Upp­gjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg

Arnar Skúli Arnarsson skrifar
Valur heimsækir erfiðan útivöll á Sauðárkróki í dag.
Valur heimsækir erfiðan útivöll á Sauðárkróki í dag. Anton/Vísir

Valur vann Tindastól á útivelli en lokatölur voru 45-72 í leik sem var aldrei spennandi. 

Það var engin flugeldasýning þegar leikurinn hófst og bæði lið voru að klikka á opnum skotum og tapa boltum og sóknarleikur beggja liða var mjög stirður. Það voru samt Valskonur sem byrjuðu betur og tóku forystuna strax í upphafi og voru yfir allan fyrri hálfleikinn. 

Hjá Val voru þær Reshawna Rosie Stone, Alyssa Marie Cerino og Dzana Crnac sem leiddu Valsliðið í framlagi en hjá Tindastól voru Kolbrún María Ásgeirsdóttir og Inga Sólveig Sigurðardóttir einu með lífsmarki hjá Tindastól. Valur leiddi þægilega í hálfleik en staðan var 22-34.

Tindastóll byrjaði seinni hálfleikinn betur en þá tóku Valskonur á rás og kláruðu leikinn. Reshawna sullaði niður stigunum og var að finna liðsfélaga sína. Þóranna Hodge-Car, Sara Líf Boama og Bergdís Anna komu með gott framlag og breyttu stöðunni úr 24-34 í 28-54 þegar 3. leikhluti kláraðist. 4. leikhlutinn spilaðist í gegn og var aldrei spennandi en allir leikmenn beggja liða fengu að sjá gólfið. Öruggur sigur Vals var því staðreynd en lokatölur eins og áður segir 45-72.

Atvik leiksins

Spretturinn hjá Val í 3. leikhluta gerði út um leikinn og varð hann aldrei spennandi eftir það.

Stjörnur

Hjá Tindastól var Kolbrún með 17 stig og 10 fráköst og Inga Sólveig 12 stig og 7 fráköst.

Hjá Val var Reshawna með 14 stig og Dzana Crnac með 13 stig og Alyssa Marie með 12 stig en aðrar minna og það komu allir leikmenn liðsins með eitthvað að borðinu.

Skúrkar

Framlagið hjá argentísku leikmönnum Tindastóls var mjög lélegt í dag. Ana Paz og Macarena Vallina voru með 8 stig og það framlag kom þegar leikurinn var tapaður. Florencia Chagas var með 0 stig í kvöld á 30 mínútum. Hún skoraði 41 stig í seinasta leik.

Dómararnir

Mjög góðir í kvöld, ekki erfiður leikur að dæma.

Stemningin og umgjörð

Það var frítt á leikinn í kvöld og það hefði mátt vera betri mæting. Umgjörðin upp á 10 eins og alltaf í Síkinu.

Jamil Abiad þjálfari ValsAnton Brink/Vísir

Jamil: „Að vinna svona stórt er ennþá betra“

Jamil Abiad, þjálfari Vals, var ánægður með sigur í kvöld en vildi samt betri leik frá sínu liði.

„Við vorum góðar en við þurfum að vera betri. Við töpuðum of mörgum boltum í leiknum. Við erum að reyna að undirbúa okkur fyrir það sem gerist seinna á tímabilinu og í úrslitakeppninni. Allar possession eru mikilvægar og það er markmiðið okkar sem lið að gera það vel. Ég er mjög ánægður með orkuna og framlagið í dag,“ sagði Jamil.

Valskonur voru betri í seinni hálfleiknum í dag og kláruðu leikinn í þriðja leikhlutanum.

„Orkustigið var hærra eftir hálfleikinn. Ég var ánægður með orkuna í stelpunum. Mér fannst við vera með betri liðsvörn en í fyrri hálfleiknum, það var stærsta ástæðan fyrir muninum milli hálfleikja,“ sagði Jamil.

Jamil var gríðarlega ánægður með að vinna stórt í kvöld og geta notað liðið sitt.

„Að vinna er gott. Að vinna svona stórt er ennþá betra. Ég er ánægður að geta sett bekkinn inn á í dag og hvatt þær af bekknum og hjálpað þeim á vellinum. Ég er mjög ánægður með þær,“ sagði Jamil.

Israel Martin er þjálfari Tindastólskvenna.Vísir/Jón Gautur

Israel Martin: „Við þurfum að finna ánægju í að spila saman“

Israel Martin, þjálfari Tindastóls, var ekki ánægður með leikinn í heild sinni en var sáttur með varnarleikinn.

„Augljóslega þegar þú skorar 45 stig er sóknin ekki að virka vel. En ég er ánægður með vörnina okkar og að halda þeim í 72 stigum sem á að vera nóg á venjulegum degi til að ná í sigur. Við þurfum að finna ánægju í að spila saman. Þegar einhver klikkar á skotum eða við fáum ekki villur þá pirrumst við auðveldlega og reynum að gera þetta sjálfir og aðeins 11 stoðsendingar eru alltof lítið. Við þurfum að vinna í að fá meira flæði sóknarlega og finna bestu möguleikana sem eru í boði,“ sagði Israel Martin.

Sóknarleikurinn var mjög slakur hjá Tindastóli í kvöld og það var lítið að frétta allan leikinn.

„Eins og ég segi, við erum ekki með flæði og erum bara ekki að njóta þess að spila saman. Við þurfum bara að finna það. Við þurfum að halda áfram að æfa og treysta hver á annan. Við erum að fá opin skot en erum ekki að nýta þau. En við megum ekki pirrast yfir þessu. Fyrir mér var það jákvæða í dag að þrátt fyrir að við værum ekki að skora vorum við að vinna vel varnarlega. Sóknin mun koma, sérstaklega andlega, og við munum vinna í því,“ sagði Israel Martin.

Dzana Crnac lék vel með Valsliðinu í kvöld.Vísir/Anton

Dzana: Varnarlega vorum við miklum betri en við höfum verið

Dzana Crnac, leikmaður Vals, átti góðan leik í kvöld og var sátt að leikslokum.

„Þetta var geggjað. En það er samt hellingur sem við þurfum að laga. Við vorum með svolítið mörg turnover. Sóknin okkar þarf að smella aðeins betur saman og varnarlega vorum við miklum betri en við höfum verið og þetta er eitthvað sem við getum byggt á,“ sagði Dzana Crnac.

Dzana var ánægð með framlagið frá liðinu í seinni hálfleik þar sem Valur keyrði yfir Tindastól.

„Þetta er bara vilji. Við höfum lent í leikjum eins og á móti Ármanni sem við töpum í seinni hálfleik. Við viljum byrja sterkt. Við viljum byrja sterkt fyrstu 5 mínúturnar í seinni hálfleik. Þetta er vilji til að sýna að við séum betri en við höfum sýnt,“ sagði Dzana.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira