gunnar Einarsson, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar. 28.4.2005 00:01
Annþór fékk 3 ára dóm Dómur féll í Hæstarétti í dag yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni og Ólafi Valtý Rögnvaldssyni fyrir hrottalega árás á mann á heimili hans; hann var meðal annars barinn með kylfu svo að hann handleggsbrotnaði. Annþór fékk þriggja ára dóm, Ólafur tveggja ára dóm. Dómurinn tekur mið af löngum ofbeldisferli hinna dæmdu. 28.4.2005 00:01
Vaðlaheiðarfórnarlambið ók bílnum Einn þeirra sem stóðu að líkamsárásinni við Akureyri sem greint var frá fyrr í dag er sá sem skotið var á úr loftbyssu á Vaðlaheiði fyrir tæpum hálfum mánuði. Hann segist hafa ekið bílnum og viðurkennir að hafa verið á vettvangi, en neitar að hafa tekið þátt í barsmíðunum. 28.4.2005 00:01
Staðfestir sekt en mildar refsingu Hæstiréttur mildaði í dag refsingu fyrrverandi forsvarsmanna Skjás eins fyrir að veita viðtöku og ráðstafa í eigin þágu yfir hundrað og sextíu milljónum af stolnu fé frá Landssímanum og hylma yfir glæpinn. Hæstiréttur telur algjörlega útilokað að þeir hafi ekki vitað að féð var illa fengið. 28.4.2005 00:01
Dómar í Landssímamálinu mildaðir Dómar Héraðsdóms yfir Árna Þór Vigfússyni, Kristjáni Ra. Kristjánssyni og Ragnari Orra Benediktssyni voru í Hæstarétti samtals mildaðir um 20 mánuði. Allir kröfðust þeir sýknu í málinu, en ákæruvaldið vildi staðfestingu héraðsdóms. 28.4.2005 00:01
Dæmdur fyrir þjófnað og ofsaakstur 25 ára gamall maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, auk ökuleyfissviptingar í þrjá mánuði fyrir þjófnaði og ofsaakstur á undan lögreglu á síðasta ári. 28.4.2005 00:01
Braust inn um glugga Brotist var inn í blokkaríbúð á Kleppsvegi aðfaranótt fimmtudags og þaðan stolið farsíma, skartgripum og lítilræði af peningum. Þjófurinn braust inn um glugga en hvarf á brott þegar húsráðendur urðu hans varir. 28.4.2005 00:01
Er ekki sáttur við dóminn Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Grétari Sigurðarsyni, Jónasi Inga Ragnarssyni og Tomasi Malakaukas, en hver þeirra hafði verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi. Dóminn hlutu þeir fyrir smygl á tæpum 224 grömmum af amfetamíni, brot gegn lífi og líkama og fyrir ósæmilega meðferð á líki Vaidasar Juceviciusar. 28.4.2005 00:01
Eldur logaði í útvegg Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafði mikinn viðbúnað vegna elds í Framheimilinu í Reykjavík laust eftir klukkan eitt í gærdag. Enginn meiddist og búið var að hefta útbreiðslu eldsins um klukkustund síðar. Nemendur í Álftamýrarskóla, sem er í næsta húsi, voru sendir heim vegna brunans. 28.4.2005 00:01
Skilorð fyrir að berja konu Maður fékk þriggja mánaða fangelsisdóm skilorðsbundinn í þrjú ár í Hæstarétti í gær fyrir árás á eiginkonu sína. Dómurinn er nær samhljóða fyrri dómi Héraðsdóms Reykjaness, en hann vakti mikið umtal því látið var að því liggja að konan hefði verið valdur að bræði mannsins, en hann sakaði hana um framhjáhald. 28.4.2005 00:01
Handrukkari fær þrjú ár Hæstiréttur þyngdi í gær fyrri dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni um hálft ár, en fyrri dómur hljóðaði upp á tveggja og hálfs árs fangelsi. Staðfestur var tveggja ára dóm yfir Ólafi Valtý Rögnvaldssyni. 28.4.2005 00:01
Börðu mann við Gesthús Héraðsdómur sektaði fimm menn um tvítugt um 75 þúsund krónur hvern fyrir að ráðast á og berja mann við Gesthús á Selfossi haustið 2003. Mennirnir eru frá Selfossi og Árborgarsvæðinu. 28.4.2005 00:01
Leyniskýrsla lak í Bretlandi Trúverðugleiki Tonys Blairs beið enn á ný hnekki þegar leyniskýrsla um Íraksstríðið var birt í fjölmiðlum í dag. Pólitískir keppinautar stukku á málið en Blair segist ekkert rangt hafa gert. 28.4.2005 00:01
Út í hött, segir Grétar Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir þremenningunum í líkfundarmálinu í Neskaupstað. Einn sakborninga, Grétar Sigurðsson, segir út í hött að hann skuli fá jafn þungan dóm og hinir tveir sakborningarnir, Jónas Ingi Ragnarsson og Tomas Malakauskas. 28.4.2005 00:01
