Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Samúel Karl Ólason skrifar 15. maí 2026 14:19 Xi Jinping og Donald Trump í Kína í morgun. AP/Evan Vucci Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist ekki búinn að ákveða hvort hann ætli að ganga frá samningi um umfangsmikla vopnasölu til Taívan. Það er eftir að Xi Jinping, forseti Kína, lýsti yfir mótmælum gegn sölunni og hótaði því að til átaka gæti komið milli Bandaríkjanna og Kína vegna Tavían. „
Ég mun taka ákvörðun. En, þú veist, það síðasta sem við þurfum núna er stríð í fimmtán þúsund kílómetra fjarlægð,“ sagði Trump um vopnasöluna þegar hann ræddi við blaðamenn um borð í forsetaflugvélinni eftir að tveggja daga heimsókn hans til Kína lauk. Trump sagði að hann og Xi hefðu talað mikið um Taívan og sagði að Xi væri þeirrar skoðunar að Bandaríkjamenn mættu ekkert koma að því sem Taívanir „væru að gera“. „Hann er mjög mikið á móti því sem þeir eru að gera,“ sagði Trump um viðhorf Xi til Taívan. „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði. Það yrðu kröftug átök.“ Trump sagðist hafa hlustað á Xi en sagðist ekki hafa tekið neina ákvörðun eða ekki skuldbundið sig til neins. Hótaði átökum vegna Taívan Utanríkisráðuneyti Kína sagði frá því í gærmorgun að á um tveggja tíma fundi forsetanna hefði Xi varað Trump við því að til átaka gæti komið milli Bandaríkjanna og Kína, ef rangt yrði haldið á spöðunum varðandi Taívan. Xi notaði hugtakið um gildru Þúkýdídesar og sagði að ríkin þyrftu að komast hjá þeirri gildru. Þetta hugtak fjallar um þá hugmynd að þegar rísandi veldi ógnar stöðu annars stórveldis sé stríð líklegra en ekki. Sjá einnig: Varaði Trump við átökum vegna Taívan Ríkisstjórn Xi hefur lýst yfir mikilli óánægju með áðurnefnda vopnasölu, sem hefur verið metin á um ellefu milljarða dala og yrði umfangsmesta vopnasala Bandaríkjanna til Taívan í sögunni. Ríkisstjórn Trumps samþykkti söluna í desember en hefur ekki framkvæmt hana enn. Önnur enn stærri vopnasala hefur einnig verið til umræðu innan veggja þinghússins í Bandaríkjunum en hún virðist einnig hafa strandað í Hvíta húsinu. Segjast ætla að eignast Taívan og jafnvel með valdi Eins og frægt er gera Kínverjar tilkall til Taívan og hefur Xi heitið því að sameina Kína og Taívan og gera það með valdi ef svo þarf. Hann er sagður hafa gert það að markmiði sínu að ná völdum á Taívan og hefur hann sagt að það markmið megi ekki enda á höndum komandi kynslóða. Undanfarin ár hafa Kínverjar beitt Taívan sífellt meiri þrýstingi með því markmiði að grafa undan vörnum ríkisins. Herafli Kína hefur sömuleiðis gengist mikla nútímavæðingu og uppbyggingu en Xi er sagður hafa skipað forsvarsmönnum hersins að vera tilbúnir fyrir mögulega innrás í Taívan árið 2027. Það ár mun marka aldarafmæli kínverska hersins. Þá hefur Xi staðið í umfangsmiklum hreinsunum meðal æðstu herforingja Kína á undanförnum árum. Sjá einnig: Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Taívanar segjast sjálfstæðir og segjast ætla að verja frelsi sitt og lýðræði. Sjálfstæðissinnum hefur vaxið ásmegin í Taívan á undanförnum árum en Taívanar hafa aldrei lýst yfir formlegu sjálfstæði. Bandaríkin slitu formlegum tengslum við