Wolt kærir hótanir til lögreglu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 30. október 2026 15:10 Hótanirnar koma einungis frá nokkrum af þeim sex hundruð sem starfa hjá heimsendingarþjónustunni hér á landi. MIKA BAUMEISTER Samskiptastjóri Wolt á Íslandi segir starfsfólk heimsendingarþjónustunnar hafa orðið fyrir „ágengum ummælum“ af hálfu nokkurra Wolt-sendla. Nafnlausar hótanir hafa verið tilkynntar til lögreglu. Fundur sendla og forsvarsmanna var haldinn í vikunni. „
Við líðum það ekki og verður tekið á hótunum og áreitni í gegnum regluvörsluferli okkar, auk þess sem þær hafa verið tilkynntar til lögreglu.“ Christian Kamhaug, samskiptastjóri Wolt á Íslandi og í Noregi.Wolt Þetta kemur fram í svari Christian Kamhaug, samskiptastjóra Wolt á Íslandi og í Noregi, við fyrirspurn fréttastofu um fund Wolt-senda og forsvarsmanna fyrirtækjanna í vikunni. Hann tekur fram að langflestir af þeim rúmlega sex hundruð sendlum á Íslandi séu kurteisir og duglegir. „Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja þeim gott starfsumhverfi og góðar tekjur.“ Um það bil þrjátíu af sex hundruð mættir Tilefni fyrirspurnarinnar var fundur forsvarsmanna Wolt frá Finnlandi og Danmörku sem komu til Íslands í vikunni til þess að funda með Wolt-sendlum á Íslandi. Gheorghe Mihai Cacaliceanu, sem kallar sig talsmann Wolt-sendla, sagði við fréttastofu að flestir hefðu gengið út af fundinum þegar 45 mínútur voru liðnar og vildi hann meina að stjórnendur hefðu ekki hlustað á kröfur sendla á fundinum. „Fundurinn var krefjandi en mikilvægur og við munum halda samtalinu áfram. Við höldum slíka fundi með sendlum á öllum Evrópumörkuðum okkar ársfjórðungslega til að upplýsa sendla um breytingar og safna ábendingum frá þeim,“ segir Kamhaug aðspurður um hvernig fundurinn gekk. Þar sem enginn starfsmaður sé á Íslandi sem sinnir þessum málum hafi starfsmenn frá Danmörku og Finnlandi setið fundinn. Um það bil þrjátíu sendlar hafi mætt að þessu sinni að sögn Kamhaug, sem samsvarar frásögn Gheorghe sem sagði að um 25 hefðu mætt. Biðjast afsökunar „Um helmingur hópsins fór eftir 45 mínútur en hinn helmingurinn varð eftir til að ræða málin nánar í einkasamtölum, sem voru mjög uppbyggileg og gagnleg. Við erum nú með lista yfir þau mál sem komu upp á fundinum og munum skoða þau nánar,“ segir Kamhaug. Helsta vandamálið hérlendis sé ójafnvægi í framboði sendlanna og fjölda verkefna en það hafi fyrst komið upp í sumar. Þar af leiðandi séu færri verkefni á hvern og einn þar sem starfsemin hafi ekki vaxið jafnhratt og áætlað var. „Okkur einfaldlega mistókst í þetta sinn og við biðjumst afsökunar á því. Þetta getur haft áhrif á tekjur, einkum utan annatíma. Á annatímum vantar okkur enn sendla og tekjurnar eru góðar. Það er það sem við reyndum að útskýra á fundinum.“ Til að koma til móts við þetta er Wolt hætt að taka inn nýja sendla en fjarlægir þó ekki sendla úr kerfum sínum þar sem það fari gegn kjarna líkansins þeirra. Þá vonast forsvarsmenn fyrirtækisins eftir því að eftirspurnin aukist með eðlilegum hætti yfir vetrarmánuðina. „Við munum einnig auka eftirspurn með ýmsum markaðsaðgerðum á næstu vikum og mánuðum. Sendlar sem starfa með Wolt eru frjálsir að vinna hvenær sem þeir vilja og ef einhverjir kjósa að taka ekki að sér verkefni í mótmælaskyni er þeim það frjálst. Við vonum þó að hægt verði að leysa málið með samtali.“ Uppfært: Upphaflega var ritað að sendlar Wolt hefðu verið kærðir fyrir hótanir en að sögn Kamhaugs hafa aðeins nafnlausar hótanir borist og því hafi engir sendlar verið kærðir heldur aðeins hótanirnar.
Heimsendingarþjónusta Lögreglumál Kjaramál Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Liðið eins og glæpamanni á þriðjudag Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira