Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Sindri Sverrisson skrifar 1. nóvember 2026 18:18 Kai Havertz fagnar markinu sem reyndist tryggja Arsenal sigur. Getty/David Price Eftir fjórtán ára bið fögnuðu Englandsmeistarar Arsenal dísætum sigri gegn Liverpool á Anfield í dag, í 9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Kai Havertz skoraði sigurmarkið á 16. mínútu eftir rólegan upphafskafla, þegar gestirnir nýttu sér mislukkaða sendingu Alisson til Jérémy Jacquet á vallarhelmingi Liverpool. Arsenal þurfti þó að hafa fyrir markinu sem kom eftir fasta og frábæra fyrirgjöf Declan Rice frá hægri yfir á fjærstöng. Liverpool-menn svöruðu vel fyrir sig eftir þetta og gerðu sig sérstaklega líklega til að jafna metin í fyrri hálfleiknum. Í nokkrum tilvikum gerðu þeir tilkall til að fá vítaspyrnu og þá fékk Alexis Mac Allister frábært skallafæri til að jafna metin eftir fyrirgjöf Milos Kerkez en skallaði yfir. Áfram freistaði Liverpool þess að jafna metin í seinni hálfleik og átti Florian Wirtz meðal annars frábæra aukaspyrnu sem sveif yfir David Raya en small í þverslánni. Liðin fengu svo bæði fleiri færi og þegar leið að lokum leiksins tóku heimamenn frekari áhættu og sendu meðal annars Virgil van Dijk fram en tókst aldrei að finna leiðina í markið. Victor Munoz komst nálægt því í uppbótartíma þegar hann laumaði sér framhjá varnarmönnum og átti skalla, eftir fyrirgjöf frá Kostas Tsimikas, en Raya átti ekki í vandræðum með að verjast. Arsenal landaði því torsóttum sigri og fagnaði vel í leikslok. Liðið er nú með 24 af 27 stigum mögulegum, hefur aðeins fengið á sig fimm mörk á leiktíðinni og er með þriggja stiga forskot á Manchester City sem tapaði hefur tveimur leikjum í röð. Liverpool missti af tækifæri til að blanda sér í titilbaráttuna en er með 15 stig í 5. sæti. Enski boltinn Fótbolti Arsenal FC Liverpool FC