Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Birgir Olgeirsson skrifar 27. apríl 2026 11:59 Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum á næsta þingi en segir hendur sínar bundnar fyrir sumarið. Vísir/Ívar Fannar Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir ekki þurfa nýja ákvörðun af hennar hálfu vegna hvalveiða í sumar. Veiðarnar byggi á reglugerð sem Bjarni Benediktsson, þáverandi matvælaráðherra, setti fyrir árslok 2024 og nýrri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Hennar framtíðarsýn sé að draga úr og að lokum hætta hvalveiðum.
Hafrannsóknastofnun og NAMMCO ráðleggja að veiðar á langreyði árið 2026 verði ekki meiri en 150 dýr og að veiðar á hrefnu verði ekki meiri en 168 dýr. Það er 28 prósenta lækkun frá fyrri ráðgjöf í tilfelli langreyðar og 23 prósenta lækkun í tilfelli hrefnu. Ráðgjöfin var lækkuð um 20 prósent í varúðarskyni þar sem nýjustu talningar hafa ekki verið teknar inn í útreikning aflamarks. „Það er eiginlega bara þannig að það er í gildi reglugerð sem Bjarni Benediktsson, þáverandi matvælaráðherra, setti fyrir árslok 2024 sem felur í sér að heimildir til að veiða hval skuli byggja á ráðgjöf Hafró,“ segir Hanna Katrín. Hún segir ráðgjöf Hafró liggja fyrir og að reglugerðin ráði því hvernig staðið verði að veiðum í sumar. „Þannig að það þarf ekki neitt að koma til frá mér fyrir sumarið.“ Boðar breytingar á næsta þingi Hanna Katrín hefur hins vegar boðað breytingar á hvalveiðilögum á næsta þingi. Hún segir núgildandi lög vera barn síns tíma og að löngu sé orðið tímabært að endurskoða þau. Ráðherrann segist hafa í höndunum vandaða skýrslu sérfræðinga um lagaumgjörð hvalveiða og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. „Ég hef hug á að skoða það að draga úr þessum hvalveiðum en taka jafnframt fullt tillit til þessara fimm ára rúllandi eða endurnýjanlegu leyfa sem Bjarni Benediktsson gaf út.“ Hún segir stöðuna ekki ákjósanlega en að stjórnvöld verði að horfast í augu við þann veruleika sem við blasir. „Ef það er eitthvað sem við höfum lært á átökum hér um hvalveiðar síðustu ár þá er það að allar ákvarðanir þurfa að hvíla á sterkum lagalegum grunni.“ Vill sjá veiðarnar stöðvast til framtíðar Hanna Katrín segir sína framtíðarsýn vera að hvalveiðar verði stöðvaðar. „Ég myndi vilja sjá að það yrði dregið mikið úr hvalveiðum. Mín framtíðarsýn er sú að við stoppum þessar veiðar.“ Hún segir veiðarnar ekki sjálfbærar í víðari skilningi, þótt ráðgjöf Hafró fjalli um veiðiþol stofna. Hún vísar þar meðal annars til markaðsaðstæðna, átaka um veiðarnar og stöðu Íslands gagnvart umheiminum. „Það er ekki markaður fyrir þessar veiðar, það eru mikil átök og þetta er hlutur sem er barn síns tíma.“ Ráðherrann segir þó að fara þurfi vandlega yfir málið, enda snerti það atvinnufrelsi og réttindi þeirra sem hafa leyfi í dag. Ólík sjónarmið um vistkerfið Hanna Katrín segir einnig þurfa að taka tillit til sjónarmiða um áhrif hvala á aðra nytjastofna. Um það ríki þó ekki einhugur. „Það þarf að huga að þessum sjónarmiðum en þetta er auðvitað ekki einhliða. Það eru líka sjónarmið um það að hvalir séu mjög mikilvægir í þessari virðiskeðju í sjónum.“ Hún segir stjórnvöld munu líta til ráðgjafar Hafrannsóknastofnunar og annarra sérfræðinga við næstu skref. „Akkúrat núna, í ljósi þess hvernig málum hefur verið hagað undanfarin ár, þá þykir mér lykilatriði að allt sem við gerum hvíli á sterkum lagalegum grunni.“
Hvalveiðar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjávarútvegur Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira