Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Birgir Olgeirsson skrifar 7. október 2026 15:26 Ragnar Þór Ingólfsson, efst til vinstri, kallaði ummæli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra um leigubremsuna „fullkomlega óábyrg“. Ummælin féllu í grýttan jarðveg á þingi en á meðal þeirra sem blönduðu sér í umræðuna voru Sigurjón Þórðarson, Stefán Vagn Stefánsson, Sigríður Á. Andersen, Jens Garðar Helgason, Dagur B. Eggertsson og Guðlaugur Þór Þórðarson. vísir Ummæli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra um leigubremsu ríkisstjórnarinnar eru „fullkomlega óábyrg“, að mati Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Hann spurði á Alþingi í dag hvort seðlabankastjóri teldi stjórnvöld á Norðurlöndum ekki kunna grundvallarhagfræði og líkti stýrivöxtum við verðstýringu.
Ragnar tók til máls eftir að þingmenn stjórnarandstöðunnar höfðu óskað eftir að umræðu um leigubremsufrumvarp hans yrði frestað. Vísað var til skorts á samráði við undirbúning málsins og ummæla Ásgeirs á blaðamannafundi í morgun um að leigubremsan væri „augljóslega mjög heimskuleg“. Orðaskiptin fóru fram undir liðnum fundarstjórn forseta, áður en framhald fyrstu umræðu um frumvarpið hófst. Vildi fresta umræðunni eftir orð Ásgeirs Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, óskaði eftir að umræðunni yrði frestað svo þingmenn gætu kynnt sér málið betur. Hún gagnrýndi skort á samráði og sagði umræðuna verða grunna og jafnvel skakka þegar þingmenn fengju ekki innsýn í undirbúning frumvarps sem varðaði bæði marga einstaklinga og efnahagslífið. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson tóku undir frestunarkröfuna. Guðlaugur gagnrýndi stjórnarmeirihlutann fyrir að hlusta ekki á ráðleggingar seðlabankastjóra og annarra sérfræðinga. RÚV þrengi að einkareknum fjölmiðlum með ókeypis fréttavef, hlaðvörpum og starfsemi á samfélagsmiðlum, segir Sigríður Andersen. Hún telur fjölmiðla í lýðræðisríkjum hvorki eiga að vera rekna né styrkta af ríkinu.Anton Brink Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, hafnaði því að fresta umræðunni og vísaði til fyrri ummæla Ásgeirs. „Ég held að það sé engin ástæða til þess að fresta þessu máli og láta hér yfirlýsingagleði ágæts kunningja míns trufla okkur. Hann hefur nú áður verið með hinar og þessar yfirlýsingar, svo sem um tásumyndir og að ungmenni eigi að búa lengur heima hjá sér.“ Sigurjón sagði frumvarpið færa reglur á íslenskum leigumarkaði nær því sem tíðkaðist á hinum Norðurlöndunum. Hann vænti þess að Ásgeir myndi gefa frá sér jákvæðari yfirlýsingu þegar hann hefði kynnt sér málið betur. Spyr hvort Norðurlönd kunni ekki hagfræði Ragnar Þór tók næstur undir þann málflutning að með frumvarpinu væri verið að færa réttarvernd leigjenda nær því sem tíðkaðist á Norðurlöndunum. Ummæli seðlabankastjóra væru að hans mati fullkomlega óábyrg. „Og er seðlabankastjóri að segja með sínum yfirlýsingum að stjórnvöld, til dæmis á Norðurlöndunum, Svíþjóð, Finnlandi, Skandinavíu, kunni ekki grundvallarhagfræði? Er það það sem seðlabankastjóri er að segja, raunverulega?“ Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, kallaði ummæli seðlabankastjóra um leigubremsuna „fullkomlega óábyrg“.Vísir/Anton Brink Ragnar spurði jafnframt hvernig andstaða Ásgeirs við verðstýringu samrýmdist vaxtastefnu Seðlabankans. „Er seðlabankastjóri að tala um að vera á móti verðstýringum? Hvað segir það um stýrivaxtahækkanir og stýrivexti almennt sem eru ekkert annað en verðstýring á því sem kostar að fá peninga lánaða?