Taívan árið 1979, að kröfu Kínverja, en hafa þrátt fyrir það haldið umfangsmiklum óformlegum tengslum við ríkið og útvega Taívan meðal annars vopn. Bandaríkjamenn hafa um árabil haldið því loðnu hvort þeir myndu beita valdi til að verja Taívan. Sérfræðingar sem AP fréttaveitan ræddi við segja að viðræður Trumps og Xi um vopnasöluna hafi mögulega brotið gegn gömlum viðmiðum sem Ronald Reagan setti árið 1982 en þau mótuðu samskipti Bandaríkjanna við Taívan út frá „eitt Kína“ stefnu Bandaríkjamanna. Annað viðmið þeirra, af sex, segir að Bandaríkjamenn muni ekki ræða vopnasölu til Taívan við ráðamenn í Kína. Áhyggjur vegna Trumps Trump hefur aukið á áhyggjur fólks um að Bandaríkin myndu ekki koma Taívan til aðstoðar og hefur kallað eftir því að eyríkið verji mun meira til varnarmála. Hann hefur meðal annars stungið upp á að upphæðin fari í tíu prósent af landsframleiðslu, sem er mun meira en Bandaríkin og flest önnur ríki sem eru ekki í stríði gera. Þá meinaði Trump leiðtogum Taívan að ferðast til New York í fyrra af ótta við að það myndi reita Xi til reiði. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir samband Bandaríkjanna og Kína óbreytt. Í viðtali við NBC News í gær varaði hann Xi við því að reyna að taka Taívan með hervaldi. „Stefna okkar er óbreytt,“ sagði Rubio meðal annars. „Hún hefur verið nokkuð óbreytt gegnum margar ríkisstjórnir.“ Þá sagði hann einnig að viðræðurnar milli Trumps og Xi um vopnasöluna hefðu ekki verið fyrirferðarmiklar, þó Trump hefði sagt að Taívan hefði verið stór hluti umræðunnar.
Taívan Bandaríkin Kína Donald Trump Hernaður Tengdar fréttir Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mætir í dag til Kína þar sem hann mun á næstu dögum funda með Xi Jinping, forseta Kína. Líklegt er að viðskipti ríkjanna verði helsta umræðuefni forsetanna en þeir hafa að öðru leyti margt að tala um, eins og átökin í Mið-Austurlöndum, málefni Taívan og gervigreind, svo eitthvað sé nefnt. 13. maí 2026 10:56 Sendi Trump tóninn vegna Taívan Xi Jinping og Donald Trump, forsetar Kína og Bandaríkjanna, áttu langt símtal í gær þar sem þeir eru sagðir hafa rætt hin ýmsu málefni sem snúa að samskiptum ríkjanna. Meðal annars ræddu þeir stöðuna í Íran og í Úkraínu og væntanlega heimsókn Trumps til Kína í vor en forsetarnir virðast ósammála um helsta málefni viðræðnanna og tón þeirra. 5. febrúar 2026 10:06 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira
Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mætir í dag til Kína þar sem hann mun á næstu dögum funda með Xi Jinping, forseta Kína. Líklegt er að viðskipti ríkjanna verði helsta umræðuefni forsetanna en þeir hafa að öðru leyti margt að tala um, eins og átökin í Mið-Austurlöndum, málefni Taívan og gervigreind, svo eitthvað sé nefnt. 13. maí 2026 10:56
Sendi Trump tóninn vegna Taívan Xi Jinping og Donald Trump, forsetar Kína og Bandaríkjanna, áttu langt símtal í gær þar sem þeir eru sagðir hafa rætt hin ýmsu málefni sem snúa að samskiptum ríkjanna. Meðal annars ræddu þeir stöðuna í Íran og í Úkraínu og væntanlega heimsókn Trumps til Kína í vor en forsetarnir virðast ósammála um helsta málefni viðræðnanna og tón þeirra. 5. febrúar 2026 10:06