Upp­gjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Hilmar Smári fór mikinn í kvöld og var með 30 framlagsstig.
Hilmar Smári fór mikinn í kvöld og var með 30 framlagsstig. Pawel/Vísir

Stjörnumenn fögnuðu sínum fyrsta sigri í Bónusdeild karla í körfubolta í kvöld þegar liðið vann sex stiga sigur á ÍR-ingum í Garðabænum, 102-96. Stjörnuliðið hafði tapað fyrstu þremur leikjum sínum.

ÍR-ingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og náðu fjórtan stiga forskoti snemma í fyrsta leikhluta. Stjörnumenn tóku hins vegar við sér eftir leikhlé og náðu að minnka muninn niður í eitt stig áður en leikhlutanum lauk, 21-22.

Heimamenn héldu áfram að bæta í í öðrum leikhluta og náðu þá yfirhöndinni. Stjarnan vann leikhlutan 23-15 og leiddi 44-37 í hálfleik.

Í þriðja leikhluta bættu heimamenn enn frekar í og náðu mest 19 stiga forskoti. Sóknarleikur Stjörnunnar var öflugur en liðið skoraði 37 stig í leikhlutanum. Nojel Eastern fór fyrir heimamönnum og Bjarni Guðmann lét einnig vel að sér kveða. Montez Mathis reyndi að halda gestunum inni í leiknum og skoraði 13 stig. Stjarnan leiddi 81-63 fyrir lokaleikhlutann.

ÍR-ingar tóku við sér í fjórða leikhluta og tókst að minnka 18 stiga forskot Stjörnunnar niður í sjö stig. Þrátt fyrir góða endurkomu í þriðja leikhluta þá héldu Stjörnumenn sér alltaf í hæfilegri fjarlægð.

 Lokatölur 102-96 og heimamönnum tókst að sigla fyrsta sigri tímabilsins heim.

Atvik leiksins

Það hlýtur að vera viðsnúningur Stjörnunnar í fyrsta leikhluta.

Stjörnur og skúrkar

Nojel Imani var stigahæstur hjá Stjörnunni með 26 stig, 5 fráköst og 6 stoðsendingar auk þess að vera með 33 framlagsstig. Hilmar Smári Henningsson kom þar næstur með 24 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar og 30 framlagsstig.

Tómas Orri Hjálmarsson var stigahæstur hjá ÍR-ingum með 23 stig og 7 fráköst. Montez Mathis kom þar næstur með 22 stig, 4 fráköst og 8 stoðsendingar. 

Stemning og umgjörð

Það er alltaf góð stemning í Garðabænum og umgjörðin ávallt til fyrirmyndar.

Dómarar

Sigmundur Már Herbertsson, Sigurbaldur Frímannsson og Bergur Daði Ágústsson sáu um dómgæsluna í kvöld og stóðu sig með prýði.

Emil Barja, þjálfari Stjörnunnar.Vísir/Pawel Cieslikiewicz

„Maður er búinn að bíða eftir þessu“

Emil Barja, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með fyrsta sigur liðsins í Bónus deild karla í körfubolta þegar það lagði ÍR, 102–96. Hann sagði þó enn margt þurfa að bæta í leik liðsins.

„Hún er mjög góð, mjög gaman að vinna,“ sagði Emil um tilfinninguna eftir sigurinn. „Maður er búinn að bíða eftir þessu.“

Þrátt fyrir sigurinn taldi Emil frammistöðuna ekki þá bestu hjá liðinu á tímabilinu. Hann hafði kallað eftir betri varnarleik fyrir viðureignina og var ekki fyllilega sáttur við þann þátt leiksins.

„Ekki alveg nógu góð. Mér finnst hann svona ágætur í fyrri hálfleik,“ sagði Emil um vörnina.

Hann sagði liðið hafa varist vel á köflum en meðal annars leyft ÍR-ingum að taka sóknarfráköst og komast bak við vörnina.

„Við klárum ekki alveg vörnina okkar. En þú veist, það voru alveg jákvæðir punktar í vörninni okkar núna.“

Nojel Eastern skoraði 26 stig fyrir Stjörnuna og Emil var ánægður með hvernig hann hefði komið inn í liðið.

„Bara frábærlega. Þetta er líka bara fínn, bara mjög flottur strákur sko og svona jákvæður og lyftir öllu með sér sko.“

Emil sá framfarir í ákveðnum þáttum leiksins en lagði áherslu á að fyrsti sigurinn breytti engu um þá vinnu sem væri fram undan.

„Það voru hlutir sem við höfum verið að klúðra sem við erum að gera betur núna. En á meðan þá er alveg fullt af hlutum sem við getum lagað og gert betur.”