Ríkisendurskoðandi á fund Halldórs Ríkisendurskoðandi var kallaður fyrir fjárlaganefnd í dag til ræða einkavæðingu stjórnvalda, þar á meðal á Búnaðarbankanum. Einróma niðurstaða fundarins var að kalla þyrfti fleiri fyrir nefndina, svo sem einkavæðingarnefnd, þar sem ýmsu væri ósvarað. Fyrir fundinn átti ríkisendurskoðandi fund með forsætisráðherra en neitar að upplýsa um efni hans. 28.4.2005 00:01
Byggð á uppfyllingu í hættu Forstöðumaður á Siglingastofnun telur að byggð á uppfyllingum geti verið í hættu vegna hamfaraflóða eins og þess sem reið yfir Básenda árið 1799. Hann hélt fyrirlestur á ráðstefnu um áhrif sjóflóða í dag. 28.4.2005 00:01
Keppst um nýja Landspítalalóð Fulltrúar sjö hópa sem keppa um skipulag nýrrar lóðar Landspítala við Hringbraut fengu afhenta samkeppnislýsingu í dag. Heilbrigðisráðherra segir að sameining allrar starfsemi spítalans undir eitt þak muni kosta þrjátíu og sex milljarða króna. Ágóði af sölu Símans verði líklega notaður til að fjármagna verkið. 28.4.2005 00:01
Atvinnurekendur hafna frumvarpi Samtök atvinnulífsins telja að frumvarp menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið brjóti bæði gegn samkeppnislögum og reglum Evrópska efnahagssvæðisins um ríkisstyrki. Það feli í sér óhóflega mismunun í skilyrðum til útvarpsrekstrar. 28.4.2005 00:01
Iðandi mannlíf Atvinnulífið í Fjarðabyggð iðar af lífi og bjartsýni nú þegar framkvæmdir í tengslum við fyrirhugað álver eru komnar vel á veg og áhrifin eru farin að skila sér í þjóðfélaginu. 28.4.2005 00:01
Segja spurningum ekki svarað Fjárlaganefnd Alþingis ákvað á fundi sínum í gær að Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi hefði ekki gefið fullnægjandi svör við spurningum nefndarmanna um einkavæðingu á Búnaðarbanka og Landsbanka á árunum 2002 til 2003. Því var fallist á að kalla framkvæmdanefnd um einkavæðingu, og fyrrum nefndarmenn hennar, á fund nefndarinnar að tíu dögum liðnum. 28.4.2005 00:01
Banaslys við Egilsstaði Banaslys varð rétt utan við Egilsstaði á tíunda tímanum í gærkvöldi þegar fólksbíll valt þar út af veginum. Rúmlega fimmtug kona var ein í bílnum og beið hún bana. 27.4.2005 00:01
Réttarhöldunum frestað Dómsuppsögu yfir Mikhail Khodorkovsky, sem átti olíurisann Yukos, var frestað í Moskvu í morgun. Fréttaskýrendur segja þetta gert til að hlífa Pútín Rússlandsforseta við vandræðalegum fundum með vestrænum leiðtogum í næsta mánuði. 27.4.2005 00:01
Jómfrúarferð stærstu þotu heims Stærsta farþegaþota heims, Airbus A380, hóf sig til flugs í fyrsta sinn á flugvellinum í Toulouse í Frakklandi á níunda tímanum í morgun. Flugtakinu hafði verið frestað um u.þ.b. eina og hálfa klukkustund en ástæðan fyrir því hefur ekki verið gefin upp. 27.4.2005 00:01
Handtekinn á miðri flugbraut Lögreglan í Reykjavík handtók mann inni á miðri flugbraut á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi, enda var flugumferð enn í gangi og hefði flugvélum geta stafað hætta af manninum. Hann reyndist mjög ölvaður og vissi vart hvar hann var, hvað þá heldur hvert hann væri að fara. 27.4.2005 00:01
60 taldir af eftir lestarslys Óttast er að allt að sextíu manns hafi farist og meira en fjörutíu slasast þegar farþegalest keyrði á rútu nærri höfuðborg Srí Lanka í nótt. Áreksturinn varð þar sem járnbrautarteinarnir og akvegur skerast. 27.4.2005 00:01
Talsverðar annir hjá slökkviliðinu Talsverðar annir voru hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í gær og í gærkvöldi þegar liðið var hvað eftir annað kallað út vegna sinuelda. Hvergi hlaust þó tjón á mannvirkjum eða trjágróðri en bannað er að kveikja sinuelda á höfuðborgarsvæðinu. 27.4.2005 00:01
Gíslarnir grátbiðja um aðstoð Mannræningjar í Írak hafa ákveðið að fresta því um einn dag að lífláta þrjá rúmenska blaðamenn sem þeir hafa í haldi. Al-Jazeera fréttastofan birti í gær myndir af Rúmenunum þremur þar sem þeir grátbiðja stjórnvöld í Rúmeníu um að fara með herafla sinn burt frá Írak. 27.4.2005 00:01
