Hyrox stefnir á Ólympíuleikana Sindri Sverrisson skrifar 29. október 2026 17:15 Eitt af því sem keppendur í hyrox þurfa að gera er að bera sandpoka og taka framstig 100 metra. Getty/Fred Lee Hyrox þrekraunakeppnin gæti verið á leiðinni á Ólympíuleika og Ólympíumót fatlaðra áður en langt um líður. Stórt skref hefur verið stigið í þá átt.
Hyrox hefur nú hafið samstarf við Alþjóða þríþrautarsambandið sem felur í sér að „blandað hlaup“ (e. hybrid racing), það er að segja hlaupakeppni með þrekæfingum, verður viðurkennd grein undir hatti þríþrautarsambandsins. Greinin mun svo skiptast í þrjár ólíkar greinar sem allar eiga það sameiginlegt að keppendur þurfa að hlaupa vissa vegalengd en stoppa inn á milli til þess að klára ákveðnar æfingar. Í yfirlýsingu frá Hyrox og Alþjóða þríþrautarsambandinu segir að markmiðið sé að komast inn á Ólympíuleikana. Aðeins viðurkennd alþjóðleg íþróttasambönd, sem uppfylla öll skilyrði um lyfjaeftirlit og varnir gegn hagræðingu úrslita, geta komið greinum inn á Ólympíuleikana. „Allt frá upphafi var markmið okkar að byggja upp alþjóðlega íþrótt sem gæti unnið sér sess á stærsta íþróttasviði heims. Samstarfið við Alþjóða þríþrautarsambandið er risastórt skref í átt að þeirri framtíðarsýn. Blandað hlaup er ekki lengur aðeins alþjóðleg líkamsræktarhreyfing, hún er nú formlega á leiðinni á Ólympíuleikana,“ segir Christian Toetzke, annar stofnenda Hyrox. Undirgreinar „blandaðs hlaups“ verða þrjár eins og fyrr segir: „Fullnaðar-“, „hraða-“ og „ofur-blandað hlaup“ (e. ultimate, fast, ultra). „Fullnaðarhlaupið“ verður eins og hefðbundið hyrox sem skiptist í átta kílómetra hlaup með æfingum eftir hvern kílómetra. Þessar æfingar eru 1 km í skíðavél, 50 metra sleðapressa, 50 metra sleðatog, 80 metra burpees-stökk, 1 km róður, 200 metra ganga með ketilbjöllu, 100 metra framstig með sandpoka og 100 boltaköst í vegg. „Hraðahlaupið“ mun reyna enn meira á hraða og ákefð og „ofurhlaupið“ verður lengra og reynir enn meira á úthald.
Þríþraut Ólympíuleikar Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Skoruðu tvö síðustu mörkin og náðu jafntefli í Skógarselinu „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Cristiano Ronaldo með þrennu Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Víkingar láta Einar Guðna fara Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur Ótrúleg frumraun á Íslandi og heimsmetið var í hættu Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hyrox stefnir á Ólympíuleikana Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Sparkað í punginn á dómaranum Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir „Lið sem enginn vill mæta núna“ Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Fylkir kennir fjölmiðlum um og Magnús heitur í Kópavoginum Sjá meira