Erlent

Ó­væntur sigur Lula en Bol­sonaro vill ó­gilda úr­slitin

Smári Jökull Jónsson skrifar
Lula fagnar með varaforsetanum Geraldo Alckmin.
Lula fagnar með varaforsetanum Geraldo Alckmin. Vísir/EPA

Sitjandi forseti Brasilíu, Lula da Silva, hafði betur gegn hægri manninum Flavio Bolsonaro í forsetakosningunum í Brasilíu í gær. Er þetta í fyrsta sinn sem frambjóðandi nær að snúa við úrslitum frá því í fyrri umferð kosninganna en Bolsonaro segir úrslitin óútskýranleg.

Samkvæmt hæstarétti Brasilíu hlaut Lula 51,79 prósent atkvæða en Bolsonaro 48,21 prósent og munaði meira en fjórum milljónum atkvæða samtals á frambjóðendunum tveimur.

Sigur Lula er óvæntur því Bolsonaro hlaut flest atkvæði í fyrri umferðinni þann 4. október og hafði verið með forystu samkvæmt skoðanakönnunum síðustu vikurnar. Er þetta í fyrsta skipti sem frambjóðanda sem tapaði fyrri umferð kosninga tekst að snúa úrslitunum sér í vil í síðari umferðinni.

„Lengi lifi lýðræðið“

Í ræðu þegar úrslitin voru ljós þakkaði Lula stuðningsmönnum sínum sem hann sagði hafa bjargað lýðræðinu í landinu. Þá nefndi hann sérstaklega ungt fólk, konur og kennara sem hann sagði vera á bak við sigurinn sem og verkamenn sem barist hafa fyrir styttri vinnuviku.

„Lengi lifi lýðræðið. Mitt fjórða kjörtímabil verður það besta af öllum forsetum í sögu þessa lands. Þetta verður það sem ég mun hlusta mest á brasilíska fólkið.“

Lula var forseti Brasilíu á árunum 2003 til 2011 og var svo kjörinn aftur árið 2023. Þar á milli var Jair Bolsonaro, faðir Flavio, forseti landsins frá árinu 2019 til 2023.

Kosningateymi beggja frambjóðenda óskuðu eftir lengri kjörfundi

Flavio Bolsonaro var augljóslega ósáttur þegar hann ræddi við fjölmiðla fyrir utan heimili sitt þegar úrslitin voru ljós í nótt. Hann sagði að skoða þyrfti ýmislegt áður en hægt væri að viðurkenna úrslitin.

„Það er ómögulegt að viðurkenna þessi úrslit,“ sagði Bolsonaro um leið og hann kallaði eftir því að kosningarnar yrðu ógildar þar sem „reglum leiksins hefði verið breytt.“

Flavio Bolsonaro var ekki ánægður með niðurstöðu kosninganna.Vísir/EPA

Þar vísar hann í ákvörðun hæstaréttar að framlengja kjörfund um tvær klukkustundir sem samkvæmt frétt BBC var óvenjuleg ákvörðun en kosningateymi beggja frambjóðendanna höfðu óskað eftir að kjördeildir skyldu vera opnar lengur en auglýst var. 

Teymi Lula vegna þess að kjósendur í Sao Paulo og Bahia hefðu ekki komist að kjörstað þar sem almenningssamgöngur lágu niðri en teymi Bolsonaro vegna veðuraðstæðna á ákveðnum svæðum.

Gríðarlegur mannfjöldi fagnaði sigri Lula á götum Sao Paulo.Vísir/EPA

Kosningar í Brasilíu hafa aldrei áður verið ógildar og greinandi segir í frétt BBC að ólíklegt sé að svo verði nú. 

Hæstaréttardómarinn Cristiano Zanin, í fjarveru forseta hæstaréttar, tók ákvörðun um lengri opnun kjördeilda en hann er fyrrum lögmaður Lula. Forsetinn, Kassio Nunes Marques, sem var skipaður af Jair Bolsonaro, hefur hins vegar staðfest að ákvörðunin var lögleg.

Á myndum frá Sao Paulo má sjá gríðarlegan mannfjölda á götum úti fagna sigri Lula en kjörsókn í kosningunum var mikil og aldrei hefur þeim sem heima sátu fækkað jafn mikið á milli fyrri og seinni umferðar forsetakosninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×