Forsendur þurfa nánari skoðun Öryrkjabandalagið segir að ýmsar forsendur, sem höfundur nýrrar skýrslu um fjölgun öryrkja gefur sér, þarfnist nánari skoðunar. Þá megi efast um að skýrslan gefi raunhæfa mynd af tekjum öryrkja. 27.4.2005 00:01
Fjöldamótmæli í Ekvador Fjöldamótmæli hafa brotist út í Ekvador eftir að forseta landsins var vikið úr embætti í síðustu viku. Stuðningsmenn forsetans fyrrverandi hafa safnast saman á götum úti og krafist þess að forsetinn komist aftur til valda. 27.4.2005 00:01
Yfir 100 manns taldir hafa látist Nú er talið víst að yfir hundrað manns hafi týnt lífi í lestarslysinu í Japan. Engin von er lengur talin til þess að nokkur finnist á lífi í flaki lestarinnar sem brunaði út af teinunum skammt frá Osaka á mánudaginn var. 27.4.2005 00:01
Kosningar í Líbanon í maílok Þingkosningar í Líbanon hefjast þann 29. maí. Talsmaður þingsins í Líbanon tilkynnti þetta í morgun. Kosningarnar verða haldnar í nokkrum umferðum og gætu því tekið nokkrar vikur. 27.4.2005 00:01
Stofnun kjarnorkuvera auðvelduð? Yfirgefnum herbækistöðvum í Bandaríkjunum verður breytt í olíuhreinsistöðvar, fái Bush Bandaríkjaforseti vilja sínum framgengt. Bandarískir fjölmiðlar segja hann ætla að leggja til að herstöðvum verði breytt og dregið verði úr skrifræði og flækjum tengdum því að stofna kjarnorkuver. 27.4.2005 00:01
Tók bílinn ófrjálsri hendi Konan sem lést í bílslysi í gærkvöldi tók bílinn ófrjálsri hendi. Engin skilríki voru á konunni og voru ekki borin kennsl á hana fyrr en í morgun. 27.4.2005 00:01
60 deyja daglega Fjögur hundruð árásir eru að jafnaði gerðar í Írak í hverri viku og daglega týna um sextíu manns lífi í þeim. 27.4.2005 00:01
Sóttust eftir fundi með Davíð Á sama tíma og forsvarsmenn Mannréttindaskrifstofu Íslands reyndu árangurslaust að fá fund með utanríkisráðherra var tekin ákvörðun í ráðuneytinu um að skera framlög til skrifstofunnar niður. Þetta segir stjórnarformaður Mannréttindaskrifstofu Íslands. 27.4.2005 00:01
Aldrei fleiri í framhaldsskóla Aldrei hafa fleiri 16 ára ungmenni á Íslandi verið skráð í framhaldsskóla en síðastliðið haust en þá voru 93 prósent ungmenna á þessum aldri skráð til skólavistar. 27.4.2005 00:01
Íröksk þingkona myrt Írakska þingkonan Lamiya Khaduri var skotin til bana við heimili sitt í dag. Hún er fyrsti þingmaðurinn sem er drepinn í landinu síðan kosningar fóru fram þann 30. janúar. 27.4.2005 00:01
Innflytjendaráð stofnað? Árni Magnússon félagsmálaráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær skýrslu nefndar um útfærslu á tillögum að stefnumótun í aðlögunarmálum innflytjenda á Íslandi. Nefndin leggur til að komið verði af stað tilraunaverkefni til fimm ára þar sem sérstakt innflytjendaráð verði stofnað sem ætlað er að sjá um móttöku flóttafólks. 27.4.2005 00:01
Nýr framkvæmdastjóri á Hrafnseyri Valdimar J. Halldórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Hrafnseyrarnefndar og tekur hann við starfinu af Hallgrími Sveinssyni sem gegnt hefur stöðunni til margra ára. Valdimar er mannfræðingur að mennt og kennari við Menntaskólann á Ísafirði. 27.4.2005 00:01
Verpti fyrsta egginu Tjaldur, sem á hverju ári gerir sér hreiður á göngustíg rétt við Sævang á Ströndum, hefur verpt fyrsta egginu. Frá þessu er greint á fréttavefnum Strandir.is. 27.4.2005 00:01
Díselolían verði ódýrari en bensín Neytendasamtökin skora á stjórnvöld að koma á hóflegu gjaldi á dísilolíu og lægra en á bensíni. Gjald á dísillítrann verður 45 krónur en er rúmar 42 krónur á bensínlítrann. 27.4.2005 00:01
Kæra Reynis tekin fyrir Jón Trausti Lúthersson hefur verið ákærður fyrir að hafa ráðist á Reyni Traustason, fyrrverandi fréttastjóra DV, á skrifstofu blaðsins í október síðastliðnum. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 27.4.2005 00:01