“ Hann sagðist hvorki skilja yfirlýsingarnar né mótþróann. „Ég skil það hjá stjórnarandstöðunni sem er á móti öllu sem við reynum að gera til þess að bæta stöðu þeirra sem höllum fæti standa í okkar samfélagi, öllu, einu og öllu.“ Ragnar hvatti þingmenn til að halda málinu áfram. „Þannig að ég hvet ykkur til þess að endurhugsa þetta og keyra þetta mál áfram og klára það.“ Dagur vill skoða langtímaáhrifin Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, vildi ljúka fyrstu umræðu og senda málið til nefndar. Hann sagði leigubremsu geta haft óæskileg áhrif til lengdar ef hún væri ekki tímabundin, en taldi hana við núverandi aðstæður geta gagnast leigumarkaðnum og baráttunni við verðbólgu. Dagur B. Eggertsson taldi leigubremsu geta gagnast við núverandi aðstæður en varaði við óæskilegum langtímaáhrifum ef hún væri ekki tímabundin.Vísir/Anton Brink Í frumvarpinu er lagt til að reglubundnar hækkanir húsaleigu á samningstíma verði takmarkaðar við hækkun vísitölu neysluverðs til verðtryggingar og að minnst tólf mánuðir líði á milli þeirra. Í greinargerðinni er ákvörðunin um að birta frumvarpið ekki í samráðsgátt skýrð með því að slík birting gæti hvatt til leiguverðshækkana áður en breytingarnar tækju gildi. Segir samanburðinn galinn Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, mótmælti fullyrðingu Ragnars um að stjórnarandstaðan væri á móti öllu sem ríkisstjórnin reyndi að gera til að bæta stöðu þeirra sem höllum fæti stæðu. „Það er náttúrulega með ólíkindum að koma hér upp og halda því fram hér í þessum ræðustól Alþingis að stjórnarandstaðan sé á móti öllu sem er að gera til þess að bæta hag og kjör almennings í landinu, öllu, ekki einhverju, öllu.“ Stefán Vagn Stefánsson kallaði samanburð Ragnars Þórs á stýrivöxtum og leigubremsu galinn.Vísir/Anton Brink Stefán sagði fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar leggja gríðarlegar byrðar og álögur á tekjulægsta fólkið. Stjórnarandstaðan hefði bent á það en ekki væri hlustað. „Er hlustað á seðlabankastjóra? Nei.“ Hann gagnrýndi jafnframt samanburð Ragnars á stýrivöxtum og leigubremsunni og sagði það vera „galið, virðulegur forseti, galið“ að leggja þetta að jöfnu. Segir ríkisstjórnina ekki hlusta á neinn Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist ekki hafa ætlað að taka þátt í umræðunni en ekki getað orða bundist eftir að Ragnar kallaði ummæli seðlabankastjóra óábyrg. Hann vísaði til ræðu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á ársfundi Seðlabankans 10. apríl 2025. Sigurður Örn Hilmarsson gagnrýndi viðbrögð Ragnars Þórs við orðum seðlabankastjóra og sagði ríkisstjórnina ekki hlusta á sérfræðinga.Vísir Að sögn Sigurðar hafði hún þar sagt efnislega að þegar ríkið gerði minna til að kveða niður verðbólgu þyrfti Seðlabankinn að gera meira. „Og núna sitjum við í súpunni með ríkisstjórn sem hlustar ekki á neinn. Sök sé að hún hlustar ekki á okkur í stjórnarandstöðunni en hún hlustar ekki á fjármálaráð, hún hlustar ekki á sérfræðinga fjármálaráðuneytisins og núna eru ummæli Seðlabankans dæmd óábyrg af hæstvirtum ráðherra.“
Seðlabankinn Alþingi Leigumarkaður Húsnæðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Sjá meira