Hilmar Smári Henningsson reynir að komast framhjá Dani Koljanin.Vísir/Pawel

Dani Koljanin: „Slæmir kaflar kostuðu okkur sigurinn”

Dani Koljanin, leikmaður ÍR, sagði slæma kafla hafa reynst liðinu dýrkeypta í 102–96 tapi gegn Stjörnunni í Bónus deild karla í körfubolta. Þetta var þriðja tap ÍR í röð.

„Þetta var upp og niður allan leikinn. Slæmir kaflar kostuðu okkur sigurinn. Þegar þeir náðu stóru áhlaupi brugðumst við ekki rétt við og munurinn var orðinn of mikill til að vinna hann upp síðar.“

ÍR byrjaði leikinn vel en Dani sagði skotin hafa hætt að detta niður þrátt fyrir að liðið væri að fá svipuð færi og í upphafi.

„Við vorum einfaldlega að hitta úr skotunum okkar. Við fengum svipuð skot í öðrum leikhluta en hittum ekki. Ég klikkaði á þremur opnum skotum. Ef við hefðum hitt úr tveimur þeirra hefðu það verið sex stig og við hefðum enn verið með þægilega forystu. En það gerðist ekki og það vantaði skipulag í leik okkar stóran hluta leiksins.“

Dani sagði fjarveru Hákonar Arnar Hjálmarssonar einnig hafa haft mikil áhrif á leik ÍR.

„Okkur vantar mjög mikilvægan leikmann, Hákon, og það hafði líka mikil áhrif á þennan leik. Með honum erum við miklu betra lið“

Hann kvaðst ekki vita hversu lengi Hákon yrði frá vegna meiðsla en vonaðist til að hann gæti snúið aftur í næsta leik.

Þrátt fyrir tapið taldi Dani að ÍR gæti tekið ýmislegt jákvætt úr frammistöðunni í síðari hálfleik. Þar hefði liðið sýnt hvernig það ætti að spila.

„Við getum tekið jákvæða hluti úr þessum leik, sérstaklega úr síðari hálfleiknum. Hvernig við spiluðum, börðumst, lékum hratt og vorum ágengir á boltanum. Ég held að þannig eigum við að spila körfubolta.“

Hann lagði áherslu á að ÍR þyrfti að halda þessum ákafa í vörninni, jafnvel þótt andstæðingarnir næðu að skora úr erfiðum skotum.

„Við eigum að hlaupa, verjast af krafti og sætta okkur svo við niðurstöðuna. Ef þeir skjóta yfir okkur og hitta er það í lagi. Við þurfum bara að vera jafnákafir í vörninni og við vorum í síðari hálfleik.“

Stjörnumenn voru búnir að bíða lengi eftir þessum sigri.Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Nojel Eastern: „Ég elska liðsfélaga mína”

Nojel Imani Eastern var ánægður með að Stjarnan hefði landað sínum fyrsta sigri í Bónus deild karla í körfubolta þegar liðið lagði ÍR, 102–96. Eastern skoraði 26 stig í leiknum en sigurinn skipti hann mestu máli.

„Þetta var hálfljótt til að byrja með, en þegar við vorum búnir að vinna var ég sáttur. Ég þarf auðvitað að bæta mig og komast í betra form, en við náðum sigrinum.“

Stjörnumenn höfðu tapað fyrstu þremur leikjum sínum í deildinni og hann sagði því afar mikilvægt að komast á blað. Hann hefur mikla trú á liðinu og telur það geta blandað sér í titilbaráttuna.

„Þetta var gríðarlega mikilvægt. Við komum inn í leikinn með þrjú töp. Ég held að við séum með lið sem getur farið eins langt og við ætlum okkur, svo lengi sem við stöndum saman. Við þurftum að byrja einhvers staðar og þessi leikur var byrjunin. Í mars verðum við í baráttunni um titilinn.“

Þetta var aðeins annar leikur Nojel Imani Eastern í Stjörnutreyjunni og fór hann fögrum orðum um nýju liðsfélagana og sagði þá hafa auðveldað sér að koma inn í liðið.

„Ég elska liðsfélaga mína. Þeir eru orkumiklir, skemmtilegir, viðkunnanlegir og virkilega góðir í körfubolta. Það gerir mitt starf miklu auðveldara.“

Hann kvaðst jafnframt hafa fengið góðar móttökur á Íslandi og leggja sig fram við að kynnast bæði menningunni og tungumálinu.

„Þetta hefur verið frábært hingað til. Allir hafa tekið mér opnum örmum. Ég er að reyna að læra allt sem ég get um íslenska menningu og geri mitt besta til að læra tungumálið.“

„Ég er að reyna að læra og taka þátt í samfélaginu og fólkið mætir mér með sömu orku.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira